Morgunblaðið - 12.11.1985, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR12. NÓVEMBER1985
47
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11.30
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Hús Borgarbóka-
safns búiö
undir málningu
Velvakandi,
Vinsamlegast birtu eftirfarandi
athugasemd
Víkverji skrifar nýlega um hús
Borgarbókasafns við Þingholts-
stræti og dapurlegt útlit hússins,
sem hann slær föstu að stafi af
venjulegu íslensku kæruleysi og
sem byggi á bannsettri tuggunni:
Flýtur á meðan ekki sekkur.
Satt er það að ekki lítur þetta
fallega hús vel út þessa dagana.
Það er nefnilega verið að búa það
undir málningu. Fyrir nokkrum
árum var borið á húsið fylliefni
um leið og málað var og átti að
binda betur málninguna. En það
tókst ekki betur en svo að það
hefur aldrei bundist vel þessu
gamia múrverki og fer málningin
af í flögum. Hefur húsið að undan-
förnu verið bankað að utan til að
lausu flögurnar fari og tekur tíma
að vinna það undir málningu, því
við viljum endilega að þetta gamla
hús líti vel út. Ef það yrði ekki
hreinsað núna heldur bara skellt
á það málningu, yrði það flekkótt
og pollar í múrverkinu. Vonandi
fær Víkverji að sjá húsið fallegt
og vel málað i vor — ef hann bara
hefur þolinmæði meðan unnið er
að því. Borgarbókasafn vill nefni-
lega að venju fara eins vel með
opinbert fé og kostur er og því láta
búa húsið almennilega undir máln-
inguna, svo að hún endist.
Skrifað 4. nóv.
Elín Pálmadóttir,
stjórnarformaður Borgarbókasafns.
Inga Dagmar harmar að borgarstjóri skuli ekki hafa séð sér fært að vera viöstaddur „borgarstjórnarfund“ unglinga
sem haldinn var á dögunum.
Málefnum unglinga sé gaumur gefinn
Kæri Velvakandi.
Með þessu bréfi vil ég beina
orðum mínum til borgarstjóra
okkar, Davíðs Oddssonar.
Fyrir nokkru var haldinn borg-
arstjórnarfundur unglinganna og
héldu félagsstöðvar í Reykjavík og
Seljaskóli þennan fund. Fundurinn
fékk mjög litla athygli og myndir
frá honum voru birtar á innsíðum
dagblaðanna.
En mig langar til að minnast
allrar vinnunnar sem var að baki
þessum fundi. Haldnir voru stans-
lausir fundir hjá stjórnum og ráð-
um til að ræða málið fram og til
baka. Farið var í helgarferð austur
í Ölfus til að semja ræðurnar.
Þegar því var lokið voru allir orðn-
ir löngu gráhærðir en höfðu þó
mikla ánægju af. Að lokum áttum
við öll frábærar og vel gerðar
ræður. Valdir voru 2—3 krakkar úr
hverjum hópi til að flytja þær.
Fóru þeir síðan á ræðunámskeið
hjáJCVík.
Slðan rann upp fundardagurinn
og mættum við öll til leiks, vel
æfð og uppábúin. En þegar fundur-
inn var hafinn kom í ljós að Davíð
Oddsson borgarstjóri var ekki
mættur. Ég get ekki lýst því hvað
ég varð sár, eftir allt þetta strit
og erfiði.
En ekki er allt búið enn. Fundur-
inn gekk frábærlega vel og fóru
allir saman út að borða til að halda
upp á daginn. Þaðan var haldið á
unglingaball í Broadway, en þang-
að höfðum við boðið öllum borgar-
fulltrúum. Ekki lét neinn þó sjá
sig og vorum við búin að missa
alla von. En Davíð hefur heyrt bæn
okkar og kom ásamt tveimur öðr-
um borgarfulltrúum. En þeir fóru
hljóðlega, og voru flestir af hópn-
um að dansa. Því miður mátti
Davíð ekki vera að því að dvelja
lengi og hvarf hljóðlega. Um það
leyti fréttum við af honum.
Ég skora því hér með á þig Davíð
að gefa málum okkar unglinga
meiri gaum.
Inga Dagmar Karlsdóttir,
13ára, Seljaskóla.
Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS
„Vedur víða um heim“
Sigurður spyr:
Mér þætti fróðlegt að vita
hvers vegna veður víðsvegar um
heiminn er ekki gefið upp í
Morgunblaðinu á hverjum degi?
Fyrst að blaðið býður þessa þjón-
ustu eitt allra blaða, því þá ekki
að bjóða hana á hverjum degi?
Að síðustu langar mig að koma
því að, að ekki sakaði þó að
veðurfregnir væru birtar oftar í
Dagbók.
Svar: „Veður víða um heim“
birtist þriðjudaga til laugardaga
á erlendum fréttasíðum blaðsins.
Því miður kemur stöku sinnum
fyrir, að yfirlitið fellur niður og
eru ástæðurnar fyrst og fremst
þær, að yfirlitið hefur ekki borist
frá AP í tíma eða það hefur orðið
að víkja vegna rúmleysis á er-
lendu fréttasíðunum.
— Ritstj.
fHtfgmi*
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖOINNI
OG Á KASTRUP-
FLUGVELLI
ÁS-TENGI
Allar geröir.
Tengið aldrei stál-í-stál.
XlLL
StlyFÖaiuigjMiF
Vesturgötu 16, sími 13280
A
EN H.F,
BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRÐI, SÍMI 651000.
ENSKU
SKÁPARNIR
FYRIR:
• Vinnustaði
• íþróttahús
• Umferðar-
miðstöðvar
• Flugvellí o.fl.
ARGUSIO
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2, SÍMI 24260.