Morgunblaðið - 12.11.1985, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR12. NÓVEMBER1985
Dagskrá um heilbrigðisfræðslu
og heilsuvemd í skólum:
- Betra er heilt
en vel gróið
„BETRA ER heilt en vel gróid“ er
yfirskrift dagskrár sem staðið hefur
frá 4. nóvember sl. um heilbrigðis-
fræðslu og heilsuvernd í skólum, en
dagskrá þessari lýkur í dag, þriðju-
dag. Hver dagur ber sína yfirskrift
og fyrsta daginn, mánudag, var til
að mynda rætt um framkvæmd heil-
brigðisfræðslu og heilsuverndar í
skólum. Á þriðjudag var fjallað
um mikilvægi skólaumhverfisins
og einnig slysahættu og eftirlit
með skólahúsnæði. Á miðvikudag
voru til umræðu vinnustöður og
skólahúsgögn og fimmtudagur bar
yfirskriftina Líkamsrækt - upp-
spretta námsáhuga og heilsu?
Síðastliðinn fimmtudag litu blaða-
maður og ljósmyndari Morgun-
blaðsins við i kennslurniðstöð
Námsgagnastofnunar að Lauga-
vegi 166, en þar fór dagskráin
fram. Um 100 manns voru mættir
til að hlýða á erindi Atla Dag-
bjartssonar læknis um vöxt ís-
lenskra barna og erindi Gíms
Sæmundsen læknis um líkams-
þroska íslenskra barna. Ennfrem-
ur var spjallað um ýmsar hug-
myndir í íþróttakennslu í skólum
og töluðu þau Páll ólafsson
íþróttakennari, Kristín Guð-
mundsdóttir sjúkraþjálfari og
Jónína Benediktsdóttir íþrótta-
fræðingur um þau mál.
‘ *■'
Morgunblaðið/Júlíus.
Páll Olafsson íþróttakennarí lét alla viðstadda standa upp og teygja úr sér ádur en hann hóf flutning sinn á eríndi
um hugmyndir í íþróttakennslu.
Elín Viðarsdóttir og
Astvaldur Arthursson
nemendur íþróttakennara-
' skólans á Laugarvatni:
Kennarar ættu
aö hafa
frjálsari hendur
MEÐAL þeirra sem mættu á dag-
skrána í Námsgagnastofnun á
fimmtudaginn voru nemendur í
íþróttakennaraskólanum á Laugar-
vatni. Við tókum tvo nemendur tali,
, bau Elínu Viðarsdóttur og Ástvald
Arthursson, en þau eru á seinna árí
í skólanum.
„Ég er ekkert sérstaklega hrifin
af hinu hefðbundna formi í
íþróttakennslu í grunnskólum,“
sagði Elín. „Mér fannst mjög
gaman að sjá þær nýjungar sem
Jónína Benediktsdóttir sýndi
hérna áðan, er nokkrar ungar
stúlkur sýndu ýmiskonar æfingar
og dans. Hið mikilvægasta er að
geta einbeitt sér sem best að hverj-
um nemanda."
„Það er vitað mál, að leikfimi-
kennslan í skólum landsins er
ákaflega mismunandi," sagði Ást-
''valdur. „Meiri áherslu ætti að
leggja á hreyfiþroska en gert er,
Morgunbladid/Július
Elín Viðarsdóttir
annars finnst mér að íþróttakenn-
arar ættu að hafa frjálsari hendur
með kennsluna því þannig ná þeir
betri árangri.“
Þau Elín og Ástvaldur kváðu
aðstöðuna í íþróttakennaraskólan-
um að mörgu leyti bágborna og
sögðu þau að æfingakennslu mætti
að ósekju auka til muna. Þá kváðu
■
Morgunblaðið/Július
Ástvaidur Arthursson
þau mikinn mun vera á þeim
íþróttakennurum sem numið hefðu
erlendis og þeim sem lært hefðu
eingöngu hér á landi og hefðu þau
bæði í hyggju að halda á erlenda
grund til frekara framhaldsnáms,
að náminu í íþróttakennaraskólan-
um á Laugarvatni loknu.
Jón Guðmundsson einn
skipuleggjenda dagskrárinnan
Augu manna að
opnast fyrir
mikilvægi
forvarnarstarfs
„ÞESSI dagskrá á að vekja fólk til
umhugsunar um heilbrigðisfræðslu
og heilsuvernd í skólum, en kennar-
ar hafa séð þess merki að andlegt
ójafnvægi barna og námsörðugleika
má stundum rekja til óregluiegra
svefnvenja og matarvenja," sagði
Jón Guðmundsson, forstöðumaður
Kennslumiðstöðvar Námsgagna-
stofnunar, er blaðamaður Morgun-
blaðsins ræddi við hann sl. fimmtu-
dag, en Jón er einn þeirra sem
undirbúið hafa dagskrána og skipu-
lagt hana.
„Við höfum reynt að fá aðila úr
ólíkum starfsgreinum til að flytja
erindi hérna og fólk sem fjallað
getur um þessi málefni af þekk-
ingu. Augu manna hafa verið að
opnast fyrir mikilvægi forvarnar-
starfs til að stemma stigu við
algengustu menningarsjúkdómum
eins og hjarta- og æðasjúkdómum,
krabbameini, slysum, geðrænum
sjúkdómum, slit- og gigtarsjúk-
dómum og tannsjúkdómum, en
Morgunblaðið/Július
Jón Guðmundsson forstöðumaður
Kennslumiðstöðvar Námsgagna-
stofnunar.
tæplega helmingur ríkisútgjalda
fer til heilbrigðis- og tryggingar-
mála. Umræða um heilbrigðis-
fræð
hefur ekki farið hátt á undan-
förnum árum en megintilgangur
þessarar dagskrár er, eins og ég
gat um áðan, að vekja athygli á
þessum mikilvæga málaflokki,“
sagði Jón Guðmundsson að end-
ingu.
Betri er tafla í munni en hósti í húsi: Þegar nefið stíflast
f nepjunni og helaumur hálsinn ætlar þig lifandi að
drepa - fáðu þér Bentasil. Þessar mögnuðu hálstöflur
innihalda blöndu náttúrulegra bragðefna úr sígildum lækn-
ingajurtum.
Bentasjl mýkir hálsinn, hreinsar burt stíflur og hressir
þig við.Töflumar eru bragðgóðar, stórar og fljótvirkar.
Þú sýgur þær í rólegheitunum án þess að skemma tennum-
ar. Bentasil er að sjálfsögðu sykurlaust.
Nýtt og betrumbætt bragð,
tegundir