Morgunblaðið - 21.11.1985, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 21.11.1985, Qupperneq 1
80SIÐUR B STOFNAÐ1913 264. tbl. 72. árg.________________________________FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1985_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Leiðtogafundur Reagans og Gorbachevs í Genf: Fundir í gærkvöldi og aftur í morgun Ronald Reagan, Banda- ríkjaforseti (t.h.), og Mikhail Gorbachev, for- maður Kommúnista- flokks Sovétríkjanna, teygja sig yfir fundar- borðið og takast í hendur í upphafi viðræðna leið- toganna í Genf í gær. Bandaríkjamenn voru gestgjafar fyrri viðræðu- daginn, en fundirnir fóru í gær fram í sovézka sendiráðinu í Genf. Sameiginleg athöfn í Genf í dag Gorbachev boðið til Bandaríkjanna Genf, 20. nóvember. Frí AP og Önnu Bjarnadóttur, fréttarilara Morftunblaósinn. LEIÐTOGAR Bandaríkjanna og Sovétríkjanna ákváðu í kvöld, miðvikudags- kvöld, að koma fram saman í stuttri athöfn í alþjóðafundarsetrinu í Genf á fimmtudagsmorgun. Larry Speakes, talsmaður Ronalds Reagan, skýrði fréttamönnum frá þessu skömmu fyrir miðnstti að staðartíma í Genf. Hann sagði að leiðtogarnir myndu ekki svara spurningum en vildi ekki segja hvað myndi eiga sér stað við athöfnina. Formlegum fundum leiðtoganna lauk án niðurstöðu, en embættismenn unnu í nótt að gerð sameiginlegrar yfirlýsingar Gorbachev hafði boðað blaða- mannafund á fimmtudagsmorgun á sama tíma. Hvað verður með þann fund er ekki vitað hér í Genf í kvöld. Gorbachev á að fara frá borginni um hádegið samkvæmt dagskrá fundarins en Reagan á að fara klukkan 14. Hann flýgur til Brussel þar sem hann mun greina bandalagsmönnum Bandaríkjanna í Norður-Atlantshafsbandalaginu frá fundi sínum með leiðtoga Sov- étríkjanna. Sovézkur embættismaður í Genf og sendifulltrúar í Prag sögðu að Gorbachev héldi frá Genf til Prag þar sem hann mundi skýra leið- togum Varsjárbandalagsríkjanna frá viðræðum þeirra Reagans. Leiðtogar stórveldanna og ráð- gjafar þeirra ræddu alþjóðamál á fundum sínum í Genf á miðviku- dag og Speakes sagði eftir fundinn að framför hefði orðið á honum, samkomulag hefði náðst um ýmsa hluti.en frekari viðræðna væri þörf áður en hægt væri að greina frá útkomu hans. Reagan og Gor- bachev ræddust við einslega í einn og hálfan tíma eftir að formlegum viðræðum þeirra lauk. Á sama Bonner til Rómar 3. des. Newton, Massachusetts, 20. nóvember. AP. YELENA Bonner, eiginkona sovézka andófsmannsins Andrei Sakharov, sagói í símtali við dótt- ur sína og tengdason í Bandaríkj- unum að hún héldi 2. desember næstkomandi til Rómaborgar. Frú Bonner tjáði dóttur sinni í símtalinu að hún hefði skrifað undir samkomulag um að ræða ekki við fjölmiðla meðan hún dvelur á Vesturlöndum. Jafnframt sagði Yelena Sakharov hefði dregið til baka úrsögn sína úr sovézku vísinda- akademíunni eftir að konu hans var veitt leyfi til að leita sér lækninga á Vesturlöndum. Frú Bonner fékk nýlega leyfi, eftir langa baráttu, til að leita sér lækninga á Vesturlöndum. Hún fer í ítarlega augnskoðun í Rómaborg og heldur þaðan til Bandaríkjanna í hjartaaðgerð. tíma ráðfærðu utanríkisráðherrar þeirra og aðrir ráðgjafar um ýms mál, sem rædd voru á leiðtoga- fundinum, en niðurstaða fékkst ekki í. Þegar Reagan yfirgaf fund- arstaðinn var enn ekki fullgengið frá öllum málum og fundir ráð- gjafa héldu áfram. Ýmsir fréttamenn töldu að fund- urinn hefði tekist vel þar sem tónninn í Sovétmönnum breyttist þegar á fundinn leið. Þeir drógu úr fullyrðingum um nauðsyn sam- komulags um vigbúnaðarmál og fyrirhugað geimvarnarkerfi Bandaríkjamanna en bentu þess í stað á að það væri skref í rétta átt að leiðtogarnir hefðu hist og fundurinn væri mikilvægur sem ný byrjun á samskiptum stórveld- anna. Bandaríkjamenn hömruðu á þessu áður en leiðtogafundurinn hófst og sögðu að í Genf þyrfti að leggja grundvöll að betri sam- skiptum stórveldanna í framtíð- inni. Fréttamenn frá austantjalds- löndunum sögðu í kvöld að það hefði verið mjög mikilvægt fyrir Sovétmenn að Reagan tók Gor- bachev sem jafningja og Sovétrík- in hefðu þar með fengið viðurkenn- ingu sem hitt stórveldið í heimin- um. Leiðtogarnir og eiginkonur þeirra þóttu einkar létt á brún og afslöppuð í móttöku sem Kurt Furgler, forseti Sviss, hélt fyrir þau áður en kvöldverðarboð Reag- an-hjónanna fyrir Gorbach- ev-hjónin og þátttakendur í leið- togafundinum hófst. Þeir höfðu orð á því að fréttamönnum lægi of mikið á að fá upplýsingar um fundinn og Gorbachev sagði að þeir hefðu enn ekki lokið störfum. Starfsmenn þeirra reyndu að fá niðurstöðu í mál fundarins á meðan þeir snæddu kvöldverð og hringdu í þá í kvöldverðarboðið. Utanríkisráðherrar þeirra greindu þeim frá niðurstöðum starfs- manna, leiðtogarnir ræddu þær í fimmtán mínútur í návist ráðgjafa sinna á bókasafni dvalarstaðar Reagan-hjónanna og ákváðu síðan að koma fram saman, tókust í hendur og Gorbachev-hjónin kvöddu. Gorbachev staðfesti að honum hefði verið boðið til Banda- ríkjanna, en sagði að koma yrði í ljós hvort af þeirri för yrði og þá hvenær. Sjá einnig bls. 30 og 31. Smiðshöggið rekið yfir sftrónuhræru? Genf, 20. nóvember, frá Önnu Bjarnadóttur, fréttarítara Morjfunblaóeins. GORBACHEV-hjónin mættu í kvöldverð hjá Reagan-hjónunum í snjókomu á miðvikudagkvöld. Reagan-hjónin tóku á móti þeim í heimkeyrslunni að dvalarstað þeirra og leiðtogahjón stórveldanna heilsuðust eins og gamlir kunningjar. Ronald Regan og Mikail Gorbachev höfðu enn ekki tekið loka- ákvarðanir varðandi leiðtogafundinn fyrir boðið og búist var við að ráðgjafar þeirra myndu jafnvel ræða við þá um málefni fundarins, Larry Speakes, talsmaður Reagans, sagði að smiðshöggið yrði kannski rekið „milli súpunnar og hnetanna". Hvorugt var á matseðlinum. Humarhræra, kjúklingaréttur, jólasalatsalat, ostahræra með avokado og heit sitrónuhræra með berjasósu var borin fram og þrjár víntegunir drukknar með. Kvöldverðarboðið hjá Gorbac- hev-hjónunum á þriðjudagskvöld- ið þykir hafa tekist vel. Samræð- urnar þar voru hversdagslegs eðl- is. Matseðillinn í boði sovésku hjónanna var ekki birtur opin- berlega en vitað er að það var ekki boðið upp á vodka. Eitt af helstu baráttumálum Gorbachevs er að minnka drykkju í Sovétríkjunum og hann sýndi gott fordæmi í Genf. Hjónin buðu þó upp á hvít- og rauðvín frá Georgíu með matnum. Samstöðuleiðtogi: Fékk heila- blóðfall við réttarhöld Varsjá, 20. nóvember. AP. ANTONI Lenkiewicz, einn af leiðtogum Samstöðu, hinna óháðu verkalýðsfélaga í Póllandi, hné niður við réttarhöld. Fékk hann heilablóðfall og var fluttur í sjúkrahús. Lenkiewicz er gefið að sök að hafa æst til uppþota, skemmt lögreglubíl og sýnt mótþróa við handtöku. Réttar- höld i máli hans stóðu allan þriðjudag og fram á kvöld, en þeim var frestað þegar hann fékk heilablóðfall. Kona Lenkiewicz hefur ekki fengið að heimsækja mann sinn í sjúkrahús. Hann var lagður inn á sérstakt lögreglusjúkra- hús, sem innanríkisráðuneytið rekur. Bróðir Lenkiewicz, Tadeusz, og námsmaður við Lublin- háskólann, Bogdan Giermek, voru dæmdir í gær í hálfs annars árs fangelsi fyrir að sýna mótþróa við handtöku og fyrir að vinna tjón á eignum lögreglunnar, eins og það var orðað. Lenkiewicz-bræðurnir og Giermek voru handteknir eftir handalögmál við lögreglu- menn eftir kvöldmessu í Wroc- lawll.nóvember. AP/Símamynd Raisa Gorbachev stingur bréfi þeirra Nancy Reagan í málmhylki, sem múrað var inn í hornstein nýs safnahúss Rauða krossins í Genf. í bréf- inu láta leiðtogafrúrnar í Ijós þá von að mannkynið muni eiga friðsam- lega framtíð. Nancy fylgist með er Raisa setur skilaboðin í hólkinn, sem fulltrúi Rauða krossins heldur á. AP/Simamynd
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.