Morgunblaðið - 21.11.1985, Síða 2
2
MORGUNBLADID, FIMMTUDAGUR21. NÓVEMBER1985
Morgunblaðið/RAX
Hávær mótmœli atvinnubílstjóra
UM miðjan dag í gær heyrðist mikiö flaut í miðborg
Reykjavíkur og varð ekkert lát á í langan tíma. Sendi-
bflar og vörubflar fjölmenntu í miðborginni og bflstjór-
ar þeirra þeyttu bflflauturnar til að mótmæla miklum
hækkunum á bensíni og þungaskatti. Var mótælunum
beint að stjórnvöldum og stjórnmálamönnum fyrst
og fremst. Þingfundir stóðu yfir á Alþingi og varð
nokkur röskun á þingstörfum. Um síðir stöðvuðu
lögreglumenn akstur bflanna inn í Kirkjustrætið og
rufu þar með hringinn, sem bflarnir höfðu myndað í
miðborginni. Hér má sjá lögreglumenn vísa vörubfl
frá Kirkjustæti.
Iðnaðarbankanum neitað um
heimild til að hækka vexti
— 5 % munur á raunvöxtum óverðtryggðra og verðtryggðra lána
SEÐLABANKINN heimilaði ekki Iðnaðarbanka íslands að hækka vexti á
óverðtryggðum lánum, eins bankinn hafði farið fram á. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins samþykkti stjórn Seðlabankans aðeins hækkun á víxilvöxt-
um í Búnaðarbankanum, og einnig voru vextir á afurðalánum í Bandaríkja-
dollurum lækkaðir úr 9,75% í 9,50%. þetta er í annað sinn á 10 dögum sem
Iðnaðarbankanum er neitað um að hækka vexti.
Ragnar Önundarson, banka-
stjóri Iðnaðarbankans, sagði að
farið hefði verið fram á að hækka
vexti á óverðtryggðum lánum,
þannig að þau bæru sömu raun-
vexti og verðtryggð lán. Sótt var
um 5% hækkun: „Við gerðum ráð
fyrir því að Seðlabankinn hækkaði
vexti á óverðtryggðum innlánum.
þ.e. á almennum sparisjóðsbók-
um.“ Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hækkuðu þessir inn-
lánsvextir ekki.
Ragnar önundarson sagði einn-
ig: „Húsbyggjendur þurfa að borga
5% hærri raunvexti en atvinnu-
rekendur þessa daganna. Þennan
mismun teljum við ástæðulausan
og órökstuddan og viljum fá að
jafnan hann, en það hefur ekki
fengist."
1 þessu sambandi er vert að taka
fram að flest þeirra lána sem hús-
byggjendur fá hjá bönkum og líf-
eyrissjóðum eru verðtryggð. Raun-
vextir þessara lána hafa verið um
3,6% að meðaltaii síðustu sex ár,
eins og kemur fram í frétt á bls.
B-l.
0
Stefán Thors skipaður
í stöðu skipulagsstjóra
INNLENT
ALEXANDER Stefánsson, félags-
málaráðherra, hefur skipað Stefán
Thors arkitekt í stöðu skipulags-
stjóra ríkisins frá og með 1. desem-
ber næstkomandi.
Stefán Thors er fæddur 24. júní
Prófkjör sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík
PRÓFKJÖR sjálfstæðismanna vegna borgarstjórnarkosninganna í
Reykjavík fer fram á sunnudag og mánudag. Allir félagsbundnir sjálf-
stæðismenn í höfuðborginni, sem þar eru búsettir og náð hafa 16 ára
aldri prófkjörsdagana, 24. og 25. nóvember, hafa atkvæðisrétt. Jafn-
framt geta þeir kosið í prófkjörinu, sem verða orðnir 20 ára, þegar
kosið verður til borgarstjórnar, 31. maí 1986 og undirritað hafa inntöku-
beiðni í sjálfstæðisfélag í Reykjavfk fyrir lok kjörfundar. Verða inntöku-
beiðnir á kjörstöðum.
f prófkjörinu raða kjósendur
frambjóðendum á framboðslist-
ann. Kjósa skal fæst átta og flest
tólf frambjóðendur. Skal það
gert með því að setja tölustaf
fyrir framan nöfn frambjóðenda
í þeirri röð, sem óskað er að þeir
skipi á endanlegum framboðs-
lista. Tala 1 skal sett framan við
nafn þess, sem óskað er að skipi
fyrsta sæti, talan 2 við nafn þess,
sem óskað er að skipi það sæti
og síðan koll af kolli. Atkvæði
eru talin með þeim hætti, að sá
hlýtur fyrsta sæti, er fær flest
atkvæði í það, annað sæti, sem
hlýtur flest atkvæði í fyrsta og
annað sæti, þriðja sæti, sem hlýt-
ur flest atkvæði í fyrsta til þriðja
sæti og svo framvegis.
Kjósendur greiða atkvæði hver
í sínu hverfi. Kjörstaðir eru í
Lækjarhvammi á Hótel Sögu,
Valhöll, Hraunbæ 102B og menn-
ingarmiðstöðinni við Gerðuberg
frá kl. 10 til 20 á sunnudaginn,
en í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á
mánudaginn frá kl. 14 til 21 fyrir
öll kjörhverfi.
1949. Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík vor-
ið 1969 og stundaði síðan nám við
Arkitektaskólann í Kaupmanna-
höfn og lauk þaðan prófi árið 1976
með sérnámi í skipulagsfræðum.
Að loknu námi starfaði Stefán við
Skipulag ríkisins til ársins 1979.
Hann var forstöðumaður Skipu-
lagsstofu Austurlands á Egilsstöð-
um frá 1979 til 1981 og hefur síðan
rekið sjálfstæða arkitektastofu í
Reykjavík. Stefán er kvæntur
Guðrúnu Gunnarsdóttur vefara og
textílhönnuði og eiga þau tvö bðrn.
Stefán Thors
Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskips:
„Viljum ekki
vera varaskeifa“
Eimskip dró tilboðshugmyndir sín-
ar til baka hjá Útvegsbankanum
„ÞESSAR BREYTTU aðstæður eru þær að nú standa yflr viðræður við aðra
aðila og við viljum ekki vera varaskeifa í þessu máli,“ sagði Hörður Sigur-
gestsson forstjóri Eimskipafélags íslands er blaðamaður Morgunblaðsins
spurði hann hvaða breyttu aðstæður hefðu valdið því að Eimskipafélag ís-
lands dró með bréfi til stjórnar Útvegsbankans í gær til baka hugmyndir
sínar að viðræðugrundvelli við bankann og Hafskip um hugsanlega yfirtöku
Eimskipafélagsins á íslandssiglingum Hafskips. í bréfinu var greint frá því
að vegna breyttra kringumstæðna hefði Eimskipafélagið ákveðið að draga
fyrrgreinda hugmynd til baka. Jafnframt var greint frá því að Eimskipafélag-
ið væri reiðubúið að taka upp að nýju viðræður um þetta mál, ef Útvegs-
bankinn óskaði þess.
„Ennfremur hefur það umrót
sem skapast hefur, síðan við lögð-
um þetta fram, gert það að verkum
að við vildum draga þetta til baka,
því okkur var ekki jafnljóst og
áður, hvað verið væri að kaupa,"
sagði Hörður, og bætti við að
stjórnendur Eimskipafélagsins
væru ekki lengur sannfærðir um
að samstaða gæti náðst með aðil-
um um að ljúka málinu.
Ragnar Kjartansson stjórnar-
formaður Hafskips sagði í gær að
sér kæmi ekki á óvart að Eimskip
hefði dregið til baka hugmyndir
sínar að viðræðugrundvelli við
Útvegsbankann, því síðasti um-
ræðugrundvöllur Eimskips hefði
alls ekki verið aðgengilegur fyrir
Útvegsbankann.
Lárus Jónsson bankastjóri Út-
vegsbankans sagði að þeir í Út-
vegsbankanum litu þannig á, að
ekki væri endanlega búið að ljúka
neinu, þó að þetta bréf hefði borist
frá Eimskip. Ef Útvegsbankinn
vildi, þá væru stjórnendur Eim-
skips reiðubúnir að hefja viðræður
ánýjan leik.
Vatnsblöndun í húsi Hitaveitu Reykjavíkur við Grensásveg.
Tilraunir með blöndun
vatns frá Nesjavöllum
STARFSMENN Hitaveitu Reykjavíkur eru þessa dagana að gera til-
raunir með blöndun upphitaðs vatns frá Nesjavöllum saman við jarð-
hitavatnið sem notað er í Reykjavík í dag. Vatnið er flutt á tankbflum
að húsi Hitaveitunnar á Grensásvegi þar sem tilraunin fer fram.
Markmiðið er að sjá hvaða áhrif það hefur á vatnið, leiðslur og fleira
þegar þessar tvær tegundir blandast saman.
Einar Gunnlaugsson jarðefna- hæfilega og yrði það leitt þannig
fræðingur hjáHitaveitunni sagði til Reykjavíkur og væntanlega
í samtali við Morgunblaðið að blandað saman við það vatn sem
Nesjavellir væru háhitasvæði og fyrir væri á kerfinu.
ekki hægt að setja slíkt vatn inn Vatninu frá Nesjavöllum er
á kerfið, það væri ónothæft til blandað saman við hitaveitu-
þess. Hugsanleg virkjun þar vatnið í rörum og með því er
myndi byggjast á því að nota ætlunin að sjá áhrif blöndunnar
gufuna til að hita kalt vatn á rör, tanka og ýmsa fleiri hluti.
Um 500 grömm af hassi gerð upptæk:
Efnið flutt inn
með Eyrarfossi
FÍKNIEFNADEILD lögreglunnar
lagði í gærdag hald á um 500 grömm
af hassi við húsrannsókn í Reykja-
vík. Tveir menn stóðu að innflutningi
efnisins, og mun annar þeirra, sem
er skipverji á Eyrarfossi, hafa flutt
efnið inn með skipinu í lok október
síðastliðins.
Vitneskja lá fyrir um þátt
mannanna tveggja í innflutningi á
700 til 800 grömmum af hassi og
var gerð leit í Eyrarfossi í gær,
þar sem grunur lék á að efnið hefði
verið flutt inn í þessari ferð skips-
ins. Leitin í skipinu bar ekki
árangur en við húsrannsókn hjá
mönnunum fundust hins vegar um
500 grömm af efninu og kom þá í
ljós að skipverjinn hafði flutt
hassið inn í lok október. Hluti af
efninu hafði verið seldur. Unnið
er að frekari rannsókn málsins
hjá fíkniefnadeild lögreglunnar.