Morgunblaðið - 21.11.1985, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985
3
Jólalesbók
Eins og undanfarin ár raun jóla-
lesbók barnanna koma út með jóla-
blaði Morgunblaðsins.
Börn og unglingar eru hvattir
til að senda lesbókinni efni sem
fyrst. Reynt verður að birta sem
mest af efni frá börnum og
unglingum og stefnt að því að
hafa það sem fjölbreytilegast
eftir því sem rúm leyfir.
Sendið jólalesbók barnanna
því frumsamið efni, sögur, ljóð,
barnanna
gátur, fræðsluefni, fréttir, hug-
leiðingar um jólaboðskapinn,
skrýtlur og hvaðeina sem ykkur
dettur í hug.
Valið verður úr þvi efni sem
berst og birt í blaðinu. Efnið
þarf að berast fyrir 7. des. nk.
Utanáskriftin er:
Jólalesbók barnanna,
c/o Morgunblaðið,
Aðalstræti 6,
101 Reykjavík.
Morgunblaöið/Júlíus
Lögreglu- og slökkviliðsmenn hafa náð bifreiðastjóranum út úr bifreiðinni,
en til þess þurfti sérstakar klippur, sem slökkviliðið ræður yfir.
Á slysadeild
eftir árekstur
HARÐUR árekstur varð á mótum
Dugguvogar og Elliðavogar um hádeg-
isbilið í gær, en þar lentu saman
sendiferðabifreið og fólksbifreið.
Ökumaður sendibifreiðarinnar slas-
aðist talsvert og var fluttur á slysa-
dcild. Báðar bifreiðirnar skemmdust
mikið og varð að flytja þær burtu af
slysstað með krönum.
JNNLENTV
Talsvert var um árekstra og
umferðaróhöpp í Reykjavík í gær
og að sögn lögreglu er nú sérstök
ástæða til að brýna fyrir fólki að
sýna varkárni í umferðinni, enda
fer nú skammdegið í hönd.
Lækjarbrekka bað
um greiðslustöðvun
VEITINGAHÚSIÐ Lækjarbrekka við
Bankastræti í Reykjavík hefur farið
fram á greiðslustöðvun.
Að sögn Simonar Kjærnested
endurskoðanda bað fyrirtækið um
greiðslustöðvun í tvo mánuði, frá
31. október til 31. desember vegna
greiðsluerfiðleika.
manninn
Karnabær skapar fötin
Opið á laugardag frá kl.
10—16 eftir hádegi í öllum verzlunum
okkar í gamla miöbænum
KARNABÆR
Austurstræti 22 — Laugavegi 66 — Laugavegi 30 — Glæsibæ.
Sími frá skiptiborði 45800.
Umboðsmenn um land allt.