Morgunblaðið - 21.11.1985, Side 15

Morgunblaðið - 21.11.1985, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985 15 Hver er hlutur iðnaðar í atvinnustarfsemi f Rvík? — eftir Gunnar S. Björnsson Sennilega gera fáir Reykvíking- ar sér grein fyrir því hve iðnaður er stór þáttur í atvinnustarfsemi í borginni. A árinu 1983 voru unnin 51.700 heilsársstörf hjá fyrirtækj- um sem skráð eru í Reykjavík. Af þessum tölum eru 5.275 starfandi hjá samgöngu- og vöruflutninga- fyrirtækjum ásamt Pósti og síma. 31 þúsund manns eru í verslun- ar- og þjónustustarfsemi. I iðnaði eru starfandi 13.419 og í sjávarút- vegi, veiði og vinnslu, 1.449. Af þessum tölum má sjá hve iðnaður- inn skipar stóran sess í atvinnu- starfsemi hér í Reykjavík eða rúm 25% af heildarvinnuafli. Ljóst er að á næstu árum kemur iðnaður- inn til með að eiga langstærstan þátt í framleiðslustarfsemi innan Reykjavíkur. Sá vöxtur, sem verð- ur að koma til ef Reykjavík á ekki á næstu árum að verða láglauna- svæði, er fyrst og fremst innan iðnaðarins. Ef litið er aðeins nánar á iðnað- inn, eins og hann skiptist nú, er Ijóst að innan vörugreina iðnaðar eru matvæla- og drykkjarvöruiðn- aður og pappírsiðnaður lang- stærstir eða með um 1.500-1.800 manns hvert. Auk þess er nú einn þáttur iðnaðar mjög vaxandi og verður vonandi svo áfram, en það er ýmiss konar rafeindatækni og vinnsla, bæði í tækja- og hug- búnaður á því sviði. Annar sá þáttur iðnaðar sem hvað mest hefur kveðið að í Reykjavík er byggingar- og verk- takastarfsemi, en í þessum geira voru skráð 4.854 heilsársstörf á árinu 1983. Þessi stóri hópur var að sjálfsögðu ekki allur vinnandi hér í Reykjavík því mörg eru þau verkefni, sem verktakar í bygg- ingariðnaði hafa fengist við á undanförnum árum, enda hafa fyrirtæki í þessari starfsemi vaxið mjög á síðustu árum, sem sést best á því að þau eru nú fullfær um að takast á við stórfram- kvæmdir eins og virkjanir eða Nýr konsert- fiygiii vígður í Sel- fosskirkju Selfossi, 17. nóvember. NÝR konsertflygill var i dag tekinn í notkun í Selfoss- kirkju. Flygillinn er í eigu safnaðarins og var keyptur með stuðningi bæjarsjóðs. Af þessu tilefni héldu þeir tón- leika í kirkjunni Jónas Ingi- mundarson og Kristinn Sig- mundsson. Það var Glúmur Gylfason organisti og stjórnandi kirkjukórs Selfosskirkju sem bauð gesti velkomna til tón- leikanna. Jónas Ingimundarson lék í upphafi píanóverk en síðan söng Kristinn Sigmundsson nokkur lög við undirleik Jón- asar. Þeim félögum var mjög vel tekið af gestum sem nær fylltu bekki kirkjunnar og voru kallaðir fram aftur og aftur í lokin. Nýi konsertflygillinn er af Schimmel-gerð og bætir mjög vel alla aðstöðu til tón- leikahalds. Hið nýja safnað- arheimili kirkjunnar býður upp á mjög góða aðstöðu fyrir tónlistarfólk, jafnt kóra sem hljóðfæraleikara. Sig. Jóns. álíka verkefni. Þó nú sé nokkur lægð sjáanleg framundan í bygg- ingar- og verktakastarfsemi er ljóst að ef rétt er á haldið er fyrir hendi mjög stórt verkefni í formi viðhalds og endurnýjunar á öllu því húsnæði sem fyrir er hér í Reykjavík. Sem dæmi í þessu efni má nefna að Reykvíkingar áttu á árinu 1984 34 þúsund íbúðir og voru því þá 2,6 ibúar í hverri íbúð að meðaltali, hver íbúi hafði 47 fermetra til umráða eða samtals 41.833 þús. fermetra. Eg held að það þurfi því engan að undra þótt eitthvað dragi saman í nýbygging- um á næstu árum. Auk þessa íbúð- arhúsnæðis hefur ýmiss konar atvinnurekstur á að skipa húsnæði undir sína starfsemi sem nemur 2.318 þús fermetrum. Af þessum tölum má sjá að talsverðan mann- afla þarf til að halda þessu hús- næði í því horfi að vel fari. Með hliðsjón af mikilvægi iðnaðar fyrir Reykjavík á næstu árum væri ekki úr vegi að skoða aðeins með hvaða hætti þeir, sem stjórna borginni á hverjum tíma, geta komið að sem mestu liði við uppbyggingu á nýj- um iðnaðartækifærum. Slíkt getur gerst í því að leyfa atvinnufyrirtækjum, sem eru að byggja yfir starfsemi sína, að dreifa greiðslum á gatnagerðar- gjöldum eins og gert hefur verið nú síðustu ár. Einnig væri hugsanlegt að byggja upp einhvers konar iðn- garða eins og einstöku sveitarfélög hafa farið útí. Ég held þó að það sem helst gæti þar komið að gagni Gunnar S. Björnsson „Sá vöxtur, sem verður að koma til ef Reykjavík á ekki á næstu árum að verða láglaunasvæði, er fyrst og fremst innan iðnaðarins.“ væri stofnun einhvers konar Iðn- þróunarsjóðs með svipuðu sniði og gert hefur verið á mörgum stöðum á landinu. Þessi sjóður hefði það hlutverk að leggja til áhættufjár- magn ef um væri að ræða nýjar framleiðsluhugmyndir um ein- hverja þá vöruflokka, sem sköpuðu gjaldeyri í einhverri mynd, en við þurfum sérstaklega að huga að þeim þætti í atvinnustarfsemi okkar. Vel mætti einnig hugsa sér að Reykjavíkurborg hefði sinn iðnfulltrúa á sama hátt og lands- fjórðungarnir. Þessi aðili gæti verið fyrirtækjum til aðstoðar í - ýmsum málum. t.d. sem milli- göngumaður í samskiptamálefn- um iðnaðar og borgar o.fl. Þessir þættir gætu mjög átt rétt á sér, sem nýir þættir í grósku- miklu starfi á vegum Reykjavíkur- borgar, ekki hvað síst gæti Iðn- þróunarsjóður ýtt verulega undir vöxt og viðgang iðnaðar í Reykja- vík á næstu árum. Höfundur er framkvæmdastjóri Meistarasambands bygginga- manna PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA 24. OG 25. NÓV. 1985 VEGNA BORGARSTJÓRNARKOSNINGA í REYKJAVÍK1986 VILHJÁLMUR Þ.VILHJÁLMSSON SÆTI Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi, hefur víðtæka reynslu í meðferð borgarmála og glögga þekkingu á hagsmunamálum Reykvíkinga. Hann hefur í borgarstjórn Reykjavíkur unnið ötullega að stefnumálum Sjálfstæðisflokksins. LÁTUM VERKIN TALA Tryggjum Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni 2. sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins Símanúmer stuðningsmanna að Suðurlandsbraut 14,3. hæð eru 81017 og 81047 VAL ÞITT NÚ SKIPTIR MÁLI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.