Morgunblaðið - 21.11.1985, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985
19
Tryggjum Vilhjálmi Þ.
Viihjálmssyni öruggt
sæti í borgarstjórn
— eftirGísla
Halldórsson
Þegar vinstri meirihlutinn réð
ríkjum í Reykjavík fór margt úr-
skeiðis í borgarmálum. Enginn
einn málaflokkur leið þá svo sem
skipulagsmálin. Fáu var komið í
framkvæmd vegna sundrungar
flokkanna sem mynduðu meiri-
hlutann. Frægt varð punktakerfið,
sem allir áttu að uppfylla, ef þeir
áttu að fá úthlutað lóð fyrir íbúð-
arhúsabyggingu. En þrátt fyrir
þetta einstaka kerfi var lítið um
úthlutun lóða, þar sem eftirspurn-
in var ávallt mun meiri en fram-
boðið. Ekkert eitt mál átti jafn
mikinn þátt í að fella vinstri meiri-
hlutann og seinagangur á úthlutun
lóða fyrir ibúðarhús.
Fulltrúar sjálfstæðismanna lof-
uðu að afnema þetta kerfi ef meiri-
hluti ynnist, og hver og einn mundi
geta fengið lóð, sem þess óskaði
og þyrfti á því að halda.
Eftir stórsigur Sjálfstæðis-
manna var því forysta flokksins
vandi á höndum, að velja dugandi
og víðsýnan starfsmann, sem for-
mann skipulagsnefndar.
Einhugur varð um, að velja
Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson sem
formann nefndarinnar. Það hefur
sýnt sig, að þar var vel valið því
undir forystu Vilhjálms hefur
verið unnið þrekvirki á sviði skipu-
lagsmála í borginni. f því starfi
hefur borgarstjórinn og borgar-
stjórnarmeirihlutinn stutt hann
dyggilega.
Eins og menn muna var langt
komið að skipuleggja íbúðarsvæði
við Rauðavatn, en svæðið liggur í
yfir 100 m hæð yfir sjávarmáli og
þar við bætist að hluti þess er
mikið sprungusvæði, sem eftir er
að rannsaka mun betur, áður en
hægt er að huga að byggingar-
framkvæmdum.
Þá hafði Sjálfstæðisflokkurinn
lýst því yfir að ekki yrði byggt á
þessu svæði ef flokkurinn næði
meirihluta í borgarstjórn. Engar
lóðir voru því fyrir hendi til út-
hlutunar þegar Sjálfstæðismenn
tóku við stjórn borgarinnar að
nýjufyrir3% ári.
Hinum nýja formanni var því
mikill vandi á höndum, ef leysa
ætti skipulagsmálin á skjótan hátt
fyrir borgarbúa. En langan tíma
tekur að skipuleggja heil hverfi
oggera lóðir byggingarhæfar.
Hitablásarar
ffyrir gas
ogolíu
Skeljungsbúöin
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125
Fyrir einstakan áhuga og dugn-
að Vilhjálms, svo og samstöðu
flokksins, tókst að skipuleggja nýtt
íbúðarsvæði á einum af okkar fal-
legustu stöðum — Grafarholti við
Grafarvog — á undraskömmum
tíma, byggja götur og úthluta lóð-
um í það stórum áfanga að hið
illræmda punktakerfi var úr sög-
unni og allir borgarbúar gátu
fengið byggingarlóðir eftir óskum
og þörfum hvers og eins. Þar með
var skömmtun á þessum gæðum
borgarinnar úr sögunni.
En það er ekki aðeins skipulagið
í Grafarvogi, sem hefur verið drif-
ið áfram af dugnaði, festu og með
hagsmuni borgaranna að leiðar-
ljósi. En fátt grípur eins víða inn
í hagsmuni borgaranna og skipu-
lag borgarlandsins.
Á þessu kjörtímabili hefur
skipulagsnefndin látið skipuleggja
„Ekkert eitt málefni átti
jafn mikinn þátt í aö
fella vinstri meirihlut-
ann og seinagangur á
úthlutun lóða fyrir íbúar-
hús. Fulltrúar sjálfstæö-
ismanna lofuöu aö af-
nema þetta kerfi ef
meirihluti ynnist, og
hver og einn mundi geta
fengiö lóö, sem óskað
og þyrfti á því aö halda.“
stórt íbúðarhverfi við Skúlagötu,
en það á eftir að styrkja okkar
gamla borgarhluta og gefa honum
nýtt líf.
Gísli Halldórsson
Þá hefur gamli miðbærinn verið
endurskipulagður, og tillögur um
það lagðar fram, þar sem hinni
gangandi umferð verður tryggð
betri aðstaða en áður. Mun það án
efa verða til þess að efla verslun
og viðskipti um leið og það mun
gefa miðbænum nýtt líf og frjáls-
ara yfirbragð.
Sérstakar göngugötur eru
áformaðar og vistgötur byggðar.
Nýr miðbær hefur verið skipulagð-
ur við Kringlumýrarbraut og er
þegar verið að reisa þar stærsta
verslunarhús landsins. Þar verður
íbúðum, atvinnuhúsnæði og menn-
ingarsetrum blandað saman,
þannig að á daginn verður þarna
iðandi athafnalíf fyrir þann borg-
arhluta, en á kvöldin geta íbúarnir
fylgst með fögrum listum.
Að öllum þessum skipulagsmál-
um hefur Vilhjálmur starfað af
víðsýni og alhug í þágu borgar-
anna. En skipulagið snertir nú
meir en áður hvern einasta þegn
í borginni, enda lætur hann sig það
miklu skipta hvernig til tekst.
Nú er stefnt að því að ljúka
aðalskipulagi Reykjavíkur á næsta
ári, það verður því aðeins gert með
því að tryggja öruggan meirihluta
sjálfstæðismanna í borgarstjórn
undir forystu Davíðs Oddssonar
borgarstjóra. Tryggjun einnig að
hann hafi sér við hlið samhenta
starfsmenn. Með því að tryggja að
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson nái
öruggu sæti í hönd komandi próf-
kjörs, tryggjum við honum dug-
mikinn og víðsýnan skipulags-
mann, sem vill og getur haldið
hinu umfangsmikia skipulags-
starfi áfram.
Höfundur er arkitekt og fyrrum
forseti borgarstjórnar Reykjaríkur.
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA í REYKJAVÍK
DAGANA 24. OG 25. NÓV. 1985
JMrf
m
$
/
GUTTORMUR P. EINARSSON
forstjóri
Tryggjwn athafnamanninum Guttormi P. Einarssyni fullgilt sœti í
borgarstjórn með góðri kosningu í prófkjörinu um helgina.
Við teljum að reynsla hans og fyrri störfí atvinnulífinu viðhaldi þeirri
breidd sem jafnan hefur einkennt fulltrúa Sjálfstœðisflokksins.
Stuðningsmenn
Kosningaskrifstofa: Ármúla 21. Sími 82888.
fi verRs^^-
-—--TZ-TíTrP EinafSÞOVV——