Morgunblaðið - 21.11.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985
25
Morgunblaðið/Árni Sæbcrg
Þessi tvö báru hitann og þungann af bekkjarkeppninni í mælskulist. Soffla
Gísladóttir og Jónas Fr. Jónsson.
„Kennarar eiga
harma að hefna“
Stutt spjall við Jónas Fr. Jónsson forseta
NFVÍ og Soffíu Gísladóttur form.
málfundafélagsins
„Hápunkturinn á þessum vetri verður kennarakeppnin sem verður fyrsti
viðburðurinn í nýja Verzlunarskólanura. Þá mætast lið nemenda og kennara
í 3ja sinn,“ sagði formaður Málfundafélags Verzlunarskólans í stuttu spjalli
við blm. Formaðurinn heitir Soffía Gísladóttir og ásamt forseta nemendafé-
lagsins, Jónasi Fr. Jónssyni, sat hún fyrir svörum í fundarherbergi einu góðu.
„Bindin
gerðu
jafnvel
útslagið“
Sigurvegararnir
teknir tali
Sigurvegararnir í 6T voru um-
kringdir velunnurum eftir fræki-
legan sigur á 3D. Blaðamanni tókst
þó að króa þá af í 5 mínútur, síðan
átti nefnilega að halda rækilega
upp á þetta.
„Undirbúningsvinna okkar skil-
aði sér fullkomlega," sagði Andri
Þór Guðmundsson og lagaði bind-
ishnútinn.
„Við ákváðum fyrir 2 mánuðum
að skrá okkur í þessa keppni og
höfum eiginlega lítið hugsað um
annað síðan. Kennarar okkar hafa
reynst okkur ómetanlega hvað
varðar frí og slíkt og viljum við
nota tækifærið og þakka þeim
kærlega fyrir liðlegheitin," bætti
Heimir Jónsson við.
Af hverju eruð þið svona fínir?
Hefur það mikið að segja til dæmis
aðhafabindi?
„í þessari keppni skiptu bindin
miklu máli. Gerðu jafnvel útslag-
ið,“ segir Finnur. „Við vissum að
allavega % af dómnefndinni voru
bindissinnar. Jónas forseti er allt-
af með bindi og ég hef fyrir satt
að Soffía sé með almennri bindis-
skyldu."
Hvað er erfiðast við ræðukeppn-
ina?
„Mér finnst erfiðast að byrja
ræðuna og enda,“ svaraði Andri
og hinir voru greinilega á sama
máli.
„Annars er þett bara leikrit allt
saman. Reglurnar eru mjög þving-
andi og manni finnst mjög erfitt
að vera eðlilegur. Ég er á því að 1
eða 2 brandarar séu nauðsynlegir
í hverja ræðu. Sé sannfæringar-
krafturinn einnig til staðar, þá er
leikurinn unninn," sagði Heimir
og þannig var nú það.
Hvernig fór í fyrstu tvö skiptin
„Við nemendur áttum ekki í telj-
andi erfiðleikum með þessa menn
sem gera allt hvað þeir geta á degi
hverjum til að fræða okkur með
mismunandi árangri. Ég reikna nú
með þeim sterkum í þessa keppni
því þeir eiga harma að hefna.
Kannski fáum við Þorvarð skóla-
stjóra til að vera oddadómara,“
svaraði Jónas.
Málfundafélag Verzlunarskólans
er 77 ára gamalt og að sögn þeirra
Soffíu og Jónasar er Framtíðin,
málfundafélag Menntaskólans í
Reykjavík, eina félagið sem er eldra.
„Þó gæti verið að nemendur
Menntaskólans á Akureyri hefðu
eitthvað við þessa fullyrðingu að
athuga. Ég er ekki alveg með á
hreinu hve þeirra félag er gamalt,“
svaraði Jónas.
Hvaö hefur veriö fleira á dagskrá
í vetur?
„Við féllum út í fyrstu umferð
MORFÍS-keppninnar, vanmátum
lið Isfirðinga og súpum nú seyðið
af því. Hér hafa verið ræðunám-
skeið og málfundir og þeir eiga eftir
að verða fleiri og loks er ekki úr
vegi að minnast á keppni sem kall-
ast Mælskasti maður skólans," sagði
Soffía.
Nú flytur skólinn í nýtt húsnæói
um áramót. Eruö þiö ekkert smeyk
um aö þar með hverfi andi sá sem
hér ríkir í félagshTinu?
„Auðvitað og þetta gæti orðið
erfitt til að byrja með en þegar fram
líða stundir er ég ekki í neinum
vafa um að þetta verður öllu sem
viðkemur félagslífinu og skólahald-
inu til mikils framdráttar," sagði
Jónas og með þeim orðum kvaddi
blm. þetta indælisfólk.
FIMMTUDAGS- OG
SUNNUDAGSKVÖLD
VEITINGAHÚS
AMTMANNSSTfG 1 RF.YKJAVÍK SÍMl 91-13303
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆDISMANNA í REYKJAVÍK
24. OG 25. NÓVEMBER 1985
Ræðukeppnin:
Fleyg orð og
málshættir
Sjöttubekkingar sigruðu þá yngri
Það er heilmikið tilstand í kringum bekkjarkeppm i ræðumennsku eins
og þá sem fylgst var með í þessu tilfelli. Það þarf fundarstjóra, tímaverði,
3 dómara, tvö 4ra manna lið sem keppa og áheyrendur. Allt þetta var til
staðar á mánudagskvöldið og upp úr
fundarhamrinura.
Það kom í hlut 6T að mæla með
því að öll aldurstakmörk yrðu
samræmd í 18 ár! Já, hvorki meira
né minna.
Fyrstur sté í pontu Helgi Krist-
jánsson liðsstjóri væntanlegra
stúdenta í 6T. Hann kynnti lið sitt
sem var skipað 3 piltum. Þeir heita
Finnur Sveinsson sem var frum-
mælandi, Heimir Jónasson sem
var meðmælandi og Andri Þór
Guðmundsson stuðningsmaður.
Liðsstjóri 3jubekkinga, Auður
Einarsdóttir, fór að dæmi Helga
og kynnti lið sitt. Það skipuðu þau
Karl Thorodden, Anna Þ. Þor-
grímsdóttir, kölluð Anna Tobba,
og Hjördís Kristinsdóttir. Karl var
frummælandi, Hjördis meðmæl-
andi og Anna Tobba stuðnings-
maður.
Svo hófst ballið fyrir alvöru og
ekkert var gefið eftir. Fleyg orð
og málshættir gengu á milli, sem
og vísur og kvæðabálkar. Rökfesta
ræðumanna var með ólíkindum og
þóttust allir hafa rétt fyrir sér.
sjö fékk pontan góða að finna fyrir
Eldri bekkingar kváðu þá yngri
ekki nógu þroskaða til að skilja
hvað málið snerist um en þeir
yngri sögðu hina alltaf þykjast
vita allt.
Taktar hvers og eins voru ansi
sérstakir. Finnur var alvörugefni
predikarinn, Heimir sá spaugsami
en Andri Þór mest sannfærandi.
Tók meira að segja af sér gleraug-
un eins og Lúðvík forðum þegar
hann kom að áherslupunktum í
ræðum sínum.
Þriðjubekkingarnir létu þá eldri
nú ekkert vaða ofan í sig og svör-
uðu hástöfum fyrir sig við mikinn
fögnuð áheyrenda sem voru marg-
ir á bandi þeirra yngri. Sérstaka
athygli vakti fyrrnefnd Anna
Þorgrímsdóttir fyrir skeleggan
málflutning og rökstuðning. Gæti
sú náð ansi langt haldi hún áfram
af slíkum fítonskrafti sem ein-
kenndi allt hennar fas og fram-
komu þetta kvöld, enda fór svo að
hún var kosin mælskasti ræðu-
maðurinn í þessari keppni.
Andri Þór Guðmundsson sést hér í
ræðustól og lítur málið greinilega
alvarlegum augum.
Morgunblaöiö/Árni Sæberg
Það voru hinsvegar félagarnir
fjórir í 6T sem sigruðu með þó
nokkrum yfirburðum í samanlögðu
og nutu ekki síst góðs af því hversu
illa andstæðingunum gekk að
halda sig innan ákveðinna tíma-
marka í ræðum sínum. Auk þess
voru þeir greinilega mun betur
undirbúnir fyrir keppnina enda
vanir menn, eins og þar segir.
Það var ástsæll forseti nem-
endafélagsins, Jónas Fr. Jónsson,
sem tilkynnti úrslitin. Ætlaði allt
um koll að keyra þegar hann las
upp úrslitin og átti greinarhöfund-
ur fótum sínum fjör að launa.
ÁFRAM
Við skorum á allt
Sjálfstæðisfólk að kjósa
HILMAR GUÐLAUGSSON í
4. sæti
í prófkjöri flokksins og
tryggja þar með
áframhaldandi veru
hans í borgarstjórn
Reykjavíkur
SÍMI Á SKRIFSTOFU STUDNINGSMANNA HILMARS ER 33144