Morgunblaðið - 21.11.1985, Page 55

Morgunblaðið - 21.11.1985, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985 55 Heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI 3 - P0455- SÆTUNI 8- 15655 Systirmin, ELÍN GUDNADÓTTIR, Bárugötu 8, verður jarösungin trá Fríkirkjunni i Reykjavík föstudaginn 22. nóvemberkl. 13.30. Þórdís G. Bridde. Inniiegar þakkir tyrir auðsýnda samúð við andlát og útför eiginkonu minnar, AUÐARPÉTURSDÓTTUR, Hólabrekku, Miöneshreppi. Sérstakar þakkir til slysavarnadeildar kvenna í Garði fyrir ómetan- lega aöstoð. Kristofer H. Jónsson og aöstandendur. Einlægar þakkir til allra sem sýnt hafa okkur samúö og vináttu við andlát og útför eiginmanns mins, sonar, föður og tengdaföður, HERBERTS JÓNSSONAR, kjötiönaðarmanns, Vesturbergi 20. Steinunn H. Felixdóttir, Lína Dalrós Gísladóttir, Jón Ásgeir Jónsson, Elísabet Herbertsdóttir, Sigurbjörn Herbertsson, Vílhjálmur E. Eggertsson. Kæru vinir nær og f jær, þökkum sýnda samúö og hlýhug við andlát og útför ÁSTU THORSTENSEN söngkennara. Gunnar Reynir Sveinsson og dætur. vinkonu sem ég hef eignast um ævina. Hún varð ekki aðeins vin- kona mín heldur einnig mildur ráðgjafi sem jafnan kom auga á björtu hliðarnar og færði allt sem miður fór til betri vegar. Af henni lærði ég svo ótal margt sem reynst hefur mér ómetanlegt á lífsleið- inni. Eiginmaður Guðrúnar var Jónas Sveinsson, forstjóri í Dverg. Einn- ig hann reyndist mér sem besti faðir. Þau bjuggu lengst af í Mjó- sundi 15 og þar ólust börnin þeirra sex upp. Af þeim eru nú 5 á lífi. Heimili tengdaforeldra minna var mikið rausnar- og myndarheimili. Þar var jafnan margt um manninn því bæði voru börnin mörg og gestagangur mikill. Þau hjónin voru mjög samhent og höfðingjar heim að sækja. Snyrtimennska og gestrisni var þeim báðum í blóð borin og andrúmsloftið á heimilinu einkenndist af því. Það var fátítt í þá daga að karlmenn tækju til hendinni við heimilisstörfin en í því var tengdafaðir minn á undan sinni samtíð. Það var mikið áfall fyrir Guðrúnu þegar hann lést árið 1967. Vinnudagurinn var oft langur hjá tengdamóður minni og oft hef ég undrast hve afkastamikil þessi hægláta kona var. Fyrir utan að halda heimilinu í röð og reglu og vera börnum sínum góð móðir, saumaði hún svo til ailan fatnað og vann mikla handa- vinnu. Þó varð mannlegi þátturinn aldrei útundan því alltaf var nægur tími aflögu til þess að sinna öllum þeim sem til hennar þurftu að leita. Það var sama á hverju hún snerti, allt lék í höndunum á henni og þrátt fyrir erilsamt heim- ilishald fann hún tíma til að sauma falleg listaverk til að prýða heimili sitt og gefa afkomendum og vinum. Hún var listfeng að eðlisfari og langaði til að læra að mála, en heimilið sat alltaf í fyrirrúmi og öll tilsögnin sem hún fékk á því sviði var aðeins eitt kvöldnám- skeið. Hún hafði alltaf mikið af blómum í kringum sig. Við blómin sín talaði hún og fór um þau nærfærnum höndum, enda hef ég ekki séð fallegri blóm en blómin hennar. Guðrún fæddist á Valþjófsstað í Önundarfirði og bernskustöðv- arnar áttu sterk ítök í henni. Oft talaði hún um fallegu sveitina sína og allt það góða fólk sem þar bjó. í hennar augum voru reyndar allir góðir og aldrei heyrði ég hana hallmæla nokkrum manni. Hún kunni vel við sig í margmenni og átti auðvelt með að tala við fólk. Hún var fínleg og falleg kona og frá henni stafaði hlýju sem laðaði bæði börn og fullorðna að henni. Hún var vel greind o^víðlesin. Tvo vetur átti hún þess kost að sækja Héraðsskólann á Núpi og þó skóla- gangan yrði ekki lengri bæði talaði hún og las dönsku og ensku mjög vel. Hún var líka skáldmælt en hafði það ekki í hámælum. Tveim árum eftir mína fyrstu heimsókn í Mjósundið, fluttum við hjónin til Hafnarfjarðar. Eftir það var daglegur samgangur á milli heimilanna. Tengdamóðir mín studdi mig með ráðum og dáð og var alltaf boðin og búin að rétta mér hjálparhönd. Síðar er við vorum flutt austur á land og hún var orðin ein, kom hún oft í heim- sókn og dvaldf langdvölum hjá okkur. Þar eins og annars staðar eignaðist hún marga trausta vini. Vinkonur mínar urðu hennar vin- konur og margar þeirra heimsóttu hana þegar þær voru í bænum. Börnin okkar hlökkuðu alltaf til að fá hana í heimsókn og eiga dýrmætar minningar um ömmu sína sem las með þeim bænirnar á kvöldin og umvafði þau ástúð og umhyggju. Ég og fjölskylda mín eigum henni mikið að þakka. Síðustu árin dvaldist Guðrún á Hrafnistu í Hafnarfirði og átti við mikla vanheilsu að stríða. Aldrei heyrðist frá henni æðruorð en hugurinn dvaldist við börnin og barnabörnin. Hún átti sterka trú og þangað sótti hún styrk í veik- indum sínum. Þar sem góðir menn fara eru guðsvegir, þá vegi fetaði tengda- móðir mín allt sitt líf. Jóhanna Guðnadóttir Philco 421 þurrkarinn. Philco þurrkarinn tekur 5 kg af þurrþvotti sama magn og þvottavélin. Hann er einfaldur í notkun; þú velur á milli 3 sjálfvirkra þurrkkerfa sem henta öllum tegundum þvotts. Þurrktími getur varað allt að tveimur klst. auk átta mínútna kælingar í lok þurrkunar. Philco w 393 þvottavélin. Ytri belgurinn sem er úr ryðfríu stáli gerir Philco að enn betri og öruggari þvotttavél en áður. Vélin vindur með allt að 1000 snúninga hraða á mínútu. Hún hefur stóran þvottabelg og tekur inn á sig bæði heitt og kalt vatn. Þannig sparast umtalsverð orka. Hægt er að láta þurrkarann standa ofan á þvottavélinni - það sparar þér dýrmætt rými og eykur vinnuhagræði. Á vélunum er öryggisbúnaður sem tryggir þér betri endingu og lægri viðhaldskostnað. Að síðustu má ekki gleyma að vélarnar heita Philco og erufrá Heimilistækjum. Þaðtalarsínu máli:Traust nöfn, sanngjarnt verð og örugg þjónusta. Láttu Philco skila þér þvottinum hreinum og þurrum - engar snúrur, engar áhyggjur. Við erum sveigjanlegir í samningum. PHILCO A HORKUGOÐU VERÐI. ÞVOTTAVÉL FYRIR KR. 25.990 - OG ÞURRKARINN FYRIR KR.19.620>

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.