Morgunblaðið - 21.11.1985, Side 57

Morgunblaðið - 21.11.1985, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985 57 „Sigurinn kom mér ekki mjög mikið á óvart" — segir Þröstur Þórhallsson, 16 ára, nýbakaður unglingameistari í skák Sigurinn kom mér satt að segja ekki mjög mikið á ovart, eg sigraði á Unglingameist- aramótinu 1983 og var staðráðinn í að hreppa titilinn aftur“, sagði Þröstur Þórhallsson 16 ára, nýbak- aður unglingameistari í skák. Hlaut hann 6V6 vinning af sjö. Aðspurður kvaðst Þröstur hafa byrjað að tefla sjö ára gamall. „Vinur minn kenndi mér að tefla en þegar ég fór að vinna hann hálfu ári síðar hætti hann að nenna að tefla við mig,“ sagði Þröstur. „Það er enginn í minni fjölskyldu sem teflir og því æfi ég mig í Taflfélagi Reykjavíkur tvisvar sinnum f viku. Annars hef ég haft lítinn tíma til að æfa mig eftir að ég byrjaði í Verslunarskólanum í haust. Áður fyrr gerði ég ekkert annað en að tefla en í vetur veitir mér ekki af að nota tfmann til að læra. Að auki missti ég viku úr skólanum f haust þegar ég fór til Danmerkur til að keppa á Norðurlandamóti grunn- skólasveita f skák og hef haft fullt í fangi með að vinna upp það sem ég missti niður." Verðlaunin sem Þröstur hiaut á Unglingameistaramóti fslands Þröstur Þórhallsson með verðlauna- bikarinn. 1985, voru þátttaka í unglingamóti í skák sem fram fer í Svfþjóð milli jóla og nýárs, og verða keppendur frá ðllum heimshornum. Og í lok janúar nk. heldur Þröstur aftur til Svíþjóðar ásamt fleiri ungum ís- lenskum skákmönnum, til að taka þátt í Norðurlandamóti unglinga í skák. Ljóst er að í nógu verður að snúast fyrir hinn nýbakaða ungl- ingameistara íslands f skák. „Lærði mannganginn þegar ég var f imm ára“ — segir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir 13 ára, yngsti Islandsmeistari Satt að segja er ég ekkert mjög dugleg að æfa mig, tefli bara þegar ég er í skapi til þess, sagði Guðfríður Lilja Grétarsdóttir 13 ára, nýbakaður íslandsmeistari kvenna f skák og jafnframt yngsti í slandsmeistari í skák frá upphafi. Guðfríður Lilja lagði alla and- stæðinga sína að velli á íslandsmót- inu, hlaut 5 vinninga. Hún var spurð hvenær hún hefði fengið áhuga á skák. Amma mfn kenndi mér mannganginn þegar ég var fimm ára, sagði hún. „Eftir það dundaði ég mér dálítið við að tefla en missti svo áhugann. Hann glæddist svo aftur hjá mér þegar ég var tíu ára, enda mikið teflt heima hjá mér og komst ég eiginlega ekki hjá því að byrja sjálf. Við hvern teflirðu helst? Ég tefli stundum við ömmu og Andra bróður minn, en mest við strákana í Taflfélagi Reykjavíkur. Annars er ég ekkert ofsalega dugleg að æfa mig. Ég hef lært á pfanó sl. sex ár í Tónmenntaskóla Reykja- víkur og það fer mikill tími í æfing- ar. skák frá upphafi MorgunblaöiÖ/Júlíus Guðfríður Lilja Grétaredóttir Guðfríður Lilja sagði að þetta væri þriðja íslandsmótið í skák sem hún tæki þátt í. Mér gekk illa í fyrra og hittifyrra en gerði mér vonir um að að sigra núna. Ég reyni svo auðvitað að verja titilinn á næsta móti, sagði hin unga skák- drottning að síðustu. COSPER Loksins erum við komnir í veg þar sem engar hraðatakmarkanir eru. JÓLASKEIÐIN 1985 I tilefni af 300 ára ártíð Bachs Hándels og Scarlattis er jólaskeiðin frá GUÐLAUGI f ár tileinkuð þessum meisturum kirkju- og orgeltónlistar. Við minnum á að uppiag jólaskeiðar- innar er mjög takmarkað. Guðlaugur A. Magnússon Laugavegi 22 a | Sími 1 5272 ÁNÆGJULEG UTKOMA Á skrifstofudeildinni í Hljómbæ er úrval SHARP reiknivéla. SHARP reiknivélarnarþjóna þér vel. Þæreru mikilvirkar, snararogskýrar. Við höfum örugglega reiknivélina sem hentar þér og verðið kemursvo sannarlega á óvart, aðeins frá kr. 4,670.-stgr. SHARR HHHLJÐMBÆRHi HVERFISGÖTU 103 SIMI 25999 <

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.