Morgunblaðið - 21.11.1985, Síða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985
ÞAD ER EKKERT
MÁL!
Crtiion
að tölvuvæðast í dag,
þú færð allt sem þú þarft til þess hjá okkur.
1. CailOff A-200 einkatölvu.
2. CailOII tölvuprentara.
3. Hugbúnað:
meðal annars frá
ÍSLENSKRI ,
FORRITAÞROUN
OPUS: Fjárhagsbókhald
OPUS: Viðskiptamannabókhald
OPUS: Birgðabókhald
OPUS:Sölukerfi
OPUS:Pantanakerfi
OPUS:Skýrslugerð
OPUS:Endurskoðunarkerfi
OPUS:Tollskýrslukerfi
ISLENSKUM TÆKJUM:
Tollskýrslukerfi — TOLLARI
SKIPHOLTI 19
SÍMI 29800
RAFREIKNI:
Launabókhald
Word Perfect.
Kennsla og uppsetning
forrita er innifalin í verði.
Ath. nú er rétti tíminn til að
tölvuvæðast fyrir nýtt fjárhagsár.
Cation
heimsþekkt merki á sviði hátækni
• Norman Whiteside
Whiteside
áfram hjá
Man. Utd.
Frá Bob Hennessy, fréttamanni
Morgunblaösins á Englandi.
NORMAN Whiteside, Manchester
United, hefur gert 5 ára samning
viö lið sitt, Manchester United.
Liðið greiddi honum 300 þúsund
pund fyrir tímabilið. Whiteside er
20 ára og er í norður-írska lands-
liðinu, sem tryggöi sér sœti í úr-
slitakeppninni í Mexíkó á næsta
ári með jafntefli gegn Englend-
ingum í síöustu viku.
Mörg ítölsk félagslið vildu fá
kappann í sínar raöir, en nú er þaö
oröiö útséö aö hann veröur áfram
hjá Manchester United.
Gary Bailey, markvörður, hefur
einnig gert 5 ára samning viö félag-
iö, en ekki hefur veriö uppgefiö
hvaö hann fær fyrir sinn snúö. Bai-
ley er 27 ára og hefur veriö i enska
landsliöinu.
Ron Atkinson, framkvæmda-
stjóri Manchester United, hefur
gefiö Alan Brazil lausan. Brazil hef-
ur veriö hjá United í 19 mánuöi, var
keyptur frá Tottenham fyrir 700
þúsund pund. Hann hefur ekki
komist í liöiö þar sem framherjarnir
snjöllu, Frank Stapleton og Mark
Hughes, hafa staöið sig svo vel í
framltnunni. Taliö er líklegt aö hann
fari aftur til síns gamla félags, Ips-
wich.
Bryan Flynn, fyrrum leikmaöur
meö Leeds og hefur verið fyrirliöi
Wales, hefur verið seldur til Don-
caster Rovers f rá Cardiff City. Þessi
liö leika bæöi í 3. deild. Flynn er 30
ára og á aö bakí marga landsleiki
og lék 154 leiki meö Leeds.
Haukar
Valur
íkvöld
ÚRVALSDEILDIN í körfuknattleik
hefst aftur í kvöld eftir nokkurt
hlé vegna ferðar landsliðsins til
Bandaríkjanna.
Haukar og Valur leika í íþrótta-
húsinu viö Strandgötu í Hafnarfiröi
kl. 20.00, íkvöld.
Strax á eftir leiká Haukar og
Njarövík í 1. deild kvenna.
Aðalfundur
hjá Þrótti
AÐALFUNDUR knattspyrnudeild-
ar Þróttar verður haldinn fimmtu-
daginn, 28. nóvember ( Þrótt-
heimu og hefst klukkan 19.30.
Venjuleg aðalfundarstörf. Allir
hvattir til að mæta.
(Fréttatilkynning)