Morgunblaðið - 28.11.1985, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER1985
Talsverður fiskskortur
á helztu mörkuðum okkar
Fisksölufvrirtækin hafa um nokk-
urt skeið ekki getaö annaö eftirspurn
í helztu markaöslöndum okkar og
er þar nú talsverður skortur á fiski.
Á BORGARAFUNDI í Mosfellssveit
í fyrrakvöld var samþykkt samhljóöa
ályktun þar sem lýst er stuöningi við
áform hreppsnefndar um öflun
neysluvatns fyrir sveitarfélagiö en
jafnframt er vísað á bug hugmyndum
um afsal forkaupsréttar á jöröum
fyrirfram og breytingu á hreppamörk-
um Mosfellshrepps og Reykjavíkur-
borgar.
Á fundinum voru rædd hugsanleg
kaup Mosfellshrepps á köldu vatni
frá Reykjavikurborg. Sjálfstæðis-
menn, sem eru í meirihluta hrepps-
Samstarf al-
mannavarna,
björgunar- og
hjálparsveita
SAMNINGUR um björgunarsam-
starf verður væntanlega undirritaður
í dag. Að samningnum standa Al-
mannavarnir ríkisins, Slysavarnafé-
lag íslands, Landssamband flug-
björgunarsveita, Landssamband
hjálparsveita skáta og Rauði kross
íslands.
Samkvæmt samningnum er
Almannavörnum falin yfirstjórn á
björgunaraðgerðum, þegar stórat-
burðir verða, en síðan eru hverjum
samtökum falin ákveðin verkefni.
Þannig er Rauða krossinum ætlað
að annast félagslega hjálp og
fjöldahjálp, Slysavarnafélags-
sveitum er ætlað að annast björg-
unar- og ruðningsstörf, skátum að
sjá um fyrstu hjálp og flugbjörg-
unarsveitunum verndarstörf. Ef
þörf krefur munu verkefni víxlast.
í framhaldi af undirritun þessa
samnings er gert ráð fyrir sameig-
inlegri þjálfun liðsmanna þessara
sveita og félaga á vegum Almanna-
varna ríkisins.
Sundlaugarnar í
Laugardal:
Ráðið í stöðu
forstöðumanns
BORGARRÁÐ hefur samþykkt, að
tillögu íþrótta- og tómstundaráðs að
ráða Kristján Ögmundsson í stöðu
forstöðumanns Sundlauga Reykjavík-
ur í Laugardal.
Alls sóttu sjö um stöðuna og
samþykkti íþróttaráð með þremur
atkvæðum að mæla með því við
borgarráð að Kristjáni yrði veitt
staðan. Aðrir sem atkvæði hluti
voru Marteinn Kristinsson og
Haukur Ottesen, sem fengu eitt
atkvæði hvor. Borgarráð samþykkti
ráðningu Kristjáns með þremur
samhljóða atkvæðum.
Á þetta bæði við frystan fisk á
Bandaríkjamarkaði og saltfi.sk fyrir
Spán og Portúgal. Stafar þetta meðal
annars af minna framboði annarra
nefndar, höfðu samþykkt bókun
þess efnis, að hreppurinn væri til-
búinn að lýsa því yfir að hann neyti
ekki forkaupsréttar á landi í suður-
hlíðum Úlfarsfells, ef Reykjavíkur-
borg vill kaupa landið.
Sjá á bls. 37: Vilja kaupa vatn en
ekki afsala forkaupsrétti á landi í
suðurhlíöum Úlfarsfells.
keppinauta okkaf. Fulltrúar fisksölu-
fyrirtækjanna telja ekki vafa á því,
að hægt hefði verið að selja mun
meira en gert hefur verið af frystum
fiski og saltfiski, hefði nægilegt
magn verið til reiðu. Ennfremur er
talið, að fiskskorturinn geti skaðað
samkeppnisstöðu okkar á mörkuðun-
um, þegar fram í sækir og framboð
eykst að nýju frá keppinautunum.
Friðrik Pálsson, framkvæmda-
stjóri Sölusambands islenzkra
fiskframleiðenda, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að enginn vafi
væri á því, að hægt hefði verið að
selja talsvert miklu meira af salt-
fiski á þessu ári, hefði hráefni til
vinnslunnar fengizt. Hins vegar
myndum við líklega skrimta út
árið og ekki verða fyrir skakkaföll-
um af þessum sökum. Hann sagði
orsök þessa vera þá, að á síðustu
tveimur árum hefði afli helztu
þorskveiðiþjóðanna minnkað og
svo væri komið að nánast ekkert
væri til af saltfiski, hvorki í fram-
leiðslulöndunum né neyzlulöndun-
um. Markaðimir hefðu sjaldan eða
aldrei verið jafn tómir og nú. Hér
væri ekki um að kenna aukningu
í útflutningi á ferskum fiski héðan
nema að mjög litlu leyti. Hann sæi
ekkert athugavert við slíkan út-
flutning svo fremi, sem menn
reiknuðu til fullnustu útkomuna
af því og færu eftir henni.
Sigurður Markússon, fram-
kvæmdastjóri sjávarafurðadeildar
Sambandsins, sagði, að ekki væri
vafi á því, að hægt hefði verið að
selja meira af flestum fisktegund-
um í Bandaríkjunum, hefðu þær
fengizt hér heima. Hann sagði
skort á þorskblokk verulegan svo
og á ýsu, karfa og fleiri tegundum.
Magnús Gústafsson, fram-
kvæmdastjóri Coldwater í Banda-
ríkjunum tók í sama streng og
sagði það geta skipt tugum pró-
senta, sem hægt hefði verið að
selja meira af einstökum tegund-
um.
Fyrstu 9 mánuði ársins veiddust
hér við land 265.617 lestir af
þorski. 128.561 lest, 48,4%, fóru í
frystingu, 116.918 eða 44% í söltun
og 15.703 lestir voru fluttar ferskar
utan eða 6% samkvæmt skýrslum
Fiskifélags íslands.
Sigurfari aft-
ur til Grund-
arfjarðar?
HJÁLMAR Gunnarsson útgerðar-
maður í Grundarfirði og fyrrum eig-
andi togarans Sigurfara II, hyggst nú
kanna hug Grundfirðinga til stofnun-
ar hlutafélags til kaupa á togaranum.
Hann er í eigu Fiskveiðasjóðs eftir
nauðungaruppboð.
Hjálmar sagði í samtali við
Morgunblaðið, að hann og fjöl-
skylda hans hefði boðað til fundar
til undirbúnings stofnunar hlutafé-
lags, sem hefði það fyrst og fremst
að markmiði sínu að kaupa togar-
ann Sigurfara II af Fiskveiðasjóði.
Fundurinn verður í samkomuhúsi
staðarins klukkan 20.30 í kvöld.
Karsten Andersen, Helga Hauksdóttir fiðluleikari og Staffan Scheja á æfingu Sinfóníuhljómsveitar Islands í Háskólabíói í gær.
Morgunblaðið/Emilfa
Smfóníuhljómsveitin hefur
bætt verulega við sig
— segir Karsten Andersen, sem stjórnar hljómsveitinni í kvöld
„Það er alltaf sérstakt ánægjuefni að koma hingað til íslands og hitta
gömlu vinina, hvort sem það eru tónleikagestirnir eða nánir vinir. I þeim
hópi sem ég hef sérstakar mætur á eru Arni Kristjánsson og frú Anna
og svo að sjálfsögðu Jón Nordal tónskáld. Það spillir ekki ánægjunni
að fá nú tækifæri til að flytja þetta frábæra tónverk Jóns, Concerto
lirico, en að mínu mati er það eitt helzta aðalsmerki Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands hvað hún hefur ætíð sýnt vönduðum nútímaverkum mikinn
áhuga,“ sagði Karsten Andersen hljómsveitarstjóri frá Noregi sem stjórn-
ar Sinfóníuhljómsveitinni á tónleikum í Háskólabíói f kvöld er Morgun-
blaðið hitti hann að máli í gærdag. Þá var hann nýkominn úr Krísuvík
ásamt norskum sjónvarpsmönnum sem vinna að gerð dagskrár um hljóm-
sveitarstjórann og störf hans, en á undanförnum árum hefur hann faríð
víða um lönd.
„Það er vissulega tímabært að
koma upp tónlistarhöll hér í
Reykjavík. Það er ótrúlegt hvað
það skiptir miklu máli að húsa-
kostur sé í lagi þegar tónlistar-
flutningur er annars vegar. Ég
get nefnt sem dæmi þá breytingu
sem varð á hljómsveitinni í
Björgvin eftir að Grieg-salurinn
þar í borg var tekinn í notkun
fyrir nokkrum árum. Hljóm-
sveitin tók algjörum stakka-
skiptum, enda er það ekki að
furða þegar þess er gætt að
hljómburður í góðu húsi virkar
eins og stuðningur fyrir hljóm-
listarmennina á meðan lélegt hús
gerir ekki annað en að gleypa
þá tóna sem hljóðfærin senda
frá sér. Annars tek ég eftir því
núna að síðan ég var hér síðast
fyrir fjórum eða fimm árum
hefur Sinfóníuhljómsveit íslands
bætt verulega við sig. Hún er
jafnbetri, ef svo má segja, enda
hefur fjöldi nýrra og ágætra tón-
listarmanna komið til liðs við
hljómsveitina á þessum tírna,"
sagði Karsten Andersen. Að
undanförnu hefur hann stjórnað
á tónleikum á Englandi og í
Tyrklandi. Innan tíðar fer hann
á ný til Tyrklands þar sem hann
hefur stjórnað sinfóníuhljóm-
sveitinni í Ankara. Til Tyrklands
lá leið hans upphaflega með
þeim hætti að Norðmenn og
Tyrkir gerðu með sér samning
um samvinnu á sviði menningar-
mála og var liður í þeirri sam-
vinnu að Karsten Andersen
stjórnaði hljómsveitinni í Ank-
ara um tíma. Þar líkaði honum
svo vel að framhald varð á starfi
hans þar.
Einleikari á sinfóníutónleik-
unum í kvöld er sænski píanó-
leikarinn Staffan Scheja. Hann
þótti á sínum tíma vera undra-
barn og kom fyrst fram opin-
berlega er hann var fjórtán ára
að aldri. Síðan hefur leið hans
legið víða. Hann er nú búsettur
í New York, auk þess sem hann
á enn heimili í Stokkhólmi, en
alla jafna er hann á látlausum
ferðalögum um heiminn.
„Héðan fer ég til Stokkhólms
og eftir stutta viðdvöl þar til
Japans og Víetnam þar sem ég
kem fram á tónleikum í Hanoi.
Enn er ég ekki orðinn þreyttur
á ferðalögum en vissulega hefur
þetta flökkulíf konsertpíanistans
sína galla. Ég er nú að koma frá
því að æfa mig í Háskólabíói og
þar til tónleikarnir hefjast annað
kvöld er það helzta viðfangsefnið
að koma sér í form og fá jafnvægi
í þá röskun sem ávallt hlýzt af
langflugi og tímamismun. Það
er sannarlega skemmtilegt fyrir
mig að koma hingað. Eg hef
nefnilega ekki leikið hér á íslandi
fyrr en einn helzti kosturinn við
flökkulífið er sá að tækifæri gefst
til að kynnast nýju fólki og skoða
sig um í veröldinni," sagði Staff-
an Schejaaðlokum.
Á efnisskránni á sinfóníutón-
leikunum í kvöld er sem fyrr
segir Concerto lirico eftir Jón
Nordal, en auk þess fjórði píanó-
konsert Beethovens og fjórða
sinfónía Tsjaíkovskís.
Borgarafundur um vatnskaup í Mosfellssveit:
Forkaupsrétti á
landi verði ekki
afsalað fyrirfram