Morgunblaðið - 28.11.1985, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER1985
Boðin þátttaka í sam-
sýningu norræna
skopteiknara
GÍSLA J. Ástþórssyni blaðamanni
hefur verið boðið að taka þátt í ár-
legri sýningu „Humorbiennalen",
sem haldin er í Fredrikstad í Noregi,
dagana 29. nóvember til 22. desem-
ber næstkomandi. Þetta mun vera í
fyrsta sinn, sem Islendingi er boðið
að vera með, en upphaflega voru það
nokkrir teiknarar í Fredrikstad sem
tóku sig saman fyrir nokkrum árum
og sýndu myndir sínar. f ár er teikn-
urum frá hinum Norðurlöndunum
boðið að vera með og munu 46 lista-
menn taka þátt í sýningunni.
„Mér fannst skemmtilegt að fá
þetta boð og sló kannski einkan-
lega til vegna þess að ég átti í fór-
um mínum um tuttugu, þrjátíu
myndir, sem ég hef verið að dunda
við mér til skemmtunar," sagði
Gísli. „Þar af voru fáeinar sem
mér fannst koma til greina að
senda."
— Fer Sigga Vigga til Noregs?
„Nei, þessar myndir eru að því
leyti ólíkar myndunum, sem birt-
ast eftir mig í Morgunblaðinu, svo
sem eins og „Þankastrikið", að þær
fjalla um tilveruna svona almennt
en ekki líðandi stund. Það er því
frekar von til þess að boðskapur-
inn höfði til annarra en íslendinga.
Sigga Vigga fer þess vegna ekki
til Noregs, það verður önnur kona,
að vísu talsvert lík henni, sem
þangað fer.“
— Eru skopteiknarar lista-
menn?
„Það er svona upp og ofan, en
Gísli J. Ástþórsson blaðamaður.
margir hafa náð langt sem slíkir
erlendis. Það er ákveðin list að
geta komið hárbeittu háði til skila
á réttan hátt, því eins og allir vita
þá fylgir öllu gamni nokkur al-
vara.“
Heiðursgestur sýningarinnar er
finnska skáldið og teiknarinn Tove
Jansson, sem sýnir rúmlega tutt-
ugu myndir, meðal annars af hin-
um kunnu Múmínálfum. Þá mun
danski teiknarinn Piet Hein verða
við opnun sýningarinnar.
MorgunblaAið/Árni Sæberg
Björgun afþilfari œfð á nýju þyrlunni
ÁHAFNIR nýju þyrlu Landhelgis-
gæslunnar, TF SIF, eru þessa
dagana að þjálfa sig í björgunar-
störfum eftir rúmlega þriggja mán-
aða hlé. í gærmorgun æfðu þyrlu-
flugmenn og skipverjar á varðskip-
inu Tý björgun manna af þilfari.
Fyrirhugað var að halda aðra slíka
æfingu fyrir hádegi í dag.
Benóný Ásgrímsson, einn af
flugmönnum þyrlunnar, sagði aö
nýja þyrlan léti mjög vel að
stjórn og væri sérlega vel búin
tækjum. „Þetta er stökkbreyting
frá því sem áður var og eykur
mjög möguleika þyrlunnar til
ýmissa biörgunarstarfa," sagði
Benóný. I þyrlunni er sérstök
myndavél sem nemur hitamis-
mun, sem gæti komið að góðum
notum við leit að mönnum í gúm-
bát til dæmis. Einnig er í henni
viðbótareldsneytistánkur, sem
eykur flugþol vélarinnar úr rúm-
um þremur tímum í rúma fjóra;
kerfi til að losa eldsneyti, og
ennfremur svokallaður „Hover
Doppler", sem er búnaður sem
gerir það kleift að halda þyrlunni
kyrri án utanaðkomandi viðmið-
unar.
í dag er væntanlegur til lands-
ins sérfræðingur frá Svíþjóð til
að kenna áhöfnum þyrlunnar að
fullnýta tækjakostinn.
Kaupstefnan h.f.:
Reist verði nýtt skauta-
og sýningarhús í Laugardal
KAUPSTEFNAN í Reykjavík hf. hefur í samráði við Skautafélag Reykja-
víkur gert könnun á kostnaði við að reisa hús við hlið Laugardalshallar,
sem mætti nýta til íþróttaiðkana og sýningarhalds. Hefur Kaupstefnan
sent borgarráði bréf þar sem hugmynd þessi er kynnt og hefur málinu
verið vísað til íþróttaráðs og byggingardeildar.
Háholt í Hafnarfirði:
Tvö Kjarvalsmálverk
bætast við sýninguna
í greinargerð Kaupstefnunnar
kemur meðal annars fram, að gert
sé ráð fyrir að húsið verði alls 4.176
fermetrar og kosti um það bil 59
milljónir króna uppkomið. Gert er
ráð fyrir að húsið verði einfalt í
sniði og falli að þeim íþróttmann-
virkjum sem þegar eru fyrir i
Laugardal.
í bréfi Kaupstefnunnar kemur
ennfremur fram, að engin aðstaða
sé nú fyrir skautaíþróttina í
Reykjavík, eftir að Melavöllurinn
var lagður niður. Það sé því von
viðkomandi, að borgarráö sjái sér
hag I að veita fjármunum til
Skauta- og sýningarhallar á fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar,
sem nú er í smíðum, með það fyrir
augum að húsið verði tilbúið til
notkunar vorið 1987.
Kaupstefnan bendir á, að síðast-
liðin 30 ár hafi félagið staðið fyrir
sýningarhaldi, sem undanfarin ár
hafi verið haldnar í Laugardals-
höll. Fjórum sinnum hafi orðið að
reisa viðbyggingu við Laugardals-
hðll vegna skorts á rými, með
ærnum tilkostnaði. Þá er enn-
fremur bent á, að auk þess að þjóna
skautaíþróttum og sýningarhaldi
myndi slíkt hús auðveldlega geta
þjónað sem ráðstefnu- og sam-
komuhús.
Á SUNNUDAGINN lýkur afmælis-
sýningunni „Meistari Kjarval 100
ára“ í Háholti í Hafnarfirði, en hátt
í átta þúsund manns hafa skoðað
þessa merku málverkasýningu.
Tvær myndir hafa bæst á sýn-
inguna, sem Þorvaldur Guðmunds-
son, forstjóri í Síld og fisk, hefur
eignast eftir að hún opnaði. Bæði
málverkin eru frá því um 1920 og
eru gullfalleg verk meistara
Kjarvals. Annað málverkið ber
heitið Skúta og sól. Hitt málverkið
heitir Kirkjuferð, en það verk gaf
listmálarinn vinkonú sinni í jóla-
gjöf fyrir u.þ.b. 60 árum. Báðar
myndirnar hafa alla tíð verið i
einkaeign og aldrei verið sýndar
opinberlega áður.
(FrétUtilkynnÍBg frá Hábolti.)
Silfurrefimir
leystir úr sóttkví
SILFURREFIRNIR í sóttkvíarbúinu
á Hofi í Vatnsdal hafa verið leystir úr
einangrun þeirri sem þeir hafa verið
í síðan þeir voru fluttir til landsins
árið 1983.
Eins og fram hefur komið i
Morgunblaðinu barst með þeim
sjúkdómur, svokallaður eyrna-
maur, og voru þeir þess vegna svona
lengi í sóttkvínni. Nú hefur hins
vegar tekist að losa þá við sjúk-
dóminn og aflétti yfirdýralæknir
þá banni við dreifingu þeirra um
landið. Silfurrefirnir eru í eigu 17
bænda úti um land allt og munu
þeir sækja dýrin að Hofi á föstudag
og mánudag.
Formaður FUF f Reykjavík:
Steingrímur hefur ekki tekið
á innanhússvanda flokksins
— og þmgmennimír brugðist í að halda
framsóknarstefnunni á lofti
FARI STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra ekki „all snarlega
að koma eiginlegum framsóknarmálum" í gegnum ríkisstjórnina án þess
að þau beri merki helhandar Sjálfstæðisflokksins, þá er þess stutt að
bíða að Framsóknarflokknum verði fórnað fyrir núverandi ríkisstjórn.
Þetta og fleira í svipuðum dúr
segir Hallur Magnússon, formað-
ur Félags ungra framsóknar-
manna í Reykjavík, í grein sem
birtist á leiðaraopnu NT í gær.
Hallur gagnrýnir þar þingmenn
Framsóknarflokksins fyrir að
hafa „brugðist f því að halda
málum framsóknarstefnunnar á
lofti“ og segir að Steingrímur
Hermannsson veiti forystu ríkis-
stjórn, sem ekki sé eiginleg fram-
sóknarstjórn. „Þó ég styðji ekki
núverandi ríkisstjórn, þá styð ég
Steingrím Hermannsson sem
formann flokksins — ennþá,“
segir Hallur í grein sinni. „Ég
tel Steingrím þann mann hæ-
fastan til að taka á þeim vanda-
málum, er við blasa. En því
miður eru ýmis teikn á lofti, sem
gætu orðið til þess að ég yrði að
endurskoða þá afstöðu mína.“
Auk þess að hafa ekki komið
framsóknarmálum í gegn í ríkis-
stjórninni, heidur Hallur síðan
áfram, þá hefur Steingrímur
Hermannsson „ekki tekið á inn-
anhússvandamálum flokksins af
þeirri ábyrgð og festu, sem ég
hélt að einkenndu hann. Rétt-
mætri gagnrýni SUF og annarra
svarar hann með því að setja út
á starf SUF. Sú gagnrýni hans
er réttmæt en afsakar ekki
brotalamir í flokksstarfinu. Einn
glæpur réttlætir ekki annan.“
í þriðja lagi ásakar oddviti
ungra framsóknarmanna í
Reykjavík flokksformanninn
fyrir að koma „í bak samherja
sinna. Fyrst með opinberri gagn-
rýni á kvótakerfi Halldórs As-
grímssonar, sem er einn ljósasti
punkturinn í dag. Þar er tekið á
vandamáli sjávarútvegsins með
jafnvægi byggðarlaga í huga auk
þess sem komandi kynslóðum eru
tryggð verðmæti til velferðar.
Þar finnst mér Steingrímur
hugsa um of um atkvæði sín frá
eigingjörnum Vestfirðingum,
sem hugsa ekki um heildina. Auk
þess gagnrýnir hann starf Páls
á Höllustöðum í þágu norræns
samstarfs að ósekju.
Ef Steingrímur heldur ofan-
greindri iðju sinni áfram og
tekur ekki mark á gagnrýni
flokksmanna sinna, þá get ég
ekki stutt hann í starfi. En von-
andi er hann sá yfirvegaði og
sanngjarni flokksmaður, sem ég
hef hingað til talið hann,“ segir
formaður Félags ungra fram-
sóknarmanna í grein sinni.