Morgunblaðið - 28.11.1985, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR28. NÓVEMBER1985
Morgunbladid/HBj
Frsndur. Silfurblár yrðlingur og blárefsyrdlingur saman í búri. Munurinn
kemur skýrt fram.
verði en blárefsskinnin og geta því
skapað refabændum auknar tekj-
ur. Hér á landi eru möguleikar til
að framleiða silfurbláan ref (blue-
silver) með æxlun silfurrefs og
blárefs, skuggasilfur (shadowsilv-
er) með æxlun skuggarefs og silf-
urrefs, blárefsplatínu með æxlun
blárefs og platínurefs og „gullnu
eyjuna" (Golden island) með æxl-
un hvíts melrakka og silfurrefs.
Einnig er hugsanlegt að melrakk-
inn (íslenski refurinn) búi yfir
einhverjum litaafbrigðum sem
nýst gætu til framleiðslu verð-
mætra skinna.
Yfirdýralæknir hefur gefið leyfi
til að silfurrefir úr sóttkvíarbúinu
á Hofi verði notaðir á sæðinga-
stöðvunum. Við það skapast um-
talsverðir tekjumöguleikar fyrir
loðdýrabændur, sem yfir landið
geta skipt milljónum. Tökum
dæmi af búi þar sem 10 blárefslæð-
ur eru sæddar með silfurrefasæði.
(It úr því myndu væntanlega koma
36 silfurbláir yrðlingar. Skinn
þeirra seldust sl. vetur fyrir 2.000
kr. hærra verð en blárefsskinnin
sú þriðjá á Suðurlandi. Sæðið
verður að nota ferskt því það verð-
ur ónothæft eftir 6-10 tíma frá
sæðistöku. Sæðið verður flutt frá
stöðvunum með fljótvirkasta
flutningamáta til sæðingamann-
anna sem verða staðsettir á öllum
helstu loðdýraræktarsvæðunum.
Sæðingarnar geta ekki farið fram
á öllum búunum, því lágmarksað-
stöðu þarf til, svo sem vel upphitað
herbergi og er gert ráð fyrir að
loðdýrabændur sameinist um slíka
aðstöðu og komi með læðumar
þangað til sæðingar.
Sæðingarnar eru nákvæmnis-
verk, og vandasamari en sæðingar
á öðru búfé. Þeir telja þetta þó
ekki óyfirstíganlegt fyrir fslend-
inga, fyrst aðrar þjóðir hafi náð
tökum á þessu. Þeir eru bjartsýnir
á árangur þó ef til vill náist ekki
hámarksárangur á fyrsta ári.
Vonast þeir til að sem flestir
bændur verði með frá upphafi til
að koma sæðingunum vel af stað
og sædd verði 15-20% allra refa-
læða í landinu á fyrsta ári.
— HBj.
og er þetta því tekjuauki upp á
72.000 krónur hjá þessu búi. Kostn-
aður við sæðingarnar er áætlaður
6-900 kr. á læðu eða 6-9.000
krónur á þetta bú.
Eggert Gunnarsson og Kjartan
Hreinsson dýralæknar á Keldum
sæddu í fyrra nokkrar læður í til-
raunaskyni. Tilraunin var það lítil
að hún er varla marktæk en þó
tókst að fá silfurbláa blendinga,
m.a. 15 undan tveimur læðum sem
enn lifa á Gilá í Vatnsdal.
Mikil nákvæmnisvinna
Fá ár eru síðan loðdýraræktend-
ur í nágrannalöndunum náðu valdi
á tækninni við sæðingar refa og
eru ekki nema um það bil tvö ár
síðan sæðingarnar fóru að hafa
veruleg áhrif á Norðurlöndunum,
sem standa fremstir allra þjóða í
loðdýraræktinni. íslenskir loð-
dýrabændur telja sig því fylgjast
vel með með því að hefja sæðingar
í stórum stíl þetta snemma, enda
nauðsynlegt til að standa sig í
hinni hörðu samkeppni á mark-
aðnum.
Sæðingarnar eru ákaflega
vandasamt verk og tekur tíma að
þjálfa góða sæðingamenn. Þess
vegna leggur nefndin áherslu á að
sem flestir bændur taki þátt í
þessu í upphafi, að þetta komist
strax vel af stað og sæðingamenn-
irnir fái verulega þjálfun. „Menn
verða að taka þátt í þessu frá
upphafi þannig að við náum tökum
á þessu, annars getum við gleymt
þessu," sagði Gísli á Hofi. í febrú-
arlok verður haldið námskeið fyrir
sæðingamenn á Hólum í Hjaltadal.
Eggert Gunnarsson og Þorsteinn
Ólafsson skipuleggja námskeiðið
en aðalleiðbeinandi verður norsk-
ur sérfræðingur. Loðdýraræktar-
félögunum gefst kostur á að senda
menn á námskeiðið, þó ekki fleiri
en tíu að þessu sinni, en gert er
ráð fyrir að félögin ráði þá til
starfa að loknu námskeiðinu.
Settar upp þrjár
sæðingastöðvar
Settar verða upp þrjár sæðinga-
stöðvar, þ.e. stöðvar þar sem sæði
verður tekið úr refunum, og verður
ein á Hólum, önnur í Eyjafirði og
Þrír blendingar, silfurbláir, á Gilá í Vatnsdal.
MorgunblaðiA/HBj Blárefsyrðlingar.
Bylting í kynbótastarfi og möguleikar opnast tU framleiðslu blendingsskinna
f VETUR hefjast refasæðingar á
íslensku loðdýrabúunum. Stefnt er
að því að sæddar verði 2.000 læður
á þessu fyrsta ári. Gera loðdýra-
bændur sér vonir um að sæðingarnar
skipti sköpum fyrir þá í kynbótastarf-
inu og gefi þeim auknar tekjur raeð
framleiðslu verðmætari skinna með
blendingsræktun.
Á vegum Sambands íslenskra
loðdýraræktenda (SÍL) er starf-
andi nefnd til að koma á sæðing-
um. í henni eiga sæti: Ævarr
Hjartarson ráðunautur á Akur-
eyri, Gísli Pálsson bóndi á Hofi
og Jón Ragnar Björnsson fram-
kvæmdastjóri SÍL. Með nefndinni
starfa dýralæknarnir Eggert
Gunnarsson og Þorsteinn Olafs-
son. Blaðamaður fékk eftirfarandi
upplýsingar hjá Gísla og Eggerti:
Skiptir sköpum í kyn-
bótastarfinu
Sæðingar hafa verið stundaðar
á mörgum tegundum búfjár til
kynbóta, og nægir að nefna naut-
gripi í því sambandi. Með sæðing-
um fæst betri stofn til undaneldis.
Úrvals högnar nýtast mun betur
en ella. Til dæmis nýtist högni á
4 læður að meðaltali með venju-
legri pörun, en 50-75 læður með
sæðingum.
Refaræktin sem nú er stunduð
hér á landi á sér stutta sögu en
aukningin hefur verið gífurleg á
þeim tíma. Upphaflegi refastofn-
inn var tiltölulega lítill og hefur
því orðið útþynning á verðmæt-
ustu eiginleikum hans. Árið 1983
voru fluttir inn refir til blóðblönd-
unar, m.a. blárefir, frá einu besta
loðdýrabúi Noregs og hafa þau dýr
reynst afburða góð. Verður sæði
af þeim stofni einkum notað við
sæðingarnar og með því móti
komast eiginleikar dýranna eins
hratt og mögulegt er í upphaflega
refastofninn sem mikil nauðsyn
er að bæta.
Auknar tekjur meÖ
blendingsrækt
Refasæðingar hafa þá sérstöðu
umfram sæðingar á öðru búfé, að
með þeim má auðvelda mjög og
flýta framleiðslu verðmætrar
vöru, þ.e. blendingsskinna. Þessi
afbrigði seljast á miklu hærra
Refasæðingar að heíjast hjá
íslenskum loðdýrabændum