Morgunblaðið - 28.11.1985, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER1985
Sjónvarpsgervihnettirnir eru þegar orönir stadreynd. En hvernig ætla Norð-
urlöndin að bregðast við tilkomu þeirra? Um það var m.a. rætt á ráðstefn-
unni, sem nýlega var haldin í Tammerfors í Finnlandi.
Norðurlönd:
Veitt verði „Óskars-
verðlaun“ fyrir sjón-
varps- og útvarpsefni
NORÐURLANDARAÐ ætti að taka
upp veitingu eigin „Óskarsverð-
launa“ fyrir sjónvarps- og útvarps-
efni til þess að vega upp á móti
gervihnattasendingum til Norður-
landanna annars staðar frá.
Tillaga þessi kom fram á ráð-
stefnu, sem nýlega lauk í Tammer-
fors í Finnlandi og var flutnings-
maður Einar Karl Haraldsson,
aðalritstjóri tímaritsins Nordisk
Kontakt. Ráðstefnan, sem fjallaði
um efnið „Staða Norðurlanda í
fjölmiðlasamfélagi framtíðarinn-
ar“, var haldin að frumkvæði
sambands Norrænu félaganna.
Einar Karl lagði til, að Norður-
landaráð úthlutaði „Óskarsverð-
launum" sínum til þess að verð-
launa höfunda þess dagskrárefnis,
sem talið væri framúrskarandi
gott.
Helge Seip, formaður sambands
Norrænu félaganna, segir í viðtali
við norska blaðið Aftenposten á
mánudag, að þetta sé góð hugmynd
og hann ætli að vekja máls á henni
á fundi forsætisnefndar sam-
bandsins.
Einar Karl Haraldsson.
Seip taldi einnig vænlegt, að
staðbundnar útvarpsstöðvar tækju
upp samvinnu við stöðvar í vina-
bæjum á Norðurlöndum.
Námu burt 45 kg æxli
Islamabad, Pakwlan, 27. nóvember. AP.
SKURÐLÆKNAR í Pakistan námu
burt 45 kflógramma æxli úr maga
35 ára gamallar konu á þiðjudag.
Fór aðgerðin fram á sjúkrahúsi í
borginni Gujranwala sem er austar-
Harðvítugur byiting-
armaður valinn eftir-
maður Khomeinis
HUSSEIN Ali Montazeri, sem Aya-
toilah Kohmeini, leiðtogi irans, hefur
valið sem eftirmann sinn, á að baki
langan feril sem áhrifamaður í
stjórnmálum og trúmálum í íran.
Telja má víst, að sem andlegur og
veraldlegur leiðtogi írönsku þjóðar-
innar eigi hann eftir að halda sömu
braut og Khomeini hefur markað og
er tilkynnt var á laugardag um val
hans, kom það engum á óvart, sem
fylgzt hefur með málum í íran.
Montazeri er af fátæku bænda-
fólki kominn og alúð hans og hrein-
skilni eru sögð vera mikil andstæða
við þá ströngu ímynd, sem Khom-
eini hefur skapað af sjálfum sér á
meðal þjóðarinnar og leitt hefur til
þess, að almenningur lítur á hann
sem nær guðlega veru. Sjálfur átti
Montazeri mjög mikinn þátt í því
aö koma íslamska lýðveldinu á í
íran með byltingunni 1979 og þá
þegar var ljóst, að Khomeini hafði
augastað á honum sem eftirmanni
sínum.
Strax eftir byltinguna varð
Montazeri einn af helztu valda-
mönnum írans og hlaut þá hinn
óópinbera titil: „Von Imams (Kho-
meinis) og islömsku þjóðarinnar".
Fólst hlutverk Montazeris einkum
í eftirliti með framkvæmd bylting-
arinnar og 1 að gagnrýna skrif-
finnskuna og spillinguna í embætt-
ismannakerfinu.
Sem ungur maður gerðist
Montazeri stuðningsmaður Khom-
einis. Hann gekk í guðfræðiháskól-
ann í Qom, hinni heilögu borg mú-
hameðstrúarmanna, og komst fljótt
í röð æðstu áhrifamanna í trúmál-
um. Var hann útnefndur „aya-
tollah", sem er sama trúarlega tign-
arheitið og Khomeini ber. Þar fyrir
Ayatollah Khomeini biðst fyrir.
Heilsu leiðtogans fer hnignandi fyrir
aldurs sakir og því hefur hann tekið
af skarið og valið Montazeri sem
eftirmann sinn.
utan er lítið vitað um sögu Montaz-
eris. Blöð í Iran, sem öll eru háð
eftirliti hins opinbera, hafa lítið
sagt frá einkalífi hans.
Samkvæmt hinni opinberu frá-
sögn er Montazeri fæddur 1922 í
bænum Najaf-Abad, skammt fyrir
vestan hina fornu borg Isfahan.
Mestan hluta æsku sinnar vann
hann á jörð foreldra sinna, þar sem
faðir hans, Haj Ali Montazeri, er
sagður búa á enn, enda þótt hann
sé orðinn 85 ára gamall.
Tíu ára gamall var Montazeri
hinn yngri sendur á trúarskóla i
Isfahan og um tvítugt, er hann var
þar enn við nám, gekk hann að eiga
unga bóndastúlku. Börn þeirra eru
sjö, fjórar dætur og þrír synir.
Skömmu fyrir 1950, er Montazeri
hafði útskrifazt frá guðfræðihá-
skólanum í Qom og orðinn „mullah“
eða prestur, tók hann að kenna
guðfræði og heimspeki og gerðist
þar að auki mikill og virtur fræði-
maður í lögum múhameðsmanna.
En það var þó fyrst og fremst
andstaða hans við veraldlega emb-
ættismannavaldið í landinu, sem
aflaði honum virðingar og vinsælda
hjá hinum fátæku í landinu, sem
ávallt hafa verið undir svo sterkum
áhrifum spámannsins Múhameðs.
Montazeri dró enga dul á andúð
sína á Pahlevi-keisaraættinni og
gerðist harðvítugur málsvari vopn-
aðrar byltingar gegn keisaravald-
inu. Samkvæmt hinni opinberu frá-
sögn aðstoðaði hann Khomeini við
að koma á vopnaðri uppreisn í Qom
1963, en var síðan handtekinn og
settur í fangelsi, þar sem hann
mátti þola pyntingar.
Árið 1968 fór Montazeri með
leynd til nágrannaríkisins íraks til
viðræðna við Khomeini, sem þá
dvaldist þar í útlegð. Lauk þeim
fundi með því, að sá síðarnefndi
gerði Montazeri að persónulegum
fulltrúa sínum í íran.
Montazeri var hins vegar hand-
tekinn við heimkomuna til írans
og næstu ár þar á eftir varð hann
að búa undir lögreglueftirliti í
eyðimerkur- og fjallabæjum á ýms-
um stöðum í landinu. Hann hélt
samt áfram undirróðurSstarfsemi
sinni gegn keisaranum, sem leiddi
til þess, að árið 1975 var hann
dæmdur í 10 ára refsivist í hinu
alræmda Evin-fangelsi í Teheran.
Bretar hafna viðræðum
um framtíð Falklandseyia
Rufnnn AirPM. Arffpntínu. 27. nnvpmhpr. AP. ™ V
lega í landinu. Sjúklingurinn, Ras-
hida Begum, hafði átt við magasjúk-
dóm að stríða í nokkurn tíma en var
sögð vel á sig komin efir aðgerðina.
Buenos Aires, Argentínu, 27. nóvember. AP.
BRETAR hafa hafnað tilmælum
Argentínumanna um samningavið-
ræður varðandi framtíð Falklands-
eyja. Ríkisstjórn Brazilíu kom til-
mælunum á framfæri. Breski sendi-
herrann sir John Thomson sagði í
ræðu á breska þinginu að þessi
beiðni ura hlutlausar viðræður væru
í rauninni gildar. Thomson sagði að
sjónarmið Argentínumanna væri hið
sama og áður, og þeir sættu sig ekki
við annað en algjör yfirráð yfir Falk-
landseyjum.
„Yfirráð okkar, sem við efumst
ekki um að séu réttmæt, eru alls
ekki til umræðu," sagði hann. „Ef
við göngumst inn á samningavið-
ræður af þessu tagi munu Argent-
ínumenn fá þá hugmynd að endan-
leg niðurstaða hljóti að verða sú
að við afhendum þeim eyjarnar."
Argentínumenn hernámu Falk-
landseyjar 1982 til að framfylgja
150 ára gamalli kröfu sinni um
yfirráð eyjanna, en breskt inn-
rásarlið tók þar völd aftur eftir
74 daga stríð. Þáverandi forseti
Argentínu, Leopoldo Galtieri, er
nú fyrir herrétti ásamt tveimur
öðrum meðlimum herforingja-
stjórnarinnar og 13 hershöfðing-
um, og eru þeir allir sakaðir um
afglöp í sambandi við árásina.
Saksóknarinn hefur krafist 12 ára
fangelsisdóms yfir Galtieri sem
neitar öllum sakargiftum.
vekur verðskuldaða athygli
Til dœmis:
Undur Naustsins
Innbakaöir bl. sjávarréttir.
Reyktur lundi meö hræreggi og
ristuöu brauöi.
Sjávarréttarsúpa aö hætti Wilby
Eftirlæti skipstjórans skötuselur,
hörpuskel og rækjur meö
vermouthsósu.
Nautalundir gljáöar meö portvíns-
sósu.
Osta trió Ménagé a trous.
David Wílby, yfirmatreiðslumeist-
ari, hefur aðstoöaö okkur við upp-
setningu á matseðli okkar. David
er yfirmatreiöslumeistari á hinum
kunna matsölustaö Ménagé a trois
í London, en sá staður var kosinn
besti matsölustaður Bretlandseyja
1984 af hinu heimskunna stórblaði
New York Times. Margir þekktir
gestir hafa borðað á þessum stað,
til aö mynda Díana Bretaprins-
essa, og aö sjálfsögðu okkar ást-
sæli þjóöhöföingi Vigdís Finn-
bogadóttir.
Noregur:
Tæki til kyngrein-
ingar á síld reynt
á komandi vertíð
Á KOMANDI sfldarvertíð verður
tekið í notkun til reynslu í Noregi
nýtt tæki við flokkun á sfld. Verður
það prófað hjá átta fiskvinnslufyrir-
tækjum á vesturströndinni, frá Mils
til Vesturálseyja. Tækiö greinir kyn
sfldarinnar og gerir vélræna flokkun
mögulega. Binda menn miklar vonir
við það, þar sem unnt er að fá mun
hærra verð fyrir hrygnuna en hæng-
inn á aðalmarkaðssvæðinu, sem er
Japan. Vélin var hönnuð hjá Rann-
sóknastofnun sjávarútvegsins (Fisk-
eriteknologi.sk Forskningsinstitutt),
FTFI.
„Við vitum ekki nákvæmlega,
hversu hátt verð muni fást fyrir
hrygnuna, þegar hún er flokkuð
sér,“ segir Roger Richardsen, einn
rannsóknarmannanna hjá FTFI, í
viðtali við Oslóarblaðið Aften-
posten á mánudag, „en talið er að
það muni verða um 40-100%
hærra en fyrir blandaða síld. Við
höfum takmarkaðan innflutn-
ingskvóta í Japan, svo aö það
munar miklu að fá þessa verð-
hækkun."
„Við höfum nú leyst okkar hluta
af verkefninu," segir Richardsen
ennfremur í viðtalinu, „þar sem
okkur hefur tekist að búa til raf-
eindatæki, sem kyngreinir síldina
með 100% áreiðanleika. Greining-
in byggist á gegnumlýsingu og
gerir kleift að skilja hrogna- og
svilsíld að.“
Það er fyrirtækið Trio Maskin-
industri í Stafangri, sem smíðað
hefur tilraunatækin. Að sögn Aft-
enposten ríkir mikill áhugi á því
hjá norskum fiskvinnslufyrir-
tækjum að vera með í þessari til-
raun.
Kyngreining síldar er síður en
svo ný af nálinni, en hefur hingað
til verið ákaflega seinunnið hand-
verk.