Morgunblaðið - 28.11.1985, Side 64
TIL DAGtfGRA NOTA
FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR.
Starfsfólki Hafskips
sagt upp fyrir helgi
l)alsá, leiguskipi Hafskips, hefur
verió snúiö frá Bandaríkjunum til
Evrópu. Eigendur skipsins kröfðust
þess að Dalsá færi ekki inn til
hafnar í New York, nema tryggt
væri að hún yrði ekki kyrrsett, en
engin slík trygging fékkst. Dalsá
siglir því til Evrópu á ný, án þess
að fara inn til bandarískrar hafnar.
Skuldir Hafskips þar vestra eru nú
um 40 milljónir króna. Skaftá er
enn kyrrsett í Antwerpen og þar var
myndin hér fyrir neðan tekin í gær.
AP/símamynd
Sautján ára piltur lést
í geysihörðum árekstri
SAUTJÁN ára piltur beið bana í
geysihörðum árekstri á Vestur-
landsvegi laust fyrir klukkan fjög-
ur í gær. Pilturinn ók fólksbifreið,
sem skall harkalega á langferðabif-
reið. Fimm manns úr langferðabif-
reiðinni voru fluttir í slysadeild
Borgarspítalans; fjórir farþegar og
ökumaður. Meiðsl farþeganna
reyndust ekki alvarleg, en ökumað-
urinn var enn í slysadeild í gær-
kvöldi. Hann er ekki alvarlega
slasaður. Ekki er hægt að skýra
frá nafni hins látna að svo stöddu.
Pilturinn var einn í Cortina-
bifreið á Vesturlandsvegi á leið
til Reykjavíkur. Til móts við
Keldnaholt lenti bifreið hans
framan á langferðabifreiðinni,
sem ekið var áleiðis til Mosfells-
sveitar, og mun pilturinn hafa
látist samstundis. Við höggið
missti ökumaður langferðabif-
reiðarinnar stjórn á bifreið sinni
og hafnaði hún á hitaveitustokki
utan vegar.
Fólksbifreiðin gjöreyðilagðist
við áreksturinn og langferðabif-
reiðin er stórskemmd. Tildrög
slyssins eru ekki að fullu kunn,
en engin hálka var á veginum.
Slysarannsóknardeild lögregl-
unnar í Reykjavík biður þá, sem
kunna að hafa orðið vitni að
slysinu, vinsamlega að gefa sig
fram. Jafnframt eru farþegar í
langferðabifreiðinni vinsamlega
beðnir að hafa samband við lög-
regluna.
HAFSKIP hf. mun nú fyrir mánaðamótin segja upp öllum starfsmönnum
sínum, eitthvað á þríðja hundrað manns. Þetta upplýsti Jón G. Zoega, lög-
fræðingur Hafskips og einn stjórnarmanna íslenzka skipafélagsins. Hann
sagði jafnframt að eins margir starfsmannanna og mögulegt væri yrðu
endurráðnir hjá íslenzka skipafélaginu.
„Hafskip hf. segir að sjálfsögðu
öllu sinu starfsfólki upp nú fyrir
mánaðmótin," sagði Jón, „en það
er svo spurning hversu marga
íslenzka skipafélagið ræður aftur.
Vonandi sem flesta, svo fremi sem
" félagið fær að lifa.“
Eins og Morgunblaðið greindi
frá í gær, er Skaftá, eitt skipa
íslenzka skipafélagsins, enn í
Antwerpen, vegna kröfu um kyrr-
setningu. Útvegsbankinn neitaði
beiðni félagsins um bankaábyrgð
fyrir 21 milljón króna skuld í
Ántwerpen, og þvi er skipið þar
enn. Jón sagði í gærkveldi að það
væri ekki rétt aö bankinn hefði
neitað um ábyrgð, heldur væri
^ svars bankans enn beðið. Einn
bankastjóri Útvegsbankans stað-
festi i samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gærkveldi að
bankinn hefði neitað þessari beiðni
í fyrradag, og ekkert benti til þess
að breyting yrði á þessari afstöðu
bankans.
íslenzka skipafélagið tilkynnti í
síðustu viku að félagið stefndi að
þvi að auka hlutafé sitt í 200 millj-
ónir, en engar upplýsingar for-
svarsmanna félagsins hafa fengist
um það hversu mikið af hlutafjár-
loforðum hafi borist. Jón sagðist
í gær ekki vita hvernig gengi, en
taldi að vel miðaði. Morgunblaðið
hefur heimildir fyrir því að Út-
vegsbankanum hafi heldur engar
upplýsingar borist um það hversu
mikið af hlutafjárloforðum hefði
safnast. íslenzka skipafélagið hef-
ur frest fram yfir miðjan desem-
bermánuð til þess að gera banka-
stjórn Útvegsbankans grein fyrir
því hvernig félagið hugsar sér að
yfirtaka skuldir Hafskips. Fallist
bankinn á hugmyndir félagsins
getur það starfað áfram, ella verð-
Tilboð í Víð-
ishúsið í
Kópavogi
FORMLEGT tilboð hefur borist í
húseign Tésmiðjunnar Víðis hf. við
Smiðjuveg í Kópavogi. Samkvæmt
heimildum Mogunblaðsins á þar í
hlut stuðningsmannafélag íþróttafé-
lagsins Vals, og mun hugmyndin
vera að setja þar á fót íþrótta- og
líkamsræktarmiðstöð. Að sögn
Gunnars Helga Háfdánarsonar, for-
manns stjórnar fyrirtækisins, hefur
tilboðinu verið tekið með fyrirvara
um samþykki veðhafa í húsinu. Hús-
eign Tésmiðjunnar Víðis við Smiðju-
• -^veg er 7000-8000 fermetrar að stærð,
og er brunabótamat þess í kringum
UOmilljónir króna.
Trésmiðjan Víðir hefur átt við
greiðsluörðugleika að stríða frá því
í sumar og var fyrirtækinu veitt
greiðslustöðvun þann 23. ágúst sl.
Hún rennur út 23. desember nk.
Strokufanginn
fundinn
> FANGINN af Litla Hrauni, sem
strauk af tannlæknastofu í Reykja-
vík í byrjun mánaðarins, var hand-
tekinn í íbúð í Reykjavík í gær.
Lýst var eftir honum í fjölmiðl-
um, en þrátt fyrir ítrekaða leit
tókst ekki að hafa upp á honum
fyrr en í gærmorgun. A þriðjudag
voru lögreglumenn fikniefnadeild-
— ar lögreglunnar beðnir að leita
mannsins og leiddi eftirgrennslan
þeirra til handtökunnar.
ur að rifta þeim samningi sem
Hafskip og fslenzka skipafélagið
gerðu með sér.
Jón sagði að verið væri að reyna
að semja þannig við lánadrottna,
að Hafskip verði ekki gjaldþrota.
Það væri ljóst að lánadrottnar
þyrftu að gefa eitthvað eftir af
sínum kröfum, en ef allir gerðu
það, og dæmið gengi upp, þá yrði
Hafskip ekki gjaldþrota.
Engir fundir hafa verið með
stjórnendum Eimskips og Útvegs-
bankans síðan sl. mánudag, og í
gærkveldi hafði nýr fundur ekki
verið ákveðinn. Fastlega er búist
við að til úrslita dragi á einn eða
annan veg í þessu máli áður en
þessari viku er lokið.
Sjá bls. 51: Starfsmenn Hafskips
á fund borgarstjóra og þingmanna.
Morgunblaðið/Júlíus
Cortina-bifreiðin gjöreyðilagðist við áreksturinn. Á inn-
felldu myndinni er langferðabifreiðin sem hafnaði utan
vegar á hitaveitustokki.
Mosfellssveit:
m
Ný skulda-
bréfaútgáfa
SÍS fyrir
hundrað
milljónir kr
SALA hefst í öllum afgreiðslum
Landsbanka íslands nk. mánudag á
nýjum fyrirtækjaskuldabréfum sem
bankinn býður út fyrir Samvinnusjóð
íslands en með Samband ísl. sam-
vinnufélaga sem skuldara. Er þetta
stærsta skuldabréfaútboð íslensks
fyrirtækis til þessa, því að fjárhæð
þess er alls 100 milljónir króna.
Ávöxtunarkrafa þessara bréfa er
lægri en á fyrri fyrirtækjabréfum
eða rétt innan 10% en á móti
kemur endursölutrygging Lands-
bankans sem felur í sér að bankinn
skuldbindur sig til að sjá um sölu
bréfanna á markaðsverði hlið-
stæðra skuldabréfa eigi síðar en
mánuði eftir að sölubeiðni berst.
Skuldabréfin eru að fjárhæð 10
þúsund, 50 þúsund og 100 úsund
krónur og eru ýmist til 3ja eða 5
ára. Áður hefur einungis verið
unnt aö kaupa 100 þúsund bréf í
hliðstæðum útgáfum hjá Lands-
bankanum og þau ekki verið til
sölu í almennum afgreiðslum
bankans eins og nú verður.
Sjá: „100 millj. kr. skuldabréfaút-
boð Sambandsins" á B1
Þrjár sölur
ÞRJÚ íslenzk ilskiskip seldu afla
sinn erlendis á miðvikudag. Fengu
þau þokkalegt verð fyrir hann, 51 til
56 krónur í Bretlandi og 38 krónur
í Þýzkalandi að meðaltali fyrír hvert
kfló.
Aðalvík KE seldi 86,4 lestir,
mest karfa í Cuxhaven. Heildar-
verð var 3.300.100 krónur, meðal-
verð 38,18. Kambaröst SU seldi
125,2 lestir, mest þorsk og ýsu í
Hull. Heildarverð var 7.039.000
krónur, meðalverð 56,24. Loks seldi
Rauðinúpur ÞH 112,7 lestir í
Grimsby. Heildarverð var
5.779.500 krónur, meðalverð 51,27.