Morgunblaðið - 10.12.1985, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
5
Minni og kynni
— bók með frásögnum og viðtölum
eftir Emil Björnsson komin út
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur
hefur gefið út bókina „Minni og
kynni“, frásagnir og viðtöl eftir
Emil Björnsson, fv. prest og frétta-
stjóra sjónvarpsins.
Þeir sem höfundur segir frá og
ræðir við í bókinni eru Aðalbjörg
Sigurðardóttir, Brynjólfur Bjarna-
son, Guðlaug Helga Þorgrímsdótt-
ir, Gylfi Þ. Gíslason, Halldór
Laxness, Hendrik Ottósson, Jó-
hanna Egilsdóttir, Jónas Jónsson,
María Maack, ómar Ragnarsson,
Sigurður Nordal og Vigfús Þórðar-
son.
í fáeinum formálsorðum segir
höfundur:
„Öllum, sem frá er sagt og við
er rætt á blöðum þessarar bókar,
hefi ég kynnst persónulega og þeir
orðið mér minnisstæðir.
Minnst persónuleg kynni hefi ég
haft af Halldóri Laxness en þeim
mun nánari lesendakynni frá því
að hann fór að gefa út bækur og
mín kynslóð að lesa þær.
Langflestir þessara manna hafa
einnig orðið minnisstæðir öllum
almenningi á íslandi á þessari öld,
enda komið mjög við sögu hennar.
Nokkrir þáttanna í bókinni hafa
verið fluttir í ríkisfjölmiðlunum,
sem ég hefi lengi starfað við.“
í umsögn útgáfunnar á bókar-
' ápu segir m.a.
„Höfundur þessarar bókar, sr.
Emil Björnsson, er fæddur árið
Emil Björnsson
1915 og hefur verið prestur, út-
varpsmaður og sjónvarpsfrétta-
stjóri um sína ævidaga. Hann
hefur því haft ákjósanlega aðstöðu
til að kynnast mönnum og fylgjast
með málum, er sett hafa svip á
þjóðlífið á mesta byltingarskeiði í
landssögunni, sem orðið hefur í tíð
einnar kynslóðar."
Bókin „Minni og kynni" er 144
blaðsíður að stærð, prentuð í
Prentstofu G. Benediktssonar og
bundin hjá Arnarfelli.
Ferjuþulur
gefnar út
ALMENNA bókafélagið hefur sent
frá sér bókina Ferjuþulur eftir Val-
garð Egilsson, lækni og skáld. Guð-
mundur Thoroddsen hefur mynd-
skreytt bókina þannig að mynd-
skreyting er á hverri síðu og mynd-
ar upphafsstað Ijóðsins og sýnir efni
úr Ijóðinu.
í fréttatilkynningu AB segir
m.a.:
„Ferjuþulur segja frá ferð með
Akraborginni frá Reykjavík til
Akraness og því sem höfundurinn
sér utan borðs og innan. Er það
margt og misjafnt og sumt næsta
kátlegt og nýtur sín vel í hinu
gamalkunna þuluformi. Mynd-
skreytingar falla mjög vel að efn-
inu.
Alþýðuleikhúsið hefur haft leik-
rænan upplestur á Ferjuþulum í
vetur við góðar undirtektir."
Ferjuþulur — Rím við bláa
Valgarður Egilsson
strönd er 40 bls. að stærð og unnin
í Prentverki Akraness.
Saga íslensku knattspyrnunnar -1:
MÖRK
OG
4». SIGR^B
Mörk og
sætir sigrar
Fyrsta bindi. Bókin
sem hefur aö
geyma hafsjó af
upplýsingum og
myndum
Veriö med frá byrjun!
k'a„g_. grín og 9»e*
\E 125»
,riSkar" ’,n,a ra á kosWm 3. -n*~*
11T'
gleöin þaKKa. h
i
hressneestasumar.
r Ingimar Eydal leikur létta dinnermúsík fyrir matargesti.
.Tryggið ykkur miöa í tíma í síma 77500 þar sem uppselt hefur
verið undanfarnar helgar.
' Já, nú eru síöustu forvöð að tryggja sér Sumargleðistund.
-
Matsedill
Sveitapaté
Fyllt grísasneiö með
camembert-sósu
Appelsínurjómarönd í
súkkulaðibollum.
Lfló
Kristleifur á Kolbeinsstöðum í Kjós: „Ég sprengdi varirnar fimm sinnum af hlátri á gleöinni
og ég verö bara varamaður um helgina. Sjáumst í Broadway an ág má vara mig.“
brcaiw