Morgunblaðið - 10.12.1985, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
17
15 sjúkrahús á fjárlög:
Beiti mér fyrir
frestun málsins
— segir heilbrigðisráðherra
Ragnhildur Helgadóttir heilbrigó-
ismálaráðherra lýsti því yfir á fundi
Landssambands sjúkrahúsa á Hótel
Sögu á fóstudag, að hún myndi
beita sér fyrir því að fresta áform-
um sem fram koma í frumvarpi að
fjárlögum, þess efnis, að flytja 15
sjúkrahús, þar með talinn Borgar-
spítalann í Reykjavík, úr svokölluðu
daggjaldakerfi á föst fjárlög þegar
um komandi áramót. Jafnframt
myndi hún koma á fót viðræðu-
nefnd viðkomandi aðila um fram-
kvæmd málsins og stefna að því að
tillögur frá nefndinni liggi fyrir að
vori.
Landssamband sjúkrahúsa boð-
aði til fundar um framangreind
fjárlagaáform á Hótel Sögu í gær.
Ríkisspítalar, Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri og Landakosts-
spítali hafa þegar verið fluttir af
daggjöldum á fjárlög. Á fundinum
kom fram gagnrýni á aðdraganda
málsins, þ.e. áform fjárlagafrum-
varps um flutning 15 hinna stærri
sjúkrahúsa á fjárlög, án samráðs
við sveitarstjórnir, sem þessar
heilbrigðisstofnanir reka, eða
stjórnir þeirra. Töldu gagnrýnend-
ur rekstrarkostnað fjárlaga-
sjúkrahúsa vanáætlaðan, þau
söfnuðu því skuldum sem ykju á
fjármagnskostnað, og að niður-
staðan gæti orðið minni og lakari
heilbrigðisþjónusta.
Magnús Pétursson, fjárlaga- og
hagsýslustjóri, taldi eðlilegt að
fjárveitingavaldið hefði áhrif á
kostnaðarframvindu heilbrigðis-
stofnana, en ríkið bæri kostnaðar-
þátt þeirra að langstærstum hluta,
bæði stofnkostnað og rekstur.
Hann sagði heildarfjárframlög til
umræddra 15 sjúkrahúsa, sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpi, 1.765
m.kr., en samsvarandi framlög af
daggjöldum næmu hinsvegar 1.485
m.kr. Hér skakkaði því 300 m.kr.
enna-
vinir
sjúkrahúsunum í vil undir fjár-
lagakerfi.
I lok fundarins var samþykkt
ályktun, þar sem þvi var fagnað,
að heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra beitti sér fyrir frestun á að
sjúkrahúsin fimmtán yrðu færð
af daggjaldakerfi yfir á fjárlög og
að næsta ár yrði notað til þess að
kanna framtíðarstefnu í málefnum
spítalanna og hvemig fjárþörf
þeirra væri bezt borgið.
Ragnhildur Helgadóttir, heilbrigðisráðherra, flytur ræðu á fundi Landssambands sjúkrahúsa.
Frá Argentínu skrifar 41 árs kona,
sem einnig segist aðeins skrifa og
tala dönsku. Ahugamálin eru frí-
merkja- og póstkortasöfnun, einn-
ig safnar hún tómum eldspýtna-
stokkum:
Rosa Jörgensen,
17 de Agosto 1150,
Barrio B. Machado,
7500-Tres Arroyos,
Argentina.
Frá ísrael skrifar 36 ára kona, sem
vill skrifast á við jafnöldrur sínar.
Áhugamálin eru bóklestur, kvik-
myndir, tónlist o.fl.:
Tuvia Frydman,
Kibbutz Máale Hahamisha,
90835 Judea hills,
Israel.
Frá Bandarikjunum skrifar náms-
maður við Texasháskóla í Austin,
en þar eru nokkrir Islendingar við
nám. hann getur ekki um aldur en
er líklega rétt rúmlega tvítugur.
Getur heldur ekki um áhugamál:
Douglas Krawczynski,
15119 Encino Verde,
San Antonio,
Texas 78232,
USA.
Sextán ára piltur í Japan með
íþróttaáhuga:
Noriko Iwamoto,
127-1 Tanomoto,
Emukae-chou,
Kitamatsuura-gun,
Nagasaki,
859-61 Japan.
Vinsælasta fjölfræðirit
HEIMSINS
íslenskur ritstjóri:
ÖRNÓLFUR THORLACIUS
KAFLAHEITI
Haðurinn
Lífheimurinn
Jörðin
Heimur og geimur
Heimur visindanna
Listir og dægradvöl
Mannvirki
Tækniheimurinn
Heimur viðskiptanna
Mannheimur
Afreksverk manna
íþróttir, leikir
og tómstunda-
iðkanir
Ny og
gjörbreytt
útgáfa
í tilefni
30 ára afmælis hei
Efni þessarar útgáfu er gjörbreytt frá tveimur fyrri
útgáfum, sem Komu út 1977 og 1980 ogeru löngu
uppseldar. AuK þess sem efnið hefur teKið algjörum
staKKasKiptum eru nú flestar myndanna í litum og
er þar um byltingu að ræða frá því sem áður var.
HEIMSMETABÓK QUIHtiESS nýtur miKilla vinsælda
msmetabókarinnar
_ ÖLL UTFRE«Tl)Ð
um allan heim enda sameinar hún það að vera
annars vegar sKemmtilegt lestrarefni og hins vegar
ein yfirgripsmesta QölfræðibóK sem völ er á. Hún
er náma af traustum og aðgengilegum fróðleiK af
hinum ólíKustu sviðum.
Heimsmetabókin er kjörgripur sem kemur víðar
við en flestar aðrar bækur
BOKALTGAFAN ORN & ORLYGUR
Síðumúla 11, sími 84866