Morgunblaðið - 10.12.1985, Page 21

Morgunblaðið - 10.12.1985, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1986 21 — Hvað ertu með í brúna um- slaginu? Hann varð hálf kindarlegur á svipinn við svo óvænta spurningu, hafði líklega ekki búist við henni. i Hann kveikti í pípu og þegar hann ; hafði tendrað í hana eld og púað um stund sagði hann: — Ég er mánaðarkaupsmaður, var að fá mánaðarlaunin, fæ útborgað fimmtánda dag hvers mánaðar og nú er ég á leiðinni í Landsbankann og í umslaginu eru fimm gíró- seðlar, afborganir af ýmsum skuldabréfalánum, tvö eru með | veðleyfi í íbúðinni og hafa hækkað þessi lifandis ósköp síðan ég fékk þau fyrir um það bil ári, sennilega um allt að fimmtíu prósent. Hann fletti búnkanum í umslaginu og skýrði hvern reikning samvisku- samlega og var ekki beint glaðleg- ur á svipinn: — Sérðu hérna er rafmagnsreikningurinn, hér er símareikningurinn, hér eru reikn- ingar varðandi útvarp og sjónvarp og gíróseðlar, áskriftir að blöðum og tímaritum, hér eru seðlar frá bókaklúbbum, — hér eru happ- drættismiðar frá líknarfélögum. — Hvað heldurðu að seðlarnir ; séu margir? spurði ég. — Ég hef nú ekki talið þá. Þeir eru sennilega eitthvað á milli tutt- |ugu og þrjátíu. — Attu nokkuð eftir af mánað- arkaupinu þegar þú ert búinn að ! greiða allar þessar skuldir? — Það er ekki mikið, en þessu 'er ég vanur, svona hefur þetta verið allt síðastliðið ár. Bráðum kemur betri tíð, sagði hann svo þegar hann bjó sig undir að ganga yfir að Landsbankanum. — Ég er byrjaður að kaupa miða hjá Getraunum, tek Jþátt í knatt- spyrnugetrauninni. Eg get bara j ómögulega lifað á þeim taxta sem I ég hef sem Dagsbrúnarverkamað- ur... ________________________________ Skotfélag Keflavíkur og nágrennis: Hefja skot- æfíngar innanhúss Voifum, 5. desember. SKOTFÉLAG Keflavíkur og ná- grennis hefur tekið húsnæði á leigu hjá ísstöðinni h.f. í garði undir starfsemi félagsins. Formaður félagsins Vilhjálmur Grímsson sagði í samtali við Morgunblaðið að í húsnæðinu yrði komið fyrir 3—4 skotbrautum með 25 metra færi, þegar fengist hafi tilskilin leyfi hjá fógeta. Gert er ráð fyrir að nota 22 kalibera riffla ogskammbyssur. Félagar í skotfélagirru eru lið- lega 50, og sagðist Vilhjálmur vona að félögum fjölgaði eftir að félagið hefði fengið þessa aðstöðu en auk æfingaaðstöðu er vonast til að í húsinu geti orðið vísir að félagsað- stöðu. Varðandi útiaðstöðu hefur ekki tekist að fá svæði sem eru nægi- lega örugg fyrir öfluga riffla. „Við munum halda áfram að vinna aö því máli, svo hægt verði að st.unda æfingar innanhúss og utan við löglegar aðstæður," sagði Vil- hjálmur. Æfingaaðstaða félagsins verður tekin í notkun á næstu dögum. E.G. V^terkurog hagkvæmur auglýsingamiðill! SALTAR SÖGUR Jónas Guðmundsson Sögur Jónasar Guðmunds- sonar fjalla nær allar um sjó- mannalíf og farmennsku eða minnsta kosti hlutskipti fólks við sjávarsíðuna. Höfundur var jöfnum höndum rithöfund- ur og myndlistarmaður. Sögurnar bera þessu vitni. Þær einkennast löngum af frásagnargleði og hugkvæmni Jónasar en eru eigi síður myndrænar. Saltar sögur eru margar skemmtileg listaverk sem spegla aldarfar, baráttu og sífellda hamingjuleit. SA.LTAR SOGUR Bókaúfgófa /HENNING4RSJÓÐS SKALHOLTSSTlG 7 • HEYKJAVlK • SlMI 621822 • ISLENSK BÓKAMENNING ER VERÐMÆTI • TÖLUÐ ORD Andrés Björnsson Hugvekjur þessar sverja sig víða í ætt við ágætar ritgerðir og fagrar bókmenntir. Þær hefjast yfir stað og dægur þó oft sé lagt út af tilefni líðandi stundar, knýja til umhugsunar, víkka andlegan sjóndeildar- hring og marka tímabæra stefnu. Andrés Björnsson ræðir meginatriði íslenskrar menningar af athygli og einurð og minnir iðulega á hversu okkur beri að varðveita hana og efla. En jafnframt sér hann og heyrir út í heim og hyggur að málefnum veraldar og mannkyns. ÁramótatKigleíóingar 1968-1984 Bökaúfgafa /MENNING4RSJÓÐS SKALHOLTSSTlG 7 • REYKJAVlK • SlMI 621822 LÍFS' HÆTTIR m . i REYKJA' VlK SigurðurG. Magnússon Efni bókarinnar er á þá lund að höfundur rekur tilefni henn- ar í formála en fjallar síðan í inngangi um kreppuástandið á þeim tíma er frá segir. Þá tekur við meginkaflinn þar sem greinir frá híbýlum, hús- munum og daglegum lifnaðar- háttum fjölskyldnanna fimm, en þar er lýst heimilum Krist- ínar Guðmundsdóttur og Ólafs Þorsteinssonar læknis að Skólabrú 2, Oddrúnar Sigurð- ardóttur og Helga Magnússon- ar kaupmanns að Bankastræti 7, Margrétar Gísladóttur og Guðmundar Gíslasonar skipa- smiðs að Vesturgötu 30, Vil- borgar Jónsdóttur og Aðal- steins Guðmundssonar verka- manns að Hofsvallagötu 15 og Ragnars Jónssonar verka- manns og fjölskyldu hans í Bjarnaborg og Pólunum og á fleiri stöðum. Stgur&ur G. Magnusson UFSHÆTTIR í REYKJAVÍK 1930-1940 Bókaúfgöfa /MENNING4RSJÖÐS SKALHOLTSSTlG 7 • REYKJAVlK • SlMI 6218 22 SIDUR A fSLANDI ÖlafurBriem Ólafur Briem fyrrum mennta- skólakennari á Laugarvatni er bæði vandvirkur fræðimaður og listrænn rithöfundur. Kunn- asta rit hans mun Heiðinn siður á íslandi sem hér birtist í nýrri útgáfu endurskoðaðri og aukinni. Bókin skilgreinir heiðinn sið, trú og guði fom- manna og áhrif heiðninnar á menningu okkar og þjóðhætti og telst öndvegisrit um íslensk fræði. Bókaúfgófa /MENNINGMRSJÖÐS SKÁLHOLTSSTlG 7 • REYKJAVlK • SlMI 621822

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.