Morgunblaðið - 10.12.1985, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
35
Ójafn leikur
— eftir Jón Baldvin
Hannibalsson
Morgunblaðinu hefur borist eftirfar-
andi athugasemd frá Jóni Baldvin
Hannibalssyni:
Vegna ummæla Alberts Guð-
mundssonar í Þingsjá föstudags-
kvöldið 6. þ.m. þess efnis að ég hafi
neitað þátttöku í Þingsjá, er rétt og
skylt að biðja fyrir eftirfarandi leið-
réttingu:
(1) Af hálfu sjónvarpsins var
minnar nærveru ekki óskað, fyrr
en Albert Guðmundsson gerði það
að skilyrði fyrir sinni þátttöku.
E.t.v. hefur honum fundizt það
jafn kynlegt og mér, að fulltrúi
þess flokks, sem fyrstur tók mál
Útvegsbanka og Hafskipa hf. upp
á Alþingi, skyldi ekki tilkvaddur
þegar alþm. var stefnt til rök-
ræðna um málið í sjónvarpssal.
Sérstaklega þar sem þingmenn
Alþýðuflokksins höfðu deginum
áður lagt fram á Alþingi beiðni
um skýrslu og tillögu um rann-
sóknarnefnd um þetta mál.
(2) Vegna kröfu Alberts Guð-
mundssonar bað umsjónarmaður
Þingsjár mig, síðdegis á föstudag,
að mæta sem þriðji maður í þátt-
inn, ásamt þeim Guðmundi Ein-
arssyni og Olafi Ragnari Gríms-
syni — gegn Albert einum. Það
þótti mér ekki virðingu minni
samboðið og reyndar „óíþrótta-
mannslegt", eins og ég orðaði það.
Hins vegar lýsti ég mig fúsan til
að mæta, ef formaður bankaráðs
Útvegsbankans og viðskiptaráð-
herra vildu standa fyrir máli sínu,
með Albert.
(3) Niðurstaðan varð sú, að
umsjónarmaður bað mig að vera
viðbúinn þátttöku, ef hann fengi
formann bankaráðsins og við-
skiptaráðherra, annan hvorn eða
báða, til að fulltingja Albert í
þættinum. Kvaðst hann myndu
hringja i mig síðar ef minnar þátt-
töku yrði óskað. Á það reyndi
aldrei.
Það er því misskilningur hjá
Albert Guðmundssyni að ég hafi
neitað að rökræða málið í sjón-
varpi. En þriðji maður í svo ójöfn-
um leik vildi ég ekki vera.
Jón Baldvin Hannibalsson
Þátttakendur á námskeiðinu ásamt skólastjóra og kennurum.
Stýrimannaskólinn
hélt 30 tonna
réttindanámskeið
MEÐ lögum sem samþykkt voru á
haustþinginu 1984 varö sú breyting á
lögum um atvinnuréttindi skip-
stjórnamanna á íslenskum skipum,
-að kunnáttu til að öðlast réttindi sem
skipstjóri í innanlandssiglingum á
skipi, sem er 30 rúmlestir eða minna
skal kanna með sérstökum prófum,
sem menntamálaráðuneytið hefur
umsjón með.
Felur ráðuneytið Stýrimanna-
skólanum í Reykjavík og Stýri-
mannaskólanum í Vestmannaeyj-
um eða öðrum skólum sem það
ákveður að sjá um prófin og annast
kennslu undir þau.
Ráðuneytið skipar einnig sérstak-
an prófdómara. Er það ein megin-
breyting laganna frá eldri lögum,
að annar maður en sá sem kennir
dæmi frammistöðu nemenda.
f eldri lögum sáu einstakir menn
og kennarar og skólastjórar Stýri-
mannaskólanna um bæði próf og
kennslu og voru skipaðir til 5 ára í
senn af samgönguráðuneytinu.
Með nýju lögunum féll því umboð
þeirra niður og skal menntamála-
ráðuneytið skipa prófdómara.
Til þess að ljúka prófinu segir í
lögum: „Þarf viðkomandi að upp-
fylla eftirfarandi skilyrði: a) Kunna
skil á siglingatækjum, stefnuleið-
réttingum og að setja stefnu og
miðanir á sjókort, aiþjóðareglum til
að koma í veg fyrir árekstur á sjó,
grundvallaratriðum stöðugleika og
sjóhæfni skipa, flóði og fjöru, vita-
kerfum, björgunarstöðvum og
björgunartækjum og lífgun úr
dauðadái."
Þá verður einnig að leggja fram
vottorð um 18 mánaða siglingatíma
á skipi yfir 6 rúmlestir að stærð í
innanlandssiglingum til að fá at-
vinnuskírteini.
Fyrsta námskeiðinu sem haldið
var við Stýrimannaskólann í
Reykjavík skv. þessum lögum lauk
með prófi hinn 20. nóvember sl.
Námskeiðið hófst 23. september sl.
og stóð í réttar 8 vikur.
Þátttakendur voru 27 og var
kennt í tveimur hópum þrjú kvöld
í viku frá klukkan 17—19.30 og frá
19.00 til 21.30.
Samtals fengu nemendur 73
kennslustundir, sem skiptust í sigl-
ingafræði, stöðugleika og tæki;
ennfremur fór erindreki Slysa-
varnafélags Íslands eitt kvöld yfir
helstu atriði í slysavörnum, skyndi-
hjálp og brunavörnum. Ætlunin er
að bæta vð þennan öryggisþátt, en
kennt var eftir uppkasti að reglu-
gerð.
21 nemandi af 24 sem gengu undir
próf luku því með fullnægjandi
árangri í öllum greinum skv. kröfu
laganna og menntamálaráðuneytis-
ins eins og segir á skírteini, sem
nemendur fengu afhent við stutta
athöfn í Sjómannaskólanum.
Prófdómari við prófið var skipað-
ur Ásmundur Hallgrímsson kennari
við Stýrimannaskólann, sem kenndi
þó ekki við námskeiðið, en aðrir
kennarar og skólastjóri Stýri-
mannaskólans, Guðjón Ármann
Eyjólfsson, kenndu við námskeiðið.
Margir nemendur óskuðu við út-
skrift að hafa framhaldsnámskeið
í úthafssiglingu seglbáta og einn
þátttakenda, Gestur Ölafsson arki-
tekt, kom með þá tillögu að fram-
haldsnámskeið og siglingaskóli yrði
við strendur Miðjarðarhafsins.
Hlaut sú tillaga góöan hljómgrunn
og lof í lófa.
Áformað er að vornámskeið
Stýrimannaskólans fyrir 30 rúm-
lesta námskeið hefjist 16. janúar
nk. Fyrirkomulag verður með líku
sniði og á haustnámskeiðinu og er
skráning þegar hafin.
(Frétutilkvnninf!)
Allar gerðir skrifstofuhúsgagna
Ath.
sérstaklega!
Nýju skerma-
veggirnir okkar
Þeir hafa slegiö í gegn enda frábær hönnun og fallegt útlit
Hönnuður Sturla Már Jónsson. RH.i.
Stuttur afgreiðslutími.
Sérverslun með skrifstofuhúsgögn.
Á. GUÐMUNDSS0N
Húsgagnaverksmiðja, Skemmuvegi 4, Kópavogi, Sími 73100
Fair hlutir eru oftar í hendi þinni en
hnífapörin. Þess vegna þarf að vanda
valið. NOVA er nýtt munstur úr eðalstáli
með mattri satínáferö, fagurlega hannaö.
WILKENS
SILFURBUÐIN
Laugavegi 55, Reykjavík Sími 11066