Morgunblaðið - 10.12.1985, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
37
Suður-Afríka:
Drógu til baka
landráðaákæru
Jóhannesarborf;, Suóur Afríku, of> Senttle, Kandaríkjunum, 9. desember. AP.
STJORN Suður-Afríku til í dag til
baka ákæru um landráð á hendur
tólf af hclstu andstæðingum að-
skilnaðarstefnunnar. I»eir höfðu
verið sakaðir um að styðja baráttu
Afríska þjóðarráðsins.
Opinberi ákærandinn í málinu,
Michael Imber, tilkynnti fyrir
hæstarétti í Natal-héraði, að
ákærurnar hefðu verið dregnar til
baka að því er varðaði tólf af
sextán, sem ákærðir hefðu verið,
en yrði haldið til streitu gagnvart
fjórum.
Mikill fögnuður varð fyrir utan
dómshúsið í Pietermaritzburg,
þegar vitnaðist um ákvörðun
þessa, og féllust ættingjar og vinir
í faðma við tólfmenningana.
Sprengja sprakk í dag fyrir utan
pósthús í iðnaðarhverfi hvítra
manna í borginni Durban og særð-
ust átta manns, þ.á m. tveir hvítir
lögreglumenn, að sögn yfirvalda.
Talsmaður lögreglunnar sagði,
að farið hefði verið með fólkið á
sjúkrahús, en meiðsl þess hefðu
ekki verið alvarlegs eðlis.
Séra Jesse Jackson, sagði við hóp
mótmælafólks í Seattle í Banda-
ríkjunum á sunnudag, að andstæð-
ingar aðskilnaðarstefnunnar yrðu
nú að beina baráttu sinni að þeim,
sem hefðu viðskiptatengsl við
Suður-Afríku, svo sem útgerðum
kaupskipa: „Við verðum að útiloka
öll viðskipti við landið og þjarma
svo að um munar að þessu illyrm-
islega kerfi," sagði hann.
AP/Símamynd
Herská ungmenni munda trériffil
við útfor 11 blökkumanna í borgar-
hverfinu Mlungisi í Höfðahéraði á
laugardag. Um 20.000 manns voru
viðstödd útförina, sem stóð yfir I
fjórar stundir.
Danmörk:
Stuðningur tryggður
við efnahagsaðgerðir
Kaupmannahöfn, 10. desember. Frá Ibi
SAMKOMULAG hefur nú tekist
með minnihlutastjórn Poul SchlUt-
ers, forsætisráðherra og Radikale
Venstre um efnahagsaðgerðirnar,
sem boðaðar voru í síðustu viku.
Gjaldið, sem radikalar settu upp
fyrir stuðninginn, var að atvinnu-
leysisbætur, sjúkradagpeningar og
eftirlaun hækkuðu um 2% 1. aprfl
nk. f tillögum stjórnarinnar var
þessi hækkun fyrirhuguð 1. októb-
er.
Fyrirhugaðar efnahagsaðgerð-
ir stjórnarinnar fela það í sér
t.d., að dregið verður úr verkleg-
um framkvæmdum hjá hinu
opinbera, jafnt ríki sem sveitar-
félögum. Af þeim framkvæmd-
um, sem þegar hefur verið hafist
handa við, verða sveitarfélögin
að greiða ríkinu skatt, 10% af
fjárveitingu til þeirra, en af
þeim, sem áætlaðar eru á næsta
ári, verður skatturinn 20%.
Bensínlítrinn hækkar um 75 aura
danska, olíulítrinn um 25—28
aura, heimilisgas um 10 aura og
gas á kútum um 33 aura. Kola-
tonnið verður 195 kr. dýrara og
rafmagnið hækkar um 3,5 aura
hver kílóvattstund.
Poul Schlúter
Dregið verður úr lánum til
breytinga á húsum og útlán
banka og sparisjóða verða al-
mennt skert. Innan stjórnarinn-
ar er samkomulag um þessar
tillögur en litlu flokkarnir tveir,
Miðdemókratar og Kristilegi
þjóðarflokkurinn, eru þó ekki
alls kostar ánægðir. Setja þeir
einkum fyrir sig hækkun orku-
skattsins.
Það er vaxandi viðskiptahalli,
sem veldur því, að stjórnin telur
sig tilneydda til að grípa til
þessara aðgerða. Útlit er fyrir,
að hann verði 22 milljarðar dkr.
á þessu ári en vegna þessara
aðgerða er búist við, að hann
verði ekki meiri en 16 milljarðar
á næsta ári. Það er eitt af stefnu-
málum stjórnarinnar, að við-
skiptahallinn verði úr sögunni
árið 1988.
Innflutningurinn hefur aukist
mikiu meira en útflutningurinn
og aðgerðir stjórnarinnar miðast
við, að útgjöld í opinbera geiran-
um verði skorin niður um fimm
milljarða dkr. og um þrjá millj-
arða í einkageiranum. Mikill
uppgangur er nú í byggingariðn-
aðinum og raunar atvinnulífinu
almennt, einkum þó á Jótlandi
þar sem víða er farið að vanta
fólk til vinnu.
í stjórnmálunum spyrja menn
sig nú helst þeirrar spurningar
hve lengi radikalir muni styðja
stjórnina þegar efnahagsmálin
eru annars vegar. í sveitar-
stjórnarkosningunum á dögun-
um tapaði flokkurinn allmiklu
og auðveldar það honum ekki að
standa að ströngum ráðstöfunum
íþeim málum.
Guatemala:
Róttækara forseta-
efnið vann sigur
(•uatemalaborg, 9. desember. AP.
KRISTILEGI demókratinn, Vinicio
Cerezo, vann sigur í forsetakosning-
um í Guatemala yfir andstæðingi
sínum Jorge Carpio frá Þjóðarfylk-
ingunni. Verður Cerezo fyrsti lýð-
ræðislega kjörni forseti landsins í
19 ár, en herinn hefur farið þar með
völdin samfleytt í nær 30 ár. Cerezo
er talinn heldur vinstra megin við
miðju í stjómmálum og ekki eins
hægri sinnaður og andstæðingur
hans.
„Við viljum kveða niður þessa
gömlu einræðisdrauga og grafa
tímabil stolinna kosninga og
valdarána. Við munum vinna lýð-
ræðinu brautargengi," sagði
Skipzt á
njósnuriim
Bonn, 9. deaember. AP.
AUSTUR- og Vestur-Þýzkaland skip-
ust á „takmörkuðum fjölda af
njósnurum" í siðustu viku. Skýrði
talsmaður Bonnstjórnarinnar frá
þessu í dag.
Um var að ræða menn, sem
dæmdir höfu verið fyrir njósnir.
Talsmaðurinn, Friehelm Ost, neit-
aði hins vegar að skýra frá, um hve
marga njósnara væri að ræða. Haft
er þó eftir áreiðanlegum heimildum,
að mennirnir hafi verið þrír, einn
frá Austur-Þýzkalandi, sem skipt
hafi verið fyrir tvo Vestur-Þjóð-
verja.
Timman
tryggði
sér sæti
Montpellcr, Frakklandi. 9. desember. AP.
Jan Timman tryggði sér sæti í
áskorendaeinvíginu um réttinn til að
tefla um heimsmeistaratitilinn er
hann telfdi lokaskákina við Mikhail
Tal frá Sovétríkjunum á sunnudag.
Eftir að þeir höfðu leikið sex skákir
stóðu þeir á jöfnu með þrjú stig hvor,
en Timman hafði hærra vinningshlut-
fall eftir áskorendamótið í Montpell-
er og hlaut því sætið.
Timman mun tefla við Sovét-
manninn Artur Youssoupov á
áskorendamótinu sem fram fer 8.
janúar til 2. febrúar, en mótsstaður-
inn hefur enn ekki verið ákveðinn.
Cerezo í sjónvarpsviðtali eftir að
úrslit kosninganna voru kunn.
Carpio viðurkenndi ósigur sinn og
sagði að þjóðin hefði látið í ljósi
vilja sinn. Cerezo og Carpio hlutu
mest fylgi í kosningum 3. nóvem-
ber síðastliðinn, þar sem sex aðrir
buðu sig einnig fram. Enginn hlaut
hreinan meirihluta í kosningunum
og því varð að kjósa aftur milli
þeirra tveggja sem mest fylgi
hlutu.
Þegar um 25% atkvæða höfðu
verið talin, hafði Cerezo fengið -
67,12% atkvæða á móti 32,88%
Carpios. Nefnd frá Bandaríkjun-
um, sem fylgdist með framkvæmd
kosninganna, sagði að sér virtist
sem framkvæmd þeirra hefði verið
sanngjörn. Lýsti hún yfir ánægju
sinni með það að herinn hefði ekki
haft nein afskipti af þeim og von-
aði að það yrði að fordæmi fyrir
nýju hlutverki hersins í landinu,
þar sem hann yrði þjónn lýðræðis-
lega kjörinnar ríkisstjórnar.
Veður
víða um heim
Lmgtt Hmt
Akureyrí +6 létttkýjað
Ameterdam 2 7 tkýjaó
Aþena 9 17 tkýjað
Barcelona 9 tkýjað
Berlin 3 5 tkýjað
BrUiael 0 10 rigning
Chicago +3 S rigning
Dublin 4 9 tkýjað
Feneyjar 10 þokumóða
Frankfurt S 9 rígning
Qenf 2 8 •kýjað
Helsinki +7 +3 heiðtkirt
HongKong 17 21 heiðtkfrt
Jerútalem 11 19 vantar
Kaupmannah. -1-2 0 •kýjað
Lat Palmat 20 túld
Littabon 9 19 rigning
London $ 8 •kýjað
Lot Angelet 10 19 heiðtkirt
Lúxemborg 6 rígning
Malaga 12 lótttkýjað
Mallorca 14 •úld
Miami 23 25 •kýjað
Montreal 0 1 tnjókoma
Motkva +16 +5 heiðtkirt
New York 2 9 •kýjað
Otló +17 +11 heíðtkirt
Parít 6 10 •ký|að
Peking +13 +3 heiótkfrt
Reykjavík 0 tkýjaó
Rióde Janeiro 17 29 heiðtkirl
Rómaborg 9 12 •kýjaó
Stokkhólmur +20 +« heiðtkirt
Sydney 21 33 rigning
Tókýó 6 13 hoiðekfrt
Vínarborg 2 5 tkýjað
bórthöfn 2 •kýjað
H. 180. br. 60, d. 00,
390 lítra, sambyggð-
H. 180, br. 60, d. 60,
380 lítra, sambyggA-