Morgunblaðið - 10.12.1985, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
45
Landsfundur Bandalags jafnaöarmanna
Bandalag jafnaðarmanna setur sér skipulag:
Guðmundur Einars-
son kosinn formaður
GUÐMUNDUR Einarsson, alþingis-
maður, var kosinn formaður Banda-
lags jafnaðarmanna á landsfundi
þess í Reykjavík um helgina. Vara-
formaður var kosinn Vilhjálmur
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri,
Reykjavík. Samþykktar voru breyt-
ingar á skipulagi bandalagsins og
nú kosinn formaður þess fyrsta
sinni frá stofnun bandalagsins 1983.
Samkvæmt nýjum starfsreglum
Bandalags jafnaðarmanna markar
landsfundur, sem haldinn er á
fyrsta ársfjórðungi hvers árs,
megináherzlur á stefnu BJ. Á
hverjum landsfundi er kosinn for-
maður BJ og varaformaður, einnig
10 manna landsnefnd, formaður
hennar og varaformaður, jafn-
framt formaður framkvæmda-
nefndar og loks formaður og vara-
formaður þingflokks BJ.
Formaður þingflokks BJ var
kosinn Stefán Benediktsson og
varaformaður Kolbrún Jónsdóttir.
Formaður landsnefndar, sem hef-
ur það hlutverk að stuðla að um-
ræðum og frekari útfærslu á
stefnu BJ, var kjörinn Sigurjón
Valdimarsson, ritstjóri, Reykja-
vík, og varaformaður Þorsteinn
Hákonarson, framkvæmdastjóri.
Formaður framkvæmdanefndar
var kosinn Órn S. Jónsson,
múrarameistari, Hafnarfirði, en
hlutverk nefndarinnar er rekstur
Guðmundur Einarsson, formaður Bandalags jafnaðarmanna, og Stefán
Benediktsson, formaður þingflokks bandalagsihs, ræða málin á landsfund-
inum.
skrifstofu, útgáfu- og útbreiðslu-
starfsemi og fjármál BJ eru á
hennar höndum. Formaður nefnd-
arinnar er kosinn á landsfundi, en
hann velur síðan sjálfur 4 nefndar-
menn til samstarfs og myndar
þannig 5 manna framkvæmda-
nefnd.
I landsnefnd BJ voru, auk for-
manns og varaformanns, kosin:
Snædís Gunnlaugsdóttir, lögfræð-
ingur, Húsavík, Sjöfn Halldórs-
dóttir, matráðskona, Selfossi,
Guðlaugur Ellertsson, viðskipta-
fræðingur, Hafnarfirði, Stefán B.
Sigurðsson, lektor, Kópavogi, Páll
Bergsson, skólastjóri, Akureyri,
Vilhjálmur Þorsteinsson,
framkv.stj., Reykjavík, Helgi
Guðmundsson, vélstjóri, Reykja-
vík og Jón Bragi Bjarnason, pró-
fessor, Kópavogi.
Frá landsfundi Bandalags jafnaðarmanna um helgina. Um 50 manns sátu fundinn. MorRunbiaðið/ólafurK. Mattnússon
Hafna sam-
krulli við AI-
þýðuflokkinn
SVOHLJÓÐANDI tillaga Helga
Guðmundssonar og Frosta
Bergssonar var samþykkt ein-
róma á landsfundi Bandalags
jafnaðarmanna:
Þar sem sífellt er á ferðinni
orðrómur runninn undan rifj-
um formanns Alþýðuflokksins
þess efnis að grundvöllur sé
fyrir sameiningu BJ og Al-
þýðuflokksins, vill landsfundur
Bandalags jafnaðarmanna enn
ítreka þá afstöðu BJ að slíkur
grundvöllur sé ekki fyrir hendi,
þar sem enginn munur er á
Alþýðuflokknum og hinum
gömlu flokkunum, og BJ var
einmitt stofnað til þess að
brjóta upp hið hefðbundna
samtryggingarkerfi fjórflokks-
ins.
Þess vegna hafnar BJ alfarið
öllu sameiningarhjali Alþýðu-
flokksins.
Stjómmálaályktun Bandalags jafnaðarmanna:
Stjórn framtíöarinnar verður
að vera lýðræðisleg og ábyrg
FKÁ FORRÆÐI til lýðræðis, er yfírskriftin á stjórnmálaálykt-
un landsfundar Bandalags jafnaðarmanna. I>ar segir aö
bandalagið vilji breyta stjórn landsins og sé það aðalatriði
áður en ná má öðrum árangri í að byggja hér réttlátt þjóð-
félag.
í ályktuninni segir að stjórn
framtíðarinnar verði að vera lýð-
ræðisleg til þess að vinna fyrir
fólkið en ekki gegn því, sveigjanleg
til þess að geta lagað sig að sí-
breytilegum aðstæðum í heimi
framtíðar, skilvirk þannig að upp-
lýsingar liggi fyrir fljótt og örugg-
lega og fólkið geti dæmt um árang-
urinn og ábyrg þannig að fólkið
geti treyst fulltrúum sínum og
þurfi ekki að efast um heilindi
þeirra.
Ennfremur segir í ályktuninni
að til þess að ná markmiðum sín-
um vill bandalagið kjósa forsætis-
ráðherra beinni kosningu, að allir
hafi jafnt atkvæði, kjósa fylkis-
stjórnir, leggja áherzlu á þjóðarat-
kvæðagreiðslur, setja lögum hags-
munaárekstra, gefa fiskverð og
gjaldeyrisverzlun frjálsa, hætta
niðurgreiðslum, lögleiða vinnu-
staðafélög og breyta ríkisbönkum
í almenningshlutafélög.
Jafnframt segir að Bandalag
jafnaðarmanna hafi sérstöðu
meðal íslenzkra stjórnmálaflokka
og að það eigi ekkert sameiginlegt
með P'jórflokknum, eins og aðrir
stjórnmálaflokkar eru nefndir.
Hugmyndir bandalagsins séu ós-
amræmanlegar því hagsmuna-
gæzlu- og spillingarhugarfari sem
ríkjandi sé í Fjórflokknum.
Loks segir í ályktuninni: „Við
blásum nú til sóknar gegn kerfinu.
Við viljum byggja frá grunni
samfélag framtíðarinnar þar sem
einstaklingurinn heldur fullri
sjálfsvirðingu, fær tækifæri til að
njóta sín og ber ábyrgð orða sinna
og gerða“.
Auk þess sem samþykkt var
stjórnmálaályktun var samþykkt
lengra skjal, sem nefndist ályktun
um stefnumál. Þar er m.a. lagt til
að Alþingismenn kalli inn vara-
menn sína ef þeir taka sæti ráð-
herra, að þingmönnum verði
óheimil seta í stjórnum og ráðum
sem heyra beint undir ríkisstjórn
og að Alþingi kjósi ekki í stjórnir
og ráð, sem heyra undir ríkis-
stjórn.
Þá er þar kveðið á um að verð-
lagning í sjávarútvegi verði án
ríkisafskipta og algerlega á ábyrgð
kaupenda og seljenda og fiskmark-
aðir verði settir á fót. í kafla um
landbúnaðarmál er þess krafizt að
niðurgreiðslur og útflutnings-
bætur verði felldar niður og verð-
lagning landbúnaðarafurða gefin
frjáls. Hvað snertir stjórnsýslu og
opinberan rekstur vill bandalagið
m.a. að ýmsir embættismenn og
forstöðumenn stofnana verði kosn-
ir í almennum kosningum og að
ráðið verði tímabundið í visst
hlutfall almennra starfa og allar
stöður æðstu embættismanna.
Hvað snertir vinnumarkað verði
hvatt til nýrra aðferða við greiðslu
launa, s.s. að ágóðahlutur verði
almennt stór hluti greiddra launa
og að starfsmertn eignist hlutabréf
ífyrirtækjum.
„Bandalagið á ekki sam-
leið með fjórflokkunum“
segir Guðmundur Einarsson
„VIÐ ÞURFUM ekki nema líta í
kringum okkur til að sjá að Banda-
lag jafnaðarmanna á ekki neina
samleið með fjórflokkunum," sagði
Guðmundur Einarsson, nýkjörinn
formaður bandalagsins, í samtali
við Morgunblaðið.
Guðmundur sagði að af nógu
væri að taka, sem sýndi hvernig
valdakerfi fjórflokkanna hefði
brugðist. Hafskipsmálið væri kór-
óna þessa sköpunarverks. Okur-
málin væru einnig vísbending um
ónýtt peningakerfi. Þá þyrfti ekki
nema líta á hvernig komið væri
fyrir fólki og fyrirtækjum um
land allt, það réði ekki lengur
yfirsjálfusér.
„Allt er þetta vísbending um
að við verðum að taka í taumana
á þessu kerfi, sem við notum til
að stýra okkur. I því sambandi
er krafa okkar um jöfnun atkvæð-
isréttar ekki bara spurning um
mannréttindi, heldur er um að
ræða gífurlega róttæka atlögu að
valdastrúktúrnum, sem fjórflokk-
arnir hafa reist með pólitískri
samtryggingu sinni.
Þá horfum við upp á ríkisstjórn,
sem hefur augljóslega ekkert
afrekað á þeim rúmum tveimur
árum, sem hún hefur setið, því
við erum aftur komin inn í óða-
verðbólgu. Þá er stjórnin sem
óðast að pakka saman ýmsum
áformum sínum, t.d. i skatta- og
tollamálum nú síðast, og sýnir
það að þegar á hólminn kemur
skortir menn kjark til aðgerða.
Bandalag jafnaðarmanna er
frábrugðið fjórflokkunum í því
að við leggjum áherzlu á spurn-
inguna um orsakir mála, en erum
ekki sífellt að berjast við afleið-
ingar þeirra,“ sagði Guðmundur.
Andófsmenn flest
allir fjarverandi
LÍTIÐ bar á forsprökkum Félags
jafnaðarmanna (FJ), andófsmönn-
unum svonefndu, á landsfundi
Bandalags jafnaðarmanna (BJ) um
helgina, og ekki sátu fundinn Val-
gerður Bjarnadóttir og Kristófer
Már Kristinsson, sem kosin voru
formaður og varaformaður lands-
nefndar bandalagsins á síðasta
landsfundi þess.
Þannig voru hvorki Garðar
Sverrisson né Þorlákur Helgason
á landsfundinum, en þeir voru
helztu hvatamenn að stofnun FJ.
Hins vegar tók Sjöfn Halldórs-
dóttir, sem var í kringum FJ, þátt
í störfum landsfundarins og var
kosin í landsnefnd. Jónína Leós-
dóttir sótti einnig fundinn.
Ennfremur vantaði einn þing-
manna bandalagsins á landsfund-
inn, Kristínu S. Kvaran.
„Við erum ekki að gera upp við
fólk, félög eða einstaklinga,“ sagði
Guðmundur Einarsson, formaður
BJ, er blaðamaður Morgunblaðsins
spurði hvað yrði um aðstandendur
FJ frá sjónarhóli BJ. „Við vorum
hér aðeins að skerpa okkar félags-
menn og pólitízku línur," sagði
Guðmundur.