Morgunblaðið - 10.12.1985, Page 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
13% fjölgun bandarískra
ferðamanna til október
Frá Jóni Ásgeiri SigurÓNNyni, frétUriUra MorgunlaAsins í Hew Haven, Conneetkut.
UNDANFARIN Hmm ár hefur
stöðugt farið fjölgandi þeim
Bandaríkjamönnum sem ferðast
um á íslandi. Ferðamálaráð ís-
lands hefur náð miklum árangri
við kynningu á landinu í bandarí-
skum fjölmiðlum og hefur það
átak skilað sér í þessum vaxandi
ferðamannastraumi. Breyttar
áherslur í kynningarstarfinu eiga
að líkindum þátt í þessari fjölgun.
Fram til oktöber á þessu ári
var fjöldi Bandaríkjamanna sem
koma til íslands 27.914 manns,
sem er 13 prósent aukning miðað
við sama tímabil árið 1984.
Raunar hefur ferðamanna-
straumurinn frá Bandaríkjunum
til Evrópulanda aldrei verið
meiri en á þessu ári.
Ferðamálaráð á Norðurlönd-
um starfrækja sameiginlega
skrifstofu í New york og hafa
með sér margvíslegt samstarf
um kynningu á löndunum fimm,
sem ákjósanlegum kosti fyrir
ferðamenn. Unnur K. Georgsson
veitir íslensku deildinni forstöðu.
Fyrirspurnum viðvíkjandi ís-
landi fjölgaði geysilega síðastlið-
ið vor, í kjölfar kynningarher-
ferðar sem stóð frá desember
1984 fram á vorið. Miðað við
tímabilið apríl—maí 1984 voru
fyrirspurnirnar þrefalt fleiri á
sama tímabili vorið 1985. Eiga
þó íslendingar undir högg að
sækja í samkeppni við önnur
Evrópuríki sem verja tugum
milljóna dollara til að auglýsa
lönd sín.
Undanfarin tvö ár hefur ferða-
málaráð lagt áherslu á að beina
athygli Bandaríkjamanna af
„mýkri hliðinni" á íslandi. í ís-
landskynningu fyrir næsta sum-
ar verður enn haldið áfram á
þeirri braut að benda ferða-
mönnum á ýmsar hliðar fjöl-
breyttrar íslenskrar menningar,
góðan aðbúnað og gistiaðstöðu
og móguleika á hagstæðum inn-
kaupum. Að sjálfsögðu er jafn-
framt haldið áfram að kynna
hina einstöku, stórbrotnu, og
fögru íslensku náttúru.
Skrifstofa Ferðamálaráðs í
New York hefur náð verulegum
árangri í sölu skipulagðra ferða
til íslands, þær jukust úr 1560 á
síðasta ári í 2273 ferðir yfir há-
annatímann á liðnu sumri. Unn-
ur K. Georgsson hefur komið
fram í sjónvarpi og útvarpi, á
ferðamálasýningum og ráðstefn-
um og auk þess hefur fréttatil-
kynningum verið komið á fram-
færi við fjölmiðla um öll Banda-
ríkin.
Tölur þær sem nefndar hafa
verið um fjölda bandarískra
ferðamanna til íslands ná aðeins
fram í október 1985. Unnur K.
Georgsson telur að árshækkunin
verði enn meiri en þessar tölur
gefa til kynna, vegna þess að
mikil aukning hefur orðið á
verslunarferðum til Islands fyrir
jólin. Þetta eru 3—7 daga ferðir
sem fengu góða auglýsingu nú í
haust.
Kaupmáttarrýrnun dollara
gagnvart öðrum gjaldmiðlum
hefur orðið til þess að mörg fylki
Bandaríkjanna leggja aukna
áherslu á að fá landsmenn til að
ferðast innalands. Af þessum
ástæðum hafa Evrópuríki ákveð-
ið að auka enn auglýsingar og
kynningu á ferðalögum til Evr-
ópu og gerir Ferðamálaráð Evr-
ópu ráð fyrir 6 prósent aukningu
ferðamanna frá Bandaríkjunum.
Búist er við að Norðurlöndin
auki einnig útgjöld til þess kynn-
ingarstarfs sem hefst í desember.
JETLAR ÞÚAÐ HALDA
HURÐARLAUS JÓL?
Viö getum ennþá afgreitt inni — og útihurðir, beint af lager, fyrir jól.
Hafðu samband sem fyrst, það er stutt til jóla.
Þessar 3 útihurðir eru ►
með öllu: Karmi, lömum,
skrá.húnum og béttilistum.
Afgreiddar af lager.
Verð aðeins kr. 12.900.-
við sérsmíðum auðvitað^
líka hurðir og glugga, allt
eftir bínum óskum. Hér
eru bara nokkur dæmi um
sérsmíði frá okkur. Viö
gerum föst verðtilboð í
alla sérsmíði.^
Eigum einnig ýmsar aðrar
gerðir útihurða á lager.
Þær eru úr furu, oregone
bine, mahogany og tekki.
veröið er frá kr. 8.900.-
Hefur nokkur boðið bér
annað eins?
4 Stórglæsilegar fulninga innihurðir úr
massífri 1. flokks furu. Til í 3 breiddum:
70, 80 og 90 cm. Afgreíddar af lager.
Verð á hurð kr. 6.500.-
verð á hurð m/karmi, skrá og lömum,
kr. 9.800.-
Gamaldags karmlistar fáanlegir í
2 gerðum.
5 i 1 ■w- -p— 1
iiii i u j ——j
L J . i . ^...
M Hérna eru 2 voldugar fulninga úti-
hurðir, úrvönduðu 1. flokks Honduras
mahogany. Samt kosta baer ekki nema
kr 19.800.-
Afgreiddar af
lager.
Aratuga reynsla í hurða- ^ TRÉSMIOJA
og gluggasmídi. BJÖRNS ÓLAFSSONAR
Cóðir greiösluskilmálar. DIQ I ^rfenyakrj?,rð?BRAUT
Sendum í póstkröfu. símar 54444,54495
Morgunblaðið/E.G.
Kjartan Már Kjartansson skólastjóri Tónlistarskóla Keflavíkur æfir nokkra
félaga í Unglingalúðrasveit Keflavíkur.
Öflugt tónlistar-
líf í Keflavík
AÐ UNDANFÖRNU hefur mikið
verið um að vera I tónlistarhTi í
Keflavík. Kjartan Már Kjartansson
skólastjóri Tónlistarskóla Keflavíkur
og formaður Tónlistarfélags Kefla-
víkur sagði í samtali við Morgun-
blaðið að nemendum skólans hefði
fjölgað um 75% í haust, miðað við í
fyrra.
Þá var í haust stofnuð öldunga-
deild við skólann með 50 nemend-
um, en upphaflegar áætlanir gerðu
ráð fyrir 15 manns. Kjartan sagði
að það hefði verið vitað um marga
fullorðna sem hefðu áhuga, og það
hefði tekist að fá þá til þátttöku
með stofnun öldungadeildarinnar.
Tónleikahald Islensku hljóm-
sveitarinnar er meiri háttar stórt
skref til að efla tónlistarlífið.
Haldnir hafa verið tveir tónleikar
hljómsveitarinnar af tíu.
Þá má nefna kór Keflavíkur-
kirkju sem heldur til Israel, og
verður þar um jólin.
Allir tónlistarskólar á Suður-
nesjum, sex að tölu, héldu sameig-
inlega tónleika í Félagsbíó er nefnd-
ust „Tónlistardagar æskunnar"
fyrir fullu húsi 23. nóvember sl. og
síðan var margvísleg starfsemi um
þá helgi fyrir nemendur tónlistar-
skólanna.
Tónlistarfélag Keflavíkur hefur
verið vakið upp af um tveggja ára
dvala. Félagið á að útvega félags-
mönnum sínum þrenna tónleika á
hverju starfsári. Einum tónleikum
er þegar lokið, píanótónleikum
Þorsteins Gauta í Félagsbíói þann
13. okt. sl. Tónleikana sóttu 60
manns.
Hjá Tónlistarskóla Keflavíkur er
kennt á öll helstu hljóðfæri, nema
saxófón og klarinett. í haust hófst
kennsla á selló. Við skólann er
starfrækt lúðrasveit, er nefnist
„Unglingalúðrasveit Keflavíkur" og
er undir stjórn Björns R. Einars-
sonar og Jónasar Dagbjartssonar.
Við skólann starfa 12 kennarar.
„Það er ekki hægt að byggja upp
svona skóla án skilnings þeirra
yfirvalda sem reka skólann (bæjar-
yfirvalda), sem hafa sýnt þessum
málum mikinn skilning frá því ég
kom til starfa hérna," sagði Kjart-
an.
Framkvæmdir standa yfir við
stækkun skólans. E.G.
Morgunblaðið/E.G.
Nokkrir nemar í öldungadeild ásamt kennara sínum Gróu Hreinsdóttur.