Morgunblaðið - 10.12.1985, Qupperneq 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
t
Móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
ÁSTRÍOUR HANNESDÓTTIR,
Sóleyjargötu 27,
lést í Borgarspítalanum föstudaginn 6. desember.
Hannes Þórarinsson,
Anna Þórarinsdóttir, Stefán Guönason,
Gunnlaug Hannesdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
ÁSRÚN JÓNASDÓTTIR,
andaöist í hjúkrunardeild Droplaugarstaöa 8. desember.
Þuríður Guðmundsdóttir,
Jónas Guömundsson,
Helga Jóhannsdóttir,
Ásrún Mc Clean.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
RAGNHEIÐUR INGIBJÖRG BJARN ADÓTTIR,
lést f Borgarspítalanum hinn 7. desember.
Bjarni Hannesson, Þorbjörg Þóroddsdóttir,
Hanna Hannesdóttir, Baldur Jóhannsson,
Björn Bogason, Ingibjörg Sigurðardóttir.
t
Fööursystir mrn,
ANNA GUOMUNDSDÓTTIR
leikkona,
Hringbraut 37, Reykjavík,
veröur jarösungin frá Dómkirkjunni miövikudaginn 11. desember
kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Félag islenskra leikara
og Félag austfirskra kvenna.
Fyrir hönd aöstandenda,
Sverrir Valdimarsson.
t
Jaröarför systur minnar,
ÖNNU ÞÓRDÍSAR,
fyrrum húsfreyju á Hrauni, Grindavík,
hefur fariö fram aö ósk hinnar látnu Fyrir mína hönd og ann-
arra ættingja,
Guölaugur Guömundsson.
t
Innilegar þakkir fyrir hlýhug viö andlát og útför móöur okkar,
PÁLÍNU JÓNSDÓTTUR,
Reykjadal.
Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki Sjúkrahúss Suöurlands.
Börn og fjölskyldur.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar og tengdafööur,
RUNÓLFSJÓNSSONAR
pípulagningarmeistara,
Þórdís Magnúsdóttir,
Gunnar Runólfsson, Ingibjörg Elíasdóttir,
Jón Hilmar Runólfsson, Ragnheiöur G. Haraldsdóttir,
Brynja Dís Runólfsdóttir, Vatnar Vióarsson.
Legsteinar
Ýmsar gerðir
Marmorex
Steinefnaverksmiöjan
Helluhrauni 14 sími 54034
222 Hafnarfjöröur.
Sigurður Rafnsson
Garði — Minning
Fæddur 4. aprfl 1944
Dáinn 28. nóvember 1985
í Laugarnesskólanum háttar svo
til að á morgnana safnast nemend-
ur saman fyrir framan stofur sínar
og syngja lög eða sálma eftir því
hvað við á. Nú syngja nemendur
jólasálma. Það var í Laugarnes-
skólanum, sem ég man fyrst eftir
Sigurði. Hann var talsvert eldri
en ég og stóð ásamt bekkjarfélög-
um sínum fyrir framan sína stofu
á efstu hæð, en við þessir yngri
fyrir framan okkar stofur á neðri
hæðunum. Þessar æskuminningar
eru mér mjög minnisstæðar og
einmitt þessi stóri frændi minn á
efstu hæðinni þar sem hann söng
vorljóð eða jólasálma.
Árin liðu og leiðir okkar skildu
um stund. Sigurður fór í Verslun-
arskóla íslands og var til sjós á
skipum föður síns í skólaleyfum.
Að stúdentsprófi loknu lá leiðin í
Stýrimannaskólann. Hann starf-
aði síðan sem stýrimaður og skip-
stjóri í kaupskipaflotanum þar til
fyrir allmörgum árum að hann fór
í land og hóf eigin atvinnurekstur.
Eftir því sem tíminn leið urðu
kynni okkar Sigurðar nánari.
Hann var góður drengur og ég mat
mikils að eiga vináttu þessa
frænda míns eins og svo margir
aðrir. I þeim mikla harmi sem
fjölskylda Sigurðar stendur nú
frammi fyrir þá má það vera ein-
hver huggun í því að minningin
um góðan dreng stendur eftir.
Með þessum fáu línum kveð ég
Sigurð Rafnsson vin minn og
frænda. Ég og fjölskylda mín send-
um eiginkonu hans, Sólveigu, og
börnunum þremur ásamt ættingj-
um okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Guð gefi ykkur styrk á þessari
erfiðu stundu.
Ágúst Ragnarsson
Líknargjafinn þjáðra þjóða,
þú, sem kyrrir vind og sjó,
ættjörð vor í yztu höfum .
undir þinni miskunn bjó.
Vertu með oss, vaktu hjá oss,
veittu styrk og hugarró.
Þegar boðinn heljar hækkar,
Herra, lægðu vind og sjó.
(Jón Magnússon)
Vinur okkar og félagi Sigurður
Rafnsson, varð bráðkvaddur að
heimili sínu 28. nóvember. Andlát
hans bar svo snögglega að, að
okkur setti hljóða þegar barst
fréttin um það að góður félagi
væri brott kvaddur í blóma lífsins.
Þegar að menn hafa áttað sig á
því að einn af okkur traustu félög-
um er fallinn í valinn leita á okkur
ýmsar hugsanir um góðan dreng
sem okkur langar til að minnast
með nokkrum orðum.
Sigurður Rafnsson fæddist 4.
apríl 1944, í Reykjavík. Foreldrar
hans voru, Ingveldur Einarsdóttir
frá Grindavík og Rafn A. Sigurðs-
son, frá Ingjaldssandi.
Siggi, eins og hann var kallaður,
var vel menntaður og vel liðinn
af samferðarmönnum sínum, enda
traustur og áreiðanlegur, sama
hvað hann tók sér fyrir hendur.
Hann var með verslunarpróf frá
Verslunarskóla ísl. 1963, stúdents-
próf frá sama skóla 1965 og far-
mannapróf frá Stýrimannaskólan-
um í R.vík 1968.
Siggi var sjómaður fyrst og
fremst, að við höldum, hann hafði
mikinn áhuga fyrir siglingum og
sjósókn, hann sigldi til dæmis í
18 ár á farskipum, fyrst sem há-
seti, síðan stýrimaður og síðustu
árin sem hann var á farskipum var
hann skipstjóri í afleysingum.
Árið 1977 flyst hann frá R.vík
suður í Garð, þar sem hann bjó til
æviloka. Eftir að hann kemur í
Garð, þar sem hann bjó til æviloka.
Eftir að hann kemur í Garðinn,
hefur hann störf á Keflavíkurflug-
velli. En Siggi var stórhuga maður
og vildi ráða sér sjálfur, hann
ræðst því í það 1982 að setja upp
verslun og kaupir verslun í Sand-
gerði, sem hann rak til dauðadags
undir nafninu Skiphóll.
Áhugamál Sigga voru mörg og
þar má nefna slysavarnarmál,
hann var félagi í björgunarsveit-
inni Ægi í Garði, hann sat í stjórn
sveitarinnar í tvö ár og átti drjúg-
an þátt í þeirri uppbyggingu sem
átti sér stað í sveitinni þegar hann
tók sæti í stjórninni og vann þar
mikil og góð verk þar til að hann
var héðan kvaddur svo óvænt.
Hann var alltaf boðinn og búinn
til þess að gera það sem hann gat
til þess að drífa hlutina af sem
fyrst.
Það var gaman að hafa Sigga
með sér þegar mikið lá við, hugur
hans var svo mikill til sveitarinn-
ar, þó hann yrði að hætta í stjórn-
inni vegna vinnu sinnar um tíma
þá minnkaði ekki áhugi hans' á því
að búnaður og tæki væru upp á
það besta. Ef það var eitthvað sem
honum fannst vanta þá hafði hann
samband við formann og bauðst
til þess að hjálpa til að útvega
það, vegna þess að honum fannst
að það mætti ekki bíða. Þannig var
að húsið sem sveitin átti var fok-
helt þegar hann tók sæti í stjórn-
inni, húsið var klárað á einu ári
og ekki nóg með það, það var líka
keyptur nýr bíll fyrir sveitina
meðan á byggingu hússins stóð.
Það er ekki hjá því komist að
nefna þetta í þessum fátæklegu
orðum um góðan félaga, og það ber
öllum saman um það að Siggi átti
þarna stærstan hlut að máli vegna
þess að björgunarsveitin átti hug
hans allan, og hann hafði einhvern
tíma orð á því að gera aðstöðu
björgunarsveitarinnar í Garði að
fullkomnustu björgunarstöð í
landinu.
Það hefur verið stiklað á stóru
um þau góðu verk sem Siggi vann
með okkur félögunum í sveitinni,
hann á það inni hjá okkur að við
höldum því á lofti sem hann gerði
svo rösklega sem raun ber vitni.
Þess má að lokum geta að hans
síðasta verk fyrir sveitina var að
panta loftmynd af Garðinum og
nágrenni, til þess að betra væri
að átta sig á aðstæðum, ef eitthvað
kæmi upp á.
Svona var Siggi alltaf að hugsa
um að bæta og efla búnað sveitar-
innar. Félagar úr björgunarsveit-
inni Ægi kveðja og þakka góðum
félaga fyrir það að hafa fengið að
njóta þess að vera með honum í
starfi sem þó var allt of stutt og
erfitt að þurfa að sætta sig við það
að góður félagi sé horfinn yfir
móðuna miklu.
Sigurður var kvæntur Sólveigu
fvarsdóttur, hjúkrunarkonu og
Birting afmælis- og
minningargreina
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningar-
greinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara.
Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudags-
blaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag
og hliðstætt með greinar aðra daga. í minningargrein-
um skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig
getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn
látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgun-
blaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu
línubili.
áttu þau þrjú börn, Rafn Alexand-
er, Elísabetu Ólöfu og Ingveldi
Ásdísi.
Konu hans, börnum og öðrum
aðstandendum sendum við okkar
dýpstu samúð og biðjum góðan
Guð að styrkja þau á erfiðri stund.
Megi blessun fylgja góðum
dreng.
Félagar úr björgunarsveitinni
Ægi, Garði
Sigurður Rafnsson varð bráð-
kvaddur aðfaranótt hins 28. nóv-
ember, liðlega 41 árs að aldri, og
verður kvaddur hinstu kveðju frá
Dómkirkjunni í dag. Það er dapur-
legt að horfa þannig á eftir góðum
dreng í blóma lífsins, en hvorki
veit nokkur sitt endadægur né
skilur þau lögmál sem slíku
stjórna. Líf okkar allra er sem
ferðalag að einu og sama marki,
þótt leiðin sé harla mislöng. En
söknuðurinn og sorgin hjá þeim
sem eftir standa er alltaf jafnsár,
hvað sem líður lögmálum og Guðs
vilja.
Sigurður var fæddur 4. apríl
1944. Hann var einkasonur hjón-
anna Ingveldar Einarsdóttur frá
Garðhúsum og Rafns Alexanders
Sigurðssonar, sem lengi var skip-
stjóri á Kötlu og fleiri skipum.
Sigurður ólst upp hjá foreldrum
sínum ásamt eldri systur sinni,
ólafíu, eiginkonu Nils P. Sigurðs-
sonar, sendiherra. Ungur fór Sig-
urður að vera með föður sínum í
siglingum og vandist sjónum frá
blautu barnsbeini að kalla. Skóla-
nám stundaði hann í Grindavík og
síðar í Reykjavík, eftir að foreldrar
hans fluttust þangað. í framhalds-
námi lá leiðin í Verslunarskóla
íslands, þar sem hann lauk stúd-
entsprófi. Á námsárum starfaði
hann oft sem sjómaður á sumrum
og þá jafnan á skipum Eimskipafé-
lags Reykjavíkur, sem faðir hann
starfaði hjá og hafði átt þátt í að
stofna á sínum tíma. Hugur Sig-
urðar var því frá unga aldri tengd-
ur sjómennsku og siglingum. Sem
rökrétt framhald af því fór hann
í Sjómannaskólann að loknu stúd-
entsprófi og lauk þar prófi í far-
mannadeild. Eftir það starfaði
hann sem stýrimaður um árabil á
ýmsum skipum og fór víða.
Sigurður kvæntist árið 1965 Sól-
veigu fvarsdóttur, hjúkrunarfræð-
ingi, hinni mætustu konu. Þau áttu
fyrst heima í Reykjavík en fluttu
fljótlega búferlum suður í Garð,
þar sem þau áttu síðan heima.
Börn þeirra eru þrjú. Elstur er
sonurinn Rafn Alexander og síðan
koma dæturnar Elísabet ólöf og
Ingveldur Ásdís. Eftir að fjöl-
skyldan fluttist í Garðinn hætti
Sigurður brátt sjómennsku að
mestu, en tók í staðinn að stunda
ýmis störf á Keflavíkurflugvelli
og víðar. Fyrir nokkrum árum
keypti hann svo verslun í Sand-
gerði, sem hann síðan rak til ævi-
loka. Vann fjölskyldan öll við þann
rekstur, enda samhent og starfsöm
í besta lagi. Jafnan átti Sigurður
líka lítinn vélbát og stundaði sjó
sét til gagns og ánægju í tómstund-
um. Eitt var það áhugamál Sigurð-
ar, sem hann helgaði krafta sína
öðru fremur og það voru slysa-
varna- og björgunarmál. Var hann
um árabil árvakur félagi í björgun-
arsveitinni Ægi í Garði og lagði
sig mjög fram um að styrkja og
efla þau samtök. Þannig kom hann