Morgunblaðið - 10.12.1985, Síða 65

Morgunblaðið - 10.12.1985, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER 1985 65 V víða við á skammri ævi og lagði jafnan þeim málefnum lið, er til heilla horfðu. Við óvænt fráfall þessa dug- mikla frænda míns setur okkur hljóð og við skiljum lítt þann grimma skapadóm, sem slíku veld- ur. En við lútum höfði í auðmýkt, því að við vitum að í hendi Guðs er líf og dauði sem og allt annað. Söknuðurinn eftir góðan dreng verður þó sárastur hjá þeim sem næstir honum stóðu og bið ég góð- an Guð að leggja þeim líkn sem þraut á sorgarstundu. Megi björt og fögur minning um Sigurð Rafnsson hjálpa til að létta þyngstu sporin og græða sárin. Ég tel mig mæla fyrir hönd okkar allra frændsystkina Sigurðar er ég votta eftirlifandi eiginkonu hans og börnum þeirra, sem og systur hans og öðrum aðstandendum, dýpstu samúð og bið þeim allrar blessunar. Blessuð sé minning Sigurðar Rafnssonar. Jón R. Hjálmarsson í dag verður Sigurður Rafnsson, æskuvinur minn og félagi, lagður til hinstu hvíldar, en hann lést á heimili sínu hinn 26. nóvember sl. Fréttin um andlát hans kom eins og reiðarslag, skyndilega og óvænt var hann kallaður burt úr þessum heimi og það er erfitt að skilja hvers vegna maðurinn með ljáinn bar nú niður einmitt þarna. Tveim dögum áður höfðum við setið saman stutta stund og spjallað og hann sagði mér þá frá ýmsum framtíðaráætlunum fjölskyldunn- ar, hress í bragði eins og hans var vandi. En hér sannaðist það eins og svo oft áður að enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Sigurður var fæddur í Grindavík 4. apríl 1944, sonur merkishjón- anna Ingveldar Einarsdóttur frá Garðhúsum og Rafns A. Sigurðs- sonar, sem lengi var skipstjóri hjá Eimskipafélagi Reykjavíkur og stýrði mörg ár m.s. Kötlu í milli- landasiglingum. Það var því ekki óeðlilegt að Sigurður fengi snemma áhuga á sjómennsku og hafið heillaði hann frá unga aldri eins og títt er um drengi sem alast upp í sjávarplássum. Okkar kynni hófust með því að Sigurður var sendur í sveit um sumartíma til foreldra minna á Blikastöðum í Mosfellssveit, þá sjö ára gamall. Við vorum jafnaldrar og okkur varð fljótt vel til vina enda áttum við ýmis sameiginleg áhugamál. Sigurði féll sveitavistin vel og svo fór að hann kom hingað til starfa í alls átta sumur. Var það okkur báðum jafnan tilhlökkunarefni að hittast á vorin. Hin öra tæknivæð- ing, sem þá átti sér stað í land- búnaðinum, heillaði okkur og Sig- urður var einkar laginn að fást við vélarnar. Á þessum árum fór hann einstaka sinnum með föður sínum í siglingu til útlanda og haustið sem við vorum 13 ára gamlir tók Rafn skipstjóri okkur báða með í eina ferð á m.s. Kötlu. Þá var siglt með síld til Sovétríkjanna og timb- ur tekið heim frá Finnlandi. Þetta var auðvitað mikil ævintýraferð og manni opnuðust nýir heimar. Þegar þau Ingveldur og Rafn fluttust til Reykjavíkur og stofn- uðu heimili á Rauðalæk 65 styttist bilið á milli okkar Sigurðar og samverustundum fjölgaði þegar við báðir hófum nám í framhalds- skóium í Reykjavík, hann í Versl- unarskóla íslands, ég í Mennta- skólanum. Sigurður varð stúdent frá VÍ árið 1965. Sjómennskan átti þá svo sterk tök í honum að hann ákvað að fara í Stýrimannaskól- ann og þaðan lauk hann prófi árið 1967. Eftir það var hann um tíu ára skeið stýrimaður hjá Eim- skipafélagi íslands í millilanda- siglingum. Árið 1965 kvæntist Sigurður Sólveigu ívarsdóttur hjúkrunar- fræðingi úr Reykjavík. Þau bjuggu fyrstu árin þar en fluttust fyrir um það bil átta árum á Suðurnesin og stofnuðu heimili á Garðbraut 66 í Garði. Sigurður hætti þá reglubundnum siglingum, stund- aði um tíma störf hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli og átti einnig hlut í haensnabúinu Miðhúsum sf. í Garði. Árið 1982 keyptu þau hjón- in verslunina Skiphól í Sandgerði. Það var nú þannig með hann Sig- urð, að hann undi sér best ef hann hafði nóg fyrir stafni. Hann tók virkan þátt í félagsmálum í Garð- inum og var félagi bæði í björgun- arsveitinni Ægi og kiwanisklúbb- num Hofi. Þau Sólveig og Sigurður eignuð- ust þrjú börn. Elstur er Rafn Alexander, sem undanfarið hefur fetað í fótspor föður síns og siglt um heimsins höf, þá Elísabet Ólöf, nemi, og yngst er Ingveldur Ásdís, grunnskólanemi. Á kveðjustund streyma minn- ingarnar um löngu liðna daga fram. Sérstaklega standa bernsku- og unglingsárin okkur ljóslifandi fyrir hugskotssjónum. Ég er þakk- látur fyrir samfylgdina og yinátt- una. Sigurður var mjög vinafastur og hélt ætíð sérstakri tryggð við Blikastaði. Foreldrar mínir mátu það mikils og þau flytja hér alúð- arþakkir fyrir vinskapinn. Elsku Sólveig, öll sendum við þér og börnunum okkar inni- legustu samúðarkveðjur og biðjum algóðan Guð að veita ykkur styrk. Magnús Sigsteinsson Er ég kvæntist Lóu systur Sigga í mars 1953 hafði ég kynnst unga drengnum vel. Siggi var þá orðinn vinur minn og leit á mig sem stóra bróður. Faðir hans, Rafn A. Sig- urðsson skipstjóri, tengdafaðir minn, sigldi á þeim árum skipi sínu, ms. Kötlu, um heimsins höf og var langtímum fjarri fóstur- jörðinni. Siggi leitaði því oft ráða hjá okkur hjónunum og dvaldist stundum hjá okkur, en þá bjuggu tengdaforeldrar mínir í Grindavík, þar til fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur í árslok 1956. Faðir Sigga andaðist er Siggi var 16 ára, og varð ég fjárhalds- maður hans næstu árin. Varð vinátta okkar enn nánari á þeim árum, því hann var alla tíð góður vinur vina sinna. Ingveldi móður sína missti Siggi 1977 og urðu tengslin milli okkar sterkari með árunum. Við hjónin og börnin okkar þrjú leituðum oftar til Sigga eftir því sem tíminn leið og hann til okkar. Þótt við Lóa gætum miðlað Sigga einhverju af okkar reynslu var aldursmunur það mikill, að mismunandi sjónarmið komu fram, en vináttan hvarf aldrei, þótt systkinin væru ekki ávallt sammála. Hvorugt þeirra gat séð af hinu, og ávallt varð vinskapur- inn sterkari en skoðanamunurinn. Þótt Sigurður stundaði nám við Verslunarskóla fslands var sjó- mennskan ætíð efst í huga hans, en stúdentsprófið reyndist honum ágætis veganesti, bæði til sjós og lands. Stýrimaður varð hann á ms. Öskju og skipum Eimskips og Ríkisskips og síðar afleysingaskip- stjóri. Siggi hlífði sér aldrei og lét hendur standa fram úr ermum, hvert sem verkefnið var, og alltaf reiðubúinn að rétta öðrum hjálp- arhönd. Sigurður kvæntist Sól- veigu ívarsdóttur í desember 1965 og eignuðust þau þrjú börn, Rafn Alexander 19 ára, Elísabetu ólöfu 16 ára og Ingveldi Ásdísi 12 ára. Til þess að vera nær fjölskyldu sinni hætti Siggi á sjónum, enda voru yngri börnin áður nánast hálf feimin við pabba sinn, er hann leit inn á milli ferða. Siggi vann á Keflavíkurflugvelli um skeið, en gerðist síðast kaupmaður í Sand- gerði og bjó síðustu árin í Garðin- um. Hin síðari ár átti Siggi við ýmsa erfiðleika að stríða, eins og flestir, en ekki er ástæða til að rekja þau atvik nánar, enda er okkur Lóu og börnum okkar ávallt efst í huga góði bróðirinn, frændinn og mág- urinn. Nú hefur Siggi lagt upp í sína síðustu ferð, en hann varð bráð- kvaddur aðfaranótt 28. nóvember sl. Daginn áður hringdi Siggi í systur sína og mig til Osló. Áttum við saman ánægjulegt samtal og kom andlát hans næstu nótt þvf okkur algjörlega að óvörum. Systir kveður eina bróður sinn með söknuði, börn okkar og barna- börn frænda sinn og ég mág minn. Guð gefi Sólveigu og bornunum styrk og frið. Niels P. Sigurðsson ENGINN KOSTNADUR Sem þjónustu við landsbyggðina og þá sem langt eiga í bókaverslanir, höfum við ákveðið að bækur sendar í póstkröfu verði jafn ódýrar fyrir kaupandann og þann sem kemur í búðina til okkar. Þetta þýðir að við sendum póstkröfur án þess að innheimta póstkröfukostnaðinn og stuðlum að sama bókaverði fyrir alla. ÍSAFOLD Austurstræti 10 Pöntunarsími: 18544 hagstæd vekp HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD [hIheklahf LAUGAVEGI 170 172 SIMAR 11687 • 21240 GOÐIR GREIÐSL USKILMALAR éT ■ _^^ $5ANYO I MMHUmiÆM m mu AB META verð fró kr. 28.700.- stgr. Gunnar Ásgeirsson hf. SuóurlandsbrautK Sirm 9135200 (ÍZU- PRISMA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.