Morgunblaðið - 10.12.1985, Síða 69
69
af þessu erlenda lánadópi og það
sem fyrst. Atkvæðaseðill í kosn-
ingum til Alþingis er ekki veðleyfi.
f stjórnarskrána vantar ákvæði
um takmörkun á rétti stjórnvalda
til þess að veðsetja þegnana upp
fyrir haus í erlendum lánum, —
nema fá þá veðleyfi með þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Marka á stefnu um
að greiða niður erlend lán um t.d.
2% af þjóðarframleiðslu á ári.
Jafnframt ætti að auka þjóðar-
framleiðslu svo þetta kæmi minna
við okkur.
Um frjálsa gengis-
skráningu
Sjávarútvegsfyrirtæki og
stjórnendur þeirra eru orðnir
langþreyttir á taprekstri. Enda
hlutverk stjórnanda fyrirtækja í
raun og veru allt annað en nota
meirihluta vinnutímans í að
bjarga málum fyrir horn. Slíkt er
beinlínis stórskaðlegt fyrir fyrir-
tækin og þjóðarbúið. Þeim mun
minni tími er til að búa í haginn
fyrir framtíðina og sinna daglegri
stjórnun.
Eins og einn ágætur stjórnandi
komst að orði um daginn, þá er
ákveðið á efri hæðinni í bankanum
hvernig gengið skuli vera skráð.
Gjaldeyrinn er síðan afhentur á
neðri hæðinni samkvæmt ákvörð-
un um verðgildi frá efri hæðinni.
Um leið og gjaldeyrinn skiptir um
eiganda, þá hefst frelsisskeiðið.
Þá þarf ekki lengur „aðhald í
gengismálum", „hæga gengisað-
lögun", „hægt gengissig í einu
stökki". Nei, nú blífur frelsið!
Sýnt hefur verið fram á, að
frjáls verðmyndun í samkeppni sé
besti kostur til að halda vöruverði
niðri. A.m.k. í meirihluta tilfella.
Þetta voru og eru helstu röksemdir
fyrir frjálsri verðmyndun og er ég
sammáia þessu. — En, af hverju
gildir þá ekki það sama um gjald-
eyrinn? Erum við sem fáum gjald-
eyri fyrir afurðaandvirði til ráð-
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
stöfunar svona miklu óhæfari
þjóðfélagsþegnar til þess að selja
gjaldeyri í samkeppni hver við
annan heldur en innflytjandinn,
sem má leggja á vöruna í frjálsri
samkeppni?
Hvað er að okkur framleiðend-
um? Erum við svona heimskir, að
við myndum klúðra þessu? Hefur
farið fram könnun, sem sýnir, að
greindarvísitala sjávarvörufram-
leiðenda sé á svo lágu plani, að um
þennan hóp manna gildi sérstakar
hagfræðiformúlur? Ég spyr. Ég
auglýsi eftir svari. Hvers vegna
gildir venjuleg hagfræði ekki leng-
ur þegar komið er að þeim sem
framleiða 70% af gjaldeyristekj-
um landsmanna? Ég meira en
auglýsi eftir svari. Ég krefst rök-
stuðnings opinberlega.
Um leið geri ég kröfu til að
viðkomandi fjalli um það efnis-
lega, sem sagt hefur verið, að ís-
lenskur markaður „sé of lítill"
fyrir frjálsan gjaldeyri. Er við-
komandi þá að segja, að hagkerfið
sé of lítið fyrir sjálfstæðan gjald-
miðil?
Ef markaðurinn er of lítill,
þannig að ísl. króna þoli ekki rétta
skráningu, — af hverju erum við
þá að rembast við að vera með
sjálfstæðan gjaldmiðil. Matador-
gjaldmiðil. Gervipeningaseðla og
bullandi verðbólgu ásamt efna-
hagslegri óáran.
Nei — ef ekki er hægt að hafa
frjálsan gjaldeyrismarkað hér á
landi þá er verið að segja, að við
séum of lítil þjóð til að vera með
sjálfstæðan gjaldmiðil. Það skyldi
þó aldrei vera. Leggjum þá niður
krónuna og tökum í notkun Banda-
ríkjadal. Alvörupeninga. Þá er
hægt að halda jarðarför yfir verð-
bólgunni og vel á minnst, leggja
niður Seðlabankann. Lúxemborg
notar belgíska frankann og er ekki
með sjálfstæðan gjaldmiðil. Get-
um við farið í læri hjá þeim, eins
og ísraelsmenn hjá Steingrími?
Hvur veit?
Þeir, sem ekki vilja frjálsa geng-
isskráningu, skulda okkur mál-
efnalegan rökstuðning opinber-
lega. Strax.
Haftakerfi og spilling
Niðurstaða þessara hugleiðinga
er þessi: í haftakerfi þrífst spill-
ir.gin best og óáran. Háir vextir
eru afleiðing af haftakerfi í pen-
ingamálum, þannig að spariféð
gufaði upp. Taprekstur undir-
stöðuatvinnugreinanna er afleið-
ing af haftakerfi í gengismálum
og afleiðingin niðursetning og
fjárhagslegt ósjálfstæði lands-
byggðarinnar. Ofþensla höfuð-
borgarsvæðisins er afleiðins af
haftakerfi í gengismálum.
„Skuldabréfabraskið" eins og
sumir kalla það er afleiðing af
haftakerfi í peningamálum. Jafn-
vel mætti leiða rök að því, að
svokallað „okurlánamál" sé að
hluta til afleiðing af þessu sama
vangefna peningakerfi, þar sem
virðing manna fyrir haftakerfi er
ekki eins mikil og fyrir eðlilegu,
frjálsu peningakerfi. Ekki ætla ég
að mæla okurlánum bót, en
minnist þess, að einmitt í hafta-
kerfunum þrífst spillingin best.
„Upp komast svik um síðir."
Niðurstaða af skrifum þessum
er sú, að við þurfum frjálsa verslun
á sem flestum sviðum þjóðlífsins.
Þá verður landsbyggðinni borgið.
Stærsti sigurinn vinnst þegar
gjaldeyrisverslunin verður gefin
frjáls, eða krónan lögð niður og
framleiðslufyrirtækin fá alvöru-
peninga inn á reikninga sína.
Máske þykja þetta róttækar hug-
myndir, — en þeir sem eru annarr-
ar skoðunar eru vinsamlega beðnir
að rökstyðja sín sjónarmið, svo að
við getum haldið umræðunni
áfram.
Ilöfundur er framk væmdastjóri á
Bakkafirði.
SIEMENS
Nýja
compact
hrærivéíin
hrærir
hnoóar
blandar
þeytir
brytjar
rífur
raspar
tætir
sker
Húnersmáen
samtsvokná
Henni veröur þú aö kynnast.
Smith & Norland,
Nóatúni4 Sími 28300.
Með frauðplastsvampi í pressunni
verður vindingin jöfn og þétt.
Þegar moppan er orðin
óhrein fer hún í hliðar-
körfuna og þaðan í
þvottavélina.
Því hreinni sem
moppurnar eru, því
betri árangur næst!
'ON
Mjög auðvelt er að setja moppurnar á
fftstipiötuna, og taka þær af. Hakarnir á
neðra borði festiplötunnar (franskur renni-
lás) tryggja að moppurnar eru alltaf vel
fastar á meðan á hreingerningu stendur.
Nýju moppukerin eru fáanleg fyrir allar
þrjár moppubreiddirnar (33, 40, 57 cm).
Þau eru á hjólavögnum, með vindipressu
og grind, auk margs konar aukahluta.
Mjög auðvelt er að vinda moppurnar með
vindipressunni. Það er stórmerk nýjung.
GERÐIN
Smiðsbúð 10 - Garðabæ - sími (91)41630, (91)41930
RKENND NVJUNG!