Morgunblaðið - 10.12.1985, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
71
Guðbergur Guðbergsson við „Buggy-bfl“ þeirra félaga. MoruunbiaSið/Bjarni
út fyrir að vera í augum fólks sem
ekki hefur vit á því hvernig á að
haga sér í slíkum leik. Allt er þetta
mjög vel undirbúið og við vitum
upp á hár hvað við erum að fara
út í oggera hverju sinni.
Eins og sést á einni af meðfylgj-
andi myndum er SAAB-bifreiðin
sem ég ek í háloftunum. Fyrir slíkt
atriði óla ég mig niður í sætið og
óla einnig auða sætið við hliðina
á mér og þar smeygi ég hægri
hendinni undir. Þegar ég er svo
búinn að stýra bílnum á rétta ferð
á rétta leið kasta ég mér niður og
þá er ég alveg úr allri hættu nema
að það kvikni í bílnum og slökkvi-
tæki eru auðvitað nálæg.
Umtalað atriði fór reyndar ekki
á þann veg sem það átti að fara,
því ég átti að lenda á toppnum.
Engu að síður heppnaðist það
ágætlega."
— Aðspurður hvort þetta hefði
alltaf gengið áfallalaust fyrir sig,
sagði hann:
„Nei, blessuð vertu, þegar ég var
yngri á vélhjólinu mínu var ég
fastagestur á slysavarðstofunni.
Reyndar sögðu læknarnir þar við
mig að ég ætti orðið frátekinn tíma
hjá þeim alla mánudaga.
Þessi skipti þegar eitthvað hefur
verið að koma fyrir mig hefur það
venjulega gerst fyrir algjöran
klaufaskap. Ég man til dæmis einu
sinni þegar ég var á leiðinni að
klessukeyra bíl uppi í Mosfells-
sveit. Ætlunin var að ég myndi
keyra bílinn fram af 10 metra
kletti en henda mér út áður. Hvað
um það, á leiðinni var ég að fíflast
með bílinn og leika mér og auðvit-
að ekki með hjálm eða neitt til
neins og velti bílnum sem leiddi
af sér að ég fyrir asnaskap axlar-
brotnaðf og ekkert varð af fyrir-
hugaðri klessukeyrslu."
— Hvar grefurðu upp bíla til
að eyðileggja?
„Eg kaupi iðulega algjörar
druslur og geri þær vel ökufærar,
sæmilega kraftmiklar og síðan æfi
ég mig á þeim. Þetta er tómstunda-
gamanið og allur tími sem ég á
afgangs fer í bílastúss, að gera þá
upp, keyra þá, ræða um þá og
fylgjast með því sem gerist í þess-
um málum."
— Ertu þá ekki í hinum ýmsu
keppnum, rally, góðakstri...?
„Nei, ekki ennþá. Það kemur þó
fljótlega að því. Ég og vinur minn
Jón Halldór urðum okkur úti um
fágætan „Buggybíl" og meiningin
er að sigra allar keppnir sem nöfn-
um tjáir að nefna á næsta ári.
Þetta áhugamál er eiginlega sýki
og ómögulegt að hægja róðurinn
eða gefa það upp á bátinn. Kannski
er þetta sýndarmennska sem
hleypur í mann. Ég þykist vita að
ég geti þetta og mig langar til að
sýna það. Við höfum verið að
fleygja því kunningjarnir sem
erum á kafi í þessu, að um áttrætt
verðum við komnir í hörkukapp á
kraftmiklum hjólastólum á elli-
heimilinu."
Miele.
Heimilistœki
Miele
annað er mála-
miðlun.
. nr JÓHANN ÓLAFSSON & C0A
^ 4) Sondjho104 Bry«i»jvrti Stm. I2M4 W
HANN
ER
MÆTTUR
W
I
BÆINN!
HVER?
JOHNNY
KING
JR er
orðinn afí
Larry Hagman (JR) er orðinn
afi. Hann er að sögn kunn-
ugra yfir sig hrifinn af barnabarn-
inu og þegar það fæddist gaf hann
syni sínu Preston og tengdadóttur
sinni Starla dýrindis einbýlishús á
Malibu-ströndinni.
Ekki er langt síðan Olivia Newton-
John gekk í það heilaga með miklu
yngri manni, Matt Lattanzi, og eiga
Pau nú von á erfingja innan tíðar.
leyndardómur sjávarins
| algemarm
byssuskelfirinn
hræðilegi
frá Þorlákshöfn
Kíkið á hann í
Drcif ing: ÍSKLASS S. 51020
*
VJterkurog
hagkvæmur
auglýsingamidill!