Morgunblaðið - 10.12.1985, Page 78
78
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
• Þorgils Óttar Mathiesen stóð oft í ströngu í leiknum á sunnudaginn. Hér stekkur hann inn af línunni og fær óblíðar móttökur hjá markveröinum Völler. Þorgils Óttar átti jafn-
bestu leikina um helgina.
Stórgóður leikur
íslenska liðsins
— og sannfærandi sigur á sílfurliðínu frá síöustu Ólympíuleikum
ÞAÐ VAR svo sannarlega kátt í
Höllinni er íslendingar unnu sann-
færandi sigur á Vestur-Þjóöverj-
um, 20-17, á sunnudagskvöid.
Þetta var þriöji leikur þessara lióa
í heimsón Þjóðverjanna hingaó til
lands. íslendingar unnu fyrsta
leikinn meö eins marks mun,
töpuóu á Akureyri á laugardagínn
og sönnuóu svo getu sína á
sunnudagskvöld. íslenska lióiö
lék mjög vel og er þetta frábær
árangur hjá liðinu aó leggja þetta
sterka lið aö velli tvívegis á þrem-
ur dögum. Leikurinn á sunnu-
dagskvöld var haróur og voru
varnir og markvarsla beggja liöa
góöar. Ef heldur fram sem horfir
meó undirbúnig íslenska liósins
fyrir heimsmeistarakeppnina
þurfum viö ekki aó kvíóa.
Kristján Arason kom islending-
um á bragöið er hann skoraöi
fyrsta mark leiksins. Wunderlich
jafnaöi fyrir Vestur-Þjóðverja og
var jafnræöi meö liöunum næstu
mínútur. Vestur-Þjóöverjar komust
í fyrsta og eina skiptiö yfir í leiknum
á 14. mínútu er staöan var 4-5.
Síöan komu þrjú mörk í röö hjá
íslendingum og breyttu þeir stöö-
unni í 7-5. Vestur-Þjóðverjar ná
aftur aö jafna, 8-8 og 9-9, en Alfreð
og Siguröur Gunnarsson bættu viö
tveimur mörkum áöur en flautað
var til ieikhlés.
í upphafi seinni hálfleiks fóru tvö
hraöaupphlaup i súgínn hjá islend-
ingunum. Michael Roch minnkaði
muninn í eitt mark, 11-10. Fraatz,
sem lék ekki mikið með i fyrri hálf-
leik, fókk tækifæri á aö jafna er
hann tók vítakast, sem Einar Þor-
varöarson varöi.
Góöur kafli
Næstu mínutur voru eign íslend-
inga og geröu þeir næstu fjögur
mörk og var vörn þeirra þá mjög
góö. Guðmundur Guömundsson
geröi tvö þessara marka eftir mikiö
Island — V-Þýskaland
20:17
haröfylgi. islendingar breyttu
þarna stööunni úr 11-10 í 15-10.
Þessi kafli vó þungt á metunum
og skóp þennan sigur.
Vestur-Þjóöverjar náöu aö
minnka muninn í þrjú mörk, 16-13
er 10 mínútur voru til leiksloka, en
lengra létu islensku strákarnir þá
ekki komast og skoruöu næstu
þrjú mörk og innsigluöu sigurinn,
tíminn var of naumur fyrir Vestur-
Þjóöverja, aö ná upp þessum mun.
Sigurinn var því sanngjarn og
öruggur.
íslenska liðið
islendingar lögöu áherslu á
vörnina í þessum leik og uppskáru
eftir því. Þeir gáfu Þjóöverjunum
aldrei friö og komu mjög vel út á
móti þeim. Þaö var greinilegt aö
Bogdan haföi messaö yfir leik-
mönnum sínum eftir leikinn á
Akureyri, þar sem vörn liðsins var
slök. Sóknarleikurinn var einnig
árangursríkur og markviss, þó
geröu leikmenn sig seka um óþarfa
fljótfærni á köflum.
Einar Þorvaröarson varöi mjög
vel, alls 14 skot i leiknum, þar af
eitt vítakast. Þaö er ekki aö spyrja
aö því, ef vörnin er góö, þá bregst
Einar ekki fyrir aftan. Vörnin var
sterk meö þá Kristján, Atla, Þor-
björn og Pál á miöjunni og Guö-
mund og Bjarna í hornunum. I
sókninni kom Þorgils Óttar inná
fyrir Þorbjörn og var hann mjög
góöur og hreifanlegur á línunni og
fiskaði þrjú vítaköst. Sigurður
Gunnarsson lék sinn besta leik í
gær, af þessum þremur, og Alfreö
brást ekki er hann kom inná.
Vestur-þýska liöiö
Markvöröurinn, Klaus Völler, var
besti leikmaöur Vestur-Þjóðverja,
varöi 16 skot alls / leiknum, þar
af eitt vítakast. Hann gat þó ekki
komiö í veg fyrir tap Þjóöverja.
Jochen Fraatz, sem var besti leik-
maöur þeirra í fyrri tveimur leikjun-
um, iék ekki mikiö meö í þessum
leik, þar sem hann varö fyrir smá-
vægilegum meiöslum i fyrri hálfleik
og munar um minna. Skyttan Er-
hard Wunderligch náöi ekki aö
finna netamöskvana hjá Einari,
nema í vítaköstunum — hann geröi
fjögur — og geröi aöeins eitt mark
fyrir utan þaö, þrátt fyrir margar
tilraunir.
íslendingar skoröu 9 mörk fyrir
utan, 6 af línu, eitt meö gegnum-
broti og fjögur úr vítaköstum.
Athyglisvert er aö ekker mark er
gert úr hraðaupphlaupum. Vest-
ur-Þjóöverjar skoruöu sex mörk
af línu, þrjú fyrir utan, tvö meö
gegnumbrotum, eitt úr hraöaupp-
hlaupi og fimm úr vítaköstum.
Islendingar voru utan vallar í 8
mínútur og Vestur-Þjóöverjar í 10
mínútur.
Svissnesku dómararnir stóöu
sig þokkalega og sennilega var
þetta einn besti leikur þeirra á
þessum þremur dögum.
Mðrk islanda: Kristján Arason 4/2,
Guómundur Guómundsson 3, Atli Hilmars-
son 3, Alfreó Gíslason 3/2, Páll Ólafsson
2, Siguröur Gunnarsson 2, Þorgils óttar
Mathiesen 2 og Bjarni Guömundsson eitt.
Mörk Vestur-Þyskalands: Erhard
Wunderlich 5/4, Andreas Doerhoefer 3,
Michael Roch 3, Christian Fitzek 2 og
Stephan Schoen, Jochen Fraatz, Jören-
Uwe Lommel og Uwe Schwenker eitt mark
hver.
Ánægður
„ÉG ER mjðg ánægður meó
þessa leiki, það er aö segja
fyrsta leikinn og svo leikinn í
kvðld. Leikurinn fyrir noröan
var dæmi um hvernig á ekki
aó spila handbolta," sagði
Páll Olafsson eftir leikinn á
sunnudaginn.
„Leikurinn á Akureyri var
slakur. Þjóðverjarnir breyttu
um vörn, fóru yfir í 6-0-vörn,
og viö áttum alls ekki von á
því og allt fór úr skorðum hjá
okkur viö þaö. í kvöld lékum
viö skynsamlegan sóknarleik
og vörnin var góð hjá okkur
og sömuleiðis markvarslan hjá
Einari," sagöi Páll.
Erum meö eitt af
bestu liöum heims
— sagdi Jón Hjaltalín Magnússon formaður HSÍ
„ÞETTA hafa veriö mjög góó úrlsit
hjá okkar strákum og sýnir svo
ekki veröur um villst að viö erum
á réttri leið,“ sagói Jón Hjaltalín
Magnússon formaóur Handknatt-
leikssambandsins eftir þriðja
landsleik íslands og Vestur-Þjóö-
verja á sunnudaginn.
„íslenska liöið náöi mjög góöum
leik hér í kvöld og einnig á föstu-
dagskvöldiö og það er fyrst og
fremst aö þakka hve mikið strák-
arnir hafa veriö saman undanfarin
ár. Þegar aö lokakeppninni kemur
í febrúar þá veröa þeir búnir aö
leika um 50 landsleiki á tveimur
árum og þaö skilar árangri.
Þaö var mjög góö stjórnun á
innáskiptingum hjá liöinu í kvöld
hjá þeim Bogdan og Guöjóni og
varnarleikurinn var mjög góöur. Ég
hef sjaldan séö sóknarleik íslenska
liösins eins hraöan og öruggan
eins og í kvöld og ef undirbúning-
urinn veröur eins og viö ætlum
okkur þá getur allt gerst á HM í
Sviss í febrúar.
Ég hef fylgst vel með liöinu frá
því á Olympíuleikunum og séö
flestar af bestu þjóöum heims leika
á þessum tíma og ég þori aö full-
yröa aö viö erum með eitt af bestu
handknattleikslandsiiöum heims-
ins í dag,“ sagöi formaöur HSÍ og
var í sjöunda himni meö árangur
liðsins.