Morgunblaðið - 14.12.1985, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985
31
Afleiðingin hefur verið dræm
aðsókn í lítt kynnta sérskóla í sjáv-
arútvegi og fiskvinnslu. Til að
lokka menn til sérhæfðra starfa í
þessum greinum, því skólarnir
hafa ekki sinnt eftirspurn þeirra,
hafa verið haldin á annað þúsund
námskeið í fiskmati og fjölmörg
skipstjórnarnámskeið.
Þessi námskeið hafa svo enn
frekar dregið úr aðsókn og virð-
ingu þessara sérskóla. Því ættu
menn að leggja á sig nám í þessum
skólum þegar viku og upp í 4 mán.
námskeið gefa rétt til starfans,
hvort sem er við fiskmat eða skip-
stjórn?
Menntamálaráðuneytið hefur
því um árabil helgað sig bráða-
þjónustu við undirstöðuatvinnu-
greinar þjóðarinnar.
Lítilsvirðing Alþingis
Háttvirt Alþingi íslendinga
hefur ekki séð ástæðu til að tjá
sig um þetta mál þótt meirihluta
alþingismanna hafi verið send
gögn um málið, þ.e. bréf og blaða-
greinar viðvíkjandi málinu úr
Morgunblaðinu frá 2/10 ’85, 8/10
’85 og 12/10 ’85. Alþingi virðist því
lítiö koma það við þótt lög sem það
setur séu brotin í áraraðir. Þá skulu
þeir minntir á bréf er þeim var
sent 1980, dagsett 17/11 ’80, þar
sem óskað var eftir liðsinni þeirra
við að bæta úr aðstöðuleysi og
tækjaskorti Fiskvinnsluskólans.
Síðan eru alþingismenn og ráð-
herrar með sífelldan fagurgala um
virðingu Alþingis og mikilvægi
þess að hlúð sé að undirstöðuat-
vinnugreinum þjóðarinnar. Vilja
Alþingis má sjá í raun þegar fjár-
lög eða fjárlagafrumvörp eru skoð-
uð. (Sjámynd.)
Hvað þessi barnaskapur hefur
kostað þjóðfélagið í minni fram-
leiðni fyrirtækja í sjávarútvegi og
fiskvinnslu um árabil skal ekki
reynt að meta hér.
Sverrir Hermannsson
Núverandi menntamálaráð-
herra, Sverrir Hermannsson, hef-
ur, sem betur fer, lýst vilja sínum
til úrbóta í þessum efnum en það
þarf meira en viljann, það þarf
framkvæmdir.
Stjórn Fiskiðnaðar skipa:
Gísli Jón Kristjánsson,
Jóhanna Guðmundsdóttir og
Magnús Guðmundsson.
Frumvarp til fjárlaga 1986
Kostnaður við almennan rekstur
þ. kr.
Skálholtsskóli 2.915
Iþróttakennaraskóli íslands, 7.122
Hótel- og veiti ngaskóli í slands 7.420
Leiklistarskóli Islands 7.431
Fiskvinnsluskólinn 8.546
Stýrimannaskólinn í Reykjavfk 9.295
Fósturskóli íslands 11.651
Garðyrkjuskóli ríkisins 13.006
Hússtjórnarskólar 13.109
Tannlæknadeild Hl 15.780
Vélskóli Islands 19.513
Iðnskólar utan Reykjavíkur 19.730
Bsndaskólinn á Hólum 21.129
Myndlista- og handíðaskólinn 21.238
Verkmenntaskóli á Akureyri 37.539
Tækniskóli Islands 44.734
Bændaskólinn á Hvanneyri 45.991
Iðnskóli nn í Reykj avík 76.207
Tónlistarfræðsla 80.158
meginþorra
þjóðarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er22480
Aðventukvöld Fríkirkj-
unnar í Hafnarfirði
AÐVENTUKVÖLD Fríkirkjunn-
ar í Hafnarfirði verður nk. sunnu-
dagskvöld kl. 20.30.
Að vanda verður fjölbreytt
dagskrá. Kór Flensborgarskól-
ans syngur undir stjórn Hrafn-
hildar Blomsterberg. Félagar
úr Lúðrasveit Hafnarfjarðar
spila jólalög og Kolbrún frá
Heygum syngur einsöng. Þá
mun Hulda Runólfsdóttir lesa
frásögn og þeir Örn Almarsson
og Örn Arnarson munu leika á
gítara. Kirkjukórinn leiðir söng
undir stjórn Þóru Guðmunds-
dóttur.
Þá er þess að geta að um
morguninn verður barnasam-
koma eins og venjulega kl. 10.30
og verður þar flutt efni tengt
undirbúningi jólanna. Vonandi
geta sem flestir mætt til þess-
ara samverustunda í kirkjunni
á sunnudaginn til þess að njóta
þess sem þar verður flutt.
Einar Eyjólfsson,
fríkirkjuprestur.
JMM S
Jólabollunum og jólaplöttunum frá Konung-
lega fylgir hátíðleiki jólanna.
Georg Jensen-óróirm’85 er kominn
MtoífílM) fí ISmnffig
Bjóðum sérstakan 30%
jólaafslátt af Georg
Jensen-ársskeiðunum
1972-1985. Fallegri des-
ertskeiðar finnast varla.
Opið iaugardag til kl. 18.
Sendum í póstkröfu.
Það er konunglegt hjá
Konunelesa
Hverfisgötu 49, sími 13313.
Jólatilboðsvörunum frá
Konunglega fylgir sér-
stakur jólapakki frá Den
Kongelige Porcelains-
fabrik
ftwclainsl
Royal Copenhagen Borc
Königlich Kopenhl
20% jólaafsláttur af styttum
og vörum frá Den Kongelige
Porcelainsfabrik
Kjörgripir ávallt á
afsláttarveröi.