Morgunblaðið - 09.01.1986, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986
29
Jón Kjartansson frá Eskifirði kemur til hafnar með fullfermi.
Börkur NK aflahæstur
HEILDARAFLI íslenzkra
loðnuskipa var á síðasta án alls
993.301 lest eða um 20.700 lest-
ir að meðaltali á þau 48 skip,
sem veiðamar stunduðu. A
haustvertíð var aflinn 644.799
lestir eða um 13.400 lestir að
meðaltali á skip. Aflahæsta
skipið á síðasta ári var Börkur
frá Neskaupstað með 32.057
lestir en á haustvertíðinni var
Júpíter RE hæstur með 20.739
lestir. Börkur var einnig með
mestan loðnuafla á vetrarver-
tíðinni, 15.413 lestir.
Loðnuveiðunum er þannig hátt-
að, að á áliðnu sumri er ákveðið
það magn, sem veiða má úr
norsk-íslenzka stofninum til
bráðabirgða og endanlegt magn
er síðan ákveðið á haustmánuð-
um. Kvótinn gildir því fyrir veið-
amar frá hausti viðkomandi ár
og fram eftir vetri þess næsta.
Heildarkvótinn er því ekki ákveð-
inn fyrir hvert ár í senn, heldur
fyrir þann tíma, sem veiðamar
standa, frá ágústmánuði og fram
eftir vetri. Að þessu sinni er kvóti
íslenzkra loðnuskipa 983.200 lest-
ir fyrir haustvertíð 1985 og vetr-
arvertíð 1986. Skipin eiga mjög
mismikið eftir af hlut sínum, allt
frá 12.759 lestum niður í 2.075.
Hér fer á eftir yfirlit yfir afla
loðnuskipanna á síðasta ári, kvóta
þeirra á yfírstandandi vertíð og
hve mikið þau eiga eftir. Ifyrst
kemur nafn viðkomandi skips, síð-
an aflinn á haustvertíð 1985,
næst afli á vetrarvertíð 1985 og
loks heildarafli síðasta árs. Þá
kemur kvóti skipanna á vertíðinni
nú og hve mikið þeir eiga eftir.
Haust- Vetrar- Samtals Kvóti Eftir-
vertíð vertíð ’85/’86 stöðvar
AlbertGK 31 15.172 6.180 21.352 19.000 3.828
Beitir NK123 15.939 12.253 28.192 25.700 9.761
Bergur VE 44 10.332 7.276 17.608 18.200 7.868
Bjami Ólafss. AK 7 0 14.815 7.940 22.755 23.500 8.685
Börkur NK 122 16.644 15.413 32.057 23.700 7.056
DagfariÞH70 8.957 9.128 18.085 18.300 9.343
EldborgHF 13 17.927 7.404 25.331 27.800 9.873
ErlingKE 45 10.404 7.070 17.474 17.500 7.096
Fífill GK 54 11.484 6.463 17.947 19.200 2.793
Gígja RE 340 11.780 8.852 20.632 20.300 8.520
Gísli ÁmiRE375 16.407 6.011 22.418 19.200 2.793
Grindvíkingur GK 606 18.636 5.496 24.123 23.500 4.864
Guðmundur RE 29 9.041 10.431 19.472 21.800 12.759
Guðm. Ólafur ÓF 91 7.060 4.047 11.107 18.900 11.840
Guðrún Þorkelsd. SU 211 16.821 1.733 18.544 20.300 3.497
Gullberg VE 292 12.067 4.712 16.779 19.000 6.933
Harpa RE 324 11.055 6.709 17.764 19.400 8.345
HákonÞH 250 16.192 6.209 22.401 20.800 4.608
Heimaey VE 54 7.026 8.395 15.421 18.300 11.274
Helga IIRE 373 10.570 8.426 18.966 18.500 7.930
Hilmir SU171 15.453 10.128 25.581 25.600 10.147
Hilmirll SU177 13.495 6.269 19.764 18.800 5.305
HrafnGK 12 16.886 6.127 23.013 19.600 2.714
Huginn VE 55 10.962 6.451 17.413 19.000 8.038
HúnaröstÁR 150 13.136 8.108 21.244 19.300 6.164
Höfrangur AK 95 15.335 6.722 22.057 21.700 6.365
ísleifurVE63 13.463 8.608 22.071 20.300 6.837
Jón Kjartans. SU 111 18.230 8.747 26.977 23.400 5.170
JúpíterRE 161 20.739 4.006 24.745 25.300 4.561
JöfurKE 17 11.052 6.623 17.675 17.600 6.548
Kap IIVE 4 10.400 8.051 18.451 19.700 9.300
Keflvíkingur KE 100 11.673 6.158 17.831 18.300 6.627
Ljósfari RE 102 12.347 7.099 19.446 18.700 6.353
Magnús NK72 12.625 5.801 18.426 18.300 5.675
Pétur Jónsson RE 14 13.386 8.660 22.046 20.900 7.514
Rauðsey AK 14 15.193 4.361 19.554 18.800 3.607
Sigh. Bjamas. VE 81 8.982 8.948 17.930 19.700 10.718
Sigurður RE 4 19.094 8.285 27.379 26.200 7.106
Sjávarborg GK 60 9.911 8.968 18.879 20.800 10.889
Skarðsvík SH 205 15.681 4.830 20.511 19.000 3.319
Súlan EA 300 15.574 7.087 22.661 20.800 5.226
Svanur RE45 17.625 4.387 22.012 19.700 2.075
Sæberg SU 9 11.816 6.078 17.894 18.900 7.084
Víkingur AK 100 16.444 10.407 26.851 25.600 9.156
Víkurberg GK1 11.700 5.315 17.015 18.400 6.700
Þórður Jónas. EA 350 8.995 6.357 15.352 18.100 9.105
ÞórshamarGK75 9.496 7.068 16.564 18.900 9.404
ÖmKE 13 16.777 5.934 22.711 18.900 2.123
644.799 348.502 993.301983.200338.401
Ath. Inni í heildarafla vetrarvertíðar 1985 eru teknar 2.762
lestir, skráðar á skipið Sæbjörgu frá Vestmannaeyjum. Sæbjörgin
strandaði fyrir áramót og var þessi afli hennar tekinn af öðrum
skipum, en skráður á Sæbjörgu. Upplýsingar þessar eru fengnar
frá Andrési Finnbogasyni hjá loðnunefnd. Nákvæmur listi yfir
loðnumóttöku verksmiðjanna liggur enn ekki fyrir.
„Fullkomin44 í
Stjörnubíói
Stjörnubíó er nú að hefja sýn-
ingar á kvikmyndinni „Fullkom-
in“ með þeim John Travolta og
Jamie Lee Curtis í aðalhlutverk-
um. Leikstjóri er James Bridges.
Myndin er byggð á blaðagreinum
er birst hafa í Rolling Stone tima-
ritinu.
Travolta leikur blaðamanninn
Adam sem starfar við tímaritið.
Hann er á höttunum eftir viðtali
við John McKenzie, iðnjöfur, sem
ákærðnr er fyrir eiturlyfjasölu.
Ritstjórinn sendir hann til Los
Angeles í tvennum tilgangi — reyna
að fá McKenzie til að samþykkja
viðtalið og semja grein um vaxta-
ræktar- og æfíngastöðvar, sam-
komustaði unga fólksins á vestur-
ströndinni.
í æfíngastöðinni kynnist blaða-
maðurinn kennaranum Jessie og
fellur flatur fyrir henni. Jessie vill
ekki vera í forsvari fyrir stöðina og
segir Adam að hún hafí einu sinni
veitt blaðaviðtal og aldrei beðið
þess bætur.
Adam tekst að fá viðtal við
McKenzie þar sem hann segist vera
fómarlamb Bandaríkjastjómar.
Hann hafí offramleitt tölvur og
ákveðið að reyna að selja þær
austan jámtjalds. Stjómin hafí því
komið honum á kaldan klaka með
því að klína á hann orðrómi um
eiturlyfjasölu. Tímaritið birtir .v
greinina. Yfírvöld skipa Adam að
afhenda spólumar með viðtalinu en
hann neitar. A meðan er McKenzie
lýstur saklaus af öllum ákæram,
en Adam bíður dóms.
Jamie Lee Curtis og John Tra-
volta í hlutverkum sinum í „Full-
komin“.
Café Gestur:
Málverka-
prúttmarkaður
Málverkaprúttmarkaður Ólafs
Engilberts efnir í kvöld kl. 21.00
til tónleika á Café Gesti að
Laugavegi 28.
Prúttmarkaðurinn lokar á
morgun, föstudag.
Háskólabíó:
Þagnarskyldan
„Þagnarskyldan“ — ný saka-
málamynd eftir Micþael Butler
og Dennis Shryack — er nú sýnd
í Háskólabíói. Leikstjóri er Andy
Davis og tónlist er eftir David
Frank. Með helstu hlutverk fara:
Chuck Norris, Henry Silva, Bert
Remsen og Mike Genovese.
í einu sóðahverfa Chicago vakta
lögreglumenn byggingu þar sem
eiturlyfjasala á sér stað. Tveir lög-
reglumenn, dulbúnir sem dópsalar,
ætla að kaupa heróín af stórlaxin-
um Victor Comacho og grípa hann
svo glóðvolgan. Sú ætlun fer þó
úrskeiðis þegar annar glæpahringur
blandar sér í leikinn, stelur eiturlyfl-
unum og hverfur á braut. Fyrir
mistök verður einn lögreglumann-
anna saklausum ungling að bana.
Til að hylma yfír glæp sinn setur
hann byssu í hendi hins látna. Fé-
lagi hans tekur þó eftir þessu.
Mafíustríð er í uppsiglingu milli
tveggja ætta og flækjast málin all-
veralega. Líður að réttarhöldum
yfír lögreglumanninum. Félagi hans
er bundinn hinni óskráðu „þagnar-
skyldu", sem hann á bágt með að
skilja þar sem um nýliða er að
ræða innan lögreglunnar.
Auglýst eftir framboðum til
prófkjörs f Mosfeiissveit
Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóöenda Sjálfstæðisflokksins
við næstu sveitarstjórnarkosningar fari fram 8. febrúar 1986. Val frambjóö-
enda fer fram meö eftirfarandi hætti.
a) Gerð er tillaga um val frambjóðenda til kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í
Mosfellssveit. Tillagan er því aðeins gild að hún sé bundin við einn flokksmann.
Enginn flokksmaður getur staðið að fleiri tillögum en hann má fæsta kjósa í prófkjör-
inu. Tillagan skal borin fram af 20 flokksmönnum búsettum í Mosfellshreppnum.
b) Kjörnefnd er heimilt aö tilnefna prófkjörsframbjóöendur til viðbótar frambjóö-
endum samkvæmt a lið.
Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs, sbr. a-lið hér að ofan. Skal fram-
boð vera bundið við flokksbundinn einstakling enda liggi fyrir skriflegt samþykki
hans um aö hann gefi kost á sér til prófkjörs. Frambjóöendur skulu vera kjörgengir
í næstu sveitarstjórnarkosningum. 20 flokksbundnir sjálfstæðismenn, búsettir í
Mosfellssveit, skulu standa að hverju framboði og enginn flokksmaður getur staðið
að fleiri framboðum en 4.
Framboðum þessum ber að skila ásamt mynd af viökomandi og stuttu æviágripi til
formanns kjörnefndar, Þórarins Jónssonar, Fellsási 3, Mosfellssveit, eigi síðar en
kl. 12.00 fimmtudaginn 16. janúar 1986.
Kjörnefnd Sjálfstæöisflokksins í Mosfellssveit.