Morgunblaðið - 09.01.1986, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986
49
Pat Jennings
sagði nei takk
Frá Bob Hennessy, fróttamanni Morgunbladsins Englandi.
LUTON hefur fest kaup á fram-
herjanum Mike Newell, sem hef-
ur verið aðalmarkaskorarinn hjá
3. deildarliðinu Wigan Athletic.
Newell er 20 ára og leikur fyrsta
leik sinn með Luton á iaugardag-
inn gegn Chelsea. Kaupverð
kappans var 85.000 pund.
Skotar hafa ákveðið að leika
landsleik í knattspyrnu við ísrael
þann 18. janúar. Sama dag leika
Englendingar landsleik viö Egypta.
Skotar og Englendingar eru að
undirbúa sig af kappi fyrir heims-
meistarakeppnina í Mexíkó.
Fullreynt í 4. sinn
Middlesbrough og Southamp-
ton hafa gert þrjár tilraunir til leika
í bikarkeppninni ensku, en alltaf
hefur leiknum verið frestað vegna
slæmra vallarskilyrða. Á mánudag
verður reynt í fjórða sinn. Fresta
hefur þurft mörgum leikjum í ensku
knattspyrnunni að undanförnu.
Jennings sagði nei
Pat Jennings, landsliðsmark-
vörður Norður-íra, sagði nei takk
er honum var boðin markvarðar-
staða hjá 4. deildarliðinu Peter-
borough. Markvörður Peter
borough, John Turner, fótbrotnaði
í síðasta leik liðsins og var því
Jennings boðið að taka hans
stöðu.
Verður Walsh seldur?
Liverpool-leikmaðurinn Paul
Walsh, er enn á sölulista hjá liðinu.
Talið er líklegt að hann verði seldur
eftir næstu helgi. Það eru þrjú lið
sem talið er að kaupi kappann,
Arsenal, Tottenham eða QPR.
Walsh hefur leikið vel með Liver
pool að undanförnu og skorað 14
mörk frá því Dalglish setti hann á
sölulista. Það þykir því furðu sæta
að hann skuli vera enn á sölulista.
Hann var keyptur frá Luton fyrir
tæpum þremur árum á 800.000
pund.
,Carl
fyrstur
ÞANN 19. desember síðastliðinn
var sagt frá útnefningu skot-
manns ársins hér á iþróttasíðum
blaðsins. Þar kom fram að Gissur
Skarphéðinsson, nýkjörinn skot-
maður árins, og Carl J. Eiríksson
hefðu orðið fyrstir íslendinga til
að vinna til gullverðlauna á móti
erlendis. Þetta er ekki allskostar
rétt því daginn áður en þeir unnu
í sameiningu til gullverðlauna
með riffilskotkeppninni vann Carl
til gullverðlauna í keppni með
skammbyssu og því hlýtur hann
að teljast sá fyrsti sem slík verð-
iaun fær á erlendri grund. Leið-
réttist þetta hér með.
Mario Kempes
til Austurríkis
Hjartans þakkir fyrir gjafir og góðar óskir
í tilefni af 90 ára afmœli mínu U. janúar.
Magnús Guðbrandsson.
: SHANNON
:datastor
Allt á sínum stað
með :shannon:
:datastor:
idatastor:
skjalaskáp
Ef einhver sérstök vörzluvandamál þarf aö leysa biöjum viö
vlökomandi góöfúslega aö hafa samband viö okkur sem
allra fyrst og munum viö fúslega sýna fram á hvernig
SIMNH0I1 skjalaskápur hefur ,,allt á sínum staö".
Útsölustaðir:
REYKJAVlK. Penmnn Hallarmúla KEFLAVlK. Bókabúd Kellavíkur. AKRANES. Bókaversl . Andrós
Nielsson HF. iSAFJÖRÐUR. Bókaverslun Jónasar Tómassonar. AKUREYRI, Bókaval, bóka- og
ritfangaverslun. HÚSAVlK, Bókaverslun Þóranns Stelánssonar. ESKIFJÖROUR. Elis Guönason.
verslun. VESTMANNAEYJAR. Bókabúðin. EGILSSTADIR. Bókabúóin Hlöðum
ÓIAÍIJS OÍSIASOM 4 CO. HF.
SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800
— Hercules hefur
keypt ungan Dana
íhansstað
Frá Tryggva Húbnor, fréttaritara
Morgunblaðsins á Spáni.
ARGENTÍNSKI knattspyrnumað-
urinn Mario Alberto Kempes
hefur verið seldur fré Hercules é
Spáni til Austria Vin í Austurríki.
Kempes hefur verið hjá Hercules
í tvö ár og leikið þar við hlið Pét-
urs Póturssonar.
Kempes, sem nú er 32 ára,
verður hjá Hercules út janúar.
Hann fær í sinn hlut 200.000 pund
og segist ekki geta sleppt svo
góðu tilboði, því hann væri kominn
á þann aldur að slík tilboð byðust
ekki á hverjum degi.
Hercules hefur keypt ungan
leikmann frá Danmörku, Kurt
Bokholt, sem leikið hefur með
Vejle. Hann er 19 ára unglinga-
landsliðsmaður Dana. Pétur hefur
lýst ánægju sinni með þennan
unga leikmann og segir að hann
eigi eftir að gera það gott hjá lið-
inu.
Hercules lék æfingaleik á þriðju-
dag og vannst leikurinn 4-1. Pétur
og Daninn skoruðu tvö mörk hvor
og náðu vel saman í framlínunni.
Hercules er nú fimmta neðsta
sæti deildarinnar með 15 stig eftir
19 umferðir.
O Argentínumaöurinn, Marío
Kempes, hefur verið seldur frá
Hercules á Spáni til Austria Vin.
Miðbæjarhlaupið
MIÐBÆJARHLAUP KR var haldið í miðbænum laugardaginn 20. desember síðastliðinn. Hlaup þetta
var haldið í samvinnu við félagasamtökin Gamli miðbærinn og eins og nafnið ber með sér vsr hlaup-
ið um miðbæinn, upp Hverfisgötu og niður Laugaveg.
Jón Diðriksson sigraði f hlaupinu, hljóp vegalengdina á 9,08 mín. Guðmundur Sigurðsson varð í
öðru sæti á 9,12 mfnútum og Már Hermannsson þriðji á 9,22. Marta Ernstdóttir varö fyrst kvenna
í mark á 10,20 mínútum.
Af frosnum hlébaröa
íslensks leikstjóra á
sænskri grundu
— kvikmynd Lársar Ýmis
Óskarssonar, leikstjóra.
Vannæröir nútíma
vinnuþjarkar
Vélsleðaferöir
Aö hafa taumhald á
tíma sínum
Föstudagsblaðið ergott forskot á helgina
AIGASTOFA KRISTINAR HF.