Morgunblaðið - 16.01.1986, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR16. JANÚAR1986
Lánasjóður íslenskra námsmanna:
Vantar tæpar 350 milljón-
ir króna í sjóðinn á árinu
— er niðurstaða stjórnar sjóðsins
Morgunblaðið/Júlíus
Við afhendingu fyrstu framlaganna í nýstofnaðan Byggingasjóð stúd-
enta í gær. Frá vinstri: Guðmundur Jóhannsson formaður Stúdenta-
ráðs Háskóla íslands, Davfð Björnsson formaður stjómar Bygginga-
sjóðs stúdenta og Ársæll Harðarson framkvæmdastjóri Félagsstofn-
unar stúdenta.
Fyrirsjáanleg er mikil fjár-
magnsvöntun í Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna fyrir árið
1986. Fjárlög gera ráð fyrir
1.357 milljónum króna á meðan
fjárlaga- og áætlanadeild LÍN
hefur reiknað út að þörf sjóðsins
fyrir árið sé 1.698 milljónir
króna. Samkvæmt því vantar 341
milljón króna.
Fjögurra tíma fundur var í stjóm
Byggingasjóður stúdenta stofnaður:
Fyrstu framlög frá Stúdentaráði
HI og Félagsstofnun stúdenta
Byggingasj óður stúdenta var
formlega stofnaður á þriðjudag
með því að skipuð var stjóra
sjóðsins. Við það tækifæri veitti
formaður sjóðsins, Davíð Björns-
son, fyrstu framlögunum við-
töku, en þau komu frá Félags-
stofnun stúdenta og Stúdenta-
ráði Háskóla íslands - samtals
2.460.000 krónur.
Ársæll Harðarson, framkvæmda-
stjóri Félagsstofnunar stúdenta,
afhenti byggingasjóðnum
1.640.000 krónur og sagði við það
tækifæri m.a. að Félagsstofnun
ræki nú þijá stúdentagarða og
hjónagarð, en upp úr 1970 var ráð-
ist í byggingu hjónagarðanna og
hafði stofnunin þá enga lánsijár-
heimild úr neinum sjóði. „Hins
vegar lítum við nú fram á bjartari
daga þar sem lög síðan í júní sl.
gera Félagsstofnun stúdenta kleift
að byggja fyrir nemendur með allt
að 80% láni úr Byggingasjóði verka-
manna. Vonast er til að fram-
kvæmdir geti hafíst við 150 nýjar
íbúðir í byijun næsta árs og nú
þegar hafa verið ráðnir arkitektar
til að hanna bygginguna - hinir
sömu og hlutu fyrstu verðlaun í
samkeppni um nýja stúdentagarða
er fram fór í haust. Þá er vonast
til að íbúar gætu flutt inn í septem-
ber árið 1988.“
Hann sagði jafnframt að bygging
nýrra stúdentagarða myndi létta
heilmikið á hinum fíjálsa leigu-
markaði þar sem gera mætti ráð
fyrir að námsmenn byggju í helm-
ingi þess húsnæðis er væri hér í
leigu. „Þrátt fyrir allt að 80% láns-
fjárheimild úr Byggingasjóði verka-
manna þurfa stúdentar sjálfír að
afla 20% svo að nú, með stofnun
Byggingasjóðs stúdenta, hafa
nemendur sjálfír riðið á vaðið, en
gera má ráð fyrir að í sjóðinn þurfí
allt að 50 milljónir króna.“
Guðmundur Jóhannsson, formað-
ur Stúdentaráðs HÍ, afhenti for-
manni sjóðsins 820.000 krónur, sem
sparast hafa m.a. með aðhaldi og
spamaði auk þess sem nokkur
rekstrarafgangur var frá sl. ári.
Guðmundur sagði að á fundi Stúd-
entaráðs fyrr í vetur hefði verið
ákveðið að eiga frumkvæðið að
því að leggja fé í þennan Bygginga-
sjóð Stúdenta.
Skipað var í nefndina á sama hátt
og í Félagsstofnun stúdenta. Auk
Davíðs, eiga sæti í sjóðsstjóm þeir
Gunnar Jóhann Birgisson og Jó-
hannes Jóhannsson, allir fulltrúar
stúdenta. Steingrímur Ari Arason
er fulltrúi menntamálaráðuneytis-
ins og Valdimar Hergeirsson er
fulltrúi Háskólaráðs í sjóðsstjóm.
Lánasjóðs íslenskra námsmanna á
mánudagskvöld þar sem m.a. var
rætt um fjárskort sjóðsins auk þess
sem samþykktar vom tillögur þess
efnis að framkvæmdastjóri sjóðsins
komi málum lausráðinna starfs-
manna í viðunandi horf og formanni
og varaformanni verði falið að bæta
samstarf stjómar og starfsmanna
sjóðsins. Einnig var samþykkt til-
laga með þremur atkvæðum náms-
manna gegn tveimur atkvæðum
fulltrúa menntamálaráðuneytis að
reglugerðarbreytingu menntamála-
ráðherra frá 3. janúar sl. um að
frysting krónutölu lánanna yrði
tekin aftur. Fulltrúi fjármálaráðu-
neytis sat hjá.
„Mér sýnist að sjóðsstjóm muni
koma til með að standa saman um
að þrýsta á að fá þessar tæplega
350 milljónir sem á vantar fyrir árið
1986, en hinsvegar sýnist mér við
námsmenn stöndum einir að því að
fá frystinguna afnumda," sagði
Ólafur Amarson, fulltrúi Stúdenta-
ráðsíLÍN.
„Það hefur sýnt sig í gegnum
tíðina að áætlanir Lánasjóðsins eru
mun nær raunveruleikanum en
áætlanir fjárlaga- og hagsýslu-
stofnunar. Mér finnst því þetta vera
eins og að beija hausnum við stein-
inn að halda því fram að fjárþörfín
sé ekki meiri en þetta þegar hún
er a.m.k. það sem við höfum reiknað
út. Ég hef trú á því að málið verði
leyst með því að ríkisvaldið bæti
við í sjóðinn enda er það klárt að
endar munu ekki ná saman hvemig
sem dæmið er reiknað.
Við höfum engin vilyrði en ráða-
menn hafa undanfarin ár sýnt
námsmönnum skilning svo ég vona
innilega að menn séu að hlaupa af
sér homin í þessu sambandi. Vera
kann að frystingin sé lögleg, en hún
er örugglega siðlaus," sagði Ólafur
að lokum.
Norræna húsið:
Fyrirlest-
ur um rímna-
kveðskap
Njáll Sigurðsson, námsstjóri í
tónmennt, heldur fyrirlestur um
rímnakveðskap í Norræna hús-
inu í kvöld, fimmtudag, kl. 21.00.
' Með fyrirlestrinum verða flutt
tóndæmi, þar sem heyra má rímna-
kveðskap frá ýmsum tímum. Kynnt
verða rímnalög úr handritum,
prentuðum bókum, úr hljóðritasöfn-
um og af hljómplötum. Einnig koma
félagar úr Kvæðamannafélaginu
Iðunni fram og kveða nokkrar
stemmur.
Fyrirlesturinn átti upphaflega að
vera á dagskrá nk. sunnudag sem
liður í fyrirlestraröð Norræna húss-
ins í tengslum við sýninguna „Tón-
list á íslandi“, en vegna óviðráðan-
legra orsaka verður að flýta honum
um nokkra daga'
Þetta er ekki fræðilegur fyrirlest-
ur, heldur kynning, ætluð almenn-
ingi. Hér gefst því tækifæri til að
kynnast þessari tónlistarhefð ís-
lendinga, sem líklega er einungis
enn við lýði í kvæðamannafélögum.
Opnunartími tónlistarsýningarinn-
ar, sem yfírleitt er kl. 14.00 til
19.00, framlengist því í kvöld til
kl. 21.00.
Stúdentaráð Háskóla Islands:
Frystingn námslána mótmælt
>
„Ef verðbólgan verður sú
sama og verið hefur undanfarið
má gera ráð fyrir rúmlega 30%
skerðingu námslána þar sem
lánin hafa nú verið fryst um
óákveðinn tima,“ sagði Ólafur
Araarson fulltrúi Stúdentaráðs
i LÍN á blaðamannafundi er
haldinn var i fyrradag á vegum
Stúdentaráðs.
Hann sagði að frystingin myndi
hafa mjög alvarlegar afleiðingar
fyrir alla námsmenn, sem treystu
á lánin, en þó sérstaklega fyrir
námsmenn, sem stunda nám sitt
erlendis, vegna gengisþróunar.
Fram kom á fundinum, að stjóm
Stúdentaráðs hefur ýmislegt á
pijónunum til þess að þrýsta á
að skerðingin verði tekin aftur.
Haft hefur verið gott samráð við
SÍNE og BÍSN í þessum efnum
og hvetur stjómin alla stúdenta
til að sýna samstöðu í þessu
hagsmunamáli. Stjóm stúdenta-
ráðs hafnar þeirri gagnrýni, sem
fram hefur komið, að hún hafi
setið aðgerðarlaus í lánamálum.
Ragnhildur Helgadóttir fyrr-
verandi menntamálaráðherra
skipaði samstarfsnefnd stjóm-
valda og námsmanna í ráðherra-
tíð sinni er vinna skyldi að umbót-
um á starfsemi LJN og bættri
þjónustu við lánþega að ósk
stjómar SHÍ. Jafnframt fól
menntamálaráðherra nefndinni að
endurskoða iög lánasjóðsins.
Nefnd þessi er enn að störfum
og urðu því mikil vonbrigði í stjóm
SHÍ er menntamálaráðherra greip
til skerðingarinnar án þessaðbíða
nefndarálitsins og eftir að hafa
------—....................^
1 } , , :5|
i i | j
• :i i
1 í
Stjórn Stúdentaráðs Háskóla íslands. Frá vinstri á myndinni eru: Guðný Eydal, Helgi Jóhannesson
gjaldkeri, Ólafur Araarson fulltrúi Stúdentaráðs í LÍN, Ásdís Guðmundsdóttir, Guðmundur Jóhanns-
son formaður Stúdentaráðs, Ari Edwald varaformaður og Anna Sigurðardóttir.
Námsmenn hafa búið til sitt eigið línurit, sem sýnir þróun kaup-
máttar ráðstöfunartekna og námslána. Linuritið er byggt á
upplýsingum frá Þjóðhagsstofnun.
lýst því yfír að lánin yrðu ekki
skert á þessu námsári.
Ólafur Amarson á sæti í nefnd-
inni og í bókun er hann lagði fram
á stjómarfundi LÍN 3. janúar sl.
segir m.a. að ekki sé rætt um
niðurskurð lána innan nefndarinn-
ar heldur um leiðir til að betri
innheimtur náist af því fé sem
lánað er út. „Nemendur hafa ekki
möguleika á að bæta afkomu sína
með aukavinnu vegna þess að
námskröfur em slíkar að útilokað
er fyrir námsmenn að bæta við
sig vinnu. Einnig em reglur LÍN
slfkar að hafí menn aukatekjur
þá skerðast námslán þeirra.“
Þessu vill stjóm SHÍ breyta sér-
staklega og telur að námslána-
kerfíð eigi að hvetja en ekki letja
menn til að vinna fyrir sér.
Ólafur sagði að lítið væri að
gerast nú í nefndinni. Menn hafí
verið að skiptast á skoðunum fram
til þessa, en ekki sé farið að móta
heildarskoðanir á málefnum LÍN
og ekki hefur ennþá verið tímasett
hvenær nefndin skuli skila áliti
sínu.
Stjóm SHÍ fínnst að sjónarmið
stúdenta hafí ekki komist nægi-
lega vel til skila í umræðu undan-
farinna daga. Guðmundur Jó-
hannsson formaður Stúdentaráðs
sagði að nýlega hefði verið birt í
fjölmiðlum línurit er sýna átti
samanburð kaupmáttar launa og
námslána. Námsmönnum fannst
línuritið villandi og hafa því sent
frá sér annað byggt á upplýsing-
um frá Þjóðhagsstofnun er sýnir
þróun kaupmáttar ráðstöfunar-
tekna og námslána á ámnum
1976—1986. Þá vilja námsmenn
benda á að þeir bera ekki ábyrgð
á þeirri skerðingu kaupmáttar
launafólks er orðið hefur. Með
skerðingunni er verið að gera
mönnum mishátt undir höfði þar
sem markmið lánanna er að
tryggja að allir námsmenn geti
stundað nám óháð fjárhag. Náms-
mönnum utan af landi er gert
sérstaklega erfitt fyrir þar sem
kostnaður hlýtur að teljast vera-
legur m.a. vegna þess að ekki er
um auðugan garð að gresja á
stúdentagörðum og verða því
flestir að leita á mið hins fijálsa
húsaleigumarkaðar.
Fjárlög 1986 gera ráð fyrir
1.357 milljónum í Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna, en LIN telur
sjóðinn þurfa tæpar 1.700 milljón-
ir króna.