Morgunblaðið - 16.01.1986, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR16. JANÚAR 1986
51
Súkkulaðidrengir
— sögðu dönsku blöðin um landslið sitt
Frá Vaj Jónatanssyni bladamanni, Morgunblaðsins í Danmörku.
UMFJÖLLUN dönsku dagblað-
Nordfoto/Símamynd
• Varnarmaðurinn Stephen Hauck (nr. 2) fellir Júlíus Jónasson er Júlíus reyndi að smeygja sér f gegnum
glufu á varnarmúr Austur-Þjóðverja.
Frábær markvarsla
Kristjáns dugði ekki
— Austur-Þjóðverjar unnu með fimm marka mun
Frá Val Jónatanssynl, blaóamannl MorgunblaSsins I Danmörku.
anna eftir leikinn gegn Dönum á
þriðjudagskvöld var aðallega í þá
átt að ekki hafi verið leikinn
handbolti. Danir fá líka sínar
skammir. í fyrirsögn Berlingske
Tidende segir til dæmis: „Slags-
mái en ekki handbolti." Ekstra
Bladet segir: „Súkkulaðidreng-
irnirfengu rasskell."
„Það er mjög bagalegt aðeins
sex vikum fyrir heimsmeistara-
keppnina að fá slíka útreið. Það
er ekki þar með sagt að það sé
Sagt eftir leikinn:
Fyrri
háif-
leikurinn
afleitur
Frá Val Jónatanssynl, blaöamannl
Morgunblaösins f Danmörku.
„ÉG er ánægður með seinni
hálfleikinn en sá fyrri var af-
leitur. Ég tel að leikmennirnir
hafi ekki hitað nægilega vel
upp fyrir leikinn," sagði
Bogdan þjálfari landsliðsins
eftir leikinn í gær.
„Austur-Þjóðverjar eru nú
með mun sterkara lið en í
Sviss í haust. Þeir eru líkam-
lega betur þjálfðir og leikkerfi
þeirra ganga betur upp. Þeir
plötuðu íslensku strákana upp
úr skónum í vörninni í fyrri
hálfleik.
Guðjón
Guðmundsson
„Baráttan var góö í seinni
hálfleik en ekki í þeim fyrri.
íslenska liðið náði ekki upp
einbeitingu fyrr en of seint,"
sagði Guðjón Guðmundsson
liðstjóri íslenska liösins í gær-
kvöldi.
„Að mínu mati voru Kristján
Sigmundsson og Guðmundur
Guðmundsson bestir. Það er
greinilegt að Þorbergur styrkir
liðið mjög mikið. Ég hef fytgst
með honum í 10 ár og hef ég
aldrei séð hann betri en núna,
enda grindhoraöur. Leikurinn
í kvöld gegn Sovétmönnum
verður mjög erfiður en óg held
samt að við náum góðum úr-
slitum. Sovéska liðið er ekki í
toppæfingu um þessar mund-
ir. Nú, liðsaukinn sem viðfáum
í þennan leik ætti að gera vonir
okkarmeiri."
Þorbergur
Aðalsteinsson
„ÞETTA var mjög slök byrj-
un hjá okkur, bæði í vörn og
sókn, og leit mjög illa út í
byrjun, en við náðum okkur
betur á strik í síðari hálfleik.
Austur-Þjóðverjar eru með
mjög vel þjálfað lið og leika
eins og best gerist í dag. Ég
tel þá í sama styrkleikaflokki
og Sovétmenn, Júgóslava og
Rúmena. Þeir búa yfir hreint
ótrúlegum krafti og hraða."
- Verður þú með gegn
Sovétmönnum í kvöld?
„Já, ég hef ákveðið aö vera
með gegn Sovétmönnum en
því miður verð óg að fara heim
strax eftir þann leik.
Leikurinn við Sovétmenn
verður örugglega mjög erfiður
því eins og ég sagði áðan eru
þeir með mjög sterkt lið og
eitt þaö besta í heiminum. Ég
þori ekki að spá neinu um úr-
slit en við gerum okkar besta.
Það ætti líka að hjálpa til að
hafa þá Atla, Alfreð og Pál."
skömm að tapa fyrir íslendingum,
þeim hefur fariö mikið fram nú síð-
ustu árin. Því er þannig farið með
íslendinga að þeir hafa minnimátt-
arkennd gagnvart Dönum og þeg-
ar þeir sjá rauðu og hvítu búning-
anna þeirra eflast þeir um helming
og leggja allt í sölurnar," segir í
Berlingske Tidende í gær.
Ekstra Bladet segir í skrifum
sínum um leikinn að von um góðan
árangur danska liðsins á heims-
meistaramótinu hljóti að minnka
til muna eftir tapið gegn kraft-
miklum íslendingum. Þar segir
einnig að leikurinn hafi helst líkst
fjölbragðaglímu eða rugby. til
marks um það hafi sænsku dómar-
arnir þurft að vísa þrettán leik-
mönnum útaf í leiknum. „Þessi
kröftugi handknattleikur átti ein-
faldlega ekki viö dönsku súkkulaði-
drengina."
Politiken segir í umfjöllun sinni
að leikurinn hafi að mestu leyti
verið handalögmál þar sem (slend-
ingar voru sterkari. Leikmenn
brutu af sér með því að slá hrein-
lega til andstæðinganna eöa taka
þá hreinlega hálstaki. fslenska liöið
á þó hrós skilið og leikmenn þess
sýndu baráttuvilja allan leikinn.
„Hræðileg byrjun danska lands-
liðsins í fyrsta leik Baltic keppninn-
ar,“ segir í fyrirsögn Jyliandspost-
en í gær. „Að tapa fyrir varaliðið
íslands í fyrsta leik er ekki til að
hrópa húrra fyrir. íslendingar voru
einfaldlega kraftmeiri og sterkari
og það vó þyngst í þessum leik."
Þorbergur með
Óvíst um Pál
ATLI Hilmarsson og Alfreð Gfsla-
son koma til móts vió fslenzka
landsliðið í dag og verða með f
leiknum gegn Sovótmönnum f
kvöld. Þorbergur Aðalsteinsson
leikur einnig með gegn Sovét-
mönnum, en heldur sfðan til Svf-
þjóðar. Óvfst var f gærkvöldi
hvort Páll Ólafsson nái f tæka tfó
til Danmerkur til að leika gegn
Sovétmönnum.
„VIÐ gáfum þeim hálfpartinn leik-
inn f byrjun meðan við áttuðum
okkur ekki á hraða þeirra,u sagði
Kristján Sigmundsson markvörð-
ur sem var besti leikmaður fs-
lenska liðsins f gærkvöldi.
„Þeir eru mjög erfiðir við að eiga
og maður á móti manni er nánast
útilokað að stoppa þá. Línumaður-
inn Ingolf Wiegert er besti línu-
HK sigraði UBK 26:20 f 2. deild
handboltans f gærkvöldi og
tryggðu leikmenn HK sér þar með
sæti f úrslitakeppninni um auka-
sæti f 1. deild, ef af fjölgun liða
f 1. deild verður. Siaur HK var
mjög verðskuldaður. I hálfleik var
staðan 13:10 fyrirHK.
Liðsmenn HK tóku öll völd í sín-
ar hendur strax í byrjun leiks og
eygöu Blikar aldrei sigurvon. HK
ÞRÍR leikir fóru fram f 1. deild
kvennahandboltans f gærkvöldi
og styrkti Fram stöðu sfna á toppi
deildar með þvf að sigra Stjörn-
una með 23 mörkum gegn 17 f
Laugardalshöll.
Víkingar sóttu ekki gull í greipar
„ÞETTA eru algjör naut,“ sagði
Kristján Sigmundsson markvörð-
ur um austur-þýsku leikmennina
eftir að íslendingar máttu þola
fimm marka tap, 21:26, fyrir
geysisterku austur-þýsku liði f
Baltic Cup-keppninni f Viborg f
Danmörku f gærkvöldi. íslenska
liðið byrjaði leikinn frekar ílla en
náði sér sfðan vel á strik og hélt
f við Austur-Þjóðverja f seinni
hálfleik. Staðan f leikhléi var 14:9
fyrir Austur-Þýskaland.
Upphafsmínúturnar voru slakar
hjá íslenska liðinu. ísiendingarnir
báru mikla virðingu fyrir leikmönn-
um þýska liðsins sem komust í 6:1
er 13 mínútur voru liðnar af leikn-
maður sem ég hef séð í þau tíu ár
sem ég hef staðiö í þessu. Ég er
ekki ánægður með fyrri hálfleikinn
þar sem við vorum fimm mörkum
undir en aftur héldum við jöfnu við
þá íþeim síðari.
Leikurinn gegn Sovótmönnum
verður örugglega ekki auðveldur
en það er alltaf gott að fá óþreytta
leikmenn og á góöum degi getum
við unnið hvaða lið sem er."
gerði út um leikinn í byrjun seinni
hálffeiks er staðan var 18:11. Bezti
maður vallarins var Magnús Ingi
Stefánsson, markvörður HK, sem
varði 19 skot, sum með ævintýra-
legum hætti.
Mörk UBK: Jón Þór Jónsson 10, Krístján
Halldórsson 3 (1v), Aöalsteinn Jónsson 3,
Andrós Brídde 2 og Þóröur Davíösson 2.
Mörk HK: Ólafur Pétursson 8, Elvar Óskars-
son 7 (1v), Gunnar Gylfason 4, Rúnar Einars-
son 3 og Bergsveinn Þórarinsson 3. _y|p
FH-inga í Hafnarfirði því heimaliðið
sigraði meö 19 mörkum gegn 16.
I Laugardalshöll áttust við Valur
og KR og lauk þeirri viðureign með
öruggum fimm marka Valssigri,
21-16.
um. Þá breytti Bogdan þjálfari um
varnarleikkerfi íslenska liðsins, úr
5-1 vörn í 6-0. Þetta virtist gefast
vel því smátt og smátt náðu íslend-
ingarnir að stöðva stórskyttur
Austur-Þjóðverja og héldu í við
liðiðtil leikhlés.
Seinni hálfleikurinn var mun
fjörugri en sá fyrri og skiptust liðin
á um að skora. Leikmenn íslands
fengu aukið sjálfstraust og þá fór
að ganga betur. Minnstur munur
í leiknum var þrjú mörk er staðan
var 22:19 og tíu mínútur til leiks-
loka. íslendingar fengu tækifæri til
að minnka þennan mun niður í tvö
mörk en leikmenn voru of bráðir
og ekkert varð úr. Austur-þýsku
leikmennirnir notfærðu sér þessi
mistök á lokamínútunum og sigr-
uðu örugglega 26:21.
Byrjunin var slök eins og áður
kemur fram og var eins og strák-
arnir hefðu ekki hitað sig nægilega
vel upp og það kom á daginn að
sú var raunin. Þaö sem háði ís-
lenska liðinu var varnarleikurinn
sem ekki var spilaður af skynsemi
í byrjun en eftir að breytt var í 6-0
vörn gekk það betur. Erfitt var að
eiga viö hraðaupphlaup Austur-
Þjóðverja og til marks um það
skoruðu þeir 14 mörk úr hraöaupp-
hlaupum í leiknum.
Sóknarleikurinn var ekki nægi-
lega markviss enda erfitt fyrir
skytturnar að athafna sig vegna
þess hve hávaxnir vamarleikmenn
Þjóðverja eru. Mörg skot íslenska
liðsins enduðu í varnarveggnum
og skyttur okkar náðu ekki að rífa
siguppfyrirhann.
Kristján Sigmundsson mark-
vörður var besti leikmaður íslenska
liðsins, varði 16 skot og flest þeirra
úr góðum marktækifærum. Þor-
bergur Aöalsteinsson sannaði enn
einu sinni getu sína og skoraði átta
mörk. Hann hefur sennilega aldrei
verið í betri æfingu og væri það
grátlegt fyrir íslenska liðið ef hann
yrði ekki með í lokakeppninni í
Sviss. Guðmundur Guðmundsson
og Þorgils Óttar stóöu sig mjög
vel, Kristján Arason átti erfitt
uppdráttar þar sem austur-þýsku
leikmennirnir dekkuðu hann mjög
stíft.
Austur-Þjóðverjar eiga örugg-
lega á að skipa einu af fjórum
bestu handknattleikslandsliðum
heims um þessar mundir. í liðinu
eru margir frábærir leikmenn eins
og til dæmis línumaðurinn Ingolf
Wiegert sem allir, sem til hans
hafa séð, eru sammála um að sé
besti línumaður heims. Það er
hreint ótrúlegt hve þessum þrekna
og hávaxna leikmanni tekst að
skora úr nær ómögulegum mark-
tækifærum. Ef hann fær knöttinn
inn á línuna tekst honum nær alltaf
að komast í skotfæri og þá er
óhætt að bóka mark.
Einn ieikreyndasti leikmaður
þeirra, Frank Wahl, sem lék í
gærkvöldi sinn 211. landsleik, er
frábær skytta auk þess aö vera
góöur leikstjórnandi. Markverðir
liðsins, þeir Hofmann og Schmidt,
eru báðir frábærir markveröir.
Maður hafði það einhvern veginn
á tilfinningunni að þeir hefðu ráðið
gangi leiksins allan tímann.
(slendingamir voru utan vallar í
6 mínútur en þeir austur-þýsku í
fjórtán. Dönsku dómurunum,
Mortensen og Knudsen, voru oft
mislagðar hendur en það var jafnt
á báða bóga.
Mörfc Islands: Þorbergur Aöalsteinsson
8/3, Þorgils Óttar Mathiesen 4, Krístján Ara-
son 4/3, Steinar Birgisson 2, Guðmundur
Guðmundsson, Geir Sveinsson og Valdimar
Grimsson eitt mark hver.
Mörk Þjóöverja: Wiegert 7, Wahl 5, Borc-
hardt 4, Schnell 3, Dreyer 3, Pysall, Hauck
og Nagora eitt mark hver.
Tiedemann:
Ánægður
Frá Val Jónatanssynl biaðamanni
Morgunblaðslns í Danmðrfcu.
„Ég er mjög ánægður með fyrri
hálfleikinn en ekki þann seinni.
Dómararnir voru frekar hliðhollir
íslendingunum,“ sagði Tiedem-
ann þjálfari Austur-Þýskalands
eftir leikinn í gær.
„Varnarleikurinn hjá okkur var
góður. Ég gaf tveimur leikmönnum
tækifæri á að spreyta sig í kvöld
og komust þeir að mínu mati mjög
vel frá leiknum."
Danir unnu
Sovétmenn
DANIR tóku aftur gleðl sfna í
gærkvöldi eftir tapleikinn gegn
Islendingum f fyrrakvöld.
A-landslið Dana sigraði sovézka
landsliðið með 24 mörkum gegn
22 og B-lið Dana sigraði pólska
liðið með 21 marki gegn 20. Úr-
slrt beggja leikja eru mjög óvænt.
Gáfum þeim leikinn
hálfpartinn íbyrjun
— sagði Kristján Sigmundsson markvörður
Frá Val Jónatanssynl, blaðamannl Morgunblaðsins I Danmörku.
HKvannUBK
Fram vann Stjörnuna