Morgunblaðið - 23.01.1986, Page 1

Morgunblaðið - 23.01.1986, Page 1
72SIÐUR B STOFNAÐ 1913 18. tbl. 72. árg. FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR1986 Prentsmiðja Morgxmblaðsins Bandaríkin: Hagvöxtur að- eins 2,3% 1985 Washington, 22. janúar. AP. Hagvöxtur í Bandaríkj unum var aðeins 2,3% á árinu 1985, minni en áður var haldið. Skýrði viðskiptaráðuneytið svo frá í dag. Verðbólgan á liðnu ári var 3,8% og hefur verið undir 4% i fjögur ár samfleytt. Hagvöxturinn hefur ekki verið minni síðan árið 1982, þá var hann 2,1% en 3,4% 1983 og 6,6% 1984. Búist hafði verið við, að hagvöxtur- inn yrði meiri í fyrra en raun varð á en samdráttur á síðasta ársflórð- ungi gerði þær vonir að engu. Verðbólga í Bandaríkjunum í fyrra var 3,8% og hefði verið lægri ef ekki hefðu komið til allnokkrar verðhækkanir á síðasta flórðungi ársins. Voru þær mestar á matvöru og eldsnéyti. Vegna þessara tíðinda féll dollar- inn nokkuð í dag gagnvart öðrum helstu gjaldmiðlunum. Kasparov-Karpov Nýtt ein- vígi seint í sumar Moskvu, 22. janúar. AP. GARRI Kasparov, heimsmeist- ari í skák, skýrði svo frá í dag, að hann hefði fallizt á að tefla annað einvígi seint í sumar við Anatoly Karpov, fyrrum heims- meistara. Kvaðst Kasparov hafa tekið þessa ákvörðun eftir viðræður við Karpov og sovézka skáksambandið á þriðjudag. Eftir væri þó að semja um mörg atriði varðandi slíkt einvígi, þar á meðal hvar og nákvæmlega KASPAROV KARPOV hvenær það skyldi fara fram. Sér- stakar viðræður væru þó fyrir- hugaðar í kvöld til að jafna hugs- anlegan ágreining um þessi atriði. Karpov hefur lýst því yfir, að hann vilji helzt tefla nýtt einvígi í Leningrad, en Kasparov hefur ekki tjáð sig um, hvar hann kysi helzt að tefla. Auk Leningrad hefur London boðist til þess að halda þetta einvígi. FRÁ fundi danska þjóðþingsins, þar sem tillögumar um breytingar á skipulagi Evrópubandaiagsins voru felldar. Nú er spurt: Eiga Danir eftir að einangrast algerlega innan Evrópubandalagsins? Evrópubandalagið: Míkil andstaða við afstöðu Danmerkur Haagf, 22. janúar. AP. HANS van den Broek, utanríkis- ráðherra Hollands, lýsti i dag yfir andstöðu við þau áform Dana, að samið verði að nýju um breytingar á stofnskrá Evrópu- bandalagsins (EB). Sagði hann, að önnur aðildarriki EB kynnu að staðfesta breytingamar án þátttöku Danmerkur. Van den Broek er nú forseti fram- kvæmdanefndar Evrópubanda- lagsins. Framkvæmdanefndin tók hins vegar sjálf enga formlega afstöðu til atkvæðagreiðslunnar á danska þjóðþinginu á þriðjudag, en þar voru EB-tillögumar felldar með 80 atkvæðum gegn 75. Sagðist nefnd- in „ekki vilja hafa afskipti af innan- landsmálum Danmerkur." Uppreisnarmenn sækja fram í Suður-Jemen Djibouti, 22. janúar. AP. MIKILLI stórskotahrið var hald- ið uppi á hafnarhverfi Aden, höfuðborgar Suður-Jemens í dag og ekkert lát virtist þá á bardög- um milli hinna stríðandi fylkinga marxista í landinu. Báðir aðilar sögðust hafa betur í átökunum. Svo virtist þó sem uppreisnar- menn væm að ná yfirhöndinni i borgarastríðinu, sem nú hefur staðið i meira en 10 daga. Uppreisnarmenn höfðu sótt fram í Aden og á sumum stöðum úti á landsbyggðinni. Hersveitir tryggar Ali Nasser Mohammed forseta höfðu hins vegar búið rammlega um sig í sumum hverfum í Aden og héldu uppi mikilli skothríð þaðan á sveitir uppreisnarmanna, sem sóttu inn í borgina. Yfir 3000 manns hafa verið flutt- ir burt frá Suður-Jemen af brezk- um, frönskum og sovézkum skipum. Lýsa flóttamennimir Aden eins og VIGGIRT PRENTSMÐJA BLAÐAKÓNGURINN Rupert Murdoch hefur reist nýja prentsmiðju f Docklands á Lundúnasvæðinu og er hún búin nýjustu tækni, ólíkt þvi sem er með prentsmiðjumar f , r Fleet Street, þeirri kunnu ^; blaðagötu. Nú hafa prentarar hófað verkfalli hjá Murdoch og er ástæðan sú, að hann ætlar að ráða til sín menn úr rafiðn- aðarsambandinu f stað prent- ara. Af ótta við, að skemmdar- verk verði unnin á prentsmiðj- unni hefur hún verið girt með gaddavirsflækjum. Sjá „Prentarar hóta____“ á bls 25. t .. s tf * * 1:1KHCltt* AP/Símamynd „borg dauðans", þar sem götur og stræti eru þakin líkum og brunnum skriðdrekaflökum. Japanskt flutningaskip, sem komið hafði til hafnar í Aden, náði ekki að taka neitt flóttafólk um borð: „Við urðum að flýja til þess að bjarga lífí okkar," var haft eftir einum af áhöfninni. „Fallbyssubát- ur sigldi upp að skipi okkar í höfn- inni og tók að skjóta þaðan á skrið- dreka á ströndinni. Skriðdrekamir svöruðu skothríðinni óðar og varð skip okkar þá fyrir sprengikúium, sem ollu talsverðum skemmdum. Tveir af áhöfninni særðust, áður en okkur tókst að forða okkur og siglaburt." Sovézkt flutningaskip kom í dag til Djibouti með 589 flóttamenn frá Suður-Jemen. Þeir voru flestir sovézkir, en í hópi þeirra voru einnig fólk frá Ungverjalandi, Tékkóslóv- akíu og Austur-Þýzkalandi. Snekkja Bretadrottningar, Brit- annia, flutti í dag meira en 300 manns burt frá Suður-Jemen, en áður hafði skipið flutt á sjöunda hundrað manns burt þaðan. Uffe Ellemann-Jensen, utanríkis- ráðherra Danmerkur, hóf í dag ferðalag sitt til aðildarlanda EB. Hyggst hann freista þess að fá því framgengt, að tekið verði tillit til sjónarmiða Dana í fyrirhuguðum breytingum á skipuiagi EB. Var gert ráð fyrir því, að hann ræddi við Sir Geoffrey Howe, utanrikis- ráðherra Bretlands, í kvöld. Talsmaður brezka utanríkisráðu- neytisins sagði hins vegar í dag: „Við sjáum enga þörf á því að gera frekari breytingar. Umbætur þær á Rómarsáttmálanum, sem búið er að ákveða, hafa okkar samþykki." Ellemann-Jensen mun ræða við van den Broek á föstudag. Sá síðar- nefndi sagði í dag, að fari svo að öll aðildarríki EB nema Danmörk staðfesti breytingartillögumar á fyrirhuguðum fundi bandaiagsins í Briissel 17. febrúar nk., þá verði dönsku þjóðinni „send vísbending um, að það, sem þegar er búið að ákveða, sé algert frumskilyrði fyrir frekari sameiningu Evrópu.“ Þrír vísinda- menn dæmdir Var8]A, 22. janúar. AP. ÞRÍR pólskir visindamenn voru f dag dæmdir sekir um að bvetja til óeirða, er þeir komu fram f sjónvarpsútsendingum þjá Sam- stöðu, samtökum hina frjálsu verkalýðsfélaga f landinu. Útsendingar þessar voru bannaðar af pólskum stjómvöldum. Var mönn- unum gefið að sök að hafa þar hvatt fólk til þess að greiða ekki atkvæði í þingkosningum þeim, sem fram fóru f Póllandi í okóber sl. Mennimir þrír vom Jan Hanasz, forseti stjameðlisdeildarinnar við vís- indastofnunina í Tomn og tveir aðrir eðlisfræðingar, þeir Zygmunt Turlo og Laszek Zaleski. Fengu þeir allir 18 mánaða skilorðsbundinn fangels- isdóm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.