Morgunblaðið - 23.01.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JANtJAR 1986
Stéttarsam-
bandið vill
banna kjötinn-
flutninginn
STJÓRN Stéttarsambands
bænda samþykkti á fundi sínum
nýlega að skora á landbúnaöar-
ráðherra að beita sér fyrir því
að Alþingi setji lög með ótvíræð-
um ákvæðum um bann við inn-
flutningi til Varnarliðsins á hráu
kjöti og öðrum vörum sem borið
geta með sér búfjársjúkdóma.
Stjómin fjallaði um nýbirta nið-
urstöðu lögfræðinga um lögmæti
innflutnings á kjöti til Vamarliðsins
og samþykkti ofangreinda ályktun
af því tilefni.
Rafmagnstruflanir og ófærð á Austurlandi:
Á þríðja tug rafmagnsstaura
brotnuðu á Suðausturlandi
SLÆMT veður hefur verið á austanverðu landinu undanfarna daga.
Flestir vegir á austan- og norðanverðu landinu eru ófærir og víða
rafmagnstruflanir. Veðrið gekk að mestu niður í gær, en éljagangi
er spáð á þessu svæði í dag. Daglegt líf fólks fór nokkuð úr skorðum
í sumum bæjum á þessu svæði vegna rafmagns- og vatnsleysis og
samgönguörðugleika.
Á þriðja tug rafmagnsstaura
brotnuðu í fyrradag og staurasam-
stæða í Suðurlínu brotnaði við
Almannaskarð austan við Höfn, að
sögn Erlings Garðars Jónassonar
rafveitustjóra Austurlands. Raf-
magn komst á Höfn eftir miðnættið
með díselvélum en sveitimar eru
að mestu rafmagnslausar. í gær-
kvöldi var enn rafmagnslaust í stór-
um hluta Homaflarðar, Lóni, Nesj-
um, Suðursveit og Öræfum. Einnig
varð rafmagnslaust um tíma á
Djúpavogi og rafmagn skammtað
eftir að díselvélamar vom settar í
gang. Erling sagði að stauramir
hefðu brotnað vegna mikillar ísing-
ar sem hlóðst á línumar. Rafveitu-
menn frá Höfn unnu að viðgerð og
viðgerðarflokkar frá Egilsstöðum
og Hvolsvelli vom á leiðinni, en
gekk illa að komast vegna ófærðar.
Erling Garðar sagði að varla væri
vinnuveður en sagði að gert yrði
við línumar strax og mögulegt
væri.
Haukur I>. Sveinbjömsson frétta-
ritari Morgunblaðsins á Höfn sagði
að þar hefði gert bijálað veður á
þriðjudagsmorgun og daglegt líf
fólks farið úr skorðum. Rafmagn
og vatn fór á bænum en komst
aftur á um miðnættið, síminn datt
að mestu út og skólahald féll niður.
Þá urðu götur bæjarins ófærar.
Albert Kemp fréttaritari á Fá-
skrúðsfírði sagði að snjórinn þar
væri með því mesta sem komið
hefði undanfarin ár. Hann sagði að
veðrið hefði verið verst á þriðjudag
en siotað í gær. Götur bæjarins
væm ófærar nema hvað aðalleiðum
væri haldið opnum til að fólk
kæmist til og frá vinnu. Rafmagnið
fór aðeins af Fáskrúðsfírði á þriðju-
dag og sagði Albert að mikið hefði
verið um rafmagnstruflanir þar
undanfamar vikur.
Ólafur Guðmundsson fréttaritari
á Egilsstöðum sagði að þar hefði
gengið í hvassa austanátt í fyrrinótt
með nokkurri ofankomu og þegar
menn hefðu verið að tygja sig til
vinnu hefði gengið á með dimmum
éljum og götur orðið ófærar. Flestir
nemendur hefðu þó komist í skól-
ann. Nokkrar rafmagnstmflanir
hefðu orðið en veðrinu farið að slota
um hádegið. Hann sagði að ijallveg-
ir í grennd væm ófærir og ekki
hefði verið flogið til Egilsstaða,
frekar en annarra staða á Austur-
landi, undanfama daga.
Tilboð Samherja í
Helga S. hagstæðast
Munum skýra málið nánar fyrir stjórnendum
Særúnar á Blönduósi, segir Svavar Ár-
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Hitt leikhúsið breytti leikmyndinni
HITT leikhúsið hefur nú breytt leikmyndinni í Rauðhóla af sviðinu og er nú gólf fjölbragðaglímupallsins blátt með
Rannsý, eftir að þvi bárust skrifleg tilmæli frá dómsmálaráðu- rauðum krossi. Leikritið Rauðhóla Rannsý verður frumsýnt á
neytinu þess efnis. Nú hefur íslenski fáninn verið fjarlægður morgun í Gamla bíói.
íjarstæðu-
frétt Þjóð-
viljans
ÞJÓÐVILJINN skýrir frá
þvi á forsiðu i gær, að Geir
Hallgrimsson hafi sótt „um
ritarastöðu i höfuðstöðvum
NATO“. Þegar Morgunblaðið
bar þetta undir utanríkisráð-
herra sagði hann hér um
hreina fjarstæðu hjá Þjóðvilj-
anum að ræða.
í Þjóðviljanum er dylgjað með
það, að Geir Hallgrímssyni hafí
verið hafnað sem „ritara" hjá
Atlantshafsbandalaginu „vegna
þess að ftjálslyndar ríkisstjómir
í NATO lögðust gegn ráðningu
hans“. Geir sagði, að enginn
fótur væri fyrir neinu af því,
sem Þjóðviljinn segði um þetta
mál. í fyrsta lagi virtust blaða-
menn Þjóðviljans ekki gera sér
sjálfír grein fyrir því hvaða
staða þetta væri. Almennt væri
ekki talað um neina „ritara-
stöðu" hjá bandalaginu, sem
ráðið væri í af ríkisstjómum. í
öðm lagi hefði hann ekki sótt
um eitt eða annað starf hjá
Atlantshafsbandalaginu.
í þriðja lagi væri ástæða að
geta þess, ef Þjóðviljamenn
ættu við stöðu framkvæmda-
stjóra bandalagsins, þá hefði
Carrington lávarður sest í
embættið fyrir einu og hálfu ári
eftir þrettán ára setu Josephs
Luns í því. Með Carrington
væri staðan ágætlega skipuð
og ekki væru neinir að velta
fyrir sér eftirmanni hans.
Mikil fundahöld meðal félaga í Kennarasambandi íslands:
Kennarar tilneyddir
að grípa til aðgerða
— fáist ekki leiðréttur launamunur við HÍK, segir formaður KÍ
„STJÓRNVÖLD eru enn, því miður, að skapa gífurlega óánægju
meðal kennara. Ef ekki verður leiðrétt misræmi á launum okkar
og kennara í HÍK, sem vinna sömu störf, og hafa sömu menntun
og reynslu, þá verður einfaldlega sprenging í skólum landsins. Hvaða
aðgerða kann að verða gripið til vU ég ekkert um segja að svo
stöddu - en við erum ekki með neinar hópuppsagnir í undirbúningi
í augnablikinu," sagði Valgeir Gestsson, formaður Kennarasambands
íslands, i samtali við blm. Morgunblaðsins í gær.
Sambandið sendi þá frá sér rétt, laun þeirra eru óviðunandi og
fréttatilkynningu, þar sem segir
m.a. að kennarar muni „sjá sig til-
neydda að grípa til aðgerða ef leið-
rétting fæst ekki nú þegar."
Þessa dagana standa yfír funda-
höld með kennurum um allt land
við bætist að munur á launum
þeirra og HÍK-félaga er um 5%.
Fyrir liggur þó vilyrði fjármálaráð-
herra um að hraðað verði ákvörðun
stjómvalda um samningsrétt Kenn-
arasambands íslands, sagði Val-
þar sem rædd eru þau mál er hæst
ber í félagsstarfí þeirra eftir úr-
sögnina úr BSRB um áramótin, svo
sem samningsréttarmál, stöðu í
launamálum og jöfnunarmálið.
Margt veldur ólgu meðal kennara,
að sögn Valgeirs Gestssonar: þeir
hafa hvorki samnings- né verkfalls-
geir.
Á veggspjaldi, sem KÍ hefur látið
búa til og dreift hefur verið í alla
grunnskóla landsins undir yfír-
skriftinni „Orð skulu standa - ráð-
herra neitar launajöftiun", er vitnað
til ummæla forsætisráðherra og
Qármálaráðherra í Morgunblaðinu
11. október sl., þar sem báðir sögð-
ust vera þeirrar skoðunar að kenn-
arar, sem þá voru í BSRB, ættu
að njóta sömu kjara og félagar í
BHM. Einnig er vitnað í fréttatil-
kynningu sama efnis frá fjármála-
ráðuneytinu 24. júlí á síðasta ári.
„Fyrst öllum í ríkisstjóminni var
þetta ljóst," segir á veggspjaldinu,
„eftir hveiju er þá beðið?“
Kennarafélög á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu, sem í em um 1400
manns, hafa boðað til fundar á
Hótel Sögu á miðvikudaginn í
næstu viku. Þar munu kennarar
ræða hugsanlegar aðgerðir og ráða
ráðum sínum að öðm leyti, að sögn
Valgeirs Gestssonar. Sverri Her-
mannssyni menntamálaráðherra og
Þorsteini Pálssyni Qármálaráðherra
hefur verið boðið að flytja stutt
ávörp á fundinum.
mannsson, aðstoðarforstjóri Fiskveiðasjóðs
„STAÐREYND þessa máls er
augljós frá okkar hálfu. Við mat
tilboða i Helga S. reyndist tilboð
Samheija í skipið vera hagstæð-
ast miðað við greiðslutilhögun.
Stjóm sjóðsins fól okkur for-
stjórum hans að ganga til samn-
inga á grundvelli þess. Það tókst
og skipið var selt Samheija.
Við gerðum öðmm bjóðendum
grein fyrir niðurstöðu málsins bréf-
lega þann 31. desember, en vegna
blaðaskrifa að undanfömu verður
stjómendum Særúnar á Blönduósi
gerð nánari grein fyrir niðurstöðu
matsins á tilboðunum," sagði Svav-
ar Armannsson, aðstoðarforstjóri
Fiskveiðasjóðs, í samtali við Morg-
unblaðið.
í Morgunblaðinu á miðvikudag
er haft eftir Kára Snorrasyni, fram-
kvæmdastjóra Særúnar á Blöndu-
ósi, að Fiskveiðasjóður hafí alls
ekki tekið hæsta tilboðinu í skipið
eins og fullyrt hafí verið af hálfu
sjóðsins. Tilboð Særúnar hafí verið
upp á 70,6 milljónir, en tilboð
Samheija upp á 68. Hann segir
þetta skrýtin vinnubrögð og greini-
legt að salan á Helga S. hafi verið
ákveðin fyrirfram. Hann segir
ennfremur, að þrátt fyrir að sjóðn-
um hafí verið send tvö bréf, þar sem
skýringa á þessu hafí verið óskað,
hafí ekkert heyrzt frá sjóðnum.
Svavar Ármannsson segir ekkert
hæft í þessum fullyrðingum og
Særúnarmönnum verði gerð nánari
grein fyrir málinu.
Noregur:
Enn innf lutnings-
bann á seiðum
Osló, 22. j&núar. Frá Jan Erik Laure,
fréttaritara Morgunblaðsins.
ENN ER í gildi bann við innflutn-
ingi laxaseiða til Noregs. Á vegum
norskra yfirvalda er nú verið að
setja reglur um hvaða erlendar
stöðvar megi senda seiði til Nor-
egs í ár. Verða gerðar miklar
kröfur til hreinlætis og heilbrigð-
iseftirlits í seiðastöðvunum.
„Við höfum stöðvað allan innflutning
seiða en reiknum með að reglur um
innflutning verði tilbúnar í maí.
Ekki er tímabært að segja til um
hugsanlegan innflutning fyrr en þá“,
sagði Paul Midtlyng dýralæknir í
norska landbúnaðarráðuneytinu.
Áður en innflutningur verður heimil-
aður munu eftirlitsmenn norskra
yfírvalda skoða hinar erlendu stöðv-
ar og samþykkja þær og getur verið
að þeir fari fljótlega til íslands til
að skoða þær stöðvar sem vilja selja
seiði til Noregs.