Morgunblaðið - 23.01.1986, Page 7

Morgunblaðið - 23.01.1986, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR1986 7 Fræðsluvika um Krabbamein á Kjarvalsstöðum; Hvað er krabba- mein, hvern- ig er það greint og með- höndlað? Krabbameinsfélagið efnir tíl „Fræðsluviku ’86“ að Kjarvals- stöðum dagana 25. janúar til 2. febrúar. Á sýningarsvæði í austurhluta Kjarvalsstaða verður komið fyrir fræðslusýningu um krabbamein, sem nnnin var í samvinnu við nemendur á þriðja ári í auglýs- ingadeild Myndlista- og handíða- skóla íslands. Fjallað verður um hvað krabbamein sé, hvað valdi því og hvernig það er greint og meðhöndlað. Einnig er frætt um starfsemi Krabbameinsfélagsins og framtíð- arverkefni þess. Ætlunin er að senda sýninguna víða um land á næstu vikum. Þá verða sýndar hundrað teikningar eftir 10—12 ára skólaböm sem voru beðin að teikna myndir af einhveiju sem þeim dytti í hug þegar þau heyrðu talað um krabbamein. Auk þess verða sýndar kvikmyndir um krabbamein, reykingar og btjóstamyndatökur og litskyggnur um starfsemi Krabba- meinsfélagsins. Alla sýningardagana verða fyrir- lestrar um krabbamein, og í tengsl- um við suma þeirra verður kynning á stuðningshópum krabbameins- sjúklinga. Þrisvar í þessari fræðslu- viku verða leiðbeiningar fyrir þá sem vilja hætta að reykja, og nemendur Tónlistarskólans munu leika fyrir sýningargesti. Fræðsluvika ’86 að Kjarvalsstöð- um verður opin kl. 14 til 22 og lýkur að kvöldi sunnudags 2. febrúar. Sýning þessi markar upphaf að undirbúningi landssöfnunar undir kjörorðinu „Þjóðarátak þín vegna", sem fram fer í apríl. Salan á Sigurfara og Sölva Bjamasyni; Viðræður við hæstbjóðendur VIÐRÆÐUR stjómenda Fisk- veiðasjóðs við hæstbjóðendur í togarana Sölva Bjarnason og Sigurfara eru nú hafnar. Farið verður yfir tilboðin með viðkom- andi bjóðendum og þau metin áður en nokkur ákvörðun um framhald verður tekin. Bíldælingar voru á sínum fyrsta fundi hjá Fiskveiðasjóði í gær, en þeir buðu hæst í Sölva Bjamason, 150,5 milljónir króna. Skipið var á síðustu misserum gert út frá Bíldudal, en var í eigu Tálkna hf. á Tálknafírði. Homfirðingar buðu hæst, 190 milljónir króna í Sigur- fara og em væntanlegir til viðræðna ídag. í frétt Morgunblaðsins féll út eitt tilboðanna í Sölva Bjamason. Það var frá Þorbimi hf. í Grindavík og hljóðaði upp á 85 milljónir króna. Það er nánast ótrúlegt að rlkulega útbúinn Citroén Axel árgerð 1986 kostar aðeins kr. 290.000 ! Frakkar eru þekktir fyrir að koma Ijúfustu sófasettum fyrir í bílum sínum. Axel er þar engin undantekn- ing. Að auki eru sætin prýdd góðum höfuðpúðum og öll eru þau umvafin öryggisbeltum. Eigendur Axels hafa lofað góða aksturseiginleika bílsins. Þú hrein- lega líður áfram í Axel. Best koma þessir eiginleikar fram við akstur í snjó og á malarvegum. Þar standa fáir Axel jafnfætis. < cn —1 2 Á síðasta ári eignaðist Glóbus fjölda ánægðra viðskiptavina, — þökk sé Axel, stóra smábílnum á ótrúlega verðinu. I\lú erum við hjá Glóbus að fá nýja sendingu af '86 árgerðinni. Verðið er enn sérstaklega gott: frá kr. 290.000,-. Þá er innifalin skráning, ryðvörn, hlífðarpanna undir vél og stút- fullur bensíntankur. Einnig er boðið upp á góð greiðslukjör, t.d. allt niður í 30% út og afganginn á allt að tveimur árum. Axel er sérstaklega rúmgóður. Hægt Við köllum Axel gjarnan stóra smábílinn því að er að leggja aftursætin fram. Þá hann er bæði stærri og sterkbyggðari er margir margfaldast farangursrýmið og þú dýrari smábílar. Líttu við hjá okkur í Lágmúlanum getur auðveldlega notað bílinn til og reynsluaktu Axel, þá veistu hvað við eigum sendiferða. við. Þú ekur öruggur í Axel! G/obusr LAGMULI5, SÍMI81555

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.