Morgunblaðið - 23.01.1986, Síða 19

Morgunblaðið - 23.01.1986, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR1986 19 Ákvað að láta námið lönd og leið og gerast leikari — segir Dolph Lundgren sem leikur eitt af aðalhlutverkum í kvikmyndinni Rocky IV Stokkhólmi, 21. janúar. Frá Berg^jótu Friðriksdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. DOLPH Lundgren, nýjasta kvikmyndastjarna Svía, er nú staddur hér í Stokkhólmi til að kynna bandarísku kvikmyndina Rocky IV sem frumsýnd verður hér í borg í lok þessa mánaðar. í myndinni fer Lundgren með hlutverk rússneska hnefaleik- arans Ivans Drago sem lýtur í lægra haldi fyrir hnefaleik- akappanum Rocky Balbea. Þetta er annað kvikmyndahlut- verk hans, það fyrsta var smá- hlutverk í James Bond kvik- myndinni Víg í sjónmáli. Lundgren ræddi í gær stuttlega við blaðamenn frá Norðurlöndun- um. Dolph sem rettu nafni heitir Hans Lundgren er fæddur í Stokkhólmi. Hann lagði stund á verkfræðinám í heimalandi sínu og hélt siðan til Bandaríkjana til frekara náms. Gefum Lundgren orðið: „Þegar til Bandaríkjanna var komið missti ég áhugann á nám- inu. Ég hélt til New York borgar og fór að stunda tískusýningar- störf og æfa alls kyns íþróttir" sagði Lundgren. „Síðar fékk ég áhuga á leiklist og svo fór að ég ákvað að láta verkfræðinámið lönd og leið og gerast leikari. Mitt stóra tækifæri var hlut- verkið í Rocky IV. Fyrst þegar ég sótti um það fékk ég synjun þar sem ég þótti of hávaxinn. Ég var staðráðinn í að gefast ekki upp og tók það ráð að skrifa Sylvester Stallone sjálfum. Eftir að hann hafði séð mig augliti til auglitis var ég ráðinn. Aðspurður sagði Lundgren að hlutverkið í Rocky IV væri ákaf- lega erfítt. „Ég þurfti að þyngjast um 12 kíló til þess að passa betur inn í hlutverkið. Ég æfði oftast með Stallone áður en upptökur hófust og reyndist það mér mikil hjálp. Hnefaleikur er ákaflega erfíð íþrótt og komum við oft slasaðir út af hnefaleikapailinum. Stallone fékk einu sinni svo slæmt högg í kviðinn á meðan á upptök- um stóð að hann þurfti að leggjast inn á spítala í vikutíma." Lundgren var inntur eftir því hvort honum fyndist yfírlýsingar ýmissa Sovétmanna, þess eðlis að myndin Rocky IV sé hluti af áróð- ursherferð á hendur Sovétmönn- um, eigi við rök að styðjast. Svaraði hann því til að myndin væri að vissu leyti pólitísk, því væri ekki að neita. Hins vegar væri það skoðun sín að það væri hnefaleikurinn sem skipti öllu Nýjasta kvikmyndastjama Svía, Dolph Lundgren, ásamt unnustu sinni söng- og leik- konunni Grace Jones. máli í myndinni en ekki það, að sá sem þyrfti að lúta í lægra haldi fyrir Bandaríkjamanninum Rocky, væri Rússi. Lundgren sagði að síðustu að eftir að hann hefði leikið í Rocky IV væru honum ýmsir vegir færir í kvikmyndaheiminum. Hann sagðist ekki sjá eftir því að hafa lagt námsbækumar á hilluna og farið út á þessa hálu braut. Prófkjör D-listans á Selfossi: Ekki ljóst hvort fram- bjóðendurnir hætta við — segir formaður prófkjörsnefndar Selfossi, 21. janúar. EKKI hefur enn verið ákveðið hvenær gengið verður frá framboðs- lista Sjálfstæðisflokksins á Selfossi fyrir bæjarstjómarkosningaraar í vor, að sögn Einars Siguijónssonar, formanns prófkjörsnefndar flokksins. Tveir frambjóðendur i prófkjörinu, Guðfinna Ólafsdóttir og Björn Gíslason, lýstu því yfir eftir prófkjörið að þau myndu ekki taka sæti á listanum. Brynleifur Steingrímsson læknir, að sjálfsögðu ekki í dagblöðum," sem varð í efsta sæti í prófkjörinu, sagði hann. sagðist í samtali við fréttaritara — Sig.Jóns. blaðsins vilja þakka öllum þeim, sem tóku þátt í prófkjörinu. „Fram- kvæmd próflqörsins var mjög góð og þátttakan fór fram úr björtustu vonum og spáir góðu um fylgi list- ans í næstu bæjarstjómarkosning- um,“ sagði hann. „Selfossbúar hafa einlægan áhuga á bænum sínum og skilja að bæjarmál em orðin umfangsmikil og að stjóm þeirra getur skipt sköpum fyrir heill og hamingju fjölskyldna og einstakl- inga." Brynleifur sagði að prófkjör fjöll- uðu um hvaða einstaklingar skuli skipa framboðslista ogþví væm þau persónuleg. „Það er ekki létt að leggja persónu sína í dóm almenn- ings eins og við gerðum í prófkjör- inu,“ sagði hann. „Ég tel að allir frambjóðendur hafi fengið skýlausa traustsyfirlýsingu - en það er svo persónulegt mat hvers og eins hvort sú traustsyfírlýsing nægir.“ Hann sagði að enn væri ekki að fullu vitað hvort frambjóðendumir tveir muni draga sig til baka „en þar sem hér er um að ræða persónu- legt mat og mál þá ræði ég það Kópavogs- hæli gefnir 65 reyk- skynjarar Á KÓPAVOGSHÆLI er nú verið að koma fyrir 65 reyk- skynjurum sem er gjöf frá starfsfólki fyrirtækisins Securitas. Reykskynjaramir eru settir upp til bráðabirgða þar til fullkomið brunavama- kerfi verður tekið i notkun. Kiwanismenn um allt land hafa gengist fyrir söfnun til kaupa á fullkomnu bmnavama- kerfi fyrir Kópavogshæli. Að sögn Bjöms Gestssonar for- stöðumanns Kópavogshælis á eftir að leggja mikla vinnu í uppsetningu slíks kerfís, en vonast er til að það verði sett upp á þessu ári. Á IKEA-útsölunni er úrval húsgagna og gjafavöru. Útlitsgölluð húsgögn seld með 40-60% afslætti. Opið mán. - föst. kl. 10.00 - 18.30 og á laugardögum kl. 10.00 - 16.00 ÓSAfSlA.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.