Morgunblaðið - 23.01.1986, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR 23. JANÚAR1986
Rýmingarsala
20-50% afsláttur fram að helgi.
Glugginn, Laugavegi 40
(Kúnst-húsinu), sími 12854.
Kirkjukór
Háteigssókmir
óskar eftir söngfólki í allar raddir.
Upplýsingar í síma: 39617, 17137 og
34964.
Prúttsala
Prúttsalan hófst í gær og
henni lýkur á föstudag.
K IM JlMM ■ g Verslunin
W wJBW V ■ w Hafnarstræti 15.-
FLÍSAR
LEIR - MARMARI - GRANÍT
Á GÓLF - VEGGl - ÚTI - INNI_____
©Væntanlegt mikið úrval af marmara. Pantið tímanlega.
Sérpantanir mögulegar. Komið og skoðið úrvalið.
©Veitum ráðleggingar og útvegum fagmenn og allt sem
þarf til flísalagna.
VÍKURBRAUT SF.
KÁRSNESBRAUT 124, KÓP. S: 46044
ALLT í RÖÐ OC REGLU!
Ef þú ert þreytt(ur) á óreiðunni
og uppvaskinu í kaffistofunni
þá er Duni kaffibarinn lausn á vandanum.
Duni er ódýrasti barinn í bænum
Duni kaffibarinn sparar bæði tíma og pláss.
Hann getur staðið á borði eða hangið á vegg.
- hann kostar aðeins Kr. 3.982,-
(Innifalið í verði: Málmstandur, 2000 mál, tíu höldur og 1000
teskeiðar.) _
STANDBERG HF.
- kaffistofa í hverjum krók!
Sogavegi 108
símar 35240 og 35242
Vesturbærinn er beztur
Skottuleikur í Breiðholtsskóla
Skottuleikur er nú leikinn i Breiðholtsskóla við er Revíuleikhússins (sem ekki finnst i símaskrá),
mikinn fögnuð áhorfenda alla laugardaga og er líka orðið opinbert, en það er simi 46600 og
sunnudaga. Fyrir frumsýningu, sem var á laug- þar er svarað jafnt á nóttu sem degi og teknar
ardaginn var, ríkti leynd yfir höfundi sem kallaði miðapantanir. Myndin er af Skottunum í Skottu-
sig Móra, en í ljós kom að það var sjálfur leik- leik, þeim Guðrúnu Þórðardóttur, Guðrúnu Al-
stjórinn, Brynja Benediktsdóttir. Leynisímanúm- freðsdóttur og Sögu Jónsdóttur. (FráRevíuicikhúsinu)
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá íbúasamtökum Vesturbæjar.
Um næstu helgi munu félagar úr íbúasamtökum
Vesturbæjar ganga í hús og selja minjagrip, sem
er ætlaður Vesturbæingum, bæði núverandi og
(ekki síður) fyrrverandi. Gripur þessi er hattur úr
keramiki, sem á stendur „Vesturbærinn er beztur"!
Ágóðinn af þesari óvenjulegu hattasölu rennur
í sjoð, sem ætlað er að standa straum af kostnaði
við gerð listaverks, sem samtökin hyggjast færa
borginni að gjöf í tilefni 200 ára afmælis síns á
sumri komanda.
Þrír listamenn, þau Jón Gunnar Ámason, Sigrún
Guðmundsdóttir og Helgi Gíslason hafa verið beðin
um að gera tillögur að listaverkinu, en dómnefnd
mun síðan skera úr um, hvaða tillaga verður
endanlega valin.
Listaverki þessu er ætlað að standa á opnu svæði
innan marka gamla bæjarins, t.d. á Landakotstúni.
Ákvörðun um gjöf þessa var tekin á fundi
samtakanna í haust, og hefur fjáröflunamefnd
verið að störfum í vetur. Er hattasalan ein þeirra
tillagna, sem nefndin stakk upp á. Hattamir era
hannaðir og unnir af Önnu S. Hróðmarsdóttur.
Fjöldi þeirra verður takmarkaður við töluna 500.
Skorað er á félaga úr samtökunum að taka þátt
í sölunni og sækja hatta í Vesturbæjarskólann kl.
13 laugardaginn 25. þ.m. Hattur þessi er bæði
Ijómandi fallegt skraut og auk þess staðfesting á
því, sem allir reyndar vita: að Vesturbærinn er Bryndis Schram er i hópi þeirra sem standa að þessari
beztur! eða hvað? söfnun. Hér er hún með hattinn.
Starfsmannaráð heilsuhælis NLFÍ:
Betri samskipti við
rekstrarstj órn nauðsynleg
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá
starfsmannaráði Heilsuhælis
NLFÍ, Hveragerði, haldinn 20.
janúar 1986.
Við í starfsmannaráði teljum
spennu og óvissu í ýmsum málum
á vinnustað svo komið að ekki verði
við unað öllu lengur. Okkar mat á
málunum er það, að halda beri
reglulega rekstrarstjómarfundi
Heilsuhælisins, á Heilsuhælinu í
Hveragerði, einu sinni í mánuði og
oftar ef þurfa þykir.
í blaðagreinum í Helgarpóstinum
28. nóvember 1985 og aftur í janúar
1986, kemur m.a. fram að í félags-
máium NLFÍ virðist ekki allt á
hreinu. Engin svör hafa komið fram
og að sjálfsögðu ekki í okkar verka-
hring að svara. Þó hefur það valdið
undran okkar að engin viðbrögð né
svör hafa sést.
Þar sem ekki hefur verið haldinn
rekstrarstjómarfundur Heilsuhæl-
isins síðan 25. nóvember 1985, sýn-
ist okkur ekki önnur leið til að koma
sjónarmiðum okkar á framfæri en
að senda þetta greinarkom í við-
komandi blað, sem hefur birt m.a.
meint vandamál NLFÍ, sem tengjast
vægast sagt óvissu andrúmslofti
starfsmanna Heilsuhælisins. Æski-
legra að okkar mati hefði verið
virkari og betri samskifti við rekstr-
arstjom Heilsuhælis NLFÍ, og fyrst
og fremst skoðanaskifti á kannski
ólíkum sjónarhomum.
Lágmarksviðleitni að ráða við
vandann er að tala saman.
F.h. starfsmannaráðs
Heilsuhælis NLFÍ.
Oddný Guðmundsdóttir
formaður.