Morgunblaðið - 31.01.1986, Page 5
Lögregla
fylgist
reglulega
með veit-
ingahúsum
UNDANFARNAR helgar hafa
lögTeglunienn fylgst með ástandi
á veitingahúsum í Reykjavik með
tilliti til þess hvort veitingamenn
fylgi ákvæðum um fjölda gesta,
hvort áfengislöggjöfinni sé fylgt
og neyslu fíkniefna. Lögreglu-
skýrslur um ástandið hafa verið
sendar dómsmálaráðuneytinu og
að sögn Böðvars Bragasonar,
lögreglustjóra í Reykjavík, hefur
bragur víðast verið góður en í
nokkrum tilvikum hefur orðið
vart fíkniefnaneyslu og að húsin
hafi ekki virt ákvæði um fjölda
gesta. „Tilvik liggja fyrir um að
gestir hafi verið of margir og
við munum bregðast við því,“
sagði Böðvar í samtali við Morg-
unblaðið.
Hann lagði áherslu á að ekki
væri um neinar ofsóknir á hendur
veitingamönnum að ræða, heldur
væri þetta gert í nánu samstarfí
við þá. „Veitingamenn hafa sjálfír
tekið vel viðleitni opinberra aðila
til að bæta ástandið á veitingastöð-
um. Þeir hafa óskað tilsagnar fyrir
starfsfólk sitt um fíkniefni og
hvemig bera megi kennsl á fólk,
sem neytir þeirra. Við munum halda
þessu eftirliti áfram," sagði lög-
reglustjóri ennfremur.
Leikfélag Akureyrar:
Signý áfram
leikhússljóri
Akureyri, 30. janúar.
SIGNÝJU Pálsdóttur hefur verið
boðið starf leikhússtjóra Leik-
félags Akureyrar í eitt ár til
viðbótar, en samningur hennar
við LA rennur fljótlega út.
Signý hefur látið í það skína að
hún hyggist ekki gegna starfí sínu
áfram. Hún hefur nú verið leik-
hússtjóri LA í fjögur ár, hefur tví-
vegis verið ráðinn til tveggja ára í
senn.
Að sögn Theodórs Júlíussonar
leikara, formanns leikhúsráðs, var
það samþykkt einróma í ráðinu að
fara þess á leit við Signýju að hún
starfaði í eitt ár til viðbótar. Hún
hefur fengið viku frest til að gefa
ákveðið svar.
Loðnuveiðin:
Sigurður
með 1.400
lestir
LOÐNUVEIÐI íslenzku skipanna
var síðastliðinn þriðjudag alls
15.280 lestir. Bræla var á miðun-
um á miðvikudag og veiði lá niðri
af þeim sökum.
Auk þeirra skipa, sem áður hefur
verið getið í Morgunblaðinu, til-
kynntu eftirtalin um afla á þriðju-
dag: Súlan EA, 800, Sæberg SU,
620, Júpíter RE, 250, Börkur NK,
1.220, Jón Kjartansson SU, 800,
Þórshamar GK, 350, Sigurður RE,
1.400, Fífíll GK, 470, Höfrungur
AK, 250 og Húnaröst AR 150 lestir.
V^terkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
• t:tSi/U/m i }i'j!)uJllo'-I ,iuia,ll k;ióí ■ > j
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR1986
4
5
og nýlega
vörur.
60%
Gífurlegt úrval
af stórglæsilegum
fatnaði - skóm
o.fl. o.fl.
Opið til kl. 19
í dag og til
kl.16.00 á morgun
afsláttur
Og auðvitað
bjóðum við ykkur
velkomin
með bros á vör . . .
Laugavegi 30.
Laugavegi 66.
Glæsibæ.
SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 45800.
Bonaparte GARBO
Austurstræti 22. Austurstræti 22.
sem allir hafa
beðið eftir hefst
verslunum
samtímis