Morgunblaðið - 31.01.1986, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUPAGUR 31. JANÚAR 1986
9
Kiwanismenn
Hið árlega þorrablót Kiwanisklúbbsins Esju verður
í Kiwanishúsinu laugardaginn 1. febrúar. Allir
Kiwanismenn og gestir þeirra velkomnir.
Miðar aðeins kr. 1.200.-
Húsið opnað kl. 19.00.
Tilkynnið þátttöku í dag til Sigurþórs símar 83033,
74840 eða Heiðars sími 72019.
Víttur fyrir hávaða í reið
— Flosi Ólafsson í fjörlegu viðtali
NÁTTFARI FREMSTUR
STÓÐHESTA
— Ný tölvuspá um kynbótahross
ÆTTBÓK 1985
HVAÐ ER VIUI?
Álit kunnra hestamanna
Myndir úr ýmsum áttum frá liðnu ári.
Fréttir af vettvangi hestamennsk-
unnar o.fl. o.fl.
iðfaxi er mánaðarrit um
esta og hestamennsku.
erist áskrifendur 685316
Viltu standa þig betur?
Mundu þd
§
O eöa o o
AlagnaE
Lýsi hf. Grandavegi 42, Reykjavík, sími 91 -28777
Þróttlausir
þingmenn
Að ósk Alþýðubandalags-
ins fóru fram almennar
stjómmálaumræður utan
dagskrár I sameinuðu
þingi á þriðjudaginn.
Ekki er hægt að segja,
að málflutningur stjóm-
arandstæðinga hafi verið
frjór og þróttmikill.
Sönnu nær er, að mál-
efnafátækt og úthalds-
leysi hafi sett svip á
framlag þeirra til um-
ræðunnar.
Stjómarandstæðingar
komu ekki fram með
neinar nýjar hugmyndir
eða tillögur við umræð-
umar. Allir vom þeir að
sjálfsögðu andvígir
hækkun skatta og álagn-
ingu nýrra gjalda. Hins
vegar vildu þeir einnig
auka útgjöld ríkissjóðs
og kenndu stjóravöldum
um altt það, sem miður
hefur farið í þjóðfélag-
inu. Auðvitað fer það
ekki saman að leggjast
gegn skattahækkunum
og krefjast aukinna opin-
berra útgjalda, en slík
ósamkvæmni virðist ekki
einu sinni vera þing-
mönnum stjómarand-
stöðunnar umhugsunar-
efni.
Jóhanna Sigurðardótt-
ir sagði í umræðunum,
að ráðherrar ríkisstjóm-
arinnar léku á fiðlu,
meðan Róm brynni.
Þetta er óvanalega frum-
leg samlíking og út af
fyrir sig ánægjulegt
hversu vel lesinn þing-
maðurinn er. Hins vegar
láðist Jóhönnu að nefna
úrræði til bjargar, önnur
en þau að veita auldð
Qármagn úr sjóðum rík-
isins til þeirra sem í
vanda em staddir. Sama
er að segja um stallsy stur
hennar í þingflokki
Kvennalistans. Allar til-
lögur þeirra á alþingi
hita að auknum ríkisum-
svifum og opinberum
styrkjum til hinna og
þessara verkefna. Samt
leggjast þeir gegn öllum
tilrauiium fjármálaráð-
herra til að afla tekna,
sem mætt geta útgjöld-
unura.
Til að gæta fullrar
sanngimi skal nefnt, að
Guðrún Agnarsdóttir
l Itandajfskrárumræður á Alþinp um viðhorf í stjórnmálum:
„Lífskjarasamningur er
athyglisverð hugmynd“
— sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
- Hart deilt á ríkisstjómina fyrír skattaálögur og sundurlyndi
Frammistaða stjórnar-
andstæðinga á alþingi
Stjórnarandstæðingar óskuðu eftir utanda-
gskrárumræðu á alþingi um almenn viðhorf
í stjórnmálum. Hún fór fram á þriðjudaginn,
en athygli vekur að þeir höfðu ekkert nýtt
fram að færa og treystu sér ekki einu sinni
til að halda umræðum áfram er lokið var
fyrstu umferð. Um þetta er fjallað í Stak-
steinum í dag, jafnframt því sem nefnt er
dæmi því til stuðnings að ekki megi dæma
stjórnarandstöðuna í heild út frá þessu
atviki.
gagnrýndi einn útgjalda-
þátt ríkisins í umræðun-
um á þriðjudag og taldi
„ósmekklegan óþarfa".
Hún byijaði á því, að
velga athygli á rekstrar-
halla ríkissjóðs á síðasta
ári, sem nemur tveimur
og hálfum milljarði
króna. Þingmaðurinn
hafði áhyggjur af þvi
hvemig þessum Iialla
yrði mætt Og þá kom
henni strax í hug hinn
mikli kostnaður við
rekstur ráðherrabif-
reiða. Nú er það eflaust
rétt, að rekstur ráð-
herrabifreiða er ekki til
fyrirmyndar. Það sýnir
hins vegar átakanlega
skilningsleysi, að halda
að spamaður á þeim
vettvangi nægi til að
brúa halla ríkissjóðs.
Þingmaðurinn sagði
þetta að visu ekki beinlín-
is, en það lá í orðum
hennar. Aðrar tillögur
um ráðdeild og spamað
í ríkisrekstri hafði hún
ekki fram að færa.
Úthaldsleysi stjómar-
andstæðinga, sem nefnt
var hér að framan, birtíst.
í því, að þegar Iokið var
fyrstu umferð utandag-
skrárumræðunnar,
kvaddi aðeins Svavar
Gestsson sér hjjéðs. Þó
hafði forsetí sameinaðs
þings tekið það skýrt
fram, að samkvæmt
þingsköpum væri heimilt
að halda umræðunni
áfram. En þingmenn
stjómarandstöðunnar
höfðu ekki fleira fram
að færa og þar við sat.
Samdráttur
ríkisins
Varast ber að dæma
alla þingmenn stjómar-
andstöðunnar út frá
frammistöðu nokkurra
þingmanna við almennu
umræðumar á þriðju-
dag. Ýmsir þingmenn úr
röðum stjómarandstæð-
inga eiga hrós skilið fyrir
skynsamlegar tillögur og
ágætan málflutning á
stundum. Einkum á þetta
við um þingmenn i Al-
þýðuflokknum og Banda-
lagi jafnaðarmanna.
Nokkrir hinna fyrr-
nefndu hafa t.d. lagt
fram mjög athygiisverða
tillögu um að hætt verði
ríkisrekstri Fiskifélags
tslands og Búnaðarfé-
lags fslands, sem frjáls-
hyggjumenn i Sjálfstæð-
isflokknum gætu verið
hreyknir af að hafa borið
fram.
I tillögu Alþýðuflokks-
manna er gert ráð fyrir
þvi að ÖU gagnasöfnun
og skýrslugerð um fiski-
og landbúnaðarmál, sem
nú fer fram hjá þessum
stofnunum, verði færð til
annarra stofnana, s.s.
Hagstofu íslands. Þá er
lagt til, að hafnar verði
viðræður við samtök við-
komandi atvinnuvega um
hvort þau ósld eftír að
starfrækja sjálf og þá á
eigin kostnað þá þjón-
ustu, aðra en gagnasöfn-
un og skýrslugerð, sem
Fiskifélagið og Búnaðar-
félagið hafa nú með
höndum, við umrædda
atvinnuvegi og þá hvem-
I gremargerð þmg-
mannanna er vakin at-
hygli á því að þessar tvær
stofnanir sinni ýmsum
stjómsýsluverkefnum,
sem eðlilegra sé að aðrar
opinberar stofnanir hafi
með höndum. Þá séu þær
reknar sem hagsmuna-
samtök atvinnuveganna,
en óeðlilegt sé að ríkið
kostí slíka hagsmuna-
gæslu. Er bent á í því
sambandi, að ríkið beri
ekki kostnað vegna
reksturs iðnþings og
stéttarþinga ASÍ, BSRB
og BHM, svo dæmi séu
nefnd. „Þykir réttlátast,
frekar en að taka upp
ríkisrekstur allra hags-
munasamtaka og þrýstí-
hópa í landinu, að ein og
sama regla gildi um öll
þessi samtök ... — sem
sé sú að þessi samtök
starfi sjálfstætt, að vilja
og á ábyrgð viðkomandi
hagsmunaaðila en ekki
ríkissjóðs," segir orðrétt
í greinargerðinni.
Engu skal hér spáð um
framgang þessarar tíl-
lögu á alþingi. En spyija
má, hvers vegna þing-
menn Sjálfstæðisflokks-
ins, sem mildð tala um
nauðsyn þess að draga
saman ríkisbúskapinn,
koma ekki fram með tíl-
lögur af þessu tagi. &
ekki tillaga Alþýðu-
flokksins í anda þess
fijálslyndis, sem sjálf-
stæðismenn stæra sig af?
Enginn vafi er á því, að
þeir sem vi|ja að ( Sjálf-
stæðisflokknum fylgist
að orð og athafnir, munu
veita því nána athygli
hvemig þingmenn
flokksins bregðast við
tillögunni um að hætta
ríkisrekstri Fiskifélags-
ins og Búnaðarfélagsins.
sjálfstýringar
Wagner-sjálfstýringar,
komplett meö dælusettum
12 og 24 volt, kompás og
fjarstýringum fram á dekk,
ef óskað er, fyrir allar
stæröir fiskiskipa og allt
niður í smá trillur. Sjálf-
stýringarnar eru traustar
og öruggar og auðveldar í
uppsetningu. Höfum einn-
ig á lager flestar stæröir
vökvastýrisvéla.
Hagstætt verð og
greiðsluskilmálar.
Atlas hf
*§orgartún 24 — Sími 26755. i
Pósthólf 493, Reykjavík
Stórvidburður
Austurstræti 17, sími 26611
á sviði fiskveiða,
fiskvinnslu og
fiskeldis
WORLD FISHING
EXHIBITION ’86
ácamt
FOOD FROM THE SEA
& FISH FARMING
17.-21. júní r BELLA CENTER, Kaupmannahöfn
Útsýn getur boðið viðskiptavinum sínum ódýra hópferð á
þessa stórmerku sýningu.
Yfir 10 þúsund manns sóttu World Fishing i Kaupmanna-
höfn 1983, en búist er við verulega aukinni aðsókn vegna
tilkomu Food from the Sea & Fish Farming, sem eru í
fyrsta sinn í tengslum við aðalsýninguna.
Brottför 16. júní — 7 dagar.
Verð frá kr. 26.150 (í tveggja manna herbergi).
GERIÐ PANTANIR TÍMAIMLEGA