Morgunblaðið - 31.01.1986, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1986
15
Alkalívá — Eftirþankar
eftir Harald
*
Asgeirsson
Hinn 14. júlí 1981 skrifaði éggrein
hér í blaðið sem ég nefndi Vamir
gegn alkalívá. Tilurð greinarinnar
stafaði af því að við blasti óhugnan-
legt tjón af völdum alkalíefnabreyt-
inga í steypu í byggðarlögum okkar.
Tjónið hefði numið tugum milljarða
ef ekkert hefði verið að gert. Hins-
vegar hafa hagkvæm viðbrögð
dregið mikið úr áhrifum skaðvalds-
ins, þótt tjónið sé enn ógnvekjandi
mikið, og að ekki eru allar skemmd-
ir enn komnar fram.
Orsakir alkalískemmda í steypu
eru þríþættar, þ.e. að í steypunni
eru, 1) virk fylliefni, 2) verulegt
magn af lausbundnum alkalíum og
3) raki. Allir þættimir em algengir
í íslenskri steinsteypu og raunar
eðlilegir vegna séraðstæðna til
steypugerðar hér á landi. Helstu
áhrifaþættir em, að steinefni em
gler-kennd og hráeftii til sements-
gerðar alkalírík, og að tíð slagviðri
halda steypu gjaman rakri.
Áhrif alkalívirkni em afar hæg-
fara og skemmdir koma oft ekki í
ljós fyrr en áratug eftir að byggt
er. Þetta hefír sumstaðar valdið
því að byggingariðnaðurinn hefur
þverskallast við að viðurkenna til-
vist skaðvaldsins. Þannig hefir því
t.d. verið þráfaldlega neitað í Eng-
landi að skaðlegar alkalíefnabreyt-
ingar ættu sér stað i þarlendri
steypu. Nú em þau andmæli þögn-
uð, enda skemmdimar orðnar aug-
ljósar. Af þessum sökum em bresk
byggingarfélög nú málsótt. í einu
slíku máli er krafist 42ja milljón
sterlingspunda skaðabóta (2.550
millj. kr.) vegna skemmda á spít-
ala-samstæðu.
Það var fyrst og fremst kerfis-
bundin leit við Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins að leiðum til
þess að spoma við áhrifum skað-
valdsins sem leiddi til jákvæðra
niðurstaðna, svo áhrifamikilla að ég
tel ástæðu til að gera nokkra grein
fyrir því hvemig þeim varð náð.
í mjög grófum dráttum lýst, þá
varð komist að tvennskonar niður-
stöðum með rannsóknunum:
1. Hægt reyndist með íblöndun kís-
ilryks í framleiðslunni að stór-
auka gæði sementsins. Með
þessari íblöndun er um leið
komið fyrir í sementinu nokkurri
tryggingu gegn því að skaðlegar
alkalíþenslur geti komið fram í
steypu, sem úr þessu sementi
er steypt, sé reglum fylgt.
2. Með notkun á mónósílönum og
öðrum vatnsfælum hefur verið
unnt að draga stórlega úr alkalí-
þenslum í gamalli steypu.
Mikilvægi þessara lausna verður
ekki auðveldlega metið í tölum því
þær urðu ekki eingöngu til þess að
bæta sementið og draga úr
skemmdum á eldri mannvirkjum
heldur hafa þær orðið til þess að
endurvekja traust byggingariðnað-
arins á steinsteypUj — eina innlenda
byggingarefninu. I öðru lagi hafa
niðurstöðumar haft mikil áhrif á
viðhorf til rannsókna og þróunar-
starfsemi. í þessu sambandi er
ánægjulegt að minnast þess að
Sementsverksmiðja ríkisins ásamt
Jámblendiverksmiðjunni hafa sett
á laggimar sjálfstætt þróunarfyrir-
tæki, Sérsteypuna sf. Eins ber að
minnast að ein málningarverk-
smiðja hefir þegar gert sjálfstæðar
gagnmerkar rannsóknir, sem leitt
hafa til framleiðslu á nýrri vatns-
fælinni málningu, framleiðslu sem
ætla má að eigi einnig erindi á
erlenda markaði. Rannsóknimar
hafa líka haft mikil áhrif á alla
þróun utanhúss málunar.
Ekki má nú skilja orð mín svo
að ástæðulaust sé að vera lengur á
varðbergi vegna alkalískemmda.
Þetta vita þeir mörgu, sem orðið
hafa fyrir alvarlegum skakkaföllum
þeirra vegna. Frekar ættu góðar
lausnir í vandanum að hvetja til
vandaðrar nýtingar á þeim. Al-
kalíváin blundar aðeins í gömlu
steypunni. Verði viðhaldi ábóta-
vant er voðinn vakinn. Því ber
að hvetja eigendur eldri steyptra
mannvirkja til þess að vera sérlega
vel á verði og gæta þess að viðhaldi
sé ekki ábótavant. Eins þurfa fram-
leiðendur allra steypuefna, svo og
byggingarfulltrúar landsins að
gæta þess að niðurstöður rannsókn-
anna séu nýttar, og að reglugerðum
sé fylgt.
Ástæða er í svona eftirþönkum
að yfírvega hvemig árangur náðist.
í því sambandi skulu hér talin fram
þau tvö atriði, sem mestu máli
skipta að dómi undirritaðs, þetta
eru þættir Sogsvirkjana og Stein-
steypunefndar.
Strax við byggingu írafossvirkj-
unar var tekið tillit til hættu á
alkalívirkni í steypu. Verkfræðilegir
stjómendur Sogsvirkjana hafa og
ávallt síðan tekið fullt tillit til þeirra
möguleika að alkalfvirkni geti vald-
ið skemmdum á mannvirkjum.
Þessvegna hefir öll slík mannvirkja-
Ilaraldur Ásgeirsson
„ Alkalíváin blundar
aðeins í gömlu steyp
unni. Verði viðhaldi
ábótavant er voðinn
vakinn.“
gerð verið undirbúin með miklum
rannsóknum. Efnisrannsóknimar
hafa að mestu leyti farið fram við
Rannsóknastofnun byggingariðn-
aðarins, og hafa þvf byggt upp
innlenda þekkingu, sem auðvitað
er undirstaðan undir rökréttum
viðbrögðum. í sömu andrá má stað-
festa það að steypumannvirki Sogs-
virkjunar em í góðu ástandi.
Steinsteypunefnd var sett á lagg-
imar 1967, sem ólaunuð „nefnd til
að kanna alkalfþenslur og þar af
leiðandi grotnun í steinsteypu". í
nefndina var raðað tæknimenntuð-
um fulltrúm helstu ábyrgðaraðila í
mannvirkjagerð. Nefndin, sem hefir
af sjálfsdáðun víkkað verksvið sitt,
hefír niðurstöður rannsókna að leið-
arljósi fyrir ákvarðanir sínar, og
hefir ekki eingöngu fjallað um við-
fangsefnin, heldur hafa aðilar að
nefndinni kostað obbann af þeim
rannsóknum, sem nefndin hefir
staðið fyrir. Það að í nefndinni sitja
fulltrúar notenda að niðurstöðunum
tryggir skjóta notkun þeirra. Efnis-
framleiðendur, steypustöðvar,
skipulags- og bæjaryfirvöld eiga
hlut að umræðunni. Þessvegna
verða líka niðurstöðumar notaðar
miklu frekar og fyrr en ella. (Þessi
vinnubrögð geta vel verið fordæmi
fyrir þátttöku annarra atvinnu-
greina í margvíslegri rannsókna-
starfsemi).
Framanskráðar línur lýsa að
sönnu ánægju yfir náðum árangri.
Sérstaklega má fagna því að þekk-
ing okkar á verksviðinu hefir aukist.
Þekkingin býður hinsvegar ekki upp
á neinn dorma á vaktinni. Þvert á
móti, því nú vitum við að ef við
sláum slöku við í viðhaldi eldri
bygginga okkar vaknar vágestur-
inn. Framleiðendur og bygginga-
fulltrúar landsins búa nú líka yfir
vitneskjunni um það hvað af getur
hlotist sé ekki vakað yfir gæðum
framleiðslunnar.
Höfundur er fyrrverandi forstjári
Rannsóknarstofnunar byggingar-
iðnaðarins.