Morgunblaðið - 31.01.1986, Side 34

Morgunblaðið - 31.01.1986, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR1986 St|örnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guömundsson Flestir vita að stjömuspeki flallar um persónuleika manna, um iífsorku, tilfinningar, hugs- un, samskipti, starfsorku, fas, framkomu o.fl. Tilgangurinn er sá að vekja okkur til meðvit- undar um það hver við erum og hvaða eiginleika við höfum. Það hjálpar okkur að beina orku okkar inn á jákvæðar brautir, hjálpar okkur t.d. að finna starf við hæfi og það sem ekki er síður mikilvægt, að skilja annað fólk. Stjömu- speki er því fyrst og fremst tæki til sjálfsþekkingar, nokk- urs konar sjálfskönnunarspegili. Misskilningur Þetta vita margir þó algengar séu ýmsar hugmyndir sem yfirleitt byggja á misskilningi eða vanþekkingu. Ég vil nefna hér nokkur dæmi: 1) Þó plá- netur hafi hugsanlega einhver áhrif er ekki hægt að ganga framhjá uppeldi, umhverfis- áhrifum og erfðaþáttum. 2) Stjömuspeki fæst við spá- dóma sem afvegaleiðir fólk og er þvf beinlínis hættuleg. 3) Hún hvflir á óljósum draumór- um, er fullkomlega óvísinda- leg og því er ekki mark á henni takandi. 4) Stjömuspeki setur fólk á bása og dregur úr spennu og því óvænta í lífinu. 5) Hvað ætli ég þurfi á þessu að halda, eins og ég þekki ekki sjálfan mig. Ég ætla í þessum og síðari þáttum að taka þessi atriði fyrir, en vegna takmarkaðs rýmis tek ég einungis einn þátt fyrir í einu. Uppeldisáhrif Einfaldast er að segja strax að stjömuspeki tekur tillit til erfða svo og uppeldis og umhverfisþátta. Stjömukort okkar sýnir fyrst og fremst upplag okkar og útfrá því hæfileika og möguleika. Að sjálfsögðu hefur uppeldi síðan mikið að segja. Það er reynsla allra sem hafa fengist við uppeldismál að foreldrar geta eyðilagt böm sín með röngu eða engu uppeldi. Þeir geta einnig með hvatningu og réttu viðmóti hjálpað bami, sem hefur erfiða skapgerð, til þroska. Stjömuspekingar þekkja þess ótal dæmi að menn koma til þeirra til að finna sjálfa sig. Menn finna oft er þeir komast á fullorðins- ár að erfíð bemskureynsla hefur hindrað þá í því að verða sjálfstæðir og skapandi ein- staklingar. Tæki sem varpar ljósi á upplag okkar getur því verið mjöggagnlegt. Umh verfisáh rif Það er ekki auðvelt að vera sjálfstæður einstaklingur í þessum heimi. Lífsbaráttan er hörð, við þurfum að vinna fyrir lifibrauði, og alls ekki er gefið að við finnum vinnu við hæfi. Við þurfum einnig að taka tillit til fjölda annarra ein- staklinga, til systkina, vina, maka, bama, vinnufélaga o.s.frv. Allir þessir aðilar gera kröfur tii okkar. Við getum því hæglega týnt sjálfi okkar. Stjömuspeki tekur tillit til þessara þátta og reynir að greiða úr þeirri flækju sem myndast milli þess persónu- lega og umhverfisins. Á vissan hátt er eitt hlutverk hennar það að finna sjálfíð og þá þætti persónuleikans sem leynast bakvið uppeldi og umhverfiskröfur. I fullkom- inni túlkun á stjömukorti er síðan tekið tillit til aðstæðna viðkomandi og þess að hver einstaklingur hefur fijálsan vilja til að bregðast við sínum aðstæðum. CONAN VILLIMADUR LJÓSKA TOMMI OG JENNI Heyrðu, Rúnki . . . mamma er að leita að þér! 17b) Mér þykir leitt að segja þér það, en það er „A á H“ dagur! Ó, nei... ekki „A á H“! Aftan á hjólinu dagur!! Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Vestur spilar út laufsexunni gegn þremur gröndum suðurs: Norður ♦ G863 ¥K84 ♦ G103 ♦ D87 Suður ♦ KD5 ♦ ÁG2 ♦ ÁD76 ♦ K43 Vestur Norður Austur Suður — — — 1 tígull Pass 1 spaði Pass 3 grönd Pass Pass Pass Sagnhafí setur lítið úr blind- um og drepur tíu austurs með kóng. Hvemig á hann að spila? Ef útspil vesturs er frá fjórlit er engin leið að tapa spilinu — að því gefnu auðvitað að vestur eigi laufásinn, eins og hann hlýt- ur að eiga ef útspilið er fjórða hæsta. En eigi vestur fimmlit í laufi þarf að vanda úrspilið. Það er nauðsynlegt að brjóta út spaðaásinn og svína á tíglinum. Eigi vestur bæði tígulkóng og spaðaás, til viðbótar við fimmlit- inn í laufi, er ekkert til bjargar. En ef hann á aðeins annað spilið vinnst sögnin örugglega með því að fara strax í tígulinn — ekki spaðann. Vestur Norður ♦ G863 ♦ K84 ♦ G103 ♦ D87 Austur ♦ 92 ♦ Á1074 ♦ 7 111 ♦ D109653 ♦ K9842 ♦ 5 ♦ ÁG965 ♦ 102 Suður ♦ KD5 ♦ ÁG2 ♦ ÁD76 ♦ K43 Rétta spilamennskan er að fara inn á borðið á hjartakóng og svína í tíglinum. Vestur fer á tígulkónginn, en græðir lítið á því að fría laufið þar eð hann á enga innkomu eftir. Seinna er hægt að sækja spaðaásinn í ró- legheitum. Þú sérð hvað gerist ef spaðan- um er spilað strax: austur notar innkomuna á spaðaásinn til að bijóta laufið og vestur á enn tíg- ulkónginn sem innkomu. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á álþjóðlega skákmótinu í Wij- kaan Zee í Hollandi, sem nú stend- ur yfir, kom þessi staða upp í 9. umferð 1 viðureign hollensku stór- meistaranna Van der Wiel, sem hafði hvítt og átti leik, og Hans Ree. 30. Re8+! (En ekki 30. f6+ - Kg8, 31. Df3 - Bxc7) Kg8, 31. Rf6+ - Kg7, 32. Dxh8+! og svartur gafst upp, því eftir 32. — Kxh8 er hann óveijandi mát í fjórða leik. Enski stórmeistarinn Nigel Short er efstur á mótinu með 6 / v. af 9 mögulegum, en næstur er Van der Wiel með 6 v. Júgóslavneski stórmeistarinn Ljubojevic er þriðji með 5 v. og biðskák, en Húbner og Sosonko hafa 5 v.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.