Morgunblaðið - 31.01.1986, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1986
47
Sigurður
lánaður til
Barnsley
— leikur gegn Norwich á laugardag
SIGURÐUR Jónsson, knatt-
spyrnumaðurinn ungi af Skagan-
um, sem leikur með Sheffield
Wednesday, hefur verið lánaður
i mánaðartíma til Barnsley sem
leikur í 2. deildinni ensku. Sigurð-
ur mun leika meö liðinu á laugar-
daginn gegn Norwich, sem er í
efsta sæti 2. deildar.
„Þetta var ákveðið í morgun,"
sagði Sigurður Jónsson er blaða-
maður Morgunblaðsins náði sam-
bandi við hann í gærkvöldi.
„Það varð að samkomulagi milli
félaganna að ég spilaði fjóra næstu
leiki með Barnsley. Ég held að
þetta sé mjög gott fyrir mig og ég
fæ mikla leikreynslu og það er það
sem ég þarf núna. Eg hef ekki
leikið með aðalliði Sheffield Wedn-
esday síðan í desember vegna
meiðsla og er þetta því kærkomin
reynsla og mun betri en ég fæ í
leikjum með varaliðinu, þar sem ég
hef aðeins leikið tvo leiki á síðustu
fimm til sex vikum. Við leikum gegn
Norwich á laugardaginn síðan
gegn Sheffield United, Leeds og
Grimsby. Þetta eru allt mjög sterk
lið og er ég bjartsýnn á þessa leiki
og verður gaman að fá tækifæri
aftur í alvöruleikjum," sagði Sig-
urður Jónsson, sem er í óða önn
að koma sér fyrir í nýju húsnæði
í Sheffield.
Barnsley er um miðja deild og
eru margir leikmanna þess meidd-
ir. Liðið á mjög erfiða leiki fram-
undan og vildu þeir ólmir fá Sigurð
til að styrkja lið sitt. Hann mun
leika þar á miðjunni og stjórna leik
liðsins.
Þorgils Óttar
með slitið
krossband
— Leikur ekki með um helgina
NÚ ER auðséð að Þorgils Óttar
Mathiesen, handknattleiksmað-
urínn snjalli úr FH, verður illa
fjarri góðu gamni um helgina er
fólagar hans úr landsliðinu leika
þrjá landsleiki. Hann meiddist á
hné sem kunnugt er f leik gegn
Pólverjum í Baltic Cup-keppninni
fyrr f þessum mánuði. Hann fór
til læknis f gær og kom þá f Ijós
að annað krossbandið er slítið.
Hann þarf þvf að ganga við
hækjur f vikutfma áður en hann
getur farið að reyna á fótinn aftur.
„Eftir viku verða nýjar spelkur
prófaðar og það verður bara að
koma í Ijós hvernig það kemur út,
en maður vonar það besta og er
bjartsýnn. Ef það þarf að skera,
þá er heimsmeistarakeppnin úr
sögunni hjá mér. Þess vegna á að
reyna að láta mig leika með slitið
krossband, þar sem svo stuttur
tími er til stefnu, hjá sumum hefur
það tekist," sagði Þorgils Óttar,
sem í gær var kjörinn íþróttamaður
Hafnarfjarðar, í hófi bæjarstjórnar
þar í bæ.
— Er ekki svekkjandi að þetta
óhapp skyldi henda núna?
„Jú vissulega, en þetta getur þó
alltaf komið fyrir og er ekkert við
því að gera. íþróttamenn þurfa
alltaf að taka áhættuna sem fylgir
þessu."
Það er óhætt að fullyrða að það
er mikil blóðtaka fyrir landsliðið að
Þorgils Óttar skuli vera meiddur.
Hann er einn besti línumaður
landsliðsins og hefur verið mjög
vaxandi í síðustu leikjum. Það er
óskandi að hann verði búinn að
ná sér fyrir heimsmeistarakeppn-
ina sem hefst í Sviss 25. febrúar.
ísland— Frakkland
AFMÆLISMÓT Reykjavíkur f
handknattleik, Flugleiðamótið,
hefst f Laugardalshöll f kvöld.
Fyrst leika Pólverjar og Banda-
ríkjamenn og hefst leikur þeirra
kl. 19.30. Strax á eftir eða kl.
21.00. leika íslendingar og Frakk-
ar.
íslendingar hafa leikið 18 leiki
gegn Frökkum, unnið tíu, en tapað
átta. Fyrsti leikur þessara þjóða fór
fram í Vestur-Þýskalandi 1961 og
sigruðu (slendingar þá 20-13. Síð-
ast var leikið gegn Frökkum í jan-
úar 1985 og tapaðist hann 16-19.
Frakkar eru nú með mjög ungt
og skemmtilegt lið og eru að
byggja upp landsliðs sitt. Þeir eru
í C-riðli heimsmeistarakeppninar
og fer hún fram í Póllandi í febrúar
og eru þeir staðráðnir í að vinna
sig upp í B-riðil og eru þessir leikir
hér liður í lokaundirbúningi þeirra
fyrir keppnina.
Besti leikmaður frönsku deildar-
innar í fyrra var valinn landsliðs-
markvörðurinn þeirra, Philippe
Medard.
Það má því ekki vanmeta
franska liðið, minnugir þess að
íslendingar töpuðu fyrir þeim síð-
ast er leikið var við þá.
Dagskrá mótsins verður eins og
hérsegir:
Föstudagur 31. janúar:
Pólland-Bandaríkin kl. 19.30.
Island-Frakkland kl. 21.00.
Laugardagur 1. febrúar:
Frakkland-Pólland kl. 16.30
Ísland-Bandaríkin kl. 18.00.
Sunnudagur 2. febrúar:
Bandaríkin-Frakkland kl. 16.30
Ísland-Pólland kl. 18.00
Nú er tilvalið tækifæri til að sjá
okkar sterkustu handknattleiks-
menn og styðja þá vel í þeirri
baráttu sem framundan er. Stuðn-
ingur áhorfenda vegur þungt á
metunum í leikjunum um helgina.
breytinga
Stórrýmingarsala
°ra91,ir'vwðTTiij- _________________
Orval af pe^um V* kr• »0 _ 995.
Kuldaúlpur. Verð kr*? 999 kr' 350 ~ 795.
Rugmannajakkar Ve,rT,„.
k, 250.
Herrablússur. Verö íínaallaf'Verö kr. 1.490.
Herra- og dömujoggingga •
BarnajogginggaHar. er ■ £ 490.
Herraskyrtur, mikiö urval. vero*
Í^gurueraseftÞ^^k‘-yerð k, 39.
09
Odýra hornið
Verö frá kr. 25 — 200.
Sælgætl, gjafavörur o.fl. o.fl.
Heitt á könnunni. Greiöslukortaþjónusta.
Viö opnum kl. 10 árdegis.
Vöruloftið
hf.
Sigtúni 3,
sími 83075.