Morgunblaðið - 31.01.1986, Side 48
ómissandi
ffgtmHafcife
E
EUPQCARD
SIAÐFEST iAnstraust
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Sverrír Hermannsson:
Hef ekki tekið af-
stöðu til breytinga
— Hópur viðskiptafræðinema ávaxtar
námslán sín á verðbréfamarkaði,
sagði Jón Baldvin Hannibalsson
SVERRIR Hermannsson, menntamálaráðherra, sagði i umræðum um
málefni Lánasjóðs íslenskra námsmanna á alþingi i gær, að honum
hefði ekki unnist timi til að taka afstöðu til ýmissa hugmynda, sem
fram hafa verið settar um breytingar á námslánakerfinu. Kvaðst
hann vonast tíl að geta rætt málin við samstarfsmenn sina í Sjálfstæð-
isflokknum og Framsóknarflokknum i næstu viku.
Umræðumar, sem fram fóru að
ósk Alþýðubandalagsins, stóðu í
rúmar fímm klukkustundir og voru
þingpallar lengst af þéttsetnir
námsmönnum.
Menntamálaráðherra lagði á það
áherslu, að hann styddi grundvall-
arhugmyndina að baki námslána-
kerfinu. Hann sagði, að menntun
væri besta fjárfesting sem völ væri
á. Hins vegar hefði margt farið
úrskeiðis í rekstri lánasjóðsins og
óhjákvæmilegt væri að taka núver-
andi reglur sjóðsins til endurskoð-
unar.
Talsmenn stjómarandstöðunnar
gagnrýndu vinnubrögð mennta-
málaráðherra harkaiega. Ingvar
Gíslason, fyrrverandi menntamála-
ráðherra, taldi það mikið alvömmál
að ráðherrann hefði ekkert samráð
Bikarkeppni KSÍ:
Keppt um
Mjólkur-
bikar í
sumar?
Mjólkurdagsnefnd er með í
athugun boð Knattspymu-
sambands íslands um að
tengja nafn Bikarkeppni KSÍ
við mjólk - á svipaðan hátt
og gert er í Englandi þar sem
keppt er um Mjólkurbikarinn.
Myndi keppnin þá væntanlega
heita Bikarkeppni KSÍ—
Mjólkurbikarinn.
Óskar H. Gunnarsson, for-
maður mjólkurdagsnefndar,
sagði að nefndin hefði fjallað
um þetta boð KSÍ og nefndar-
menn væm jákvæðir enda gæti
þama verið um góða auglýsingu
að ræða. Bjóst hann við að erindi
KSÍ yrði svarað fyrir 20. febrú-
ar.
Óskar sagði óvíst hvemig að
þessu samstarfi yrði staðið ef
af yrði en rætt væri um að
keyptur yrði nýr og veglegur
bikar fyrir keppnina.
haft við framsóknarmenn við endur-
skoðun mála lánasjóðsins.
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins, sagði að
hann vissi til þess, að hópur nem-
enda í viðskiptafræði við Háskóla
íslands ávaxtaði námslán sín, sem
em verðtryggð en vaxtalaus, á
verðbréfamarkaði, þar sem unnt
væri að fá allt að 17% raunvexti á
ári.
Sjá nánar um umræðumar
á alþingi á bls. 28 og viðtöl
við námsmenn á bls. 4.
Akureyri:
Björgunarsveitir
aðstoða skíðafólk
Akureyri, 30. jauúar.
UM TUTTUGU félagar í Hjálp-
arsveit skáta og Flugbjörgunar-
sveitinni á Akureyri vom kvadd-
ir að Skíðastöðum i Hlíðarfjalli
um ldukkan 18 i dag, þar sem
skyndilega skall á suðvestanátt
ofan úr Glerárdal og gerði mjög
vont veður um tíma.
Stöðva þurfti stólalyftuna vegna
hvassviðris. Vel gekk að ná krökk-
um úr lyftunni og koma þeim og
öðmm sem i Fjallinu vom í hús og
sakaði engan.
Mikill fjöldi farþega beið eftir flugi á Reykjavíkurflugvelli i gærmorgun.
Morgunblaðið/RAX
Flug fór úr skorðum vegna
veikinda flugumferðarstjóra
MIKIL veikindaforföll flugumferðarstjóra í Reykjavík settu inn-
anlandsflug alvarlega úr skorðum í gærdag. Af niu flugumferðar-
stjórum sem áttu að vera á morgunvakt í flugstjórnarmiðstöðinni
mættu aðeins þrir, en hinir tilkynntu veikindi. Vegna þeirrar
stefnu flugumferðarstjóra að leiða hjá sér yfirvinnu var ekki
hægt að fylla i skarðið með aukamönnum á frívakt. Einungis
þrír menn báru þvi hita ogþunga dagsins.
„Þegar svona gerist er ekki um
annað að ræða en takmarka flug-
umferð eftir því sem kostur er.
Það var lögð áhersla á að afgreiða
millilandafiugið með eðlilegum
hætti, en við urðum að takmarka
flug innanlands við sjónflug,"
sagði Guðmundur Matthíasson,
framkvæmdastjóri flugumferðar-
þjónustunnar, í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Sveinn Sæmundsson, sölustjóri
innanlandsdeildar Flugleiða, sagði
að innanlandsflug Flugleiða hefði
meira og minna farið úr skorðum
í gær. „Það er grátlegt til þess
að vita að loks þegar veður stillist
eftir þriggja daga ófærð skuli
veikindi flugumferðarstjóra geta
eyðilegt eðlilegar flugsamgöng-
ur,“ sagði Sveinn. Að sögn hans
var nauðsynlegt að aflýsa áætlun-
arferðum til ýmissa staða, þar eð
skilyrði til sjónflugs voru ekki
fyrir hendi. í einu tilfelli var vél
á leið til Egilsstaða snúið til
Akureyrar vegan slæmra sjón-
flugsskilyrða.
Þann 7. janúar sl. voru settar
reglur, undirritaðar af Pétri Ein-
arssyni flugmálastjóra, sem
skylda flugumferðarstjóra að
framvísa vottorði frá trúnaðar-
lækni til staðfestingar á veikinda-
forföllum. Guðmundur Matthías-
son var spurður hvort gengið yrði
hart eftir þeim vottorðum nú. „Ég
get ekkert um það sagt á þessu
stigi, en þetta er náttúrulega
enginn leikur," svaraði hann. Ekki
tókst að ná í Pétur Einarsson til
að bera þessa spumingu undir
hann.
Á tímabili síðdegis í gær leit út
fyrir að til svipaðra vandræða
kæmi á kvöldvakt, þar sem flug-
umferðarstjóri sem bókaður var á
vakt í flugtumi tilkynnti veikindi.
Flugumferðarstjórar ákváðu hins
vegar að mælast til þess að annar
maður á frívakt tæki að sér stjóm-
ina í tuminum.
Fyrir hádegi í dag munu flug-
umferðarstjórar halda fund með
Matthíasi Bjamasyni samgöngu-
ráðherra, þar sem staða mála í
deilu þeirra við flugmálastjóra
verður rædd.
Kristján Ragnarsson segir olíulækkun nánast tálsýn:
Útgerðin þarf veru-
lega hækkun fiskverðs
Afkoma nýrri togara neikvæð um
10—15% að mati Þjóðhagsstofnunar
AÐ MATI Þjóðhagsstofnunar voru botnfiskveiðar um áramót
reknar með um 2,5% halla að minnsta kosti, en LÍÚ metur
tapið nokkru meira. I ljósi þess, segir Kristján Ragnarsson,
framkvæmdasfjóri LÍÚ, að útgerðin þurfi á umtalsverðri
hækkun fiskverðs að halda til að skila jákvæðum rekstri,
enda sé lækkun á verði gasolíu nánast tálsýn. Mest tap er á
minni togurum byggðum 1977 og síðar.
Samkvæmt upplýsingum Þjóð-
hagsstofnunar er tap á rekstri báta
á botnfiskveiðum og miílni togara
um áramót 3 til 4% af tekjum. Tap
á rekstri minni togara byggðum
1977 og síðar er metið 9 til 10%
en eldri togaramir taldir reknir með
3% hagnaði. Þá eru stórir togarar
taldir reknir með 5% hagnaði. í
þessum niðurstöðum stofnunarinn-
ar er fyrirvari vegna nýrri útreikn-
inga, sem unnið er að. Talið er af
stofnuninni að miðað við aflaaukn-
ingu og hugsanlega lækkun olíu-
verðs geti staðan verið eitthvað
betri. Olfukostnaður togara er um
20% af útgjöldum, þannig að lækk-
un olíuverðs um hver 10% lækkar
útgjöld um nálægt 2%.
Kristján Ragnarsson segir að
þessir útreikningar Þjóðhagsstofn-
ur.ar byggist á of gömlum tölum
og auk þess byggðar á ákveðnum
forsendum, sem vafasamt sé að
gefi rétta mynd. Samkvæmt öðrum
útreikningum Þjóðhagsstofnunar
sem byggðir séu á 6% ávöxtun fjár-
magns sem bundið sé í útgerð, sé
bátaflotinn rekinn með 7,5% halla,
togarar að meðatali með 6,9% halla.
Stærri togarar séu þá með 2,3%
hagnað, eldri togarar á sléttu og
yngri togaramir með 15% halla. I
útreikningum þessum sé búið að
reikna inn tekjur útgerðar af sölu
fersks gámafísks erlendis, en sá
þáttur sé stórlega ýktur vegna þess,
að það sé að verulegum hluta fisk-
vinnslan, sem hagnist á útflutningi
físks í gámum. Þetta sé engan
veginn nógu góð staða, þó hún sé
betri en oft áður. Því þurfi útgerðin
á umtalsverðri hækkun fiskverðs
að halda til að skila hagnaði og
greiða uppsafnaðar skuldir frá
tapárunum. Auk þess sé lækkun
olíukostnaðar ekki sjáanleg á næst-
unni miðað við framkomnar upplýs-
ingar frá olíufélögunum.
ASI-VSI:
Nefndir starfa
næstu daga
Á FUNDI aðalsamninganefnda
Alþýðusambands íslands og
Vinnuveitendasambands íslands i
gær var einkum rætt um efnahags-
mál og var ákveðið að halda
umræðum um þau áfram næstu
ikveðið var að samninganefndim-
ar komi saman til næsta fundar á
þriðjudag. í dag starfa nefndir um
lífeyrismál og efnahagsmál og á
laugardag verður fundur í nefnd um
húsnæðismál.