Morgunblaðið - 13.02.1986, Side 2

Morgunblaðið - 13.02.1986, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. FEBRÚAR1986 Sigfriður Joensen, skipstjóri á Svani (t.v.), og H. Lamain, fram- kvæmdastjóri Skipafélagsins Færeyjar. Ms. Ólavur Gregersen Morgunblaðið/Bjami Skipafélagið Föroyar flytur fisk milli íslands og Bandaríkjanna SKIPAFÉLAGIÐ Föroyar ætl- ar að hefja siglingar með fryst- an fisk milli Islands og Banda- rikjanna í samkeppni við Eim- skip. Félagið hefur fyrst og fremst flutt fisk frá Noregi og Færeyjum vestur um haf en nú munu Island og Danmörk tengj- ast þessu flutninganeti, að sögn Þorvalds Jónssonar skipamiðl- ara, umboðsmanns færeyska skipafélagsins hérlendis. Þorvaldur sagði, að skipafélag- ið Föroyar væri með tvö 3.000 brúttólesta frystiskip í þessum flutningum, Svan og Ólav Greg- ersen. Þau munu koma hér við til skiptis á tveggja vikna fresti. Skipin lesta frystan fisk í Es- bjerg í Danmörku, Björgvin og Þrándheimi í Noregi, Þórshöfn í Færeyjum og í Vestmannaeyjum, Keflavík og Hafnarfírði og sigla með hann til Boston, Everett og Gloucester í Bandaríkjunum. Farmgjöld skipafélagsins Föroyar munu fara dálítið eftir því hve mikla flutninga skipin fá til baka. Félagið mun ekki verða með nein undirboð. Svanur kom til Hafnarfjarðar í fyrrinótt en siglir áleiðis vestur um haf í dag eftir að hafa verið losaður og fermdur. Ólavur Greg- ersen er væntanlegur eftir hálfan mánuð. Morgunblaðið hafði samband við Hörð Sigurgestsson forstjóra Eimskipafélags íslands og spurði hann hvað honum fyndist um samkeppnina. „Það er ekkert nýtt að við eigum í samkeppni við innlenda og erlenda aðila," sagði Hörður. „Færeyingar hafa t.d. verið með siglingar hingað í mörg ár. Við munum ekki bregðast við þessu öðru vísi en hverri annarri sam- keppni." Menntamálaráðherra undirritar reglugerðir um framkvæmd nýju útvarpslaganna: Hvergi slakað á kröfum um íslenskun sjónvarpsefnis — segir Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra SVERRIR Hermannsson menntamálaráðherra undirrítaði í gær þijár reglugerðir varðandi framkvæmd nýju útvarpslaganna, sem tóku gildi um síðustu áramót. Veita má innlendum aðilum tímabund- in leyfi til útvarps, þ. e. hljóðvarps og sjónvarps, fyrir almenning á afmörkuðum svæðum. Jónas Haralz banka- stjóri Landsbankans: Lækkun nafnvaxta ekkián fyrirmæla JÓNAS Haralz bankastjóri Landsbanka íslands telur að lækkun raunvaxta geti ekki orðið nema á alllöngum tíma, jafnhliða lækkandi verðbólgu: „Raunvext- ir verða að vera háir hér á landi á næstu árum, þó að verðbólgan lækki, vegna þess að almenning- ur hefur orðið fyrir svo slæmri reynslu. Á hinn bóginn hljóta nafnvextir að lækka í samræmi við lækkandi verðbólgu," sagði Jónas. Aðspurður sagði hann að vextir verðtryggðra lána bank- anna er bera 4% og 5% raunvexti geti ekki Iækkað á næstunni. í tengslum við kjarasamninga hefur ríkisstjómin tilkynnt að hún muni í sameiningu við Seðlabanka íslands stuðla að lækkun nafnvaxta innlánsstofnana. Þá er einnig bent á í yfirlýsingu ríkisstjómarinnar að raunvextir geti farið lækkandi með stöðugleika í efnahagsmálum. Jón- as Haralz var spurður hvort hann teldi að ætlunin væri sú að lækka nafnvexti óverðtryggrða reikninga meira og hraðar en lækkun láns- lq'aravísitölunnar : „Ég býst við því að það sé hugmyndin. Þetta felur í sér þá hættu að spamaður dragist saman, nema að fólk sann- færist mjög fljótt um það að þetta sé alvara og verðbólga fari lækk- andi.“ „Okkar mat er að skilyrði verði til þess að vextir lækki, en það fer eftir atvikum með hvaða hætti það gerist," sagði Jóhannes Nordal seðlabankastjóri þegar hann var spurður um það hvort lækkun nafii- vaxta verði náð með beinum tilskip- unum til innlánsstofnana. Jónas Haralz sagði að hann gæti ekki séð að lækkun nafnvaxta gæti orðið með skipulegum hætti, án þess að fyrirmæli komi til innlánsstofnana um helstu tegundir vaxta. Vestmannaeyjar: Manns saknað MANNS á sextugsaldrí, skipveija á Helgu H frá Reykjavík, hefur veríð saknað í Vestmannaeyjum frá því I fyrrinótt. Björgunarfé- lag Vestmannaeyja og Hjálpar- sveit skáta hófu leit að mannin- um síðdegis í gær, en sú Ieit hafði ekki boríð árangur er Morgunblaðið hafði síðast fregn- ir af í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar í Vest- mannaeyjum hafði maðurinn verið gestkomandi í nærliggjandi bát f höfninni í Vestmannaeyjum á þrifyudagskvöldið. Laust eftir mið- nætti yfirgaf hann bátinn og sást síðast við Heigu II um klukkan 1.30 um nóttina. Lögreglunni í Vestmannaeyjum var tilkynnt um hvarf mannsins síð- degis í gær og var þegar hafin leit að honum. Beindist leitin einkum að höfninni. ÞORSTEINN Pálsson fjárraála- ráðherra veitti í gær Bandalagi kennarafélaga formlega viður- kenningu á rétti BK sem heildar- samtaka til að fara með fyrirsvar ríkisstarfsmanna innan sinna vébanda um gerð aðalkjara- samnings. Ennfremur boðuðu fulltrúar fjármálaráðherra á Útvarpsréttameftid veitir leyfið, en skal leita umsagnar Pósts- og símamálstofiiunar á umsóknum. Leyfí til hljóðvarps skal veitt til þriggja ára þegar það er veitt í fyrsta sinn, en eftir það til fimm ára í senn. Leyfí til sjónvarps skal veitt fyrst til fimm ára en til sjö ára eftir það. Utvarpsstöðvum er gert að stuðla að almennri menn- ingarþróun og efla íslenska tungu og þær skulu halda í heiðri lýðræð- islegar grundvallarreglur. Islenskun sjónvarps efnis og hlutleysiskrafa í 6. grein reglugerðarinnar um leyfí til útvarps segir orðrétt: „Efni á erlendu máli, sem sýnt er í sjónvarpi, skal jafnan fylgja íslenskt tal eða neðanmálstexti á íslensku, eftir því sem við á hveiju sinni. Það skal þó ekki eiga við, þegar í hlut eiga erlendir söngtextar eða þegar dreift er viðstöðulaust fundi með kennurum í gær, að í dag yrði að vænta lausnar á þvi baráttumáli kennara að laun fé- laga í Kennarasambandi íslands yrðu jöfnuð til samræmis við laun þeirra sem eru í Hinu ís- lenska kennarafélagi. Eins og margoft hefur komið fram hafa laun kennara í KÍ verið að meðal- um gervihnött og móttökustöð fréttum eða dagskrárefhi, er sýnir atburði er gerast í sömu andrá. í síðastgreindu tilviki skal að jafiiaði fylgja kynning eða endursögn þul- ar.“ Þessi grein gildir ekki um móttöku útvarps um þráð sem bundin er fbúðasamsteypu 36 íbúða eðafærri. Sverrir Hermannsson var spurð- ur hvort túlka mætti þessa grein sem slökun frá þeirri kröfu að allt sjónvarpsefni skuli koma fyrir sjónir Islendinga með íslensku tali eða texta. „Það er öðru nær. Það eina sem er undanþegið íslenskun eru söng- lagatextar. Allt annað efni skal ís- lenskað eftir því sem kostur er á. Ef um beina útsendingu er að ræða skal fylgja kynning, ef um tónlistar- þátt eða slíkt er að ræða, en annars endursögn þular. Þetta er skýrt. Það er hvergi slakað á kröfum," svaraði Sverrir. í 7. grein er kveðið á um það tali tæplega 5% lægrí frá þvi 1. nóvember sl. Ekki kom fram á fundinum með hvaða hætti laun- in yrðu jöfnuð. Valgeir Gestsson formaður KÍ sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að þar sem það væri alls óvíst hvemig fjármálaráðherra að útvarpsstöðvum beri að virða tjáningarfrelsi og gæta þess við umfjöllun umdeildra mála að fram komi í dagskrá rök fyrir mismun- andi stefnum og skoðunum. Sverrir var var spurður hvort þetta þýddi að ekki mætti flytja einhliða boð- skap: „Það virðist svo vera. Þessar reglur eru sniðnar mjög í anda út- varpslaganna. En við verðum að gæta að því að það er útvarpsréttar- nefndar að taka afstöðu til hugsan- legrar kæru vegna einhliða frétta- flutnings. Nefndin virðist þar hafa nokkurt svigrúm til túlkunar," sagði Sverrir. Auglýsingar og menn- ingarsjóðsgjald Útvarpsstöðvum er heimilt að afla tekna með auglýsingum, af- notagjaldi, eða sérstöku gjaldi vegna útsendingar fræðslu- og skýringarefnis. Gjaldskrár fyrir auglýsingar skulu háðar samþykki útvarpsréttamefndar. í reglugerð um auglýsingar í útvarpi segir m.a. að þær skuli skýrt afmarkaðar frá öðm dagskrárefni og bomar fram á lýtalausu íslensku hygðist standa að leiðréttingu á launamun hinna tveggja félaga, teldi stjóm KÍ ekki tilefni til að fresta fyrirhuguðum aðgerðum kennara. Kennarar á Austfjörðum, í Hafnarfirði, Kópavogi og öðmm byggðarlögum Reylq'aneskjördæm- is munu því fella niður kennslu í dag. máli. Á allar auglýsingar leggst sérstakt gjald, menningarsjóðs- gjald, sem er 10% og rennur tii Menningarsjóðs útvarpsstöðva. Hlutverk hans er að veita islenskum útvarpsstöðvum framlög til eflingar á innlendri dagskrárgerð, sem verða má til menningarauka og fræðslu. The Hollies til Islands BRESKA hljómsveitin The Hollies mun koma hingað til lands og leika í veitingahús- inu Broadway dagana 3., 4. og 5. apríl næstkomandi. Hafa samningar þegar veríð gerðir varðandi komu hljómsveitar- innar svo og við söngkonuna, Petulu Clark, sem mun koma fram í Broadway dagana 30. og31.mai. The Hollies var ein af stór- hljómsveitum í Bretlandi á sjö- unda áratugnum og af mun stærri gráðu en þær bresku hljómsveitir sem hingað komu á síðasta ári. Hljómsveitin naut mikilla vinsælda og virðingar langt út fyrir Bretland og átti Qölda laga í efstu sætum vin- sældalistanna víða um heim. Má þar nefna lög eins og Bus Stop, Look Through Any Window, Carrie Annie, Jenifer Eccles, He aint heavy, he’s my Brother og mörg fleiri. Þeir eru enn í fullu Qöri og komu meðal annars laginu „Stop in the Name of Love“ inn á vinsældalista fyrir tveimur árum. Þrír af upphaflegum liðs- mönnum hljómsveitarinnar, þeir Alan Clark söngvari, Tony Hicks gítar og Bobby Elliot trommur eru með í hópnum auk sjö manna hljómsveitar, og eru þeir með á efnisskránni öll vinsæl- ustu lög hljómsveitarinnar í gegnum árin. Fundur kennara og fulltrúa fjármálaráðherra í gær: BK fær samningsrétt og fyrir- heit gefið um jöfnun launa í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.