Morgunblaðið - 13.02.1986, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. FEBRÚAR1986
Akureyri:
Stj órnarf ormaður vatns-
veitunnar segir af sér
Akureyri. 11. febrúar.
FREYR Ofeigsson bæjarfulltrúi
Alþýðuflokks sagði af sér for-
mennsku í stjórn Vatnsveitu
Akureyrar á bæjarstjórnarfundi
í kvöld eftir að samþykkt var
tillaga sjálfstæðismanna um að
færa 15 milljónir króna i frum-
varpi af fjárhags- og fram-
kvæmdaáætlun vatnsveitunnar á
liðinn „óráðstafað" i stað þess
að veija þeim tíl byggingar
vatnsveitugeymis á Miðhúsa-
klöppum.
Freyr sagði að með þessari
samþykkt væri verið að kollvarpa
stefnu meirihluta bæjarstjómar um
rekstur vatnsveitunnar - stefnu sem
hann hefði í upphafi verið kjörinn
til að framfylgja. Hann sagðist ekki
treysta sér til að starfa eftir stefnu
sem hann væri á móti.
Gunnar Ragnars, oddviti sjálf-
stæðismanna í bæjarstjóm, lagði
fram tillöguna. Hann sagði bæjar-
sjóð hafa úr litlu framkvæmdafé
að spila á árinu, tillagan væri liður
í að breyta því. Flutningsmenn til-
lögunnar vilja geta gripið til þess
möguleika að fá umrætt fé að láni
vegna framkvæmda við dvalar-
heimilið Hlíð eða Síðuskóla. Tillag-
an var samþykkt með fjórum at-
kvæðum sjálfstæðismanna og
beggja fulltrúa Kvennaframboðs-
ins.
A liðnum „óráðstafað“ á áætlun
vatnsveitustjómar vom 2,5 milljón-
ir - og em því 17,5 milljónir króna
eftir breytinguna.
Lágt verð á
fiskmörkuðum
VERÐ á ferskfiskmörkuðunum í
Þýzkalandi og Bretlandi er nú
fremur lágt. Því valda válynd
veður og samgönguerfiðleikar á
landi, sem koma í veg fyrir eðli-
lega dreifingu fiskmetisins í
verzlanir og á markaði.
Vigri RE seldi á þriðjudag 291,5
lestir, mest karfa í Bremerhaven.
Heildarverð var 11.096.400 krónur,
meðalverð 38,07. Á miðvikudag
seldi Karlsefni RE 259,2 lestir,
mest karfa í Cuxhaven. Heildarverð
var 10.250.400 krónur, meðalverð
39,54. Óskar Halldórsson RE seldi
sama dag 71,4 lestir í Hull. Heildar-
verð var 3.724.700 krónur, meðal-
verð 52,15.
Dr. Ingjaldur Hannibals
son forstjóri Alafoss
DR INGJALDUR Hannibalsson,
iðnaðarverkf ræðingur, tekur við
starfi forstjóra hjá Álafossi hf.
1. júni næstkomandi. Pétur Ei-
ríksson, hagfræðingur, sem
gengt hefur starfi forstjóra fé-
lagsins undanfarin 12 ár, hefur
sagt þvi starfi lausu.
Ingjaldur lauk doktorsprófi frá
Ohio State University í Bandaríkj-
unum í iðnaðarverkfræði árið 1978.
Hann gegndi starfí deildarstjóra
tæknideildar Félags íslenskra iðn-
rekenda árin 1978 til 1983 og hefur
verið forstjóri Iðntæknistofnunar
íslands frá í febrúar 1983. Samhjiða
störfum þessum hefír Ingjaldur
verið stundakennari og dósent við
Háskóla íslands.
Ingjaldur hefur óskað eftir því
við iðnaðarráðherra að verða leyst-
ur frá starfí forstjóra Iðntækni-
stofnunar íslands frá og með 1.
júní nk.
Hann var skipaður forstjóri Iðn- 1- febrúar 1983 og hefði skipunar-
tæknistoftiunar til flögurra ára frá tímahansþvílokið31.janúar 1987.
Dr. Ingjaldur Hannibalsson
Morgunblaðiö/Skapti
Guðmundur Logi Lárusson starfsmaður Landssambands islenzkra samvinnufélaga les áskorunina
fyrir fund bæjarstjórnar. Starfsfólk Fataverksmiðjunnar Heklu fjölmennti eins og sjá má.
Fataverksmiðjan Hekla:
Bæjarstjórn beiti sér fyr-
ir áframhaldandi rekstri
Akureyri, 11. febrúar.
ÁÐUR en fundur bæjarstjóraar
Akureyrar hófst í dag voru
forseta bæjarstjórnar Sigurði
Jóhannessyni afhentir undir-
skriftalistar frá starfsfólki
Fataverksmiðjunnar Heklu
með nöfnum 2.140 Akur-
eyringa. Þar er skorað á bæjar-
stjóra að gera allt sem hægt
er tíl að rekstri verksmiðjunnar
verði ekki hætt - en öllu starfs-
fólki verksmiðjunnar hefur
verið sagt upp störfum frá 1.
aprfl.
Áskorunin, sem GuðmUndur
Logi Lárusson starfsmaður Land-
sambands íslenskra samvinnufé-
laga afhenti Sigurði, er svohljóð-
andi: „Við undirrituð skorum á
bæjarstjóm Akureyrar að hún
gangist þegar fyrir því að rekstri
Fataverksmiðjunnar Heklu verði
haldið áfram. Okkur fínnst það
óhæfa að verksmiðjunni verði
lokað og um 60 manns missi
atvinnu sína án nokkurrar trygg-
ingar fyrir öðru starfí. Bæjarfé-
lagið má ekki við því að fleira
hæft fólk flytjist í burtu og at-
vinnutæki hverfí á brott."
Að sögn þeirra sem afhentu
listann var það ákveðið í gær að
gripa til þessa ráðs, þannig að
ekki vannst tími til að leita undir-
skrifta nema lítils hluta bæjarbúa
fyrir fundinn í dag.
Fiskaflinn í janúar:
Loðnan sér um
aflaaukningnna
Mestu landað á Seyðisfirði — mestur þorskur á land á ísaf irði
HEILDARAFLI landsmanna í
janúar síðastliðnum var 206.605
lestir eða tæpum 50.000 lestum
meiri en í sama mánuði í fyrra.
Munar þar mestu um loðnu-
aflann, sem er rúmlega 51.000
lestum meiri nú en í fyrra. Þorsk-
Seltjamarnes:
Vöruhús Vörumarkað-
arins senn fullbúið
HAFNAR eru lokaframkvæmdir við að fullgera vöruhús Vörumark-
aðarins hf. við Eiðistorg á Seltjarnaraesi. Ákveðið er að búið verði
að taka allt húsnæðið, eða alls 4.200 fermetra í notkun síðla sumars.
Frá upphafi hefur það verið stefna fyrirtækisins að loka verslunar-
húsinu í Ármúla þegar vöruhúsið við Eiðistorg væri fullbúið. Hús-
næðið við Ármúla hefur verið selt Fjármálaráðuneytinu og verður
sölusamningur undirritaður I vikunni, þegar Fjárveitinganefnd hefur
staðfest hann, segir í frétt frá Vörumarkaðnum.
í fréttinni segir ennfremur fræðingar og hönnuðir þess aðstoð-
„Allar deildir Vörumarkaðarins í að við skipulag vöruhússins í Nes-
Armúla verða fluttar í vöruhúsið á
Nesinu í áfongum. Ekki er búið að
ákveða í hvaða röð það verður gert.
Auk þess verður bætt við nýjum
verslunardeildum til að mæta þörf-
um viðskiptavina fyrirtækisins.
Vörumarkaðurinn er samstarfs-
aðili við Vestur-þýska stórmarkaðs-
fyrirtækið Kaufring og hafa sér-
inu. Gert er ráð fyrir að sérfræðing-
ar Kaufrings í stórmarkaðsmálum
komi til landsins og aðstoði við
lokaátakið í vor og sumar.
Þessar framkvæmdir flýta einnig
lokafrágangi í miðbæ Seltjamar-
ness, þar sem m.a. 1.200 fermetra
verslunartorg verður undir gler-
þaki, hið fyrsta sinnar tegundar hér
á landi. Vöruhús Vörumarkaðarins
er sniðið að þörfum íbúa höfuð-
borgarinnar vestan Suðurgötu, auk
íbúa Nessins og annarra sem þang-
að koma í verslunarhugleiðingum.
Mikil fjölgun íbúa á sér nú stað
vestast í Vesturbænum á nýjum
byggingasvæðum og á Nesinu.
íbúaQölgunin kallar á aukna nútím-
alega verslunarþjónustu á svæðinu.
Ákvörðunin að loka Vörumark-
aðinum við Armúla hefur hverfandi
áhrif á starfsmannahald fyrirtækis-
ins vegna aukinna umsvifa í Vöru-
húsinu við Eiðistorg. Á launaskrá
eru nú 150-160 manns og er tals-
verður hluti starfsfólksins í hluta-
starfí."
aflinn er 3.354 lestum meiri nú,
en afli annarra botnfisktegunda
er 4.818 lestum minni. 23.406
lestum var landað erlendis, en
17.647 í janúar i fyrra.
Þorskafli báta í janúar var 8.882
lestir en 10.076 í janúar í fyrra.
Annar botnfískafli var 4.002 lestir
en 4.313 I fyrra og hefur því orðið
nokkur samdráttur f þessum afla
bátanna. Loðnuaflinn í janúar nú
var 167.754 lestir en 111.639 í
fyrra. Afli annarra tegunda er mjög
svipaður milli mánaðanna. Heildar-
afli bátanna er því 49.835 lestum
meiri nú en í fyrra. Þorskafli togara
var nú 16.662 lestir, en 12.114 í
fyrra. Annar botnfískafli þeirra var
nú 5.542 lestir en 10.049 í fyrra.
Heildarafli togaranna er því 41 lest
meiri nú en í janúar á sfðasta ári.
Mestum afla var f janúar landað
á Seyðisfírði, 26.697 lestum, og er
það nær allt loðna. Á §órum öðrum
stöðum var landað yfír 20.000 lest-
um í mánuðinum og alls staðar er
loðna bróðurparturinn af því. Á
Eskifírði var landað 26.210 lestum,
20.927 í Neskaupstað og 20.101
lest í Vestmannaeyjum. Mestum
þorski var hins vegar landað á
Isafírði, 2.158 lestum. Aðrir löndun-
arstaðir með meira en 1.000 lestir
af þorski eru: Akureyri 2.106 lestir,
Keflavík 1.573 og Sandgerði 1.365
lestir.
í janúar voru landanir erlendis
sem hér segir, samsvarandi tölur
janúarmánaðar í fyrra innan sviga:
Þorskur 1.423 lestir (175), annar
botnfískur 1.252
20.731 (15.150),
lestir (17.647).
(2.322), loðna
samtals 23.406
Flestir starfs-
manna Hafskips
komnir í vinnu
FLESTIR starfsmenn Hafskips
hf. eru nú komnir í vínnu annars
staðar að því er segir í frétt frá
Atvinnumiðlun Hafskips. Starfs-
menn félagsins voru um 240 auk
rúmlega 100 starfsmanna er-
lendis, er til rekstarstöðvunar
kom i byijun desember síðastlið-
inn.
Þá rúmu tvo mánuði hefur verið
starfrækt sérstök atvinnumiðlun,
þar af sfðustu vikumar að Sfðumúla
33, þar sem fráfarandi stjóm Haf-
skips hf. og forsvarsaðilar starfs-
mannafélagsins hafa staðið fyrir
sameiginlegu lokaátaki.
Frá 1. mars nk. og fram til
sumars munu um 10 starfsmenn
halda áfram störfum hjá búinu og
auk þeirra liggja óráðstafaðar
starfsumsóknir fyrir frá innan við
15 starfsmönnum.
Skrifstofunni í Síðumúla 33 hefur
nú verið lokað, en fulltrúar atvinnu-
miðlunarinnar munu áfram leitast
við að sinna þeim umsóknum, sem
enn em til úrlausnar, og má koma
boðum til þeirra í síma búsins,
21160.