Morgunblaðið - 26.03.1986, Blaðsíða 2
MORGUNBLADIÐ, MIDVIKUDAGUR 26. M ARZ1986
Carrington lávarður, aðalframkvæmdastjóri NATO:
Sovétríkin hafa stóreflt
flota sinn í norðurhöfum
Aðild íslands að NATO því
enn mikílvægari en áður
Á ÞVÍ leikur enginn vafi, að Sovétríkin hafa stóreflt flota sinn í
norðurhöfum á undanförnum árum og yfirburðir Atlantshafsbanda-
lagsins á þessu svæði eru greinilega minni en áður. Af þessum sökum
eru aðiid íslands að NATO og sú aðstaða, sem ísland lætur í té fyrir
varnarstöð bandalagsins enn mikilvægari enn nokkru sinni fýrr.
Þetta kom m.a. fram í máli
Carringtons lávarðar, aðalfram-
kvæmdastjóra NATO, á fundi með
fréttamönnum á Hótel Sögu í gær.
Hann tók það ennfremur fram, að
bandalagið reiði sig, að því er styrk
þess varðar, á að Atlantshafið þjóni
sem brú milli Norður-Ameríku og
Vestur-Evrópu. ísland væri í vissum
skilningi hluti af þessari brú. Alveg
eins og landið öðlast aukið öryggi
með bandalagi sínu við nágrannana
báðum megin Atlantshafsins, þá
styrki það bandalagið með framlagi
sínu og þeirri aðstöðu, sem það láti
í té til eflingar sameiginlegum
vörnum bandalagsins.
Carrington kvaðst heimsækja öll
aðildarlönd Atlantshafsbandalags-
ins helzt eigi sjaldnar en einu sinni
á ári. Þó að tækifæri gæfist til
þess að ræða við utanríkisráðherra
aðildarlandanna að minnsta kosti
tvisvar á ári skipti það ekki síður
máli að sjá löndin í reynd og geta
þannig kynnt sér frá fyrstu hendi
þau vandamál, sem þau ættu við
aðetja.
Carrington var spurður um af-
stöðu bandalagsins til þess, að ís-
land hefði ákveðið að taka meiri
þátt í hernaðarsamstarfi bandalags-
ins en áður. Svaraði hann því á
þann veg, að sérhvert aðildarland
NATO tæki sjálft ákvörðun um
það, að hve miklu leyti það tæki
þátt í starfsemi bandalagsins á
hverju sviði út af fyrir sig.
Sem aðalframkvæmdastjóri
NATO kvaðst hann hins vegar
fagna því, að íslenzka stjórnin
hygðist taka meiri þátt í hernaðar-
samvinnunni innan NATO. En það
væri algerlega á valdi íslendinga
að ákveða, hversu langt og hve
mikið þeir vildu leggja af mörkum
í þessu tilliti. Það væri aftur á móti
augljóst, að því meira sem aðildar-
þjóðirnar legðu af mörkum til
bandalagsins, þeim mun betra væri
það fyrir það.
Carrington lávarður var spurður
álits á atburðum þeim, sem orðið
hefðu á Sidraflóa við norðurströnd
Líbýu. Kvaðst hann ekki telja skyn-
samlegt, að hann færi að tjá sig
um þá nú. Bandaríkjamenn hefðu
staðið í nánu sambandi við banda-
lagsríki sín og skýrt jafnóðum frá
því, sem þarna hefði gerzt. Það
væri býsna ljóst, að það, sem gerzt
hefði, hefði átt sér stað á alþjóða
siglingaleið.
Sjá ennfremur ræðu Carr-
ingtons lávarðar á fundi
SVS og Varðbergs á bls. 7.
Morgunblaðið/RAX
Carrington lávarður, aðalframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalags-
ins, á fréttamannafundinum á Hótel Sögu í gær.
Þjóðhagsstofnun kannar
upplýsingar um fátækt
RÍKISSTJÓKNIN hefur falið
Þjóðhagsstofnun að gera ýtar-
lega úttekt á upplýsingum þeim
um f átækt hér á landi, sem f ram
komu á nýlegri ráðstefnu Sam-
bands félagsmálastjóra. Alex-
ander Stefánsson, félagsmála-
ráðherra, greindi frá þessu við
utandagskrárumræður á Alþingi
í gær iuu framkvæmd fátæktar-
laga.
Guðrún Helgadóttir, þingmaður
Alþýðubandalagsins, hóf umræð-
una og sagði, að almenn laun í
landinu væru langt undir fram-
færslukostnaði. Svavar Gestsson,
formaður Alþýðubandalagsins,
sagði að rekja mætti fátæktina tií
stjórnarstefnu núverandi ríkis-
stjórnar er tæki fjármagnið fram
yfir fólkið. Eyjólfur Konráð Jóns-
son, þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, taldi hins vegar að fátækt hefði
verið að grafa um sig á verðbólgu-
árunum, en síðasta vinstri stjórn
falið hana með erlendum lántökum.
Sjá nánar á þingsíðu bls. 30.
Leitarmenn bíða af sér
f oráttuveður í Bjarnarhíði
Egilgstöðum, 25. mars.
NOKKRIR félagar úr Björgun-
arsveitinni Gró á Egilsstöðum,
sem leituðu fjögurra manna
frá Stöðvarfirði og Fáskrúðs-
firði á fjöllum norðaustur af
Vatnajökli í gær og nótt, biðu
í kvöld af sér foráttuveður í
sæluhúsinu Bjarnarhíði við
Hvildarkletta fremst i Leiru-
dal, miðja vegu milli Horn-
brynju og Ódáðavatna. Þangað
komu leitarmennirnir í gær en
vegna illviðris og gangtruflana
í snjóbíl og vélsleðum komust
þeir ekki lengra. Ætluðu þeir
ekki að leggja af stað til byggða
fyrr en veður gengi niður.
Pjórmenningarnir, sem hafin
var leit að á Jökuldals- og Fljóts-
dalsheiðum, komu heilir á húfi til
byggða laust fyrir kl. 17 í dag.
Það var bóndinn í Höskuldsstaða-
seli í Breiðdal, sem tilkynnti
stjórnstöð Björgunarsveitarinnar
Gróar á Egilsstöðum að fjórmenn-
ingarnir væru komnir þangað
heilir á húfi.
Fjórmenningarnir, Svavar Ing-
ólfsson, Guðlaugur Unnarsson og
Magnús Aðils Stefánsson frá
Stöðvarfírði, og Guðbjörn Sigur-
pálsson frá Vík í Fáskrúðsfirði,
héldu til heiða upp úr Breiðdal á
fjórum vélsleðum á laugardaginn
og hugðust koma til byggða aftur
á sunnudag. Þeir eru allir vanir
fjallamenn og voru vel búnir til
farar nema hvað talstöð höfðu
þeir enga. Þegar fjórmenningarn-
ir höfðu ekki skilað sér til byggða
á mánudag var Björgunarsveitinni
Gró á Egilsstöðum gert viðvart
og var leitarflokkur sendur til
fjalla í gærkvöld til að svipast um
Skálinn í Geldingafelli
eftir mönnunum.
I morgun náðu leitarmenn til
sæluhússins. í gestabók þess
mátti sjá, að fjórmenningarnir
hefðu komið þangað á laugardeg-
inum og dvalist þar um klukku-
stund en ráðgert að halda þaðan
f skálann í Geldingafelli.
Þangað náðu þeir á laugardag
og héldu sig þar vegna illviðris
þar til um sjöleytið í morgun, að
þeir héldu til byggða og náðu að
rata rétta leið eftir áttavita og
kennileitum. Þeir voru vel á sig
komnir þegar þeir komu í Hösk-
uldsstaðasel kl. 17 í dag en urðu
hinsvegar að skilja einn sleðann
eftir skammt frá Bjarnarhíði
vegna bilana.
Leitarmenn í Bjarnarhfði eru
enn ókomnir til byggða, eins og
fyrr segir, en leitarflokkum, sem
lögðu af stað til leitar í dag, var
hinsvegar snúið við og eru þeir
nú komnir til síns heima. Alls tóku
tólf manns beinan þátt í leitinni
á snjóbflum og snjósleðum auk
fjölmargra leitarmanna, sem voru
reiðubúnir til leitar ef þörf krefði.
— Ólaf u r
Akureyri:
Listi sjálf-
stæðismanna
ákveðinn
Akurcyri.
Framboðslisti Sjálfstæðis-
flokksins á Akureyri fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar í vor var
endanlega ákveðinn í gærkvöldi.
Listinn er þannig:
1. Gunnar Ragnars, 2. Sigurður J.
Sigurðsson, 3. Bergljót Rafnar, 4.
Björn Jósef Arnviðarson, 5. Tómas
Gunnarsson, 6. Guðfinna Thorla-
eius, 7. Jón Kr. Sólnes, 8. Eiríkur
Sveinsson, 9. Björg Þórðardóttir,
10. Bárður Halldórsson, 11. Þor-
björg Snorradóttir, 12. Gunnlaugur
Búi Sveinsson, 13. Nanna Þórs-
dóttir, 14. Júlíus Snorrason, 15.
Arni Stefánsson, 16. Hólmgeir
Valdimarsson, 17. Sigríður Valdi-
marsdóttir, 18. Davíð Stefánsson,
19. Ingi Þór Jóhannesson, 20.
Sverrir Leósson, 21. Margrét Krist-
insdóttir, 22. Jón G. Sólnes.
Hlutafjáraukning
Arnarflugs:
Frestur fram-
lengdur um
hálfan mánuð
STJÓRN Arnarflugs hefur
ákveðið að framlengja til 7.
apríl frest fyrir nýja hluthafa til
að ganga frá hlutafjárloforðum
sínum.
Ástæðan mun vera sú, að sam-
steypa aðila í ferða- og flutninga-
þjónustu, sem sýnt hefur áhuga á
kaupum bréfa í félaginu, telur sig
þurfa meiri tíma til að kynna sér
ýmis mál í rekstri Arnarflugs, svo
og tíma til að útfæra nánar hug-
myndir sínar um breytingar þar á.
Hluthafar í Arnarflugi heimiluðu
stjórn félagsins fyrr í vetur að bjóða
út allt að þreföldun hlutafjár félags-
ins, þ.e. úr liðlega 46 milljónum
króna í allt að tæpar 97 milljónir,
til að bæta eiginfjárstöðu þess.
Ekki er talið ólfklegt, að verði úr
kaupum áðurnefndrar samsteypu
verði hlutaféð alls um 60 milljónir.
Metsala hjá
Smáey VE
VcHÍniann.'U'yjuni, 25. mars.
MJÖG gott verð hefur fengist
fyrir gámafisk í Englandi síðustu
daga. í morgun f ékk Smaey VE
eitt hæsta meðalverð úr einum
gámi, sem um getur, eða röskar
83 krónur fyrir hvert kíló.
Alls voru í þessum gámi 15.650
kíló af ýsu, þorski og kola. Fyrir
þetta magn fengust 21.418 sterl-
ingspund, eða 1,3 milljónir króna.
Meðalverð fyrir þorskkílóið var 85
krónur, 86 krónur fyrir stórýsu og
69 krónur fyrir kola. 90% aflans
fóru f hæsta gæðaflokk.
Hið nýstofnaða fisksölufyrirtæki
Péturs Björnssonar, ísberg, annað-
ist þessa sölu fyrir útgerð Smaeyjar.
- hkj.