Morgunblaðið - 26.03.1986, Blaðsíða 4
4
MOKGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ1986
Mjólkurdreifing í samt lag í dag:
Frumhlaup Alþingis
— segir formaður Mj ólkurfræðingafélagsins og
spáir endurmati á kjarabaráttu verkalýðsfélaga
„VIÐ HÖRMUM þessi vinnubrögð, sem við teljum frumhlaup af
hálfu meirihluta Alþingis. Það var aldrei gefið tækifæri til að ræða
málin og láta reyna á það, hvort samningar tækjust,“ sagði Geir
Jónsson, formaður Mjólkurfræðingafélags íslands, í samtali við
Morgunblaðið i gær, en frumvarp ríkisstjórnarinnar um að stöðva
verkfall mjólkurfræðinga var samþykkt á Alþingi i fyrrinótt.
„Eftir að ákveðið var að beita áhrif á okkar kjarabaráttu og raun-
lögum gegn okkur höfðu vinnuveit-
endur náttúrlega engan áhuga á
að ræða við okkur um samninga,"
sagði Geir. „Þessi niðurstaða á
vafalaust eftir að hafa talsverð
ar baráttu fleiri — menn hljóta að
fara að hugsa sinn gang þegar það
er orðið ljóst, að það skiptir engu
máli á hvaða hátt verkalýðsfélögin
afgreiða þá samninga, sem gerðir
„Eins og Óvinur-
inn les Biblíuna“
- segir Davíð Scheving Thorsteinsson
um skilning fjármálaráðherra á
orðum hans um lækkun raunvaxta
„ÉG FÆ ekki skilið hvað fjár-
málaráðherra á við með því, að
það sé sósialismi að reyna að
draga úr halla ríkissjóðs með
þvi að hann gangi á undan og
lækki útgjöld sín með því að
lækka vexti á sínum skuldabréf-
um,“ sagði Davíð Scheving Thor-
steinsson í samtali við Morgun-
blaðið vegna þeirra ummæla
Þorsteins Pálssonar fjármála-
ráðherra, að hann vonaði að
Davið væri ekki svo mikill sósíal-
isti, að hann héldi unnt að lækka
raunvexti með einu pennastriki.
„Ég fæ heldur ekki skilið, að það
sé sósíalismi að vilja draga úr verð-
bólgu á íslandi," bætti Davíð við.
„Og ég fæ ekki skilið, að það sé
sósíalismi að vilja að raunvextir á
Islandi séu í samræmi við þá raun-
vexti, sem helstu viðskiptaþjóðir
okkar búa við. Að leggja þann skiln-
ing í orð mín minnir mig óneitan-
lega á það sem sagt er, hvemig
Óvinurinn les Biblíuna — þ.e.a.s.
aftur á bak og með öfugum klónum.
Ég vil draga úr verðbólgunni og
halla ríkissjóðs og það geri ég með
því að Iækka útgjöld hans. Jafnhliða
því mun draga úr útgjöldum fyrir-
tækjanna og þau munu lækka verð
á vörum sínum öllum til hagsbóta.
Fjármálaráðherra gat hækkað
vexti á þessum keðjubréfum sínum
með einu pennastriki og þá ætti
hann að geta lækkað þá á sama
hátt,“ sagði Davíð Scheving Thor-
steinsson að lokum.
eru af stóru heildarsamtökunum,"
sagði Geir. „Menn eru mjög ósáttir
við þessa niðurstöðu — en lög eru
lög og þeim munum við hlíta. Það
er hinsvegar ljóst að vinnuveitend-
um hefur tekist að semja við heild-
arsamtökin og loka algjörlega á
allar sérkröfur. Við erum ekki
ánægðir með að ASÍ skuli hafa
tekið þátt í þessu og ég tel að nú
hljóti að koma til þess að menn
fari að leita nýrra leiða við gerð
kjarasamninga." Geir bætti við að
honum þætti „synd að flokkur allra
stétta, eins og hann kallar sig, skuli
standa fyrir þessu."
Mjólkurfræðingar sneru aftur til
vinnu fljótlega eftir kl. 13 í gær,
þegar forseti Islands hafði staðfest
lög Alþingis um stöðvun á verkfalli
félags þeirra. Stjórn félagsins hélt
fundi með félagsmönnum sínum í
Reykjavík og á Seifossi í gær og
hyggst halda fleiri fundi með fé-
lagsdeildum víðsvegar um landið á
næstu dögum.
Vinna var að færast í eðlilegt
horf í mjólkurbúunum síðdegis í
gær og var talið að pökkun og
dreifíng á mjólk og mjólkurvörum
yrði komin í eðlilegt horf f dag.
Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri
Mjólkursamsölunnar í Reykjavík,
sagði að verið væri að vinna upp
þann tíma, sem tapast hefði vegna
sólarhringsverkfalls mjólkurfræð-
inga. „Vegna þess hve miklar birgð-
ir lágu hér fyrir á mánudagsmorgun
þegar verkfallið hófst fór dreifing-
arkerfið nokkuð úr skorðum enda
er plásslítið hjá okkur og þrengslin
töfðu vinnu á mánudaginn. Eg á
von á að þetta verði komið í samt
lag síðdegis á morgun (miðviku-
dag),“ sagði hann.
Morgunblaðið/Júlíus
Svona voru þeir útleiknir, sumir bílanna í Brekkuhverfi Kópavogs,
þegar eigendurnir komu á fætur í gærmorgun.
Sjötíu bílar
skemmdir í
Kópavogi
RÚMLEGA 70 bílar voru skemmdir í nágrenni lögTeglustöðv-
arinnar í austurhluta Kópavogs i fyrrinótt. Á flestum bílanna
voru brotnir hliðarspeglar, brotin af loftnet, brotnar rúður
í nokkrum og jafnvel mælaborð. Kópavogslögreglan leitaði í
gær tveggja unglingspilta, sem sáust á hlaupum á þessum
slóðum þegar uppvist varð um skemmdarverkin.
Það var um þrjúlejrtið í fyrri-
nótt, að lögreglunni barst tilkynn-
ing um rúðubrot í versluninni
Brekkuvali í Hjallabrekku.
Skömmu síðar sáust tveir piltar á
hlaupum um götu, þar sem bflar
höfðu verið skemmdir, og hafði
lögeglan lýsingu á þeim. Eftir
því sem leið á morguninn bárust
fleiri tilkynningar um skemmda
bfla, eina 30 í Lyngbrekku, 15 í
Selbrekku og svo nokkra í Daltúni,
Eimskip um lýsingu skipstjórans á Goðafossi:
Fengum ekki upplýsingar um
að ástandið væri svo slæmt
Þverbrekku, Hjalla-
Túnbrekku og Lauf-
Ástúni,
brekku,
brekku.
Engu hafði verið stolið úr bflun-
um og sagði lögregiuvarðstjóri í
Kópavogi í gærmorgun, að svo
virtist sem skemmdarfíknin ein
hefði ráðið gerðum varganna.
Bareflið, sem notað hafði verið,
var fundið og reyndist það vera
vírvafningur með blýklump á
endanum, einskonar vírstrekkjari,
að því talið var.
Lögregluvarðstjórinn taldi ekki
ólíklegt, að eigendur bflanna
þyrftu sjálfír að bera tjónið því
þótt piltamir næðust væru þeir
varla borgunarmenn fyrir svo
miklum skemmdum og óvíst væri
með bótaskyldu foreldra þeirra.
Félag starfsfólks
Allur öryggisbúnaður samkvæmt reglum
LÝSING Steinars Magnússonar, skipstjóra á Goðafossi Eimskipafé-
lags Islands, á barningi skipverja á vélarlausu skipinu á Atlantshafi
fyrr í þessum mánuði kom yfirmönnum Eimskips nokkuð á óvart
þegar þeir lásu hana i Morgunblaðinu í gær. „Við fengum ekki þær
fréttir frá skipinu, að ástandið væri jafn slæmt og hann lýsti því í
viðtalinu í MorgunbIaðinu,“ sagði Garðar Þorsteinsson, forstöðumað-
ur stórflutningadeildar Eimskips, i samtali við blm. Morgunblaðsins
í gær. „Allar ákvarðanir hér heima um hvemig best væri að standa
að málurn vora byggðar á þeim upplýsingum, sem við fengum frá
skipstjóranum á Goðafossi," sagði hann.
Stóru bátarnir
sökkva ekki
Viggó Maack, skipaverkfræðing-
ur hjá Eimskip, sagði að gagnrýni
skipstjórans á öryggisútbúnaði
skipsins hlyti að vera á misskilningi
byggð. „Það er til dæmis rangt að
stóru björgunarbátamir myndu
sökkva um leið og þeir fylltust af
sjó — þeir eru með flothólfum og
sökkva ekki,“ sagði Viggó en bætti
við að vissulega væri rétt, að erfítt
gæti reynst að koma þeim frá borði
í vondu veðri, eins og verið hefði á
hafínu meðan Goðafoss rak þar
vélarvana.
Samkvæmt lýsingu Steinars
Magnússonar skipstjóra í blaðinu í
gær var aftakaveður á hafinu í
nokkra daga á meðan beðið var
eftir dráttarbáti frá Bandaríkjunum
og stóðu menn ýmist í tæmar eða
á höfði í kojum sínum þegar verst
var. Lýsing hans benti til, að veður
hefði verið verra en fréttir hér
heima hermdu. „Við gáfum upp
veður eftir upplýsingum, sem við
fengum frá skipinu," sagði Garðar
Þorsteinsson, „og þær fréttir vom
ástæða þess að við létum leiguskipið
Doris bíða hjá Goðafossi eftir drátt-
arbátnum í hálfan annan sólar-
hring. Þá taldi skipstjórinn ástæðu-
laust að skipið biði lengur. Við
fengum aldrei aðrar fréttir en að
allt væri í lagi — skipstjórinn er
æðstur um borð og honum er fylli-
lega treyst til að meta aðstæður."
Biluð talstöð og drátt-
arbáturinn seinn
Garðar sagði að það hefði einkum
verið tvennt, sem gerði málið erfið-
ara en ella. „Það versta var að
talstöðin skyldi bila — eftir það
urðum við að notast við skeytasend-
ingar á merkjamáli og jafnvel í
gegnum Grænland," sagði hann.
„Það er að vísu telex um borð í
Doris og það gátum við notað
meðan hún var á staðnum en vissu-
lega var það mjög bagalegt að geta
ekki rætt beint við skipstjórann um
taistöð, það hefði áreiðanlega dreg-
ið úr kvíða þeirra um borð og okkar
og aðstandenda hér heima. Hitt var
að dráttarbáturinn var tveimur
dögum lengur á leiðinni að skipinu
en útgerð hans hafði talið í fyrstu
og það varð ekki ljóst fyrr en á
föstudagskvöldið. Við fengum aldr-
ei neinar upplýsingar, sem bentu
til að skipið eða áhöfnin væru í
hættu og eftir að Goðafoss var
kominn í tog var náttúrlega engin
hætta á ferðum".
Hann sagði að ástæða þess að
ákveðið hefði verið að draga skipið
til Nýfundnalands frekar en til ís-
lands hefði helst verið sú, að Goða-
foss hafi verið á leið til Bandaríkj-
anna „og eftir að farið er að draga
skip á annað borð skiptir ekki svo
miklu máli hvort það er 200 mílum
meira eða minna.“
Flotgallar í Álafossi
og Eyrarfossi
Í frásögn fréttaritara Morgun-
blaðsins í Bandaríkjunum af hrakn-
ingum Goðafoss kom einnig fram
gagnrýni Steinars skipstjóra á
ónógan öryggisútbúnað um borð í
skipinu. Orðrétt sagði hann: „Björg-
unartæki á íslenskum skipum eru
léleg. Við hefðum alla vega farið í
sjóinn og hann er svo kaldur, að
maður hefur aðeins örfáar mínútur
til umráða. Á öllum íslenskum skip-
um eru lífbeltin léleg. Björgunar-
gallar, það er að segja flotgallar,
eru það eina sem hefðu bjargað
okkur en þeir eru ekki í íslenskum
skipum. Það hefur verið talað um
að bæta úr þessu frá því Tungufoss
fórst en það hefur ekki verið gert."
Þetta sagði Viggó Maack að
væri rangt. ;,Um borð í tveimur
okkar skipa, Álafossi og Eyrarfossi,
eru svokallaðir flotgallar á alla
skipshöfnina og hefur verið í nærri
tvö ár þótt þess sé ekki krafist af
Siglingamálastofnun,“ sagði hann.
„Skipveijamir völdu þessa galla
sjálfir og það segir nokkuð um þá
flotbúninga, sem hér eru á markaði,
að á þessum tveimur skipum eru
gallamir af mismunandi gerð. Gall-
amir em afskaplega misjafnir og
það sem einum fínnst henta finnst
hinum næsta ekki gott. Það mun
vera hugmynd forráðamanna þessa
félags að flotgallar verði um borð
í öllum skipunum enda er það smám
saman að verða í nágrannalöndun-
um. Ástæða þess, að flotbúningar
hafa verið settir um borð í Eyrarfoss
og Álafoss á undan öðrum skipum
er einfaldlega sú, að þau skip eru
mjög borðhá og erfitt að koma
öðrum björgunartækjum við ef
mikið liggurá.“
í veitingahúsum:
Leitar verk-
fallsheimildar
STJÓRN og samninganefnd Fé-
lags starfsfólks í veitingahúsum
hefur ákveðið að leita eftir heim-
ild til verkfallsboðunar takist
ekki samningar í deilu félagsins
við veitingamenn í Sambandi
veitinga- og gistihúsaeigenda.
Samningur ASÍ og vinnuveitenda
var felldur á fundi í félaginu og
klukkustundarlangur sáttafundur í
deilunni hjá ríkissáttasemjara á
mánudagsmorgun varð árangurs-
laus.
„Við neyðumst til að sýna klæm-
ar hægt og bítandi ef þeir vilja
ekkert við okkur tala,“ sagði Sig-
urður Guðmundsson, formaður fé-
lagsins, í samtali við blm. Morgun-
blaðsins eftir samningafundinn.
Hann kvað ákveðið að leita eftir
verkfallsheimild á félagsfundi 2.
apríl næstkomandi og taldi ólíklegt,
að annar sáttafundur yrði haldinn
fyrir þann tíma.
Vinnuveitendasambandið telur
að kröfur félagsins feli í sér um
100% kauphækkun. VSÍ hefur
hafnað sérkröfum Félags starfs-
fólks í veitingahúsum fyrir hönd
veitingamanna en ítrekað boð sitt
um ASÍ/VSÍ-samninginn frá 26.
fyrra mánaðar.