Morgunblaðið - 26.03.1986, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1986
51
iBfife. *""
w .. ¦ / It"1 ¦'¦'¦ :|H
^m* w
í<* Wæ 'JB* WSP^ f
wt/F<' %m
¦ájjB^mk- -^ p>**^ " * § * J^HggjE
M
¦ ^^^ /**-* ~*
Pétur lék vel
með Lakers í
sínum fyrsta leik
Frá Jónasi Egilssyni, f réttaritara Morgunbiaðsins l Bandarikjunum.
• Jabbar viröist skemmt á varamannabekknum hjá Lakers. Á mánu-
daginn lék Pótur Guðmundsson í stöftu Jabbar og stóft sig vel.
PÉTUR Guðmundsson lcörfu-
knattleiksmaður lék sinn fyrsta
leik með Los Angeles Lakers á
mánudagskvöldið er liðið lók við
San Antonio Spurs. Petur þótti
standa sig með miklum ágœtum
og dagblöðin hér hrósa honum á
hvert reipi. Hann skoraði 14 stig,
tók níu fráköst og varði tvö skot
frá andstæðingunum. Þess rná
geta að Pétur lók með í 20 mínút-
ur og lék að mestu fyrir Kareem-
Abdul Jabbar sem hefur verið
einn aðalmáðurinn í liði Lakers.
Lakors tryggði sér með þessum
sigri sæti í úrslitakeppninni og
Dalglish leikur
sinn 100. leik
blöðin segja að Pétur hafi átt
mikinn þátt í sigrinum. Þjálfari
Lakers, Pat Riley, segir í viðtali við
LA Times að hann sé ánægður
með frammistöðu Péturs í leikn-
um.
„Pétur er leikmaður sem veit
nákvæmlega hvað hann er að
gera. Ég er mjög ánægður með
leik hans í kvöld og miðað við að
hann æfði aðeins með liðinu f hálfa
klukkustund fyrir þennan leik er ég
mjög ánægður með árangurinn
sem hann náði í leiknum."
Þjálfarinn og leikmenn Lakers
taka í sama streng og Scott, einn
besti maður Lakers, sogir meðal
annars í blaðaviðtali: „Pétur er
góður leikmaður og hann er mjög
harður af sér. Hann gæti orðið
góður leikmaður í NBA-deildinni."
Eins og við skýrðum frá í gær
gerði Pétur tíu daga samning við
Lakers. Samningurinn var gerður
mánudaginn 17. mars og rennur
því út í dag. Lakers getur gert
annan tíu daga samning við Pétur
en síðan verða þeir að ákveða sig
hvort þeir bjóða honum samning
út keppnistímabilið eða ekki.
í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði blaðafulltrúi Lakers, Rosen-
feld að nafni, að sér þætti líklegt
að liðið gerði annan tíu daga
samning við Pétur. „Þeir hljóta að
gera annan samning við hann því
Pétur stóð sig svo vel gegn Spurs.
Strákarnir leika aftur í kvöld (í
gærkvöldi) í Denver og Pétur leikur
þar með. Ef hann leikur eins og
gegn Spurs er ég ekki í nokkrum
vafa um að hann fær samning."
Ef Pétur fær samning við Lakers
er ekki ólíklegt að íslenskir körfu-
knattleiksunnendur fái að sjá hann
leika í sjónvarpinu.
Frá Bob Honnossy, fróttaritarn Morgunblaðsins á Englandi.
KENNY Dalglish, leikmaður og
stjóri Liverpool, leikur í kvðld sinn
eitt hundraðasta landsleik fyrir
Skotland þegar þeir mæta Rúm-
eníu 1 Glasgow. Daglish var f gær
heiðraður sérstaklega af borgar-
stjóranum f Glasgow og voru
honum afhentir lyklarnir af borg-
inni en Dalglish er fæddur í Glas-
gow.
Tveir nýliðar verða í skoska lið-
inu að þessu sinni, þeir Pat Nevin
frá Chelsea, og markvörður Old-
ham, Andy Goram, en Jim Loigh-
ton er meiddur, puttabrotnaði á
æfingu á mánudaginn og getur
því ekki leikið með.
írar leika við Wales í kvöld og
er þetta fyrsti landsleikur íra undir
stjórn Jacky Charlton. Tveir nýliðar
Anna María vann
Helgubikarinn
- ekki tókst að Ijúka karlakeppninni
Akureyri.
ANNA María Malmquist, Akur-
eyrí, hlaut Helgubikarinn fyrir aft
sigra bæði f svigi og stórsvigi á
Hermannsmótinu f alpagreinum
skíftaíþróttanna f Hlíðarfjalli við
Akureyrí um helgina.
Á laugardag var keppt í svigi
karla og stórsvigi kvenna og á
sunnudagsmorgun í svigi kvenna.
Skíði:
Daníel í
10. sætí
DANÍEL Hilmarson, landsliftmaft-
ur í alpagreinum, varð f 10. ssati
á sterku svigmóti í Austurríki f
síðustu viku.
Daníel keppti fyrst í svigi í Ziller-
tal í Austurriki og varð í 10. sæti
af 120 keppendum frá 15 þjóðum.
Daginn eftir keppti hann aftur í
svigi á sama stað og varð i 13.
sæti og hlaut 65 fis-stig. Hann var
þá tæpum fjórum sekúndum á eftir
fyrsta manni sem varfrá Noregi.
Daníel keppti einnig í svigi á
Evrópubikarmóti í Spital í Austur-
ríki og var þar dæmdur úr leik í
fyrri ferð. Daníel er nú kominn
heim og mun keppa á landsmótinu
sem verður í Bláfjöllum um pásk-
ana.
Stórsvigskeppni karla var frestað
vegna veðurs - en veður var leiðin-
legt í Hlíðarfjalli alla helgina. Daníel
Hilmarsson sigraði í svigi á laugar-
dag og ftefur því forystu í keppn-
inni um Hermannsbikarinn, ef svo
má segja. Jafnvel er talið að stór-
svigskeppnin fari alls ekki fram í
vetur. Ekki sé tími til að halda
hana og Hermannsbikarinn vinnist
þvíekki á þessu keppnistímabili.
Úrslit urðu annars sem hér
segir.
Svig karla:
Daníel Hilmarsson D1:38,85
Guðmundur Sigurjónss. A1:40,99
Björn Brynjar Gíslason A1:44,26
Ingólfur Gíslason A 1:44:45
Guðjón Ólafsson í 1:44,73
Alls tóku 15 skiðamenn þátt í
keppninni en hvorki meira né
minna en tíu þeirra hlekktist á í
brautinni - enda veður slæmt eins
og áður sagði. Skyggni lélegt.
Úrslit í stórsvigi kvenna á laug-
ardaginn urðu þessi:
Anna María Malmquist A 2:32,01
Nanna Leifsdóttir A 2:32,39
TinnaTraustadóttirÁrm. 2:33,93
Helga Stefánsdóttir ÍR 2:37,74
Gréta Björnsdóttir A 2:39,16.
Sjö keppendur hættu keppni þar
sem þeim hlekktist á.
Úrslit á sunnudag í sviginu urðu
þessi:
Anna María Malmquist A1:47,17
IngigerðurJúlíusdóttirD 1:52,15
Heiga Stefánsdóttir ÍR1:54,58
Bryndís Ýr Viggósdóttir A 2:58,43
Átta stúlkur hætti keppni í svig-
inu.
''verða í byrjunarliðinu og eru þeir
báðir úr Oxford. John Aldrige og
Ray Houghton.
Danir leika við N-l'ra og verður
það hálfgert varalið sem Danir
mæta með. í liðið vantar meðal
annars Lerby, Arneson og Elkjær
en þeir eru allir meiddir og geta
þvíekkileikiðmeð.
Svipaða sögu er að segja af
Englendingum sem leika við Sov-
étmenn. Öruggt er að Tony Wood-
cook leikur ekki með vegna
meiðsla og óvíst er um Gary Linek-
er, Mark Hateley og Glen Hoddle.
Hateley kom sérstaklega frá ítalíu
í þennan leik en er smávegis
meiddur og verður því ekki með.
Ef þessir kappar leika ekki gæti
það orðið til þess að Aston Villa-
leikmaðurinn Steve Hodge fengi
tækifæri og léki sinn fyrsta lands-
leikfyrirEngland.
• TómasJónssonþjálfariKFUM
Osló.
Morgunblaðið/Bjarni
• Páskamaturínn f pokanum og ávísunin f umslaginu hjá þeim
Guðjóni Guðmundssyni, Þorgils Óttarí Mathiesen og Guðmundi
Guðmundssyni.
Kjúklingar, egg
og 50.000 krónur
LANDSLIÐSMENN íslands f
handknattleik mættu f íþrótta-
miðstöðina f Laugardal um sfð-
ustu helgi þar sem þeim var
afhentur styrkur úr Landsliðs-
sjóði HSÍ fyrír frábæra framml-
stöðu á HM í Sviss fyrr f vetur.
Hverjum leikmanni var afhent
ávísun að verðmæti 50.000
króna, en sjóður þessi var settur
á laggirnar í vetur þegar undir-
búningur fyrír HM stóð sem
hæst. í stjórn hans eru Óláfur
B. Thors, Páll Bragi Kristjónsson,
Þórður Ásgeirsson, Einar Sveins-
son og Árnl Árnason.
Við sama tækifæri var landsliðs-
mönnum afhentur poki sem var
fullur af kjúklingum og eggjum frá
Holtabúinu á Hellu, en HSÍ hefur
gert samning við fyrirtækið aö
kynna vörur þess fram að Ólympíu-
leikunum í Seoul 1988. Holtabúið
ætlar að greiða HSÍ 50 aura af
hverju seldu kílói fram að leikunum
og er áætlað að þegar upp verði
staðið nemi fjárhæðin hátt á aðra
milljón.
Blakað um páskana
FIMM liða páskamót verður í
blaki yfir páskahátíðina og verður
leikið f Hagaskóla. Fjögur lift
verða frá íslandi en að auki leikur
lið KFUM Osló í mótinu en þaft
er íslondingurinn Tómas Jónsson
sem þjálfar lift Osló og hefur gert
sfðan hann hætti að leika með
llðinu.
Tvö íslensku liðanna verða
mynduð úr landsliðshópi þeim sem
æfir nú af kappi fyrir Norðurlanda-
mótið sem haldið verður í Kópa-
vogi í maí, og mun Björgólfur Jó-
hannsson landsliðsþjálfari stjórna
báðum liðunum og að auki hafa
tveir þekktir blakarar valið tvö
önnur lið sem þeir munu stjórna.
Fyrstu leikirnir verða á morgun
og hefst fyrri leikurinn klukkan 19
en sá síðarí klukkan 20.30. Á iaug-
ardaginn verða síðan fjórír leikir
og sömu sögu er að segja á mánu-
daginn. Tvo seinni daga mótsins
hefst keppni kiukkan 12 á hádegi
og stendur fram undir 18 á daginn.
Leikmenn KFUM Osló eru ís-
lenskum blökurum að góðu kunnir
því liðið lék við Þrótt í Evrópu-
keppninni fyrir nokkrum árum. Fé-
lagið varð í fimmta sæti í deildinni
norsku í ár og er félagið eitt
stærsta blakfélag Noregs. Þjálfari
þess er Tómas Jónsson sem leikið
hefur 28 landsleiki fyrir ísland.
Hann lék í mörg ár með liðinu en
hætti því í vetur er hann tók við
sem þjálfari þess en ekki er ólíklegt
að hann leiki eitthvað með í þess-
ari ferð.