Morgunblaðið - 26.03.1986, Blaðsíða 40
r
I 40
j
MORGUNBLAÐID, MIDVIKUDAGUR 26. MARZ1986
m
fclk í
fréttum
Viltu langar neglur,
kúptar, beínar... ?
Búið að steypa eina nbgl.
Hvernig fer hún að því að hafa
svona langar og fallegar
neglur? Hugsunin hefur líklega
hvarflað að mörgum konum um
leið og þær hafa horft öfundaraug-
um á langar og línufagrar neglur
tískukvenna til dæmis á síðum tíma-
rita. En í dag þurfa þær sem hafa
nagað neglurnar ekki að bera pipar
á þær eða hafa hanska til að freist-
ast ekki, því hægt er að fara á stofu
og fá þær af hvaða lengd og gerð
sem hugurinn girnist.
Það var bankað upp á hjá Ebbu
Kristinsdóttur og fylgst með um
stund, en hún vinnur við að lengja
neglur fólks.
„Ég hef verið búsett í Bandaríkj-
unum undanfarin sjö ár," sagði
Ebba, „og þar hefur þetta farið eins
og eldur í sinu. Þá hef ég einnig
haft áhuga fyrir snyrtingu og ákvað
að fara í nám henni tengdri. Skól-
inn, „The Industry of Nail Techn-
ology" varð fyrir valinu og þetta
var hálfsárs nám. Sem sérgrein tók
ég kostinn að læra að búa til það
sem ég vinn við og kalla Akrýl-
neglur. Þetta er ekki eins og þær
gervineglur sem hafa verið við lýði
í tugi ára og kippt af heldur eru
þær fastar og eins og eigin neglur.
Eftir að hafa fengið þær í fyrsta
skipti þarf svo viðkomandi kona að
koma inn á 2ja eða 3ja vikna fresti
og láta snyrta þær og fylla upp f
skörðin sem myndast hafa, pví
auðvitað vaxa neglurnar á nokkrum
vikum.
Ég vann við þetta úti í nokkur
ár," heldur Ebba áfram, „en þegar
ég flutti svo heim fyrir stuttu fannst
mér að það hlyti að vera markaður
fyrir steyptar neglur hérna. Fólk
hefur tekið vel við sér. Við erum
nokkrir aðilar hérlendis sem höfum
orðið atvinnu af þessu."
' Á óskalistanum var að vera einhversstaðar þar sem loftið væri
hreint, umhverfið óspillt, við sjó og helst uppi í sveit sagði Virginia
Bolton.
Á f leygif erð
Elisabeth andreasson er hér á
fleygiferð, sem vera mun
nokkuð táknrænt fyrir hana.
Hún hefur nýlokið við gerð stórr-
ar plötu þar sem hún syngur ein
og hefur einnig samið nokkra text-
ana sjálf. í sumar ætlar hún í hljóm-
leikaferð án stöllu sinnar úr
„Bobbysocks", Hanne Krogh. Ekki
er þó hætta á að samstarf þeirra
sé á enda, því Elisabeth segist
mota það mira en nokkuð annað.
Ebba að vinna við neglur viðskiptavinar.
Morgunblaðið/BK
VIRGINIA BOLTON NEMI í LJÓSMYNDUN
Valdiísland
sem lokaverkefni
Elisabeth ein á ferð.
Bresk stúlka kom á Morgun-
blaðið fyrir nokkrum dögum
í þeim tilgangi að fá hjá einum ljós-
myndaranum mynd sem birtist í
blaðinu. Kom í ljós að umrædd
stúlka, Virginia Bolton, var stödd
hér á landi til að ljúka lokaverkefni
sínu í ljósmyndun.
„Ég hef stundað nám í ljósmynd-
un í fjögur ár og útskrifast í sumar.
Lokaverkefnið okkar felst í því að
velja eitthvað þema til að mynda.
' Flestir skólafélagar minna völdu
innitökur, ákváðu að taka tískuljós-
myndun, auglýsingar og svo fram-
yegis, en ég var ákveðin í að mynda
undir beru lofti. Á óskalistanum var
að vera einhversstaðar þar sem
loftið væri hreint, umhverfið óspillt,
við sjó og helst uppi í sveit. ísland
var því kjörið fyrir mig og ég sló
til. Þetta er í fyrsta skipti sem ég
ferðast svona alein og heima sitja
auðvitað foreldrar mínir með lífið í
lúkunum. Ég hughreysti þau og
segi hvernig móttökur ég fæ og hve
fólk er yfirleitt vingjarnlegt. Sem
dæmi get ég tekið að um daginn
fór ég ásamt stúlku sem býr með
mér á Farfuglaheimilinu til Hvera-
gerðis og í bakaleiðinni vorum við
teknar upp í af indælis hjónum. Þau
létu ekki nægja að keyra okkur í
bæinn, heldur fóru með okkur í
skoðunarferð, buðu okkur heim í
mat og sýndu okkur barnabörnin. ]
Þegar Virginia var spurð hvert
leiðin lægi núna sagðist hún vera
á leiðinni í Skaftafell þar sem hún
ætlaði að dvelja á bóndabæ, hjálpa
til við húsverkin um tíma og taka
myndir. Að því búnu færi hún hring-
inn í kringum landið og heim um
miðjan apríl. Þegar prófskírteinið
væri komið í örugga höfn færi hún
að kenna af fullum krafti og jafn-
framt að vinna sjálfstætt við ljós-
myndatöku.
COSPER
976Q COSPER—¦
Vertu ekkert óþolinmóður, þú ert næstur.
______
—